Morgunblaðið - 24.04.2013, Side 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
ÁTOPPNUM Í ÁR
KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
IRONMAN33D KL.3:40-5:20-6:20-8-9-10:40-11:40
IRONMAN32D KL. 5:20 -8 -10:40
IRONMAN3VIP KL. 5:20 -8 -10:40
OLYMPUSHASFALLEN KL. 5:30 -8 -10:30
BURTWONDERSTONE KL.8 -10:10
SIDEEFFECTS KL.5:50
KRINGLUNNI
IRONMAN3 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
OLYMPUSHAS FALLEN KL. 5:30 - 8 - 10:30
OBLIVION KL. 10:10
ÓFEIGURGENGURAFTURKL.5:50-8
IRONMAN3 3D KL. 5:20 - 7 - 8 - 10:40
IRONMAN3 2D KL. 9:40
OLYMPUSHAS FALLEN KL. 5:30 - 10:30
OBLIVION KL. 5:30 - 8 - 10:30
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
IRONMAN 3 3D KL. 8 - 10:40
IRONMAN 3 2D KL. 10
THE CALL KL. 8 AKUREYRI
IRONMAN 3 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
OLYMPUS HAS FALLEN KL. 8 - 10:40
ÓFEIGURGENGURAFTUR KL. 6
H.S. - MBL
WALL STREET JOURNAL
TIME
STÓRMYNDIN SEM TEKIN
VAR UPP Á ÍSLANDI
T.K., KVIKMYNDIR.IS
H.V.A. FRÉTTABLAÐIÐ
MÖGNUÐ GRÍNMYND
STEVE CARELL JIM CARREY
FRÁ LEIKSTJÓRA TRAINING DAY
OG HANDRITSHÖFUNDINUM KATRÍN BENEDIKT
GRJÓTHÖRÐ SPENNUMYND
Í ANDA DIE HARD
ROBERT DOWNEY JR. GWYNETH PALTROW
BEN KINGSLEY GUY PEARCE
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR
KEMUR FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS
Þú færð GO walk skó í
Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni
og Smáralind | Intersport Lindum, Kópavogi | Skóhöllinni Firði,
Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi
Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið, Akureyri | Mössuskór, Akureyri
Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn
í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum
Skóbúðin, Keflavík
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Kristín Guðrún Jónsdóttir hlaut í
gær Íslensku þýðingarverðlaunin,
sem Bandalag þýðenda og túlka
veitir árlega. Verðlaunin hlaut hún
fyrir þýðinguna á Svarti sauðurinn
og aðrar fabúlur eftir Augusto Mon-
terroso sem Bjartur gaf út í fyrra.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti af-
henti verðlaunin á Gljúfrasteini, á
fæðingardegi Halldórs Laxness.
Fimm þýðingar voru tilnefndar.
Auk sagna Monterrosos voru það
Allt er ást eftir Kristian Lundberg í
þýðingu Þórdísar Gísladóttur; Ari-
asman eftir Tapio Koivukari í þýð-
ingu Sigurðar Karlssonar; Hjalt-
landsljóð, tvímála útgáfa ljóða eftir
samtímaskáld frá Hjaltlandseyjum í
þýðingu Aðalsteins Ásbergs Sig-
urðssonar; og Sá hlær best …!
sagði pabbi eftir Gunnillu Berg-
ström í þýðingu Sigrúnar Árnadótt-
ur.
Kristín Guðrún er aðjunkt í
spænsku við Háskóla Íslands. Hún
segist hafa þýtt hinar kunnu örsög-
ur Monterrosos (1921-2003) að eigin
frumkvæði og skrifaði einnig eftir-
mála. Höfundurinn var frá Gvate-
mala en starfaði aðallega í Mexíkó.
Þekktur og virtur höfundur
Kristín Guðrún kveðst ánægð
með viðurkenninguna, ekki síst
vegna þess að þetta sé „stutt, lítið
klassískt verk, með stuttum sögum,
og mér finnst ánægjulegt að slíkt
verk hljóti viðurkenningu,“ segir
hún.
„Ég kynntist bókinni í Mexíkó
snemma á námsárum mínum, lík-
lega árið 1982, og hreifst strax af
henni. Svo liðu árin og loks ákvað
ég að þýða bókina, því mér fannst
hún eiga erindi. Þetta er tímalaus
bók, skemmtileg og tvíræð. Ég taldi
að samlandar mínir kynnu að hafa
gaman af þessu verki.“
Kristín segir Monterroso vera
mjög þekktan og virtan höfund í
hinum spænskumælandi heimi.
„Margir góðir höfundar hafa orðið
útundan og ekki komist inn á mark-
aðinn í Evrópu eða í Bandaríkj-
unum og hann er einn af þeim,“
segir Kristín.
