Morgunblaðið - 01.08.2013, Page 12

Morgunblaðið - 01.08.2013, Page 12
SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Stuttri en snarpri vinnulotu í makr- ílvinnslunni hjá G.Run í Grundar- firði lýkur á morgun. Síðustu tvær vikurnar eða svo hefur verið staðin sólarhringsvakt í vinnsluhúsi fyrir- tækisins. Keyrt er á fullri ferð og svo þarf líka að vera. „Þetta er góð búbót, bæði fyrir okkar rekstur en ekki síður starfsfólkið. Makríllinn fyllir upp í eyðurnar hjá okkur,“ segir Guðmundur Smári Guð- mundsson framkvæmdastjóri. 500 tonn á vertíðinni „Þorskvótinn er því sem næst uppurinn og við gerðum hlé á veið- um og vinnslu snemma í júní. Hefði makríllinn, þessi nýi nytjastofn Ís- lendinga, ekki komið til hefðum við verið stopp í allt sumar, en þetta brúar bilið sem er öllum til bóta.“ Á sumarververtíðinni eru unnin um 500 tonn af makríl hjá G.Run. Togbátar fyrirtækisins, Hringur SH og Helgi SH, eru þrjá til fjóra tíma á miðin út af Breiðafirði. Hver veiði- ferð tekur um sólarhring og þegar í land er komið skiptir miklu að vinnslan gangi greitt. Einnig vinnur G.Run makríl frá Samherjaskipinu Björólfi EA og Kaldbak EA sem ÚA gerir út, auk þess sem keyptur er afli frá minni bátum. Rússarnir sólgnir í fitu „Það er mikil áta í makrílnum og hann því fljótur að þrána, sé ekki rétt að málum staðið. Því þarf að kæla aflann alveg niður að frost- marki um leið og hann er kominn um borð og eins hér í vinnslunni. Vegna átunnar hausum við fiskinn og slógdrögum og svo er hann fryst- ur. Þetta skilar okkur verðmætri vöru,“ segir Guðmundur Smári sem reiknar með að tekjur fyrirtækisins af makrílnum á þessari vertíð verði 75 til 80 millj. kr. „Íslendingar borða ekki makríl, sem fæstir raunar þekkja og þeim sem bragðað hafa finnst of feitur. Hins vegar gera margar þjóðir makrílinn sér að góðu. Helstu markaðirnir eru t.d. Rússland, Georgía og Afríkuríki eins og t.d. Egyptaland. Í þessum löndum er rík hefð fyrir kolvetnaríkri fæðu. Mín heimatilbúna kenning er sú að fólk í þessum löndum sé sólgið í fit- una.“ Stjórnvöld hentu sprengju Heildarkvóti Íslendinga í makríl á þessari vertíð er 123 þúsund tonn. Við úthlutun er meginreglan sú að 70% aflans í pottinum fara til út- gerða stærri uppsjávarskipa, það er í krafti veiðireynslu. Hver netabát- ur fær 20 t., ísfisktogarar 100 t. og hverjum frystitogara eru eyrna- merkt 800 t. í varanlegum kvóta. „Þetta eru afleitar reglur og skiptingin er ekki sanngjörn. Veiði- reynslan hefði átt að gilda meira og núverandi fyrirkomulag getur leitt af sér allskonar æfingar í við- skiptum. Menn á smábátum fara varla í stórum stíl á makrílveiðar. Að mér hefur læðst sá grunur að fyrrverandi ríkisstjórn hafi ákveðið að skipting kvótans skyldi vera ruglingsleg til þess að skapa úlfúð innan sjávarútvegsins, eins og alltaf getur gerst þegar um mikla og ólíka hagsmuni er að tefla. Tilgangurinn var einfaldlega að henda sprengju inn í greinina.“ Lækkun gjalda léttir róðurinn Bolfiskvinnsla er hryggurinn í starfsemi G.Run. Heildarkvóti skip- anna tveggja, Hrings og Helga, verður á næsta fiskveiðiári um 4.000 þorskígildistonn, það er rösklega 10% meira en á því kvótatímabili sem lýkur 31. ágúst. „Með auknum kvóta getum við haldið úti vinnslu þremur vikum lengur en á kvótaárinu sem nú er að ljúka,“ segir Guðmundur Smári. Hann bætir við að lækkun veiði- gjaldsins svokallaða létti sjávar- útveginum mjög róðurinn. Á síðustu misserum hafi fyrirtækið greitt um 100 millj. kr. í kvótaskatt, sem nú lækki um helming. „Þessi skattur var þung byrði t.d. á minni sjávarútvegsfyrirtækin hér á Nesinu og einhver þeirra hefði þrotið örendið að óbreyttu. Lægri skattar skapa fyrirtækj- unum svigrúm, til dæmis til fjárfestinga í skipum eins og mikil þörf er á. Nú geta menn horft til framtíðar.“ Makríllinn fyllir í eyðurnar  Veiðar og vinnsla á makríl brúa bilið hjá G.Run í Grundarfirði  Góð búbót sem skilar fyrirtækinu 80 millj. kr. í tekjur  Lægri kvótaskattur skapar svigrúm  Fjárfestingar er þörf í atvinnugreininni Morgunblaðið/Sigurður Bogi Makrílmeyjar María Debiec, sem er fremst, Justyna Krynska og Joanna Sokolowska, sem eru pólskar, tóku rösklega til hendi, enda uppgrip á vertíðinni. Sjósókn Hringur SH stefnir út Grundarfjörðinn. Makrílmiðin eru út af Breiðafirði, svo ekki er langt á miðin og hver túr tekur um sólarhring. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013 Til sjós og lands starfa um 85 manns hjá G.Run. Fólkið er á öll- um aldri og útlendingarnir áber- andi. „Við tökum alltaf nokkra sumarkrakka sem hér læra að vinna, segja foreldrarnir mér,“ segir Guðmundur. Meðal starfs- manna í makrílnum er ung kona, Rúna Ösp Unnsteinsdóttir. Hún er með Downs-heilkenni og hefur jafnframt glímt við ýmis veikindi. „Í sjávarplássum fá yfirleitt allir vinnu í fiski. Það er öllum óend- anlega mikilvægt í lífinu að fá hlutverk við hæfi þó hæfi- leikar og geta hvers og eins séu misjafnir og ólíkir og fólkið er margt. Hér á bæ er okkur mik- ið metnaðarmál að koma til móts við fólk eins og Rúnu Ösp, frænku mína, sem er virkilega góður starfs- maður.“ Allir fái hlut- verk við hæfi 85 STARFSMENN Vinir Guðmundur Smári og Rúna Ösp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.