Morgunblaðið - 28.05.2013, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.05.2013, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013 ✝ GuðmundurÖrn Guð- mundsson fæddist 17. júní 1954. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 18. maí 2013. Guðmundur var sonur hjónanna Lilju Magn- úsdóttur, hús- móður og skrif- stofukonu hjá Loftleiðum, síðar Flugleiðum, og Guð- mundar Ástráðssonar, skrif- stofumanns hjá Eimskip. Bræður Guðmundar eru Magnús Guðmundsson gigt- arlæknir, giftur Jónínu Páls- dóttur tannlækni. Ástráður Karl Guðmundsson viðskipta- fræðingur, giftur Hrefnu Guð- mundsdóttur félagssálfræð- ingi. Eiginkona Guðmundar er Auður Inga Einarsdóttir, prestur á Grund, f. 29. sept- ember 1953. Þau giftu sig 11. september 1976. hann nám við Uppsala Uni- versited og útskrifaðist vorið 1983 með kandidatspróf í lyfjafræði. Að námi loknu lá leið fjölskyldunnar aftur heim til Íslands og fór Guðmundur að vinna hjá Andrési Guð- mundssyni, apótekara í Háa- leitisapóteki, sem yfirlyfja- fræðingur. Hann varð lyfsöluleyfishafi þegar Lyf og heilsa eignuðust apótekið og vann í Austurveri í 27 ár sam- fellt. Í kjölfarið á því varð hann lyfsöluleyfishafi í Apó- tekaranum á Akranesi í eitt ár. Að því loknu tók hann við Lyfjum og heilsu í Kópavogi sem lyfsöluleyfishafi og vann þar þangað til í desember 2012. Guðmundur vann einnig um tíma á vöktum í Lyfjum og heilsu í JL húsi. Guðmundi var margt til lista lagt. Hann lærði á klassískan gítar á sínum yngri árum og lauk 7. stigi frá Tónskóla Sigursveins. Hann var mikill dellukarl og var m.a. áhugamaður um trjá- og blómarækt og ræktaði skraut- fiska til margra ára. Hann var afburða smiður þó svo að hann hefði ekki lært til þess. Útför Guðmundar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 28. maí 2013, og hefst athöfnin kl. 13. Börn þeirra eru: 1) Árni Kristján Guðmundsson, margmiðl- unarfræðingur og rithöfundur, f. 5. júlí 1978. 2) Einar Örn Guðmunds- son, f. 16. janúar 1980. Dóttir hans er Viktoría Mörk Einarsdóttir en móðir hennar er Hulda Rún Jóhannesdóttir. 3) Lilja Björk Guðmundsdóttir kennari. Maður hennar er Brynjólfur Guðmundsson raf- virki. Börn þeirra eru Auður Harpa og Guðmundur Ari. Guðmundur ólst upp á Æg- isgötu 26 í Reykjavík og gekk í Landakotsskóla til tólf ára aldurs. Þaðan lá leiðin í Haga- skóla og síðar í Mennta- skólann í Reykjavík, þaðan sem hann lauk stúdentsprófi 1974. Guðmundur lauk ex- ampharm-prófi frá HÍ vorið 1979 og vann eitt ár í Borg- arapóteki. Haustið 1980 hóf Aðfaranótt 18. maí dó elsku- legur eiginmaður minn Guð- mundur Örn Guðmundsson á Landspítalanum við Hringbraut eftir erfiða þrautagöngu. Að sjá á eftir lífsförunaut sínum til 37 ára er erfiðara en ég gat nokk- urn tíma ímyndað mér. Við höfðum oft hent gaman að því hversu vitlaus við vorum þegar við ung og óreynd ákváðum að gifta okkur eftir einungis 11 mánaða kynni. Oft reyndi á þolinmæðina en æv- inlega komumst við að sameig- inlegri niðurstöðu. Elsku Guðmundur minn, það er svo margt sem ég vildi segja þér áður en þú varst tekinn frá okkur. Allt hafði ég þó sagt þér svo oft, svo oft, en aldrei of oft samt. Aðallega