„Fólk veit ekki alltaf hvernig á að
taka þessum stuttu textum, eins og
sést á því að í sumum búðum eru
sögurnar settar hjá ljóðabókum.“
Kristín hefur á undanförnum ár-
um þýtt töluvert, einkum ör- og
smásögur. „Það var sérstaklega erf-
itt að þýða Svarta sauðinn, því sög-
urnar eru svo margræðar. Í þeim er
húmor og háð og það getur verið
erfitt að ná tvíræðninni, auk þess
sem stíll höfundarins er mjög
knappur. Þá er Monterroso iðulega
með margar innskotssetningar og
það gat verið erfitt að koma því vel
til skila,“ segir hún.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þýðandinn Forseti Íslands afhenti Kristínu Guðrúnu Jónsdóttur Íslensku
þýðingarverðlaunin í gær, fyrir Svarta sauðinn og aðrar fabúlur.
Kristín Guðrún hlaut
þýðingarverðlaunin
„Þetta er tímalaus bók, skemmtileg og tvíræð,“ segir hún
Bíó Paradís og sendiráð Póllands á
Íslandi standa fyrir hátíðinni Pólsk-
ir kvikmyndadagar sem hefst á
morgun, 25. apríl og stendur í fjóra
daga. Pólskir kvikmyndadagar eru
nú haldnir í þriðja sinn og er frítt
inn á allar myndir hátíðarinnar.
Myndirnar á hátíðinni eru fjórar og
verða sýndar með enskum texta.
Opnunarmynd hátíðarinnar er
Mój rower, eða Reiðhjól föður míns,
frá árinu 2012 og mun hún vera
grátbrosleg. Í henni segir af þrem-
ur kynslóðum í sömu fjölskyldu sem
fara í eftirminnilegt ferðalag. Um
myndina segir á vef Bíós Paradísar
að ferðalagið hafi ívið meiri áhrif á
tilfinningalíf ferðalanganna en þá
hafi áður grunað. Leikstjóri er
Piotr Trzaskalski og í aðalhlut-
verkum eru Michal Urbaniak, Art-
ur Zmijewski og Krzysztof Chodo-
rowski.
Róza er frá árinu 2011. „Magn-
þrungin saga sem fjallar um Rose,
konu frá Masuriu, sem stendur ein
eftir að þýskur eiginmaður hennar
var drepinn í stríðinu. Hún lifði eft-
ir í samfélagi þar sem lögmál frum-
skógarins ríkti og rússneskir her-
menn beittu nauðgunum í
hefndarhernaði, þar sem pólskir
íbúar stóðu uppi varnarlausir. Þeg-
ar Tadeusz, fyrrverandi yfirmaður
í pólska hernum, kemur til kast-
anna reynist hann Rose mikil hjálp í
lífinu,“ segir um þá mynd. Leik-
stjóri hennar er Wojciech Smar-
zowski og í aðalhlutverkum Marcin
Dorocinski, Agata Kulesza og Mal-
wina Buss. Piata pora roku, eða
Fimmta árstíðin, er frá árinu 2012.
Hún segir af bílstjóranum Witek og
tónlistarkennaranum Barböru sem
virðast ekki eiga neitt sameig-
inlegt. Bæði hafa þau misst maka
sína og liggja leiðir þeirra saman
þegar Barbara ætlar að grafa ösku
eiginmanns síns við sjávarsíðu Pól-
lands og verður þeim Witek vel til
vina. Leikstjóri er Jerzy Dom-
aradzki og í aðalhlutverkum Ewa
Wisniewska, Marian Dziedziel og
Andrzej Grabowski.
Fjórða myndin á hátíðinni, Jestes
bogiem, eða Þú ert guð, er einnig
frá því í fyrra. Í myndinni er fjallað
um hipphopp-tónlistarhópinn Pak-
tofonika sem breytti pólsku tónlist-
arlífi. Sjónum er beint að rapp-
aranum Magik sem svipti sig lífi 23
ára. Leikstjóri er Leszek Dawid og
í aðalhlutverkum eru Marcin Ko-
walczyk, Dawid Ogrodnik og Tom-
asz Schuchardt.
Iron Man 3
Þriðja kvikmyndin um teikni-
myndasagnahetjuna Járnmanninn
verður frumsýnd í dag. Auðjöf-
urinn Tony Stark, þ.e. Járnmað-
urinn, glímir að þessu sinni við stór-
hættulegan glæpamann sem kallar
sig Mandarínann. Árás er gerð á
heimili Starks, hann leitar hefnda
og hittir fyrir Mandarínann sem
virðist með öllu ósigrandi. Stark
þarf að taka á honum stóra sínum, í
búningi Járnmannsins, til að ráða
niðurlögum illmennisins. Leikstjóri
myndarinnar er Shane Black og í
aðalhlutverkum Robert Downey
Jr., Gwyneth Paltrow, Ben Kings-
ley, Don Cheadle, Guy Pearce, Jon
Favreau og Rebecca Hall.
Rotten Tomatoes: 100%
The Guardian: 80/100
Óþokki Ben Kingsley fer með hlutverk Mandarínans í Iron Man 3.
Bíófrumsýningar
Pólskir dagar og Járnmaðurinn 3