Morgunblaðið - 28.05.2013, Page 26

Morgunblaðið - 28.05.2013, Page 26
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is Útsölustaðir: Bústoð Keflavík, Bjarg Akranesi Íslensk hönnun og framleiðsla A81 Hönnuðir: Atli Jensen og Kristinn Guðmundsson Verð frá: 27.800,- www.facebook.com/solohusgogn F ÍT O N / S ÍA Fífa salernispappírinn er einstaklega mjúkur þriggja laga pappír, náttúrulega hvíttur, án klórbleikiefna og viðbættra ilmefna. Þú færð Fífa í næstu verslun. WWW.PAPCO.IS FIÐURMJÚK FÍFA 26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013 Framgangur réttvís- innar á Íslandi var hugsaður sem verk stjórnsýslunnar svo koma mætti í veg fyrir refsiaðgerðir ein- staklinga gegn þeim sem gerðust brotlegir við réttindi annarra. Í framhaldi af því var komið á stofn lögreglu og síðar embætti rík- issaksóknara. Áttu þessi embætti að taka til rann- sóknar kærur er bærust um meint misferli eða brot á lögum gegn þegn- um samfélagsins og skipti þá ekki máli hver lögbrjóturinn væri. Þetta átti að koma í veg fyrir einkarefsingar aðila eins og tíðkuðust á Sturlungaöld og slíkum tímaskeiðum og átti að leiða til þess að þeir sem lög voru brotin á fengju mál sín leiðrétt. Þróunin hefur verið sú að embætti lögreglu og ríkissaksóknara eru orðin nokkurs konar skúringadeildir fyrir stjórnsýsluna. Þ.e. að kærur sem ber- ast til embættanna um lögbrot þeirra sem skipa æðri stöður í samfélaginu eru allar afgreiddar með því fororði að ekki sé um ásetningsbrot að ræða af hálfu aðila og því sé það ekki í verka- hring þessara embætta að rannsaka málin. Lögbrot af hálfu stjórnsýsluaðila fást ekki rannsökuð þótt um sé að ræða brot á lögum er leiða til þess að eignir er skipta milljónum króna að verðmæti séu hafðar af fólki. Slíkar kærur eru afgreiddar af embætti Rík- issaksóknara með þeim orðum að ekki hafi verið um ásetningsbrot að ræða af hálfu stjórnsýsluaðila. Leiðrétting slíkra mála fæst ekki heldur og er reynt af stjórnvöldum og þar með Rík- issaksóknara að þagga málin niður með neitun um að sinna lögmætum kærum. Ríkissaksóknari er að koma í veg fyrir að þegnarnir njóti ákvæða stjórn- arskrárinnar um að allir skuli vera jafnir gagnvart lögum með því að hylma yfir lögbrot sem framin hafa verið. Með vísan til fréttar í Frétta- blaðinu frá 22. júní 2007 (en fréttin frá 1977) þar sem ríkissaksóknari Banda- ríkjanna hlaut fangelsisdóm (var sett- ur í fangelsi) fyrir að hindra framgang réttvísinnar. Því má segja að ólíkt höf- umst vér að á Íslandi í málefnum rétt- lætis. Því er spurningin hvort með því framferði ríkissaksóknara að taka þátt í samsæri með að hindra framgang réttvísinnar og hylma yfir lögbrot þá sé af hálfu embættisins verið að fram- vísa refsiréttinum til einstaklinga er orðið hafa fyrir valdníðslu af hálfu stjórnsýslunnar, hins þrískipta valds, og þeir (einstaklingarnir) hafi því ótak- markað vald til að ná fram leiðrétt- ingum sinna mála (með notkun refsi- réttar) gegn þeim er brutu lögin? Með slíku framferði af hálfu rík- issaksóknara að framvísa refsiréttinn til einstaklinga er íslenskt samfélag komið mörg hundruð árum aftar í tímatali voru hvað varðar friðsamleg samskipti þegnanna. Auk þess sem refsingar eða beiting við- urlaga verður háð geð- þótta hvers þess sem fær slíkt vald í hendur. Fyrr á öldum voru al- geng vígaferli til refs- ingar þeim sem taldir voru hafa brotið á rétti annars manns. Framferði skúr- ingadeildarinnar í ís- lensku stjórnkerfi, sem kallast ríkissaksóknari, við að hvítþvo lögbrot embættis- manna, sem hafa brotið á réttindum þegnanna af völdum mistaka að mati Ríkissaksóknara, en mistökin fást ekki leiðrétt þótt skýrar sannanir séu fyrir ranglætinu og lögbrotinu, þá er emb- ætti ríkissaksóknara komið í þá stöðu að hylma yfir lögbrot. Samkvæmt