það hversu heitt og innilega ég elskaði þig og hversu góður vinur þú varst alla tíð. Hreinni og fallegri sál hef ég aldrei kynnst. Við höfum alla tíð verið lán- samar manneskjur og sérstak- lega lánsamar fyrir þær sakir að Guð leiddi vegi okkar saman. Ekkert skyggir á sameiginlegt líf okkar og enginn getur tekið frá okkur það sem Guð gaf okk- ur. Guði séu þakkir fyrir þau dásamlegu ár sem okkur voru gefin. Ég hefði þó kosið að við hefðum fengið lengri tíma sam- an. Ég er almættinu þakklát fyr- ir það að þjáningu þinni er lok- ið. Guði séu þakkir fyrir líf þitt og allt það sem þú snertir. Guð gefi að vegir okkar liggi saman að nýju. Guð blessi þig, elsku ástin mín. Þín eiginkona, Auður Inga. Elsku pabbi minn. Ég get ekki sagt þér hvað ég sakna þín mikið. Þegar þú kvaddir okkur fannst mér veröld mín hrynja og finnst óhugsandi að ég muni aldrei tala við þig aftur og aldr- ei knúsa þig aftur. Ég hef alltaf verið mikil pabbastelpa og get ekki ímynd- að mér líf mitt án þín. Allt of snemma varst þú tekinn frá okkur. Ekki óraði okkur fyrir ári þegar við vorum að und- irbúa fjölskylduferð til Svíþjóð- ar að þú yrðir ekki með okkur í dag. Minningin um ferðina í fyrra mun lifa lengi. Mikið óskaplega er ég fegin að við fórum á gamlar slóðir og rifj- uðum upp gamlar minningar og bjuggum til nýjar. Betri pabba er ekki hægt að hugsa sér. Þú kenndir mér svo margt í gegnum árin og varst alltaf svo þolinmóður við mig. Þegar ég var lítil elti ég þig eins og skugginn og þú leyfðir mér að hjálpa þér að mála og smíða, sinna fiskunum þínum og fara í veiðiferðir með þér, þó við veiddum aldrei neitt. Mér fannst þú alltaf geta gert allt. Mikið fannst mér gaman að hlusta á þig spila á kvöldin á gítarinn þinn. Ég man ég bað þig um að spila í brúðkaupinu mínu þegar ég yrði eldri. Þér fannst þú ekki vera nógu góður gítarspilari en í mínum augum varstu bestur. Betri afa er ekki hægt að hugsa sér og gleymi ég því ekki þegar þú hringdir í mig og kvartaðir yfir því að það væru liðnir tveir heilir dagar og þú ekki búinn að sjá afastelpuna þína. Hvað það ætti eiginlega að þýða? Auður Harpa dýrkaði þig og dáði og það var svo sann- arlega gagnkvæmt. Mikið var gaman að sjá hvað þú hafðir endalausa þolinmæði gagnvart henni og hvað þú gast sprellað með hana. Minningarnar um ykkur tvö að borða ís með la- vale sósu (jarðarberjasósu eins og Auður Harpa kallar það) mun seint gleymast og mun ég reyna mitt besta að segja henni sögur af ykkur tveimur og hvað hún var heppin að fá að kynnast þér þó ekki væri nema í stuttan tíma. Mikið er ég glöð yfir því að litli drengurinn minn heitir í höfuðið á þér. Þú ljómaðir þeg- ar þú heyrðir að þú værir að fá nafna. Þú varst svo stoltur. Ég hef alltaf verið óróleg þegar þú hefur farið eitthvað í burtu. Ég var alltaf eirðarlaus þegar þið mamma fóruð til út- landa því mér fannst þið vera alltof langt í burtu frá mér og var alltaf hrædd um að eitthvað myndi koma fyrir ykkur. Ég varð ekki rórri fyrr en þið vor- uð komin heim. Nú ert þú far- inn einn í ferðalag og vona ég heitt og innilega að við munum hittast aftur. Ég mun sakna þess að heyra ekki lengur fim- maurabrandarana þína, að horfa ekki á geimverumyndir eða Merlin með þér. Eins að geta ekki lengur leitað ráða hjá þér með svo margt. Þú varst yndislegur eigin- maður, faðir og afi. Þú skilur eftir þig stórt tómarúm í hjört- um okkar. Nú þarftu ekki leng- ur að þjást og samgleðjumst við þér að þú sért laus við alla þjáningu. Guð geymi þig þar til við hittumst að nýju. Eins og við sögðum alltaf hvort við annað: „I love you to pieces you meeces.