Morgunblaðið - 01.08.2013, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013
Til að safna Vildarpunktum Icelandair með ÓB-lyklinum
þarf að hafa hann tengdan Visa Icelandair korti eða
American Express vildarkorti. Einnig er hægt að safna
punktum með Sagakorti. Nánari upplýsingar um
vildarkerfi ÓB eru á ob.is/vildarkerfi
-10KR.
ELD
SNE
YTIS
AFS
LÁT
TUR
MEÐ
ÓB-L
YKLI
NUM
Í DAG
OG
4FALDIR
VILDARPUNKTAR
ICELANDAIR
ALLA HELGINA!
(1.–5. ÁGÚST)
Dæmi: 10.000 kr. áfylling
gefur 600 Vildarpunkta.
ef bílaleigubíll bilar. Sé bilun minni-
háttar getur leigusali látið fram-
kvæma viðgerð á ökutækinu með
samþykki leigutaka.
Geta fengið endurgreitt
Neytendasamtökunum hafa borist
kvartanir vegna gamalla bílaleigu-
bíla, að sögn Kristínar H. Einars-
dóttur, fulltrúa hjá kvörtunar- og
leiðbeiningaþjónustu samtakanna.
Hún mundi eftir aðeins einu tilviki á
þessu ári þegar leigutaki var rukk-
aður um viðgerðarkostnað sem talið
var að rekja mætti til eðlilegs slits.
Þá sprakk slitið dekk og krafðist
bílaleigan nýs dekks af leigutakan-
um. Hún sagði meira um að fólk, sem
hefur leigt gamla bíla, lendi í því að
bílarnir bili og raski þar með ferða-
áætlunum. Kvartanirnar þess efnis
eru þó ekki margar.
„Fólk er kannski að fara hringinn í
kringum landið og bíllinn bilar þrisv-
ar,“ sagði Kristín. „Úr því hefur ver-
ið leyst og bílaleigan sent bílinn á
verkstæði. En þetta þýðir töf fyrir
þann sem á bílnum er og fólk hefur
kvartað yfir því að hafa ekki getað
notað bílinn og jafnvel ekki getað
skoðað það af landinu sem það ætlaði
að skoða.“
Kristín sagði að fólk hefði getað
fengið leigugjaldið endurgreitt fyrir
þá heilu daga eða hálfu sem bíllinn
var úr leik.
Morgunblaðið/Skapti
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Síðustu samningarnir vegna áforma
þýska fyrirtækisins PCC um að
byggja kísilver á Bakka voru und-
irritaðir í gærmorgun. Að sögn
Bergs Elíasar Ágústssonar, bæjar-
stjóra Norðurþings, voru samning-
arnir undirritaðir rafrænt. Þannig
undirriti hann samningana, skanni
þá inn í tölvu og sendi á PCC í
Þýskalandi með rafrænum hætti
auk þess að senda þeim uppruna-
lega eintakið í ábyrgðarpósti. Jafn-
framt munu forsvarsmenn PCC
undirrita samningana með sama
hætti og senda þá síðan til Íslands
með fyrrnefndum hætti.
Aflétta þarf fyrirvörum
„Annars vegar er um að ræða lóð-
arsamninga og allt sem því fylgir og
hinsvegar er um hafnarsamning að
ræða. Þetta eru síðustu samning-
arnir sem við göngum frá þannig að
nú er öllum samningnum hvað þessi
mál varðar lokið af hálfu sveitarfé-
lagsins,“ segir Bergur Elías sem
bætir við að eftir standi að aflétta
þurfi ákveðnum fyrirvörum á orku-
sölusamningum til að þeir virkist en
auk þess þurfi að fylgja eftir í fjár-
lögum þeim lögum sem samþykkt
voru á síðustu dögum þingsins í vor
um uppbyggingu innviða sem nauð-
synleg er til að allt geti gengið upp.
„Alveg við þröskuldinn“
„Þetta er stórt skref fyrir okkur
og í sjálfu sér er framhaldið í hönd-
um annarra en þetta gengur með
ágætum og það er mikill kraftur í
þessu,“ segir Bergur Elías og bætir
við að óskandi sé að þetta gangi eft-
ir enda sé þetta eina erlenda fjár-
festingin sem er alveg við þröskuld-
inn og sveitarfélagið þurfi svo
sannarlega á fjárfestingunni að
halda.
Morgunblaðið/Eggert
Húsavík Öllum samningum varðandi kísilver PCC á Bakka er lokið af
hálfu sveitarfélagsins Norðurþings að sögn Bergs Elíasar Ágústssonar.
Stórt skref fyrir
Norðurþing
Síðustu samningarnir í tengslum við
kísilver á Bakka voru undirritaðir í gær