ákvæðum í íslenskum lögum er yf- irhylming lögbrota saknæmt athæfi. Embættismaður, þ.e ríkissaksókn- ari, er því orðinn lögbrjótur og er þá erfitt að sjá að hinn almenni þegn landsins sé skyldugur að fara að lög- um í landinu þegar æðstu menn stjórnsýslunnar þurfa þess ekki. Því er spurning hvort embætti rík- issaksóknara sé ófært um að sinna öðrum málum en því að ákæra úti- gangsmann fyrir að stela blóðmör- skepp til að seðja hungur sitt eins og frægt varð hér fyrir nokkrum árum. Fyrir hendi eru upplýsingar um þjófnað á rúmri milljón króna af bankabókum sem kært var til emb- ættis Ríkissaksóknara fyrir nokkrum árum. Þeir sem fyrirskipuðu þann þjófnað voru ráðherrar samkvæmt því sem fram kom í skýrslum lögregl- unnar er rannsakaði málin. Af hálfu embættis ríkissaksóknara var neitað um að aðhafast neitt í málunum. Skúr- ingardeildin á fullu að hreinsa (hvít- skúra) valdamenn þjóðarinnar. Ríkissaksóknari hefur neitað um rannsókn á meintum lögbrotum af hálfu dómara, sem notuðu fölsuð gögn og fóru með hrein ósannindi í dóms- orðum, við uppkvaðningu sinna dóma (utanlagadóma) og þar með brotið mannréttindi á þolendum ut- anlagadómanna. Þar var skúr- ingadeild hins íslenska ríkis enn í sínu fullveldi við yfirhylmingu á lögbrotum. Þar sem undirritaður er þolandi lögbrota dómara með fölsuðu skjölin (skriflegar sannanir um að skjölin eru fölsuð) og hefur ekki fengið lögmæta afgreiðslu skúringadeildar rík- issaksóknara og leiðréttingu á ut- anlagadómum er refsivaldið í höndum undirritaðs. Hvort aðferð sem notuð var á Sturlungaöld verði notuð við refsingar kemur í ljós. Eftir Kristján S. Guðmundsson Kristján Guðmundsson » Yfirhylming af hálfu ríkissaksóknara á lögbrotum æðstu manna hins íslenska ríkis. Höfundur er fv. skipstjóri. Íslenskt réttarfar Í laugardagsblaði Moggans birt- ist ansi mögnuð grein eftir Mar- gréti Kristmannsdóttur og Andr- és Magnússon sem eru talsmenn Samtaka verslunar og þjónustu. Þau byrja á því að taka Guðna Ágústsson í gegn og kenna hon- um um að við íslenskir neytendur greiðum eitt hæsta verð í heimi fyrir búvörur en skrifa ekkert um það hvað það er nauðsynlegt fyrir okkur sem eyþjóð að geta treyst á eigin framleiðslu búvara, um þetta er skrifað í 1. lið grein- ar þeirra Margrétar og Andrésar. Annar liður greinar þeirra er svo ótrúlegur að ég varð að lesa hann tvisvar til að trúa því sem ég var að lesa. Þar taka þau undir með Guðna að það séu of margir fer- metrar lagðir undir versl- unarhúsnæði sem leiðir klárlega til hærra vöruverðs. En hverjum er um að kenna? Þar eru söku- dólgarnir skipulagsyfirvöld sveit- arfélaganna og gráðugir bygging- arverktakar sem bera ábyrgð á því t.d. að það eru nokkrar mat- vöruverslanir á nánast sama blettinum úti á Granda í alltof mörgum fermetrum, þökk sé byggingarverktökum. Ég hélt að þeir sem reka verslunarfyrirtæki létu ekki aðra, t.d. bygging- arverktaka, segja sér fyrir verk- um og hvernig eigi að reka fyr- irtæki sín. En getur ekki verið að hátt matarverð hér í verslunum liggi í of hárri verðlagningu hjá verslunareigendum? Ég las það t.d. um starfsemi Haga hf. sem segja að meginstarfsemi þeirra sé á sviði matvöru að hagnaður þeirra á síðasta rekstrarári hafi verið tæpir fjórir milljarðar fyrir skatta. Það er að sjálfsögðu gott fyrir Hagaeigendur. Ég held að „varðmenn“ Samtaka verslunar og þjónustu ættu að hætta að kasta steinum úr glerhúsi og líta í eigin barm. Matarinnkaup hjá íslenskum heimilum snúast ekki eingöngu um íslenskar landbún- aðarvörur, sem eru reyndar með þeim bestu í heimi. EINAR PÉTURSSON, byggingarverktaki. Glerhús Margrétar og Andrésar Frá Einari Péturssyni Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru send- ar eru á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.