Morgunblaðið - 01.08.2013, Page 1

Morgunblaðið - 01.08.2013, Page 1
F I M M T U D A G U R 1. Á G Ú S T 2 0 1 3  Stofnað 1913  178. tölublað  101. árgangur  –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG GERA VATNS- TANK AÐ LISTAVERKI KAUPHÖLL FYRIR LEIKJAGULL SKRIFAR LJÓÐIN SÍN Í SANDINN VIÐSKIPTABLAÐ ORT Í FJÖRUNNI 34LJÓSANÓTT 10 Vestmannaeyingar sprettu úr spori í Herjólfsdal í gærkvöldi í árlegri keppni um tjaldstæði á þjóðhá- tíð, sem að venju er haldin þar um verslunarmanna- helgina. Hefð hefur skapast fyrir því, að síðdegis miðvikudaginn fyrir hátíðina stilli bæjarbúar sér upp við tjaldsvæðið og hlaupi síðan af stað þegar klukkan slær sex til að tryggja sér ákjósanlegt stæði fyrir hvítu tjöldin sín. Eyjamenn eru þekktir fyrir keppnisskap og það var í fyrirrúmi í gærkvöldi en ekki var annað að sjá en allir færu sáttir heim á leið eftir að hafa merkt sér stæði. Í dag verður hvíta tjaldborgin síðan reist í Herj- ólfsdal en þjóðhátíðin sjálf hefst formlega á föstu- dag. Morgunblaðið/Guðmundur Sv. Hermannsson Sprett úr spori í Herjólfsdal  Keyra þarf nemendur úr Sæ- mundar-, Ingunnarskóla og Dal- skóla í Grafarholti í skólasund upp í Mosfellsbæ nk. vetur þar sem bæði Grafarvogs- og Árbæjarlaug eru fullnýttar. Þetta segir Marta Guð- jónsdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík. Í sam- tali við Morgunblaðið staðfestir Flosi Kristjánsson, verkefnastjóri við skóla- og frístundasvið Reykja- víkurborgar, að Varmárlaug í Mos- fellsbæ hafi verið tekin á leigu nokkra tíma í viku til að leysa vanda skólanna í Grafarholti. »8 Leita til Mosfells- bæjar með skólasund  „Þetta gengur bara vel. Það er helst að það sem ræktað er úti kem- ur seinna en áður af því að það var svo kalt og dimmt í vor, en þetta er allt að fara á fulla ferð núna,“ segir Georg Ottósson, garðyrkjubóndi í Jörfa, um grænmetisuppskeru sum- arsins, en sólskinið síðustu vikur hefur bjargað miklu. Hann segir að ylræktin hafi einn- ig gengið vel en hann hafi þó þurft að nota ræktunarlampa meira en undanfarin ár vegna lítils sólskins. Búist er við að með hlýju hausti geti upptakan varað fram í október. Sólskinið síðustu vikur bjargar miklu Gunnar Dofri Ólafsson Ágúst Ingi Jónsson Jacob Vestergaard, sjávarútvegsráðherra Færeyja, segir að Færeyingar gætu þurft að auka enn síldarkvóta sinn komi til þess að Evrópusambandið geri alvöru úr hót- unum sínum um að setja löndunarbann á síld og makríl frá eyjunum. Ráðherrann lýsti í gær vonbrigðum sín- um með ákvörðun fiskveiðinefndar ESB að heimila framkvæmdastjórn þess að grípa til refsiaðgerða gegn Færeyingum. Mikil reiði er í Færeyjum vegna málsins, en lönd- unarbannið gæti tekið gildi á næstu vikum. Vestergaard sagði í færeyskum og dönskum fjölmiðlum í gær að Færeyingar hefðu góð viðskiptasambönd í löndum utan Evrópusambandsins, svo sem Rússlandi og í löndum Afríku og Asíu. Hins vegar fáist lægra verð fyrir síldina á þessum mörk- uðum en í Evrópu. Lægra afurðaverð gæti kallað á aukinn síldarkvóta. Kanna stöðu sína Færeyingar hafa í tilefni fyrirhugaðra refsiaðgerða sambandins kannað hvort þeir geti leitað réttar síns fyrir Alþjóðlega hafréttardómnum, Alþjóðaviðskiptastofn- uninni (WTO) og Evrópudómstólnum. Ves- tergaard segist þó hafa litla trú á Evrópu- dómstólnum, auk þess sem málsókn fyrir hvorum tveggja dómstólanna sé afar lang- dregin og tímafrek. Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- ráðherra, hefur í samtölum við erlenda fjöl- miðla lýst miklum vonbrigðum með að ESB velji að fara leið viðskiptaþvingana gegn Færeyjum. Þar kemur fram það mat ráð- herrans að þvinganir stærri aðila gegn smærri aðilum líkt og ESB stefnir í gagn- vart Færeyjum séu ekki leiðin til að leysa deilumál á milli vinaþjóða. Lægra verð gæti kallað á aukinn síldarkvóta  Refsiaðgerðir ESB gegn Færeyingum MMikil reiði »2 Gunnar Dofri Ólafsson María Margrét Jóhannsdóttir Geislafræðingar og forsvarsmenn Landspítalans komust undir mið- nætti að samkomulagi í kjaradeilu sem hefur staðið svo vikum skiptir. Um tveir þriðju geislafræðinga hafa sagt upp, og tóku uppsagnir þeirra gildi á miðnætti. „Ég reikna með að þeir sem semja fyrir félagið hafi trú á því að stór hluti þeirra dragi til baka uppsagnir sínar í kjölfar þessara samninga,“ sagði Björn Zoëga, forstjóri Landspítal- ans, eftir að samkomulagið náðist. „Við höfum náð því fram að það verði ákveðnar breytingar sem við teljum geislafræðingum til góða,“ sagði Katrín Sigurðardóttir, for- maður Félags geislafræðinga. „Ég vil meina að við höfum náð að þoka málum áfram á öllum þeim sviðum sem við óskuðum eftir.“ Katrín sagði ýmsa þætti koma inn í samkomulagið, til að mynda vaktafyrirkomulag og uppbyggingu launakerfis stéttarinnar. „Þannig að kjörin batna á heildina litið, þó svo að það dreifist misjafnlega milli einstaklinga eftir líf- og starfs- aldri.“ Aðspurð hvort hún telji að geisla- fræðingar mæti til vinnu í dag sagðist hún ekki reikna með því. Hver og einn verði að taka ákvörð- un um hvað hann gerir nú eftir að samningar tókust. Fyrirhugað sé að kynna þeim samninginn eins fljótt í dag og mögulegt verður. Til hagsbóta fyrir starfsmenn og spítalann Björn Zoëga sagði að í endurnýj- uðum stofnanasamningi fælist hækkun vegna jafnlaunaátaks rík- isins og breytinga á vinnuframlagi og vaktakerfi sem væri til hagsbóta fyrir starfsmenn og spítalann og báðir aðilar mættu vel við una. „Þá er ákveðin viðbótarumbun fyrir meiri menntun sem er öllum til góða til lengri tíma litið,“ sagði Björn. „Þetta er það sem við getum gert til þess að koma til móts við þessa einstaklinga. Við vonum að fleiri geislafræðingar muni koma aftur til starfa til þess að styðja við starf- semina. Þá má reikna með því að starfsemi spítalans komist á eðli- legt ról eftir því sem líða tekur á daginn en búast má við einhverri bið til að byrja með.“ Samið við geislafræðinga  Enn er eftir að bera samkomulagið undir geislafræðinga til samþykkis

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.