Morgunblaðið - 01.08.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.08.2013, Blaðsíða 16
ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Nú er stefnt að því að mála bæinn rauðan! Enn er komið að Einni með öllu, árlegri fjölskylduhátíð á Akur- eyri um verslunarmannahelgi, og aðstandendur fara þess á leit að heimamenn skreyti hús og garða með rauðu, í samræmi við hjartað sem hefur sett svip á bæinn und- anfarin ár, m.a. í götuljósum.    Fáir gestir voru á tjaldstæðum bæjarins í gær, enda veðrið haust- legt. Eflaust leggja þó margir leið sína á Eina með öllu sem endranær.    Sólarvörn víkur að mestu fyrir lopapeysunni næstu daga í höfuð- stað Norðurlands og nágrenni, ef marka má veðurspána. Margra vikna sólarmont er að baki. En norð- anmenn hugga sig við að fátt er notalegra en klæðast lopapeysu í fal- legu umhverfi og góðum félagsskap á nöpru sumarkvöldi.    Fjöldi atburða er á dagskrá Einn- ar með öllu; forskot verður tekið á sæluna með tónleikunum í Skáta- gilinu í kvöld og næstu þrjá daga kemst líklega enginn hjá því að verða einhvers var þótt viðkomandi leggi sig allan fram, svo þéttriðið net atburða verður í bænum.    Handhægast er að kynna sér dagskrá helgarinnar á síðunni www.einmedollu.is á vefnum en nefna má Óskalagatónleika í Ak- ureyrarkirkju annað kvöld – þar sem bekkurinn hefur verið þétt set- inn undanfarin ár – kirkjutröppu- hlaup, skautadiskó og skemmti- dagskrá í Skátagilinu um miðjan dag og að kveldi.    Viðburðurinn Mömmur og möffins er á sínum stað í Lystigarð- inum, kl. 14 til 16 á laugardaginn og nauðsyn að vekja athygli á. Þar eru seldar þessar litlu kökur sem „mömmurnar“ kalla möffins og pen- ingarnir renna til fæðingardeildar Sjúkrahússins á Akureyri. Sam- koman komst í fréttir þegar yf- irvaldið bannaði söluna á sínum tíma, því kökurnar væru ekki bak- aðar í viðurkenndu eldhús.    Tónlist verður leikin í Lystigarð- inum á mömmu- og möffins- stundinni. Hermann Arason og Inga Eydal fremja þar músík og kalla dú- ettinn Heilbrigðiseftirlitið …    Á sunnudaginn verður hefð- bundin lautarferð við Iðnaðarsafnið í innbænum, þar sem boðið verður upp á eina með öllu, þar á meðal rauðkáli, og kók í bauk (með áherslu á k-in) með lakkrísröri!    Dansað verður á flestum skemmtistöðum bæjarins á hverju kvöldi og rúsínan í pylsuendanum; þessarar einu, sönnu með öllu, eru Sparitónleikar á sunnudagskvöldið þar sem fjöldi listamanna stígur á svið. Tónleikarnir fara að þessu sinni fram á Akureyrarvelli á nýjan leik.    Enn eitt vígið er fallið! Kona varð í fyrsta skipti formaður á dög- unum í Rótarýklúbbi Akureyrar. Rannveig Björnsdóttir var kjörin til embættisins og svo skemmtilega vill til að stjórnin er einungis skipuð konum; ritari er Soffía Gísladóttir og gjaldkeri Ingiríður Ásta Karlsdóttir.    Framundan er síðasta sýning- arhelgi á Réttardegi Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur í Listagilinu. Sýn- ingin, sem Aðalheiður opnaði á fimmtudagsafmæli sínu í sumar, er án efa sú athyglisverðasta sem sett hefur verið upp í höfuðstað Norður- lands í háa herrans tíð.    