Morgunblaðið - 01.08.2013, Side 4

Morgunblaðið - 01.08.2013, Side 4
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Aðalheiður Jóhannesdóttir, eða Alla eins og samstarfsmenn kalla hana, vann í gær sinn síðasta starfsdag á Morgunblaðinu eftir meira en 46 ára starf. Hún byrjaði á auglýs- ingadeild blaðsins 17. mars 1967 og vann þar til 1999. Þá fór hún að vinna við myndasafn blaðsins og síðast við aðsendar greinar og greinasafnið. „Þegar ég byrjaði á auglýs- ingadeildinni voru ekki til nema þrjár auglýsingastofur, Gísli B., AUK og Argus. Svo var einn með auglýsingaþjónustu,“ sagði Að- alheiður. Hún var í nánum tengslum við fjölda auglýsenda, bæði auglýs- ingastofur, fyrirtæki og ein- staklinga. Öskubakkar í röð á afgreiðsluborðinu Aðalheiður rifjaði upp þessa tíma í kveðjubréfi til samstarfsmanna sinna. „Þá var reykt í hverjum krók og kima, bæði starfsfólk og við- skiptavinir. Röð af öskubökkum var á afgreiðsluborðinu og hafði maður vart undan að losa þá. Þá voru þér- ingar sjálfsagður hlutur. „Hvað get ég gert fyrir yður,“ sagði maður við viðskiptavinina. Svo handskrifaði maður heil ósköp af texta sem fór í setningu og þar á eftir var þetta steypt í blý,“ skrifar Aðalheiður. „Svo greip ég sjóðheitar línurnar og fór með þær til þeirra sem unnu við síðurnar og lét bæta við. Einnig sá ég um dansauglýsingarnar og þá komu heilu hljómsveitirnar til að auglýsa. Ég man eftir Bjögga með brotna tönn.“ Starfsfólkinu var bannað að hafa kókflöskur uppi við og stúlkurnar urðu að mæta til vinnu í kjól eða pilsi á þessum ár- um. Viðskiptavinirnir kunnu vel að meta Aðalheiði og fyrir jólin streymdu til hennar risastórir kon- fektkassar og jólagjafir. Hún lét gefendur vita að þessar gjafir breyttu engu um þjónustuna sem þeir fengju. Þar sátu allir við sama borð. „Það var aldrei hægt að kaupa neitt hjá mér með gjöfum, enda er ég naut og hef aldrei látið neinn komast upp með neitt,“ sagði Að- alheiður. Þökkuðu fyrir árveknina Hún passaði vel upp á við- skiptavinina og oftar en ekki rak hún augun í meinlegar villur í aug- lýsingum sem þó höfðu farið um hendur margra áður en þær voru sendar til blaðsins. Viðskiptavin- irnir voru þakklátir fyrir árveknina. Auglýsandi sem hafði sent inn villu- ríka auglýsingu, sem Aðalheiður lét laga, sendi daginn eftir risastóran kassa fullan af rauðum rósum í þakklætisskyni um leið og hann baðst fyrirgefningar á vitleysunni. Morgunblaðið er ekki eini vinnu- staður Aðalheiðar um ævina. Hún byrjaði að vinna tíu ára gömul við að pilla rækju vestur á Súg- andafirði. Svo vann hún í frystihúsi og í kaupfélaginu þar sem pabbi hennar var kaupfélagsstjóri. Eftir að Alla flutti suður vann hún í tæp tvö ár í raftækjadeild og á auglýs- ingadeild Sambandsins áður en hún byrjaði á Morgunblaðinu. En hvers vegna hættir hún núna? Hættir sátt við Guð og menn „Ég varð 67 ára í maí og sagði upp í lok apríl, mér fannst að það væri nóg komið. Ég ákvað að hætta og hætti alveg sátt,“ sagði Aðal- heiður. „Ég er við góða heilsu og það er margt sem mig langar að gera. Ef ég get lifað af eftirlaun- unum, þótt þau séu ekki fýsileg, þá vil ég ekki sleppa því að eiga smá frí.“ Aðalheiður sagðist vita að hún muni sakna samstarfsfólksins. „Mér lyndir vel við fólkið hérna, það eru allir vinir mínir. Ég hætti sátt við Guð og menn.