Morgunblaðið - 01.08.2013, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013
Vef-Þjóðviljinn bendir á eft-irfarandi:
Einn af hverj-um tuttugu
skattframtelj-
endum stendur
ekki undir þeirri
nafnbót og telur ekki fram. Skatt-
stjóri áætlar því tekjur þessa hóps
þegar hann gefur út álagning-
arskrá sína í júlílok ár hvert.
Hluti framteljenda gerir svomistök af ýmsu tagi sem
verða ekki leiðrétt fyrr en síðar í
haust.
Þúsundir manna hafa tekið útséreignarsparnað sinn á liðn-
um árum. Hann kemur fram í
álagningarskrá sem hverjar aðrar
tekjur. Maður sem hefur 400 þús-
und á mánuði í laun í vinnu sinni
en leysti út 2,4 milljónir króna af
séreignarsparnaði sínum á síðasta
ári lítur því út fyrir að vera með
600 þúsund í laun á mánuði þegar
skattstjóri leggur fram skrá sína.
Margir hafa tímabundnartekjur vegna sölu á eignum
og lenda á sérstökum „hákarla-
lista“ skattstjórans þótt ævitekj-
urnar séu ekki endilega glæsi-
legar.
Eins ótrúlegt og það kann aðhljóma þá eru gefin út
„tekjublöð“ þar sem þessar óáreið-
anlegu tölur úr álagningarskránni
eru matreiddar og seldar fólki
sem gagnlegar upplýsingar um
kaup og kjör manna í landinu.“
Við þetta er að bæta að margurskammtar sér tekjur að
smekk úr einkahlutafélagi sínu og
sú skömmtun er fyrirvaralaust
borin saman við tekjutölur skatts-
ins!
Er þetta boðlegt?
STAKSTEINAR
FERSKLEIKI • GÆÐI • ÞJÓNUSTA
HUMARSALAT “á la Café Paris”
með klettasalati, papriku, fetaosti, sultuðum rauðlauk,
cous-cous og hvítlaukssósu
RISARÆKJUR MARINERAÐAR
í chili, engifer og lime, bornar fram með spínati,
klettasalati, rauðlauk, tómötum,
mangó og snjóbaunum
BARBERRY ANDAR ,,CONFIT” SALAT
með geitaosti, brenndum fíkjum, fersku salati,
rauðrófum, melónu, ristuðum graskersfræjum,
rauðlauk og appelsínufíkjugljáa
Veður víða um heim 31.7., kl. 18.00
Reykjavík 12 heiðskírt
Bolungarvík 12 heiðskírt
Akureyri 9 skýjað
Nuuk 13 skúrir
Þórshöfn 13 skýjað
Ósló 16 þrumuveður
Kaupmannahöfn 20 léttskýjað
Stokkhólmur 16 léttskýjað
Helsinki 18 skýjað
Lúxemborg 23 skýjað
Brussel 25 léttskýjað
Dublin 15 alskýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 22 skýjað
París 27 léttskýjað
Amsterdam 20 skýjað
Hamborg 22 heiðskírt
Berlín 23 heiðskírt
Vín 26 skýjað
Moskva 20 skýjað
Algarve 30 heiðskírt
Madríd 37 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 32 léttskýjað
Róm 30 léttskýjað
Aþena 28 heiðskírt
Winnipeg 17 léttskýjað
Montreal 22 skýjað
New York 26 heiðskírt
Chicago 20 alskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
1. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:36 22:33
ÍSAFJÖRÐUR 4:20 22:59
SIGLUFJÖRÐUR 4:02 22:43
DJÚPIVOGUR 4:00 22:08
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Keyra þarf nemendur úr Sæmund-
ar-, Ingunnarskóla og Dalskóla í
Grafarholti í skólasund upp í Mos-
fellsbæ næstkomandi vetur þar sem
bæði Grafarvogs- og Árbæjarlaug
eru sprungnar. Þetta segir Marta
Guðjónsdóttir, varaborgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og
fulltrúi flokksins í íþrótta- og tóm-
stundaráði borgarinnar.
„Mér finnst það dálítið aumt að
stærsta sveitarfélag landsins og það
sveitarfélag sem á að vera leiðandi í
öllum málaflokkum þurfi að leita til
annarra sveitarfélaga til að geta
sinnt sinni lögboðnu þjónustu,“ segir
Marta. Hún bendir einnig á að
Reykjavíkurborg hafi fengið kvört-
un frá menntamálaráðuneytinu sök-
um þess að skólar innan borginnar
hafa ekki getað uppfyllt lögbundna
skyldutíma í sundi og því hafi verið
brugðið á það ráð að leita til annarra
sveitarfélaga til að sinna skólasund-
inu. „Vesturbæjarskóli hafði líka
hugmyndir um að fara með skóla-
sundið út á Seltjarnarnes,“ segir
Marta og bætir við að borgin sé ekki
að sinna sínum skyldum.
Þá undrar Marta sig á því að
bygging nýrrar sundlaugar í Úlfars-
árdal hafi ekki verið sett í forgang
hjá borgaryfirvöldum enda séu
Grafarholtið og Úlfarsárdalur stór
barnahverfi auk þess sem foreldrar
hafi kvartað yfir þessu vandamáli
áður. Hún segir það skjóta skökku
við að meirihlutinn í borginni ætli að
bæta útilaug við Sundhöll Reykja-
víkur áður en hafist verður handa
við byggingu sundlaugar í Grafar-
holti og Úlfarsárdal.
Áhersla lögð á miðbæinn
„Það eru einhverjar áætlanir um
að byggja sundlaug þarna núna en
hvenær verður hún tilbúin? Eftir tvö
ár? Borgarmeirihlutinn ræður ekki
einu sinni við það að byggja eina litla
kennslusundlaug í stóru barnahverfi
á þessu kjörtímabili,“ segir Marta
sem bendir á að mun meiri áhersla
hafi verið lögð á að viðhalda þjón-
ustu í miðbænum heldur en í út-
hverfum borgarinnar.
Þá bendir hún á til samanburðar
að þegar að Sjálandsskóli var byggð-
ur í Garðabæ fyrir nokkrum árum
hafi kennslulaug verið komið fyrir
innanhúss í skólanum.
Í samtali við Morgunblaðið stað-
festir Flosi Kristjánsson, verkefna-
stjóri við skóla- og frístundasvið
Reykjavíkurborgar, að Varmárlaug
í Mosfellsbæ hafi verið tekin á leigu
nokkra tíma í viku til að leysa vanda
skólanna í Grafarholti.
Morgunblaðið/RAX
Skólasund Grunnskólanemendur í Grafarholti verða næsta vetur keyrðir í
skólasund í Varmárlaug uppi í Mosfellsbæ. Myndin er tekin í Árbæjarlaug.
Útvista skólasundi
til Mosfellsbæjar
Borgin fékk kvörtun frá ráðuneyti