Morgunblaðið - 01.08.2013, Side 11

Morgunblaðið - 01.08.2013, Side 11
Vinna við tankinn hófst í síðustu viku og áætlað er að vinnu ljúki í lok þessa mánaðar og verkið þá tekið út. Að því loknu verður tankurinn hjúp- aður fram til föstudagsins 6. sept- ember klukkan 18 þegar hann verð- ur afhjúpaður við hátíðlega athöfn við upphaf Ljósanætur í Reykja- nesbæ. Ísland fyrsti staðurinn utan Hollands Flest verk toyista er að finna í Emmen í Hollandi, á heimaslóðum upphafsmanns og höfundar toyisma. Þar er m.a. að finna gastank sem gengið hefur í endurnýjun lífdaga með aðstoð listahópsins og fékk þemað „The Dot“ eða doppan og hótelið Ten Cate sem fékk þemað „Dreams for Breakfast“ eða draumar í morgunverð sem svo sannarlega ætti að laða að litaglaða gesti. „Við íslensku toyistarnir kom- um að hótelverkefninu og munum fara aftur út á næstu árum til þess að klára að mála þau herbergi sem á að mála. Við erum búin að klára 7 en 6 eru eftir.“ Að sögn Qooimmee er Ísland fyrsta landið utan Hollands þar sem hópurinn vinnur að verk- efni, en undirbúningur er hafinn að verkefni í Rúmeníu. „Það var auðsótt mál að fá að vinna að þessu verkefni hér í Reykjanesbæ. Árni Sigfússon bæj- arstjóri tók vel í beiðni okkar og Morgunblaðið/Dejo Doppan Gas- tankur í Emmen í Hollandi fékk þemað doppan eftir listsköpun toyista. Verkefni sem þessi geta aldrei orðið aðalstarf toyista, heldur er þetta aðallega hugsjónaverk- efni og þátttaka byggist m.a. á því hverjir geta lagt því lið á vinnutím- anum. bauðst til þess að láta undirbúa tankinn fyrir verkið og að útvega okkur stillansa en við áttum sjálf að standa straum af öðrum kostnaði með styrktarsöfnunum.“ Saga á bak við hvert verk Nokkuð erfiðlega gekk að fá styrki í fyrstu, að sögn Qooimmee en 9 mánuðum eftir að kynning á verk- efninu hófst, barst fyrsti styrkurinn. „Þá var líka eins og fljóðbylgja opnaðist, því eftir að fyrsti styrk- urinn var í höfn var eins og fleiri hefðu trú á verkefninu og voru til- búnir að styrkja það.“ Styrkirnir gera það að verkum að hópnum tekst að vera réttum megin við núll- ið, m.a. smávægilegum launum sem duga fyrir flugmiðum og uppihaldi þeirra sem koma erlendis frá. Verk- efni sem þessi geta aldrei orðið að- alstarf toyista, heldur er þetta að- allega hugsjónaverkefni og þátttaka byggist m.a. á því hverjir geta lagt því lið á vinnutímanum. Oftast kem- ur hugmynd að verkefnum frá hópn- um sjálfum, líkt og raunin varð í Reykjanesbæ, en einnig er leitað til hópsins með verkefni. „Það er alltaf saga á bak við hvert verk toyista, ef ekki er saga þá er verkið tilgangslaust, segir í stefnuyfirlýsingu Toyisma. Í upphafi þessa verkefnis var fyrsta hugsunin vatn og það leiddi okkur að upp- sprettu. Leiðarvísirinn með sögunni varð því sá að hann yrði að tengjast vatni á einhvern hátt.“ Hægt er að kynna sér hópinn betur á heimasíð- unni uppspretta.com. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013 NÝ ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA H 2 hö nn un / h2 h. is Síðasti viðburðurinn í tónleikaröð- inni sem farið hefur fram kvik- myndahúsinu Bíó Paradís í sumar mun verða í kvöld. Um er að ræða fjórðu tónleika sumarsins og munu sveitin Samaris og tónlistarmað- urinn Arnljótur stíga á svið. Samaris þarf vart að kynna fyrir lesendum en þau gáfu út plötu fyrir skemmstu sem hefur fengið glimr- andi dóma. Draumkennd raftónlist þeirra mun eflaust koma vel út í kvöld. Arnljótur hefur að sama skapi komið víða við en samkvæmt upp- lýsingum mun hann galdra