“ Morgunblaðið þakkar Aðalheiði fyrir langt samstarf sem verið hefur farsælt og ánægjulegt og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni. „Ég man eftir Bjögga með brotna tönn“  Aðalheiður Jóhannesdóttir, Alla á Mogganum, er hætt að vinna eftir 46 ára starf á Morgunblaðinu  Hún vann lengst af á auglýsingadeild blaðsins þar sem viðskiptavinirnir voru sannarlega vinir Morgunblaðið/Júlíus Farsæll ferill Davíð Oddsson ritstjóri afhenti Öllu kveðjugjöf frá Morgunblaðinu og starfsfólki þess, ljósmynd eftir Ragnar Axelsson sem tekin var í Landmannalaugum. Athöfnin var á léttu nótunum eins og sjá má. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013 Flugvél Ice- landair á leið frá Keflavík til Seattle í Banda- ríkjunum var snúið við í gær- kvöldi eftir að maður lét ófrið- lega um borð í vélinni. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýs- ingafulltrúa Icelandair, var hegðun farþegans með þeim hætti að ekki var talið um annað að ræða en að snúa vélinni við. Flugvélin lagði af stað frá Kefla- víkurflugelli um kl. 17.30. Fljótlega eftir brottför þurfti áhöfn vélar- innar að hafa afskipti af manninum. Hann hlýddi ekki fyrirskipunum áhafnar og var því ákveðið að snúa vélinni við. Hún hafði þá verið á flugi í um 40 mínútur. Eftir lendingu var maðurinn af- hentur lögreglunni í Keflavík. Skipta þurfti um áhöfn flugvél- arinnar, sem lagði því ekki af stað aftur til Seattle fyrr en á níunda tímanum í gærkvöldi. Snúið við vegna hegðunar farþega Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is Víðast hvar á landinu er grænmetis- uppskeran með góðu móti þrátt fyrir mikla vætutíð megnið af sumri. Sól- skinið síðustu vikur hefur bjargað uppskerunni fyrir horn og eru bænd- ur margir um viku á eftir áætlun samanborið við upptöku fyrri ár. „Það hefur ekkert sprottið en þetta er að detta inn núna. Það hefur rignt nánast hvern einasta dag þar til þessi blíða kom fyrir 10 dögum sem bjargar sumrinu,“ segir Friðrik Rúnar Friðriksson, garðyrkjubóndi hjá Flúðajörfa. Hann segir að vætan og kuldinn í vor hafi gert það að verkum að uppskeran sé minni og seinna á ferð en hinsvegar hafi ekk- ert skemmst ennþá. Georg Ottósson, garðyrkjubóndi á Jörfa, segir að uppskeran sé að fara á fulla ferð um þessar mundir. „Þetta er allt að koma inn á markað- inn núna. Við hefðum viljað vera viku fyrr en þetta er samt venjulegur tími fyrir upptökuna, það verður ekki á allt kosið á Íslandi. Ylræktin gengur sinn vanagang og eina breytingin er að núna fyrrihluta sumars hef ég notað lýsinguna meira en vanalega enda hefur verið lítið sólskin,“ segir Georg. Íslendingar vilja íslenskt Georg segir að þegar íslenska grænmetið kemur í verslanir séu Ís- lendingar fljótir að taka við sér og bókstaflega rífi grænmetið úr hillun- um. „Fólki finnst munur á íslensku grænmeti og því innflutta. Gulræt- urnar eru gott dæmi og það er mjög mikið sótt í þær um leið og þær koma nýjar inn á markaðinn. Þetta er bara svipað og þegar nýjar kartöflur koma í verslanir. Þá eru þær ferskar og góðar og það vill neytandinn.