“ Þín dóttir, Lilja Björk. Í dag kveð ég elskulegan föð- urbróður minn hann Guðmund Örn sem mun þó alltaf í hjarta mínu vera Luggur frændi. Luggur var litli bróðir hans pabba og ég hef þekkt hann frá því að ég fæddist. Þá kynntist ég einnig Auði strax í barnæsku og tel ég mig ríka að hafa feng- ið að hafa þau í mínu lífi frá byrjun. Við fjölskyldan fluttumst til Gautaborgar þegar ég var lítil og ekki löngu seinna fluttu Luggur og Auður með Árna Kristján til Uppsala þar sem Luggur fór að læra lyfjafræði. Það var mikill samgangur á milli þegar við vorum öll í Sví- þjóð. Ég hugsa með hlýhug til allra þeirra skipta sem annað- hvort við keyrðum til Uppsala eða þau til okkar. Stuttu seinna bættist Einar Örn í hópinn, svo Atli Páll, litli bróðir minn, og loks hún Lilja Björk. Þessi fjög- ur, Árni, Einsi, Atli og Lilja, urðu sterkur og samheldinn hópur. Þegar við fluttum til Ís- lands vildi svo vel til að við keyptum hús í sömu götu og Auður og Luggur og þá urðu þessir gríslingar óaðskiljanleg- ir. Ég hafði gaman af að fylgjast með Lugga og því sem hann var að sýsla við. Hann var mikill dundari og þegar hann fékk áhuga á einhverju þá var farið með það alla leið. Ég man þeg- ar hann fór að smíða flugvéla- módel. Hann sökkti sér af öllum krafti í það og ég fékk að fara með honum og pabba og sjá þegar hann flaug einni vélinni. Mér fannst þetta rosalega flott. Einnig fylgdist ég með af mikl- um áhuga þegar hann fór að rækta fiska. Það var svo gaman að ræða við hann um það, hann var svo fróður og mér fannst hann vita allt um fiska. Það var milli jóla- og nýárs að okkur var sagt að Luggur væri mikið veikur. Við héldum þó öll að Luggur ætti alla vega einhver ár eftir en því miður var raunin önnur og hann fór allt of fljótt. Ég er þakklát fyrir að fjöl- skyldan náði að hittast nánast öll einu sinni rétt fyrir páska. Við vorum ekki viss um hvort Luggur mundi komast, en þeg- ar mamma talaði við Auði þá sagði hún okkur til mikillar ánægju að Luggur vildi endi- lega að við hittumst. Þá átti hann erfitt með að tala en leit vel út. Ég náði aðeins að spjalla við hann og hann bar sig vel. Þegar við kvöddumst þá faðm- aði hann mig svo innilega. Núna eftir á er ekki frá því að maður hugsi að hann hafi vitað hvað var í vændum. Ef svo er þá er ég honum þakklát að hafa gefið okkur eina fallega minningu enn. Ég er þakklát Auði, Árna, Einsa og Lilju að þau gáfu mér tækifæri að koma á spítalann rétt áður en hann kvaddi. Þessi stund verður mér kær minning. Elsku Luggur, takk fyrir yndislegar stundir og minning- ar og ég trúi í hjarta mínu að þetta eigi við um þig núna: Ég er frjáls eins og fuglinn, flogið næstum ég gæti. Mér er ekkert til ama flest nú eykur mér kæti. Alsæll er