Morgunblaðið - 01.08.2013, Page 19

Morgunblaðið - 01.08.2013, Page 19
Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013 Íbúar Zimbabwe létu ekki hráslagalegt veðrið á sig fá í gærmorgun, heldur stóðu í röðum við kjörstaði til að kjósa næsta forseta. Valið stóð milli sitjandi forseta, Robert Mugabe, og forsætisráðherrans Morgan Tsvangirai en 20 ára framhaldsskólanemi sagðist í samtali við AFP aðeins vilja „gott Zimbabwe“, þar sem væri vatn, rafmagn og störf. Ásakanir um kosningasvik voru þegar komnar fram í gær, þar sem nokkur fjöldi fólks reyndist ekki á kjörskrá þegar það ætlaði að greiða atkvæði. Til að tryggja að hver og einn kysi að- eins einu sinni var kjósendum víða gert að dýfa fingri sínum í blek áður en gengið var til kjörklefa. AFP Kosið til forseta í Zimbabwe Rithöfundurinn J.K. Rowling samþykkti í gær að lögfræðistofan Russels léti „um- talsverða“ fjár- hæð af hendi rakna til góð- gerðarmála, fyrir að hafa lekið því að hún hefði skrifað skáldsög- una The Cuckoo’s Calling undir dul- nefninu Robert Galbraith. Einn meðeigenda stofunnar, Chris Gossage, uppljóstraði leyndarmál- inu við vinkonu sína, sem kom upp- lýsingunum áfram til blaðamanns Sunday Times. Upphæðin mun renna til styrktarfélags hermanna. BRETLAND Borga fyrir að hafa afhjúpað Rowling Rowling skóp Harry Potter. Sture Bergwall, sem lengi var tal- inn einn afkasta- mesti raðmorðingi Norðurlanda, hef- ur verið hreins- aður af ákæru í átta morðmálum. Hann hafði játað á sig morðin, sem framin voru á ár- unum 1976-1988, og tuttugu sem hann var aldrei sak- felldur fyrir, en dró játningarnar til baka 2008. Sagði Bergwall að hann hefði þráð athygli og verið undir áhrifum lyfja þegar hann játaði og hafa saksóknarar komist að þeirri niðurstöðu að fyrirliggjandi sönn- unargögn dugi ekki til sakfellingar. SVÍÞJÓÐ Hreinsaður af ákæru í átta morðmálum Bergwall hefur dvalið á stofnun. Tvö stúlkubörn voru meðal verð- launa í vinsælum spurningaþætti í Pakistan á dög- unum, þar sem áhorfendur eru leystir út með gjöfum fyrir að svara spurn- ingum um Kór- aninn. Foreldrar stúlknanna yfirgáfu þær en þátta- stjórnendur hafa verið harkalega gagnrýndir fyrir að fara með börnin eins og verðlaunagripi. Pörin sem „hrepptu“ stúlkurnar höfðu skráð sig sem fósturforeldra hjá mann- úðarsamtökum en vissu ekki hvað til stóð þegar þau þáðu boð í þáttinn. PAKISTAN Börn í verðlaun í spurningaþætti Næst verður strákur í verðlaun. Opið mánudaga-föstudaga frá kl. 12:30-18 nora.is facebook.com/noraisland Opið: má-fö. 12:30-18 | Dalvegi 16a Rauðu múrsteinshúsunum | Kóp. 201 S. 517 7727 | nora.is | facebook.com/noraisland Tilly diskur kr. 2.100,- Hanastellið, diskur kr. 1.790,- Stólsessur frá kr. 3.200,- 20% afsláttur af öllum pottum og pottahlífum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.