Morgunblaðið - 01.08.2013, Page 15
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hundruð einstaklinga hafa leitað til
Umboðsmanns skuldara og spurt
hvort þeir eigi rétt á endurreikningi
gengislána á
grundvelli
gengislánadóma
Hæstaréttar. Að
sögn Hjörleifs
Gíslasonar, lög-
fræðings á skrif-
stofu Umboðs-
manns skuldara
(UMS) hefur bor-
ist fjöldi fyrir-
spurna um
gengislán. Flest-
ar varði gengistryggð lán sem
Hæstiréttur hafi dæmt ólögmæt og
viðkomandi lánastofnun hafi viður-
kennt að séu ólögmæt. Lántakar vilji
vita hvenær endurútreiknings sé að
vænta og hvort viðkomandi lána-
stofnun geti stöðugt tafið endur-
útreikning.
Horft til „kvittanadóma“
Margar fyrirspurnir komi frá ein-
staklingum sem fengu gengislán
endurreiknuð eftir að Hæstiréttur
dæmdi slík lán ólögleg og að miða
skyldi við óverðtryggða vexti Seðla-
banka Íslands. Hófst sá endur-
útreikningur eftir setningu svo-
nefndra Árna Páls-laga í desember
2010. Síðan hafa fallið svonefndir
kvittanadómar í gengislánamálum
fyrir Hæstarétti og segir Hjörleifur
marga hafa samband og spyrjast
fyrir um hvort þeir eigi ekki rétt á
öðrum endurútreikningi á grundvelli
umræddra kvittanadóma.
„Þessir einstaklingar hafa þá að
jafnaði fengið þau svör frá sinni lána-
stofnun að sökum óvissu liggi ekki
fyrir hvort endurreikna beri viðkom-
andi lán og e.t.v. með hvaða hætti.
Þar sem greiðsluflæði láns sé ekki
með sama hætti og þau lán sem
dæmt hefur verið um í svokölluðum
kvittanadómum, liggi ekki fyrir
hvort skylda til frekari endur-
útreiknings sé til staðar.“
Með því vísar Hjörleifur til þess að
í Hæstarétti hafa verið rakin ákveðin
skilyrði fyrir beitingu undan-
tekningarreglu um fullnaðarkvitt-
anir og einhverjar lánastofnanir hafi
ekki enn fallist á það að þessi skilyrði
séu uppfyllt varðandi ákveðin lán.
Má í því efni rifja upp að tekið er
fram í kvittanadómum Hæstaréttar
að ekki megi hrófla með íþyngjandi
hætti við skuldbindingum afturvirkt
á kostnað neytenda. Þýðir það til ein-
földunar að ef notkun óverðtryggðra
vaxta í stað samningsvaxta leiðir til
hárrar viðbótarkröfu á tímabilinu
sem deilt er um sé óheimilt að krefja
um seðlabankavexti, heldur skuli
miðað við samningsvexti fram að
fyrri endurútreikningi.
Hjörleifur segir að ef gengislán
hafi farið í greiðslufrestun, eða
„frystingu“, lántakendur lent í van-
skilum um hríð eða eftir atvikum
þegið ýmis greiðsluúrræði hafi ein-
hverjar lánastofnanir endurreiknað
lán fyrir þessi tímabil með seðla-
bankavöxtum, ýmist að hluta eða í
heild, í stað þess að miða við samn-
ingsvexti. Margar fyrirspurnir snú-
ist um misræmi sem fram komi þeg-
ar lántakar sjá misræmi í
viðmiðunarútreikningi á stöðu láns-
ins, samkvæmt reiknivél á vef UMS,
og endurútreikningi lánastofnana.
Að sögn Hjörleifs snýst deila lántaka
og lánastofnana þegar nýr endur-
útreikningur hefur verið birtur
þannig um það hvenær sé heimilt að
endurreikna lán með lægstu óverð-
tryggðu vöxtum Seðlabankans.
Sum lánin álitin vera lögleg
Hjörleifur segir einnig að embætt-
inu hafi borist fjöldi erinda og fyrir-
spurna í kjölfar þess að lánastofn-
anir hafa tilkynnt lántökum að lán
þeirra séu lögmæt erlend lán og
verði því ekki endurreiknuð að nýju.
Eftir atvikum hafi lántakar óskað
eftir hlutlausu áliti UMS á höfnun
lánastofnana á frekari endur-
útreikningi vegna þessa. Að mati
Hjörleifs er ljóst að mikill fjöldi lán-
taka er í þeirri stöðu að vera með
gild erlend lán. Embættinu hafi bor-
ist tugir erinda sem varði lögleg er-
lend húsnæðislán Íslandsbanka og
svonefnd SPRON-lán. Bílalán virðist
hverfandi hluti hinna löglegu lána.
Mikið spurt um endurgreiðslu lána
Fjöldi fólks hefur leitað til Umboðsmanns skuldara vegna synjunar á endurútreikningi gengislána
Einnig spurt um misræmi í útreikningi lánastofnana og útreikningi reiknivélar á vef embættisins
Morgunblaðið/Ómar
Úr Hallgrímskirkjuturni Fjöldi fólks tók gengislán fyrir hrunið.
Hjörleifur
Gíslason
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013
Að sögn Hjörleifs hefur embætt-
inu borist fjöldi fyrirspurna í
kjölfar dóms Hæstaréttar í máli
Lýsingar gegn Bjarnþóri Erlends-
syni 24. apríl 2013.
Dómurinn varði leiðréttingu á
ísl. hluta blandaðs lánasamnings
Lýsingar, 50% í erlendri mynt og
50% í ísl. krónum. Spurt sé m.a.
hvort það geti staðist að kröfur
séu fyrndar að hluta, líkt og Lýs-
ing hafi tilkynnt einhverjum lán-
tökum. Hjörleifur tekur fram að
þótt notast sé við samheitið
lánastofnanir um fyrirtæki sem
hafi með gengistryggð lán að
gera, sé misjafnt hvernig þessi
mál snúi að hinum ýmsu fyrir-
tækjum. Hann segir dæmi um að
lántakar leiti til embættisins
vegna þess að þeir fái ekki
endurútreikning á gengislánum
sem þeir hafi greitt upp, ýmist
skv. Árna Páls-lögunum eða skv.
kvittanadómum. Þar í hópi séu
viðskiptavinir sem greiddu upp
lán sín í tíð hinna föllnu fjármála-
fyrirtækja og fólk sem hafi greitt
upp lánin fyrir setningu Árna
Páls-laganna í des. 2010.
Horft til máls
Lýsingar
KRÖFUR SAGÐAR FYRNDAR
Þú ert í leit að ævintýrum, við erum í leit að tæknilegri fullkomnun. Allar aðstæður eru
kjöraðstæður fyrir BMW XDrive fjórhjóladrifskerfið. Þótt veðrið sé óútreiknanlegt er
akstursánægjan í X línunni eitthvað sem þú getur treyst á.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
7
9
8
6
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílahúsið
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
ÞETTA ER BÍLLINN SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SKOÐA.
DÍSIL xDRIVE 1,8d – 143 HESTÖFL
5,5 L/100 KM Í BLÖNDUÐUM AKSTRI. VERÐ FRÁ 6.090.000