“ Undir þetta tekur Sigrún H. Páls- dóttir sem rekur Garðyrkjustöð Sig- rúnar á Flúðum. Hún segist verða meira og meira vör við fyrirspurnir um það hvenær íslenska grænmetið komi í verslanir. „Ég finn mikið fyrir stórauknum áhuga á íslenska græn- metinu. Hann er auðvitað kominn til vegna þess að grænmetið er ferskt og alveg rosalega gott. Við garð- yrkjubændur erum með mjög hreina vöru.“ Henni finnst íslenskar verslanir vera á eftir í þessari þróun og segir neytendur vera meira áberandi og gera frekari kröfu um að fá íslenska vöru heldur en verslanir. Árstíðabundin matarmenning Bæði Georg og Sigrún segja að neytendur sæki í ferskleikann öðru fremur og því sé alltaf eftirspurn eft- ir nýrri uppskeru. „Fersleikinn selur og nú eru afurðir vinsælar sem eru aðeins ferskar eða fáanlegar í stutt- an tíma á ári, kannski bara í einn mánuð,“ segir Georg. Hann segir að árstíðabundin mat- armenning sé að færast hingað til lands í auknum mæli en slíkt sé vel þekkt erlendis. „Tökum Holland sem dæmi, en þar er spergill mjög vin- sæll. Þegar hann kemur upp snemma á vorin er hver einasti veit- ingastaður með hann á matseðlinum, bæði í forrétti, aðalrétti og eftirrétti. Það er gríðarleg sala á þessu tíma- bili, þegar hann er nýr og ferskur.“ Þessu er Sigrún sammála: „Það er mikið beðið eftir blómkáli og spergil- káli á vorin, en það telst árstíðabund- ið grænmeti. Svo er grænkálið að verða mjög vinsælt núna og það hef- ur verið aukning á sölu þess und- anfarin ár. Það hefur ekki verið ræktað mikið en var ræktað áður fyrr, ég man eftir ömmu að gera grænkálsjafning, en grænkálið er al- gjört ofurfæði.“ Grænmetisuppskeran er góð  Þrátt fyrir vætutíð í sumar og kalt vor gengur uppskeran víðast hvar vel  Árstíðabundin matarmenning að hasla sér völl  Neytandinn velur íslenskt Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Upptaka Vandað var til verks hjá SH Grænmeti á Flúðum við upptöku og pökkun á grænmeti úr uppskeru sumars- ins. Uppskeran á Flúðum hefur verið með besta móti þrátt fyrir mikið vætutímabil megnið af sumrinu og kalt vor. „Veðráttan hefur breyst og nú eru vorin kaldari en áður. Aftur á móti fáum við betri haust og er- um því með uppskeru lengur á hverju ári,“ segir Georg Ott- ósson. Hann bætir við: „Nú get- um við gert ráð fyrir því að taka upp og vera með góða vöru í október, þó að það geti alltaf komið vont veður. Við búum á Ís- landi og verðum að gera okkur grein fyrir því,“ en hann býst við því að að öllu óbreyttu verði tek- ið upp grænmeti fram í október. Upptaka fram á haust BREYTT VEÐURFAR Íslendingarnir fjórir sem róa á sér- stökum úthafsróðrarbát frá Noregi til Íslands komu að landi í Þórshöfn í Færeyjum í gær eftir tveggja daga róður frá Porkeri á Suðurey. Til Porkeri reru þeir frá Orkneyjum og er sú vegalengd 190 sjómílur í beinni línu. Þeir eru núna búnir með 70% af leiðinni til Íslands. Ef þeim tekst ætlunarverk sitt að róa frá Noregi alla leið til Íslands kemst afrekið væntanlega í heims- metabók Guinness. Leiðin sem áætl- að er að róa er um tvö þúsund kíló- metrar í beinni línu. Leiðangurinn hófst 17. maí í Kristiansand í Nor- egi og 17. júní sl. komu þeir til Orkneyja. Mesti hluti tímans hefur farið í að bíða eftir hagstæðu veðri. Næsti viðkomustaður sæfaranna er Ísland. Sæfarar komnir til Þórshafnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.