Morgunblaðið - 01.08.2013, Page 2
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Refsiaðgerðir Evrópusambandsins
gagnvart Færeyingum vegna auk-
inna síldveiða þeirra í ár gætu tekið
gildi eftir nokkrar vikur. Í gær gaf
fiskveiðinefnd Evrópusambandsins
framkvæmdastjórninni heimild til að
halda áfram að undirbúa aðgerðirn-
ar. Heimildir herma að aðgerðirnar
feli í sér auk löndunarbanns á síld og
makríl (en makríll er óumflýjanlegur
meðafli við síldveiðar Færeyinga)
bann við innflutningi til aðildarríkja
ESB á tilteknum afurðum tegund-
anna.
Mikil reiði er í Færeyjum vegna
þessarar ákvörðunar. Jacob Vest-
ergaard, sjávarútvegsráðherra Fær-
eyja, segir í samtali við bt.dk í Dan-
mörku að ákvörðunin sé furðuleg og
ekki í samræmi við samskipti siðaðra
þjóða. Hún sé ekki fallin til að stuðla
að samkomulagi um skiptingu síldar-
kvótans.
Ein leiðin að auka kvótann
Hann segir að þó að ESB-mark-
aður lokist þá hafi Færeyingar við-
skiptasambönd við aðra markaði sem
þeir muni nýta sér. Hann nefnir í því
sambandi Rússland, Asíu og Afríku.
Hann viðurkennir hins vegar að
ESB-löndin hafi borgað hæsta verðið
fyrir síldina og ákvörðun ESB hafi
því efnahagsleg áhrif í Færeyjum. Á
vef Politikens er haft eftir Vester-
gaard að ein leiðin til að mæta þeim
sé að auka síldarkvótann enn frekar.
Haft var eftir Mariu Damanaki um
miðjan júlí að hún ætti von á að frétta
væri að vænta af undirbúningi refsi-
aðgerða gegn Íslandi vegna makríl-
veiða fyrir lok mánaðarins. Helga
Sigurrós Valgeirsdóttir, aðstoðar-
maður Sigurðar Inga Jóhannssonar,
sjávarútvegsráðherra, segir að engar
slíkar fréttir hafi borist af fundinum í
gær.
Hins vegar hafi Íslendingar boðið
til fundar strandríkja í byrjun sept-
ember í Reykjavík og hafi öll strand-
ríkin þegið boðið. Hún sagðist telja
það mjög óeðlilegt ef á sama tíma
væri verið að undirbúa viðskipta-
þvinganir gagnvart Íslandi.
Þvinganir stærri aðila gegn
smærri ekki rétta leiðin
Í samtölum við erlenda fjölmiðla
hefur Sigurður Ingi lýst miklum von-
brigðum með að Evrópusambandið
velji að fara leið viðskiptaþvingana
gegn Færeyjum. Þar kemur fram
það mat ráðherrans að þvinganir
stærri aðila gegn smærri aðilum líkt
og ESB stefnir í gagnvart Færeyjum
séu ekki leiðin til að leysa deilumál á
milli vinaþjóða.
Sama máli gegni um makríldeil-
una, lausn í þessum deilumálum
hljóti að byggjast á vísindalegum
grunni og þurfi að nást við samninga-
borðið. Til að svo megi verða þurfi
Evrópusambandið og Noregur að
viðurkenna breytingar á göngu-
mynstri makríls inn í íslenska lög-
sögu.
Reiði vegna refsiaðgerða ESB
Ljósmynd/Börkur Kjartansson
Aflaskip Uppsjávarskipin Finnur Fríði frá Færeyjum og Aðalsteinn Jónsson
SU frá Eskifirði ösla sjóinn undan Suðausturlandi á loðnuvertíðinni 2012.
