Morgunblaðið - 28.05.2013, Blaðsíða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013
Menning Listalífið er áberandi í höfuðborginni um þessar mundir enda Listahátíð í Reykjavík í fullum gangi og nóg um að vera og margt að sjá í Listasafni Íslands.
Eggert
Hið mæta fólk, þau
Margrét Kristmanns-
dóttir og Andrés
Magnússon, for-
ystumenn Samtaka
verslunar og þjónustu
annars vegar, og
Guðni Ágústsson, for-
maður samtaka fyr-
irtækja í mjólkur- og
kjötiðnaði innan Sam-
taka iðnaðarins hins
vegar, hafa undanfarið deilt á síðum
Morgunblaðsins um verslun á Ís-
landi, landbúnað, iðnað, tolla, mat-
vælaverð og önnur tengd mál. Hef-
ur verið skemmtilegt og fróðlegt að
lesa þessi kjarnyrtu skrif og hafa
þau öll ýmislegt til síns máls. Þetta
er hvorki í fyrsta né síðasta skipti
sem um þessi grundvallarmál er
deilt, hvort sem er á Íslandi eða
annars staðar í veröldinni.
Atvinnumennska í átökum
Ég hafði ekki ætlað mér að
lengja þessa greinaröð, enda er ég
ekki viss um að opinbert reiptog
milli atvinnugreina færi okkur nær
framtíðarlausn í svo mikilvægum
málum. Ég skal til dæmis fúslega
taka það til okkar, sem vinnum að
hag íslensks iðnaðar, að barátta
okkar samtaka seint á
síðustu öld fyrir sér-
stakri skattlagningu á
aðra atvinnugrein, þ.e.
sjávarútveg, reyndist
iðnfyrirtækjum ekki til
framdráttar. Hið
gamla baráttumál um
þetta var réttilega af-
lagt á sameiginlegum
vettvangi iðnaðar, en
kom samt sem áður til
framkvæmda hjá rík-
isvaldinu löngu síðar.
Hitti það iðnfyrirtækin
sjálf verst fyrir, því við þessar
breytingar kippti sjávarútvegur að
sér höndum og dró úr fjárfestingum
og uppbyggingu. Sú kyrrstaða kom
beint niður á iðnfyrirtækjum í veið-
arfæragerð, búnaðarframleiðslu,
málmtækni, hugbúnaði, verktöku og
ýmiss konar viðhaldsþjónustu.
Ríkisafskipti um víða veröld
Fyrrgreindar skylmingar milli at-
vinnugreina, sem að lokum allir töp-
uðu á, minna um margt á baráttu
kollega minna Margrétar og Andr-
ésar nú. Af mikilli samviskusemi og
með markvissum hætti beita þau
sér fyrir tiltekinni breytingu á um-
gjörð landbúnaðarins. Ég er hjart-
anlega sammála grunnstefi þeirra
Margrétar og Andrésar, að skipulag
verslunarfrelsis sé vænlegasta um-
gjörð atvinnugreina og það fyr-
irkomulag sem líklegast sé til að
laða fram verðmætasköpun og hag-
sæld. Samtök iðnaðarins og for-
verar þeirra hafa löngum verið í
fararbroddi þeirra sem vilja auka
slíkt frelsi á sem flestum sviðum,
allt frá baráttunni fyrir inngöngu
Íslands í EFTA á sjöunda áratug
síðustu aldar. Hins vegar er erfitt
að finna raunverulegt viðskipta-
frelsi, þegar kemur að landbúnaði
og matvælaframleiðslu honum
tengdri. Á Vesturlöndum er engin
atvinnugrein sem hið opinbera
skiptir sér jafn mikið af og einmitt
landbúnaðarframleiðsla, hún er alls
staðar styrkt af skattfé og ýmiss
konar sérreglur og vernd gilda um
hana. Ákvörðun um að leggja ein-
hliða af tolla eða ríkisstyrki til þess-
arar greinar á Íslandi væri því
ákvörðun um að skattgreiðendur
annarra landa greiddu með vörum
hingað komnar, án þess að við
fengjum aukinn aðgang að öðrum
mörkuðum á móti. Við þyrftum því
ekki að standa í því sjálf að halda
úti landbúnaði. Vera kann að slík
skipan sé talin eftirsóknarverð, en
þá þarf að segja það upphátt og
ræða hreinskilið. Ég átta mig á að
Margrét og Andrés eru ekki bein-
línis að leggja til að íslenskur land-
búnaður verði lagður af, en rétt er
að vera raunsæ og skýr um afleið-
ingar einstakra tillagna.
Alþjóðlegt úrlausnarefni
Vesturlönd hafa á vettvangi WTO
og áður GATT reynt að koma sér
saman um aukið gagnkvæmt toll-
frelsi og minnkandi ríkisafskipti í
greininni. Misvel hefur gengið að
þoka málum í þessa átt, en þó hefur
við og við tekist að rýmka ýmsa
þætti. Lönd sem yfirleitt berjast
fyrir viðskiptafrelsi og takmörk-
uðum ríkisafskiptum, eins og
Bandaríkin og lykillönd í Evrópu,
eru hins vegar jafnan með annan fót
á bremsunni þegar kemur að þess-
ari grein. Ber nokkuð á tvískinn-
ungi Vesturlanda gagnvart þróun-
arríkjum, sem mörg hver eiga helst
möguleika á að keppa í sölu land-
búnaðarafurða á alþjóðlegum mark-
aði. Vesturlönd verja miklu fé til
þróunarhjálpar, en hafa samhliða
haldið mörkuðum sínum býsna lok-
uðum fyrir landbúnaðarafurðum
þróunarríkja, til verndar eigin land-
búnaði. Viðskipti með landbúnaðar-
afurðir gætu þó verið mun mark-
vissari leið fyrir fátækari ríki til að
brjótast til bjargálna, en þróun-
arhjálp, sem fer til misgóðra nota.
Þær deilur sem um ræðir nú hér á
landi snúast hins vegar að mestu
um viðskipti milli þróaðra ríkja.
Hafa verktakar dávald?
Mínir góðu kollegar, þau Margrét
og Andrés, seildust að mínu mati
nokkuð langt þegar þau héldu því
fram að verslunarfyrirtæki hefðu í
raun ekki tekið sjálf ákvarðanir um
húsnæði sitt. Mikil umræða hefur
skapast undanfarið um hve húsnæði
íslenskrar verslunar er ofvaxið og
margfalt meira en annars staðar á
Norðurlöndum. Margrét og Andrés
segja eina helstu ástæðuna þá að
byggingarverktakar hafi í stjórn-
semi sinni og í samsæri með skipu-
lagsyfirvöldum troðið öllu þessu
rými upp á verslunina. Ég um-
gengst verktaka afar mikið og þar
fara klárlega engar mélkisur, sem
maður segir nei við að óathuguðu
máli. Hins vegar á ég bágt með að
trúa því að kaupahéðnar í verslun
séu slíkar geðlyddur, að verktakar
hafi getað teymt þá í stórfellda of-
fjárfestingu, gegn þeirra eigin vilja.
Eftir Orra
Hauksson » Á Vesturlöndum er
engin atvinnugrein
sem hið opinbera
skiptir sér jafn mikið
af og einmitt landbún-
aðarframleiðsla.
Orri Hauksson
Höfundur er framkvæmdastjóri SI.
Að hengja bæði bakara og smið