ég nú orðinn, ekki kann ég mér læti. Ég er frjáls. (Pétur Bjarnason.) Að lokum viljum við fjöl- skyldan þakka ykkur fyrir allar skemmtilegu stundirnar sem við fengum að deila með ykkur. Elsku Auður, Árni, Einsi, Lilja, Binni, Viktória, Auður Harpa og Guðmundur Ari megi Guð geyma ykkur og styrkja í sorginni. Magnús (Maggi) bróðir, Nína, Guðrún Lilja og Atli Páll. Aðfaranótt 18. maí lést mág- ur minn, Guðmundur Örn Guð- mundsson, eftir harða baráttu við krabbamein. Það er erfitt að gera grein fyrir hátt í fjörutíu ára samleið í fáum orðum, fjöl- skyldurnar hafa gengið í gegn- um svo margt saman í gleði og sorg. Guðmundur var lyfjafræðing- ur að mennt og starfaði sem slíkur, en var þar að auki margt annað til lista lagt. Ekki held ég að oft hafi þurft að kalla til iðn- aðarmann á heimili þeirra hjóna, þótt brjóta hefði þurft niður eða setja upp veggi til að bæta við herbergjum, sem þurfti tvisvar að gera, þegar börnin voru orðin þrjú. Hann skipti um eldhúsinnréttingar, skápa og smíðaði húsgögn, lagði parket eða flísar, allt eftir þörf- um. Guðmundur var einstakt ljúf- Guðmundur Örn Guðmundsson Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Þegar andlát ber að höndum REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST ✝ Ástkær dóttir okkar, systir og barnabarn, HRAFNHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Birkigrund 40, Selfossi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 19. maí. Útförin fer fram frá Selfosskirkju fimmtu- daginn 30. maí kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarreikning 586-26-180392, kt. 030172-5669. Kristín Björk Jóhannsdóttir, Guðmundur Björgvin Gylfason, Jóhann Gylfi Guðmundsson, Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir, Viktoría Kristín Guðmundsdóttir, Jóhann V. Helgason, Ragnheiður Jónsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar, dóttir, systir, mágkona og frænka, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR HAMMER, Suðurhópi 10, Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðvikudaginn 22. maí. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 31. maí kl. 14.00. Teitur Níelsson, Fríða Níelsdóttir, Jóna Níelsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Sigurður Jónsson, Arna Ýr Sæþórsdóttir og börn. ✝ Ástkær eiginmaður, faðir, fósturfaðir, tengda- faðir, afi og langafi, GRÉTAR LEVÍ JÓNSSON, lést á Sólvangi föstudaginn 24. maí. Helga Jóna Ásbjarnardóttir, Jón Leví Grétarsson, Elvar Grétarsson, Björn Rósberg Grétarsson, Ragnheiður Jóna Grétarsdóttir Leví, Ásbjörn Leví Grétarsson, Þórbergur Egilsson, Jórunn Anna Egilsdóttir, Gunnlaugur Egilsson. ✝ Okkar yndislegu, ástkæru foreldrar, tengdaforeldrar, afi og amma, ALEXANDER G. ÞÓRSSON og EDDA Þ. SIGURJÓNSDÓTTIR, verða jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 30. maí kl. 13.00. Þórunn Alexandersdóttir, Hjörleifur Harðarson, Hafdís Alexandersdóttir, John Patrick Toohey, Sigurjón Alexandersson, Signý Traustadóttir og barnabörn. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, ELÍNBORG REYNISDÓTTIR, lést í Noregi föstudaginn 24. maí. Aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.