fram hljóðheim sem einkennist af spuna- kenndri síkadelíu. Ekki er nóg með að tónleikagestir fái að njóta ljúfra tóna heldur mun reykvíski listamað- urinn Klængur Gunnarsson skemmta viðstöddum með sjón- rænum brellum á meðan á tónleik- unum stendur. Tónleikarnir hefjast klukkan 22 og sökum þess að um síðustu tónleika sumarsins er að ræða fara þeir fram í stærsta sal bíósins. Frítt er inn og allir velkomnir. Samaris og Arnljótur koma fram í Bíó Paradís í kvöld Tónleikar Síðustu tónleikar sumarsins í Bíó Paradís verða klukkan 22 í kvöld. Síðustu tónleikar sumarsins Fjarðarkaup Gildir 1.-3. ágúst verð nú áður mælie. verð Svínalundir, kjötborð................................... 1.698 2.398 1.698 kr. kg Svínahnakki, kjötborð ................................. 1.298 1.598 1.298 kr. kg Hamborgarar m/brauði, 2x115 g ................. 420 504 420 kr. pk. Fjallalambs skyndigrill................................. 1.898 2.379 1.898 kr. kg Fjallalambs fjallalæri .................................. 1.398 1.398 1.398 kr. kg Nautainnralæri, kjötborð ............................. 2.798 3.398 2.798 kr. kg FK kjúklingabringur ..................................... 1.998 2.398 1.998 kr. kg Ali hunangskótil. reyktar/beinl. .................... 1.998 2.398 1.998 kr. kg Hagkaup Gildir 1.-5. ágúst verð nú áður mælie. verð Hagkaup grill lambalæri .............................. 1.819 2.598 1.819 kr. kg Holta bbq vængir, 800 g ............................. 418 697 418 kr. pk. Holta bbq vængir, 800 g ............................. 418 697 418 kr. pk. Ísfugl kalkúnasn. m/lemongras.................... 1.539 2.199 1.539 kr. kg Ísl. lamb innralæri ...................................... 2.998 4.997 2.989 kr. kg Baguette brauð .......................................... 199 269 199 kr. stk. Epla og kanilhringur .................................... 999 1.399 999 kr. stk. Heilkornabrauð........................................... 329 489 329 kr. stk. Helgartilboðin Toyismi er listastefna sem upprunnin er í Hollandi. Listamaðurinn Dejo var hrifinn af ismum og fannst auk þess of mikil persónudýrkun í list og stofnaði því sinn eigin myndlistarhóp, þegar hann lauk myndlistarnámi fyrir 22 árum. Markmiðið var að isminn væri ein heild og þátttakendur væru eins og ein stór fjölskylda þar sem hver einstakur lista- maður væri aðeins brot af heildinni. Einungis 26 aðilar geta verið toyistar í einu, því það er fjöldi stafa í hinu al- menna stafrófi. Hver þátttakandi velur sér toyistanafn og það má ekki vera hægt að finna það með Google-leit. Hann fær því eins konar hliðarsjálf, því sitt eigin- nafn notar þátttakandinn ekki inn- an hópsins. Inngangan í toyismann veltur svo á því hvernig umsækjandi kemur út úr starfsviðtali og hversu vel hann getur samlagast stefnuyfirlýsingu toyisma, ásamt því að leika sér með hana á skapandi hátt. Engrar sérstakrar menntunar er krafist en þó er æskilegt að einstaklingurinn sé listrænn með list- námsgráðu, og er bakgrunnur þátttakenda margs- konar. Allir toyistar hylja andlit sín með grímum enda persóna þeirra aukaatriði þegar þeir vinnan innan stefnunnar. Eins og nafnið gefur til kynna snýst stefnan um leik; lífið er til að leika sér og maður á að glæða lífið litum. 3 Íslendingar eru hluti af hópnum, allir búsettir í Reykja- nesbæ. Nánar má lesa um lista- stefnuna á vefsíðunni toyism.com. Toyismi er einskonar fjölskylda STEFNA FRÁ HOLLANDI Grímur Toyistar í hvíld. Grímur í geymslu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.