Morgunblaðið - 28.05.2013, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013
Reykjavíkurborg hefur boðað tilkynningarfundar í vikunni um
aðalskipulag til ársins 2030. Aðal-
skipulagið nýja á að taka við af eldra
skipulagi sem náði til ársins 2024 og
ef marka má frásagnir borgarinnar
hefur mikil vinna verið lögð í þetta
nýja aðalskipulag og ferlið verið
mjög langt. Reyndar of langt, ef
marka má gögn sem borgaryfirvöld
birta á vef borgarinnar.
En þrátt fyrir langt og strangtferli er enn að finna ein risa-
vaxin mistök í þeim drögum að að-
alskipulagi sem kynnt verða.
Í drögunum er gert ráð fyrir aðReykjavíkurflugvelli verði lokað
en allir hljóta að gera sér grein fyrir
að ekki verður af því, enda enginn
vilji til þess, hvorki meðal borgarbúa
né annarra landsmanna.
Tiltölulega lítill hópur manna hef-ur um árabil haft það sem
áhugamál að berjast gegn því að
Reykjavíkurflugvöllur fái að vera á
sínum stað og telja ýmist að hann
eigi heima uppi á háheiði, úti á
skerjum, í Keflavík eða jafnvel
hvergi.
Þrátt fyrir mikinn áhuga þessahóps hefur stuðningur við hug-
myndina ekkert vaxið og í kosningu
sem fram fór í Reykjavík þegar um-
ræðan stóð sem hæst var stuðning-
urinn sáralítill. Og þá er eftir að
spyrja aðra landsmenn sem þurfa að
geta sótt þjónustu til höfuðborg-
arinnar.
Hvers vegna er lagt upp með svogallaða forsendu að því sem
kallað er aðalskipulag Reykjavíkur?
Gölluð forsenda
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 27.5., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 2 snjókoma
Akureyri 6 rigning
Nuuk 1 skýjað
Þórshöfn 8 skúrir
Ósló 16 skýjað
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 15 skýjað
Helsinki 20 léttskýjað
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 18 heiðskírt
Dublin 12 skýjað
Glasgow 12 skýjað
London 16 heiðskírt
París 17 heiðskírt
Amsterdam 16 heiðskírt
Hamborg 15 skýjað
Berlín 17 léttskýjað
Vín 11 skýjað
Moskva 17 skýjað
Algarve 18 léttskýjað
Madríd 16 skúrir
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 20 skýjað
Róm 18 léttskýjað
Aþena 22 heiðskírt
Winnipeg 15 alskýjað
Montreal 17 léttskýjað
New York 20 heiðskírt
Chicago 14 alskýjað
Orlando 27 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
28. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:32 23:19
ÍSAFJÖRÐUR 2:57 24:04
SIGLUFJÖRÐUR 2:38 23:48
DJÚPIVOGUR 2:53 22:57
Handverksbakarí
fyrir sælkera
MOSFELLSBAKARÍ
Daglega er bakað bakkelsi
sem fá bragðlaukana til að
kætast.
Hjá okkur er hægt að fá þetta
gamla og góða og einnig
eitthvað nýtt og spennandi.
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
„Framkvæmdir munu hefjast strax
að loknu útboði,“ segir Helgi S.
Gunnarsson, forstjóri Regins fast-
eignafélags, sem fer með eignarhald
á húsinu Ofanleiti 2 í Reykjavík.
Um helgina auglýsti Reginn eftir
tilboðum í fyrsta og stærsta áfanga
verksins en breyta á öllu húsnæðinu í
skrifstofur fyrir verkfræðistofuna
Verkís. Um er að ræða töluverðar
breytingar að sögn Helga, en húsið
hefur hingað til hýst skólastarf, fyrst
Háskólann í Reykjavík og nú síðast
skrifstofur ýmissa stofnana og
sprotafyrirtækja.
Keyptu eldra húsnæði
Reginn keypti húsnæðið af félag-
inu SVÍV, sem er sjálfseignarstofnun
Viðskiptaráðs Íslands um viðskipta-
menntun. Réttindi leigutaka munu
haldast óbreytt en þrír aðilar eru með
leigusamning til ársins 2015.
Reginn hefur verið stórtækur á
markaði með skrifstofu- og iðn-
aðarhúsnæði undanfarin ár en Helgi
segir markmiðið vera að auka tekju-
og áhættudreifingu.
Samhliða því að Verkís tók Of-
anleitið á leigu festi Reginn kaup á
fasteignafélögum sem hýsa núver-
andi starfsemi Verkís, m.a. skrif-
stofur þess í Ármúla 4.
Ofanleiti 2 er 8.012 fermetrar að
stærð og var vígt sem skólahús árið
2001. bmo@mbl.is
Hundraða milljóna króna fjárfesting
Verkís flytur inn í fyrrverandi skólahús HR Byrja á breytingum í júní
Skóli Nýjar höfuðstöðvar Verkís
verða að Ofanleiti 2, gamla HR.
Á fundi borg-
arfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins í
gær tók Júlíus
Vífill Ingvarsson
borgarfulltrúi við
formennsku í
borgarstjórn-
arflokknum af
Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur sem hefur tekið
við embætti innanríkisráðherra.
Að auki var á fundinum ákveðið
að Kjartan Magnússon borg-
arfulltrúi tæki sæti Hönnu Birnu í
borgarráði og Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir borgarfulltrúi tæki
sæti í stjórn Faxaflóahafna. Ás-
laug María Friðriksdóttir vara-
borgarfulltrúi mun síðar í sumar
taka sæti Hönnu Birnu í borg-
arstjórn.
Júlíus Vífill oddviti
sjálfstæðismanna
Landvernd mun í dag afhenda for-
sætisráðherra og umhverf-
isráðherra umsagnir um ramma-
áætlun sem almenningur, stofnanir,
sveitarfélög, samtök og félög hafa
sent Alþingi og ráðuneytum. Einnig
verður þeim afhent áskorun um að
draga til baka yfirlýsingar um að
fleiri svæði verði færð í virkj-
anaflokk rammaáætlunar.
Afhendingin fer fram við Stjórn-
arráðshúsið við Lækjartorg kl.
17.15.
Afhenda umsagnir
um rammaáætlun