Morgunblaðið - 28.05.2013, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 28.05.2013, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013 Nú er karlinn að fara út á sjó og þar verður afmælisdagurinnþví haldinn“. Aðspurður hvort afmælisterta verði á boð-stólum þegar á sjóinn er komið segist hann ekki telja að svo verði og bætir við að hann voni að enginn viti af þessu. Sjómennsku hefur Ólafur stundað í fimmtíu ár og var þar lengst af skipstjóri. Afmælistúrinn heldur hann þó í sem stýrimaður í af- leysingum á rækjubátnum Fönix ST 177, sem gerður er út frá Hólmavík. Ólafur tók sér hlé frá sjónum fyrir um fimm árum er hann veiktist af krabbameini, og er þetta fyrsti túrinn síðan þá. Frá því Ólafur lét af sjómennskunni hefur hann starfað sem leigubíl- stjóri á Ísafirði, þar sem hann keyrir undir nafninu „allir á ball með Óla Hall“. Þar sem hann hefur nú tímabundið snúið aftur til sjó- mennskunnar verður sumarið því bæði nýtt til vinnu á landi og sjó. Ólafur er kvæntur Sigurlaugu Ingimundardóttur sem enn er kornung að hans sögn, eða um 65 ára. „Við eigum helling af börn- um, sex eru þau samtals sem við eigum, annað hvort saman eða sitt í hvoru lagi. Þetta eru allt að verða gamalmenni, þrjú eða fjögur eru að verða fimmtug. Sautján barnabörn eru komin, en þó engin barna- barnabörn,“ segir Ólafur og grínast góðlátlega með hvort nátt- úruleysi hrjái barnabörnin þar sem fimm þeirra séu komin yfir tví- tugt og langafabörn vanti enn. sunnasaem@mbl.is Ólafur Halldórsson er sjötugur í dag Mottumars Á myndinni skartar Ólafur forláta yfirvaraskeggi sem hann safnaði í tilefni af síðasta mottumarsátaki. Vonar að enginn viti af afmælinu Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Guðrún S. Þórð- ardóttir fagnar níutíu og fimm ára afmæli sínu í dag, 28. maí. Árnað heilla 95 ára Keflavík Jóna Sjöfn fæddist 12. sept- ember kl. 6.59. Hún vó 3.730 g og var 50,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Fríða Bergmann Hreggviðsdóttir og Samúel Már Smárason. Nýir borgarar Akureyri Aðalsteinn Ísak fæddist 23. september kl. 5.07. Hann vó 3.530 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir og Þórir Ármannsson. H örður fæddist í Reykjavík 28.5. 1928. Hann lauk stúdents- prófi frá MR 1948, embættisprófi í lækn- isfræði frá HÍ 1954, tók amcrískt út- lendingapróf 1960, öðlaðist almennt lækningaleyfi 1956 og sérfræðileyfi í augnlækningum 1965. Hörður var aðstoðarlæknir hjá héraðslækninum á Hvammstanga 1954-55, kandídat á Landspítalanum 1955-56, héraðslæknir á Hvamms- tanga 1956-61, staðgengill aðstoð- arlæknis á augndeild Akademiska sjukhuset í Uppsölum 1961-62, að- stoðarlæknir þar 1962-64, staðgeng- ill aðstoðarlæknis á Háskólasjúkra- húsinu í Umeå, taugasjúkdómadeild, 1964, og staðgcngill yfirlæknis sama ár, aðstoðarlæknir á Landspítala 1964 og Borgarspítala 1965 og dvaldi við nám á Moorfields Eye Hospital og Institute of Ophthalmology í London 1961, 1971 og 1984. Hörður var starfandi augnlæknir í Reykjavík frá 1965, fór augnlækn- ingaferðir til Víkur í Mýrdal 1965- 83, Kirkjubæjarklausturs 1965-94 og til Vestmannaeyja 1965-94. Hann var aðstoðarlæknir á Regionsjuk- huset í Örebro í Svíþjóð 1966, augn- læknir við sjúkrahúsið Sólheima í Reykjavík 1966-67, sérfræðingur á augndeild Landakotsspítala (síðar Sjúkrahúss Reykjavíkur) 1969-96, ráðgefandi augnlæknir á Hrafnistu í Reykjavík frá 1965 og á Landspít- alanum 1982-96. Hefur unun af ferðalögum Hörður var formaður byggingar- nefndar Sjúkrahússins á Hvamms- tanga 1957-60, sat í stjórn Lækna- félags Reykjavíkur, var formaður samninganefndar sérfræðinga 1968- 70, sat í stjórn Augnlæknafélags Ís- lands 1978-79, formaður þess 1980- 81 og var ritari öldungadeildar Læknafélags Íslands 1997-2001: „Við erum einmitt nýkomin úr tíu daga ferð til Ítalíu með Öld- ungadeild lækna,“ segir Hörður þegar hér er komið sögu. „Þetta var frábær ferð en ég hef afskaplega gaman af ferðalögum. Ég var 50 daga í ferðum á síðasta ári, geng enn þá mikið um landið þó ég þrammi ekki á fjöll eins og áður. Ef ég er ekki á ferðinni þá er ég að dansa. Ég hef dansað með dansfélaginu Kátu fólki í 20 ár og á vegum Heiðars Ást- valdssonar í 15 ár. Við erum við góða heilsu og það er sjálfsagt að njóta lífsins meðan heilsan leyfir.“ Fjölskylda Fyrri kona Harðar var Hulda Tryggvadóttir, f. 8.2. 1924, d. 22.10. 1987, húfreyja. Hún var dóttir Tryggva Gunnarssonar, b. í Hausa- staðakoti í Garðahreppi, og k.h., Lovísu Guðmundsdóttur húsfreyju. Synir Harðar og Huldu eru Hjalti, f. 19.3. 1951, rafmagnsverkfræð- Hörður Þorleifsson augnlæknir - 85 ára Við Gamla Uppsala Ungu hjónin, Hörður og Hulda í byrjun 7. áratugarins, með syni sína, Hjalta, Egil og Kjartan. Við hestaheilsu í dansi göngum og ferðalögum lÍs en ku ALPARNIR s Trekking (Petrol og Khaki) Kuldaþol -20 Fyrir líkamsstærð 190 eða 175cm Þyngd 190/1,70 kg og 175/1,65 kg Verð kr. 13.995,- Tjaldasalur - verið velkomin Kúlutjöld - fjölskyldutjöld - göngu tjöld Savana Junior (blár og rauður) Kuldaþol -15°C Fyrir líkamsstærð 150 cm Þyngd 0,95 kg VERÐ 11.995,- Savana (blár) Kuldaþol -15°C Fyrir líkamsstærð 195cm Þyngd 1,45 kg Verð kr. 13.995,- Micra (grænn og blár) Kuldaþol -14°C Fyrir líkamsstærð 195 eða 185cm Þyngd 195/1,0 kg og 185/0,95 kg Verð kr. 16.995,- FAXAFENI 8, 108 REYKJAVÍK • SÍMI 534 2727 • ALPARNIR@ALPARNIR.IS • WWW.ALPARNIR.IS „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgun- blaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæð- ingum eða öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.