Viðfangsefni Aðalheiðar er ís- lensk bændamenning og menning tengd sauðkindinni. Þúsundir hafa séð sýninguna á undanförnum vik- um og sannarlega ástæða til að hvetja þá sem ekki hafa gert sér ferð í Listagilið að drífa í því.    Dagbjört Brynja Harðardóttir myndlistarmaður opnar sýninguna Píkublóm í sal Myndlistarfélagsins á laugardaginn. Hún sýnir málverk unnin með olíu og akrýl ásamt inn- setningu á píkublómum úr hekluð- um pottaleppum og dúllum.    „Sýningin mín er lofgjörð til kvenleikans, lífs og vaxtar en er um leið ádeila á öfgafull fegurðarviðmið sem m.a. birtast í aukinni tíðni á lýtalækningum á píkum,“ segir Brynja, sem vonast til að sýningin skapi umræðu m.a. um skaðsemi „öfgafullra fegurðarviðmiða sem geta bjagað sjálfsmynd og líðan kvenna sem og karla og dregið úr lífsgæðum þeirra“. Rauð ein með öllu – líka rauðkáli Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Mömmur og möffins Ungir sem aldnir hafa undanfarin ár girnst kökurnar litlu sem seldar eru í Lystigarðinum. Sögulegt Ný stjórn Rótarýklúbbs Akureyrar; Soffía Gísladóttir ritari, Rannveig Björnsdóttir formaður og Ingiríður Ásta Karlsdóttir gjaldkeri. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013 Laugardaginn 3. ágúst verður Inn- djúpsdagur haldinn í þriðja skipti, en þá verður efnt til fjölskylduhá- tíðar með miðaldaívafi við inn- anvert Ísafjarðardjúp. Inndjúpsdagurinn er samstarfs- verkefni fræðimanna sem starfað hafa við fornleifauppgröft í Vatns- firði, aðila í ferðaþjónustu við inn- anvert Ísafjarðardjúp og Súðavík- urhrepps. Hægt verður að fræðast um forna frægð Vatnsfjarðar undir leiðsögn fræðimanna og staðkunn- ugra. Í Heydal á laugardag verður frumsaminn leikþáttur um Gull- kistuna í Djúpinu, hlaðborð hlaðið kræsingum úr Djúpinu og miðalda- dansleikur. Allt er þetta í boði fyrir 4.500 krónur á mann. Undanfarin ár hafa farið fram umfangsmiklar fornleifarann- sóknir í Vatnsfirði. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vatnsfjörður Fornleifar hafa verið grafnar upp frá 2005 og þar er nú kennsla í boði. Margt verður í boði á Inndjúpsdeginum Þorgrímur Daní- elsson, sóknar- prestur á Grenj- aðarstað, hyggst ganga á þrjátíu fjöll og/eða tinda í ágúst til að vekja athygli á Landspítala- söfnun þjóðkirkjunnar. Sem kunnugt er hefur þjóð- kirkjan hrundið af stað söfnun til kaupa á geislatæki, svonefndum línuhraðli, sem notaður er við krabbameinslækningar á Landspít- alanum. Hægt verður að fylgjast með ferðum sr. Þorgríms á Face- book-síðunni 30 Tindar í ágúst. Þorgrímur mun ganga á fjöll víða um land og hægt verður að slást í för með honum. Gengur á þrjátíu fjöll og safnar fé Samstöðuhópur öryrkja og eldri borgara efnir til baráttufundar við Stjórnarráðið við Lækjartorg í dag, fimmtudag, kl. 13-14. Efnt var til sams konar fundar við velferðar- ráðuneytið í síðustu viku. „Markmið fundarins er að fá stjórnvöld til að standa við loforð um tafarlausar hækkanir á al- mannatryggingum afturvirkt til 2009, á bótum til eldri borgara og öryrkja,“ segir í tilkynningu. Baráttufundur við Stjórnarráðið STUTT Lyftarar í öll verkefni Brautarholt 26-28 | 105 Reykjavík Sími 511 1100 | www.rymi.is | www.riverslun.is Brettatjakkar Háhillulyftarar Staflarar Tínslutæki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.