Fiskveiðinefnd ESB heimilar þvinganir gagnvart Færeyingum vegna síldveiða
Markaðir annars staðar, segir Vestergaard Íslendingar bjóða til makrílfundar í Reykjavík
Jacob
Vestergaard
Sigurður Ingi
Jóhannsson
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Mikið hefur borið á skemmdum í
stafafuru við Fossá í Hvalfirði. Þau
eru mörg hver rauð að lit og illa leik-
in. Bragi Michaelsson, formaður
Skógræktarfélags Kópavogs, sem á
lundinn, segir líklegt að þetta stafi af
skyndilegum veðrabreytingum síð-
asta haust.
„Eftir að hafa rætt við sérfræð-
inga þá teljum við þessar skemmdir
stafa að öllum líkindum af kulda-
kastinu sem stóð yfir í september og
í nóvember í fyrra. Þá kólnaði
skyndilega og saltrok gerði það að
verkum að nývöxturinn í trjánum
náði ekki að jafna sig og nálarnar
drápust en áætlað er að tréin jafni
sig á þremur til fjórum árum,“ segir
Bragi. „Við urðum vör við þetta í
desember en síðan þá hefur þetta
aukist smátt og smátt en við teljum
að þetta hafi nú náð hámarki.“
Bragi hefur séð skemmdir sem
þessar víða á Suðurlandi. „Þau tré
sem fá yfir sig norðanáttina verða
fyrir þessum skemmdum en það sér
ekki á þeim sem eru í skjóli. Við er-
um stúrin yfir þessu enda var ætl-
unin að selja þessar furur sem
jólatré en við vonumst þó til að eiga
nóg af góðum trjám,“ segir Bragi.
Kuldakast fór illa með furuna
Skyndilegar veðrabreytingar
skemmdu furur við Fossá í Hvalfirði
Morgunblaðið/RAX
Kalt Snöggar veðrabreytingar fóru illa með stafafurur við Fossá í Hvalfirði.
Sumarið er tími framkvæmda og víða er unnið hörðum höndum um land
allt að mikilvægu viðhaldi vega. Malbikunarstöðin Hlaðbær Colas hf. hefur
um áraraðir unnið víða við malbikun og starfsmenn fyrirtækisins voru í
gær við vinnu í Kollafirði. Umferð gekk eigi að síður greiðlega.
Morgunblaðið/RAX
Framkvæmdir á hringvegi í Kollafirði
Þar sem verkin eru látin tala
Síðasta tímabil strandveiða sum-
arsins hefst í dag og ef veður lofar
gætu flestir þeirra 664 báta sem
hafa nýtt leyfi sín í sumar róið í
dag. Mjög misjafnlega hefur geng-
ið á strandveiðunum í sumar.
Á heimasíðu Landssambands
smábátaeigenda kemur fram að
jafnt strandveiðimenn og fiskkaup-
endur hafi sett sig í samband við
skrifstofu LS og hvatt til að félag-
ið beiti sér fyrir því að dagurinn í
dag, fimmtudagur 1. ágúst, verði
ekki nýttur til strandveiða. Þeir
benda á að fiskvinnslur séu al-
mennt lokaðar þennan dag og því
muni fáir verða til að bjóða í fisk-
inn. Líklegt sé því að verð verði
lágt.
Einnig er bent á að líklegt sé að
ekki þurfi marga daga á svæðum
A og B til að klára „ágústskammt-
inn“. Engin heimild er hins vegar í
lögum til að banna veiðarnar í dag.
aij@mbl.is
Fjöldi báta
til strand-
veiða
Strandveiðar Í mynni Eyjafjarðar.
Ingvar Smári
Birgisson var í
gærkvöldi kjör-
inn formaður
Heimdallar, fé-
lags ungra sjálf-
stæðismanna í
Reykjavík. Ingv-
ar hlaut 302 at-
kvæði, en mót-
frambjóðandi
hans, Jórunn
Pála Jónasdóttir, 276. Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir, fráfarandi for-
maður, gaf ekki kost á sér til
áframhaldandi formennsku.
Ingvar Smári for-
maður Heimdallar
Ingvar Smári
Birgisson