Morgunblaðið - 28.05.2013, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 28.05.2013, Qupperneq 23
23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013 Menning Listalífið er áberandi í höfuðborginni um þessar mundir enda Listahátíð í Reykjavík í fullum gangi og nóg um að vera og margt að sjá í Listasafni Íslands. Eggert Hið mæta fólk, þau Margrét Kristmanns- dóttir og Andrés Magnússon, for- ystumenn Samtaka verslunar og þjónustu annars vegar, og Guðni Ágústsson, for- maður samtaka fyr- irtækja í mjólkur- og kjötiðnaði innan Sam- taka iðnaðarins hins vegar, hafa undanfarið deilt á síðum Morgunblaðsins um verslun á Ís- landi, landbúnað, iðnað, tolla, mat- vælaverð og önnur tengd mál. Hef- ur verið skemmtilegt og fróðlegt að lesa þessi kjarnyrtu skrif og hafa þau öll ýmislegt til síns máls. Þetta er hvorki í fyrsta né síðasta skipti sem um þessi grundvallarmál er deilt, hvort sem er á Íslandi eða annars staðar í veröldinni. Atvinnumennska í átökum Ég hafði ekki ætlað mér að lengja þessa greinaröð, enda er ég ekki viss um að opinbert reiptog milli atvinnugreina færi okkur nær framtíðarlausn í svo mikilvægum málum. Ég skal til dæmis fúslega taka það til okkar, sem vinnum að hag íslensks iðnaðar, að barátta okkar samtaka seint á síðustu öld fyrir sér- stakri skattlagningu á aðra atvinnugrein, þ.e. sjávarútveg, reyndist iðnfyrirtækjum ekki til framdráttar. Hið gamla baráttumál um þetta var réttilega af- lagt á sameiginlegum vettvangi iðnaðar, en kom samt sem áður til framkvæmda hjá rík- isvaldinu löngu síðar. Hitti það iðnfyrirtækin sjálf verst fyrir, því við þessar breytingar kippti sjávarútvegur að sér höndum og dró úr fjárfestingum og uppbyggingu. Sú kyrrstaða kom beint niður á iðnfyrirtækjum í veið- arfæragerð, búnaðarframleiðslu, málmtækni, hugbúnaði, verktöku og ýmiss konar viðhaldsþjónustu. Ríkisafskipti um víða veröld Fyrrgreindar skylmingar milli at- vinnugreina, sem að lokum allir töp- uðu á, minna um margt á baráttu kollega minna Margrétar og Andr- ésar nú. Af mikilli samviskusemi og með markvissum hætti beita þau sér fyrir tiltekinni breytingu á um- gjörð landbúnaðarins. Ég er hjart- anlega sammála grunnstefi þeirra Margrétar og Andrésar, að skipulag verslunarfrelsis sé vænlegasta um- gjörð atvinnugreina og það fyr- irkomulag sem líklegast sé til að laða fram verðmætasköpun og hag- sæld. Samtök iðnaðarins og for- verar þeirra hafa löngum verið í fararbroddi þeirra sem vilja auka slíkt frelsi á sem flestum sviðum, allt frá baráttunni fyrir inngöngu Íslands í EFTA á sjöunda áratug síðustu aldar. Hins vegar er erfitt að finna raunverulegt viðskipta- frelsi, þegar kemur að landbúnaði og matvælaframleiðslu honum tengdri. Á Vesturlöndum er engin atvinnugrein sem hið opinbera skiptir sér jafn mikið af og einmitt landbúnaðarframleiðsla, hún er alls staðar styrkt af skattfé og ýmiss konar sérreglur og vernd gilda um hana. Ákvörðun um að leggja ein- hliða af tolla eða ríkisstyrki til þess- arar greinar á Íslandi væri því ákvörðun um að skattgreiðendur annarra landa greiddu með vörum hingað komnar, án þess að við fengjum aukinn aðgang að öðrum mörkuðum á móti. Við þyrftum því ekki að standa í því sjálf að halda úti landbúnaði. Vera kann að slík skipan sé talin eftirsóknarverð, en þá þarf að segja það upphátt og ræða hreinskilið. Ég átta mig á að Margrét og Andrés eru ekki bein- línis að leggja til að íslenskur land- búnaður verði lagður af, en rétt er að vera raunsæ og skýr um afleið- ingar einstakra tillagna. Alþjóðlegt úrlausnarefni Vesturlönd hafa á vettvangi WTO og áður GATT reynt að koma sér saman um aukið gagnkvæmt toll- frelsi og minnkandi ríkisafskipti í greininni. Misvel hefur gengið að þoka málum í þessa átt, en þó hefur við og við tekist að rýmka ýmsa þætti. Lönd sem yfirleitt berjast fyrir viðskiptafrelsi og takmörk- uðum ríkisafskiptum, eins og Bandaríkin og lykillönd í Evrópu, eru hins vegar jafnan með annan fót á bremsunni þegar kemur að þess- ari grein. Ber nokkuð á tvískinn- ungi Vesturlanda gagnvart þróun- arríkjum, sem mörg hver eiga helst möguleika á að keppa í sölu land- búnaðarafurða á alþjóðlegum mark- aði. Vesturlönd verja miklu fé til þróunarhjálpar, en hafa samhliða haldið mörkuðum sínum býsna lok- uðum fyrir landbúnaðarafurðum þróunarríkja, til verndar eigin land- búnaði. Viðskipti með landbúnaðar- afurðir gætu þó verið mun mark- vissari leið fyrir fátækari ríki til að brjótast til bjargálna, en þróun- arhjálp, sem fer til misgóðra nota. Þær deilur sem um ræðir nú hér á landi snúast hins vegar að mestu um viðskipti milli þróaðra ríkja. Hafa verktakar dávald? Mínir góðu kollegar, þau Margrét og Andrés, seildust að mínu mati nokkuð langt þegar þau héldu því fram að verslunarfyrirtæki hefðu í raun ekki tekið sjálf ákvarðanir um húsnæði sitt. Mikil umræða hefur skapast undanfarið um hve húsnæði íslenskrar verslunar er ofvaxið og margfalt meira en annars staðar á Norðurlöndum. Margrét og Andrés segja eina helstu ástæðuna þá að byggingarverktakar hafi í stjórn- semi sinni og í samsæri með skipu- lagsyfirvöldum troðið öllu þessu rými upp á verslunina. Ég um- gengst verktaka afar mikið og þar fara klárlega engar mélkisur, sem maður segir nei við að óathuguðu máli. Hins vegar á ég bágt með að trúa því að kaupahéðnar í verslun séu slíkar geðlyddur, að verktakar hafi getað teymt þá í stórfellda of- fjárfestingu, gegn þeirra eigin vilja. Eftir Orra Hauksson » Á Vesturlöndum er engin atvinnugrein sem hið opinbera skiptir sér jafn mikið af og einmitt landbún- aðarframleiðsla. Orri Hauksson Höfundur er framkvæmdastjóri SI. Að hengja bæði bakara og smið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.