Morgunblaðið - 01.08.2013, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013
Heimsþekkt vörumerki frá öllum helstu framleiðendum í iðnaðarvörum og þetta er aðeins brot af þeim merkjum sem við bjóðum upp á
Verkfæri og öryggisvörur
Brammer Ísland ehf | Steinhella 17a | 221 Hafnarfjörður | Sími: 522 6262 | www.brammer.is
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Kaupfélag Skagfirðinga opnaði
nýja verslun félagsins eftir end-
urbætur á húsnæði þess á Suð-
urbraut á Hofsósi um miðjan síð-
asta mánuð. Eldur kom upp í
húsnæðinu í maí 2011 og í millitíð-
inni var útibú Kaupfélagsins í
bráðabirgðahúsnæði Björgunar-
sveitarinnar Grettis.
Húsnæðið fór mjög illa í elds-
voðanum og að sögn Árna Bjarka-
sonar, útibússtjóra var í raun allt
hreinsað út úr byggingunni, meira
að segja hafi útveggir verið steypt-
ir upp á nýtt. Kostnaður við upp-
bygginguna fæst ekki uppgefinn
en ljóst má vera að hann hleypur á
tugum milljóna króna.
Straumur ferðamanna
Spurður um viðtökurnar segir
Árni að þær hafi verið mjög góðar
og heimamenn séu í skýjunum með
nýju verslunina. „Bæði er þetta
stærri og bjartari verslun og vöru-
úrvarlið er meira heldur en var í
gömlu versluninni,“ útskýrir Árni.
Þá er búið að lengja afgreiðslutím-
ann og í sumar verður opið til 22 á
virkum dögum og til 21 um helgar.
Í nýju versluninni er einnig veit-
ingasala þar sem hægt er að fá
pylsur og pitsur og er því tilvalinn
viðkomustaður fyrir ferðalanga.
Árni segir einmitt að þónokkur
straumur innlendra sem erlendra
ferðamanna hafi verið í verslunina
síðan hún var opnuð 21. júní.
Þakkar hann ferðamannastraum-
inn hinni nýju sundlaug á Hofsósi
sem og Vesturfarasetrinu sem
ávallt sé vel sótt.
Hraðbanki í skoðun
Í bráðabirgðahúsnæði Kaup-
félagsins var hraðbanki en athygli
vekur að eftir flutninginn er eng-
inn hraðbanki á Hofsósi. Næsti
banki er í 40 km fjarlægð á Sauð-
árkróki en eina bankaútibúinu á
Hofsósi var lokað fyrir nokkrum
árum. Árni segir að bæði heima-
menn og ferðamenn spyrji mikið
um hraðbanka.
Jóel Kristjánsson, útibússtjóri
Arion banka á Sauðárkróki segir
að til standi að bæta úr. Hinsvegar
hafi dregist að fá niðurstöðu í það
hvort bankinn fái inni í hinu nýja
húsnæði Kaupfélagsins. Jóel á von
á því að málið leysist á næstunni
en aðspurður segir hann að kvart-
anir hafi borist frá íbúum á Hofs-
ósi vegna þessa. Hann skilur
kvartanirnar mjög vel en vonar að
málið leysist fyrir sumarlok.
Ólafur Sigmarsson,
framkvæmdastjóri verslunarsviðs
Kaupfélags Skagfirðinga, segir að
málið sé í skoðun. Ekki hafi komið
til greina að flytja hraðbankann
sem var í bráðabirgðahúsnæðinu í
það nýja, sá hafi einfaldlega ekki
hentað. „Við höfum fengið senda
hugmynd að nýjum hraðbanka frá
Arion og við erum að skoða hvort
hann komist fyrir, þannig að vel
fari,“ segir Ólafur og tekur fram
að sú gerð hraðbanka sé minni.
Nýtt og betra kaupfélag á Hofsósi
Kaupfélag Skagfirðinga komið í „nýtt“ húsnæði Byggðu upp húsnæðið sem varð eldi að bráð
2011 Viðtökur heimamanna og ferðalanga með miklum ágætum Vantar hraðbanka í plássið
Ljósmynd/Björn Björnsson
Verslun Árni Eyþór Bjarkason, útibússtjóri í Kaupfélaginu á Hofsósi, segir
íbúa ánægða með nýju verslunina sem var opnuð 21. júní síðastliðinn.
Enginn
banki hefur
verið á
Hofsósi síð-
an Nýi
Kaupþings-
banki lokaði
útibúi sínu í
plássinu í
árslok
2009. Í kjölfarið var hrað-
banka komið fyrir og stóð
hann m.a. í bráðabirgða-
húsnæði Kaupfélagsins allt
þangað til 21. júní síðastlið-
inn. Síðan þá hafa íbúar á
Hofsósi og nágrenni þurft að
sækja þjónustu hraðbanka
eða banka 40 km leið á Sauð-
árkrók.
Ljóst má vera að íbúar á
Hofsósi og nærsveitum búa
við annan veruleika heldur en
íbúar í miðbæ Reykjavíkur.
Samkvæmt óformlegri könnun
blaðamanns er að finna að
minnsta kosti 10 hraðbanka í
miðbæ Reykjavíkur. Þá er vert
að minna á að allir stóru
bankarnir eru með útibú í
miðborginni.
40 km í
hraðbanka
ÓLÍKAR AÐSTÆÐUR