Morgunblaðið - 01.08.2013, Síða 21

Morgunblaðið - 01.08.2013, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013 Tvísýn lífsbarátta Andarungar á Tjörninni í Reykjavík. Óvenjufáir andarungar komust upp við Tjörnina í sumar. Ástæðan er einkum skortur á fæðu, mikið afrán og skerðing á búsvæðum. Styrmir Kári Á síðustu árum hefur mikil umræða átt sér stað um fjár- hagsvanda heimilanna í landinu og þá sér í lagi yngri barnafjöl- skyldna. Í þessari umræðu gleymist oft sístækkandi hópur fólks sem ekki er jafngjarn á að kvarta undan stöðu sinni, en það eru aldraðir. Margir aldraðir hafa lifað tím- ana tvenna og búið við marg- vísleg kjör á langri ævi. Öll er- um við þó sammála um að aldraðir eigi að njóta áhyggju- lauss ævikvölds. Í lögum um málefni aldraðra stendur meðal annars að markmið laganna eru „… að aldraðir geti, eins lengi og unnt er, búið við eðlilegt heimilislíf en að jafnframt sé tryggð nauðsynleg stofnanaþjón- usta þegar hennar er þörf“. Einnig stendur að „við fram- kvæmd laganna skal þess gætt að aldraðir njóti jafnréttis á við aðra þjóðfélagsþegna og að sjálfsákvörð- unarréttur þeirra sé virtur“. Eldri borgarar hafa á langri ævi unnið hörðum höndum að því að byggja upp samfélagið og því sjálfsagt og eðlilegt að borgaryfirvöld hugi sér- staklega að því hvernig koma megi til móts við þennan hóp fólks. Ég hef velt því fyrir mér hvernig borg- aryfirvöld í Reykjavík geta stuðlað að aukn- um lífsgæðum aldraðra, gert þeim lífið létt- ara og hjálpað þeim að búa sem lengst á heimili sínu, þar sem þeim líður vel og þekkja umhverfið sitt. Í staðinn fyrir að hækka þjónustugjöld aldraðra eigum við að lækka þau eins og mögulegt er. Þegar aldurinn færist yfir verður fólk stirðara, óöruggara, hættir oft að geta ekið sjálft og á þar af leiðandi erfitt með að kom- ast á milli staða. Þegar svo er komið er hætta á einsemd og auknu óöryggi. Reykja- víkurbúar sem eru 67 ára og eldri geta nýtt sér akstursþjónustu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þetta er mikilvæg þjónusta en að mínu áliti má breyta reglunum um þjón- ustuna í þeim tilgangi að auka sjálfstæði aldraðra. Í reglum um akstursþjónustu eldri borgara í Reykjavík segir að þessi þjónusta sé í boði á virkum dögum á milli kl. 9.00 og 17.00, 30 sinnum í mánuði. Eins og fram kemur hér að framan stendur í lögum að virða eigi sjálfsákvörðunarrétt eldri borgara og í stefnu Reykjavíkurborgar stendur að það sé „… ekki einungis aðgangur að þjón- ustu sem hefur afgerandi áhrif varðandi líðan og lífsgæði heldur að ein- staklingurinn finni að hann sé sjálfráða og geti átt innihaldsrík samskipti við sína nánustu og aðra.“ Af þessum sökum tel ég að ekki eigi að ákveða fyrir aldraðra á hvaða dögum og hve- nær sólarhringsins þeir geta notað þessa þjónustu. Þarna getum við aukið lífgæði þeirra með því að leyfa þeim að taka sjálfir ákvörðun um hvenær hentar best að nota þjónustuna. Einnig væri miklu þægilegra ef hægt væri að panta akstur rétt fyrir brottför en ekki fyrir klukkan 14.00 daginn áður eins og reglurnar kveða á um. Samkvæmt upplýsingum frá SVR borga 70 ára og eldri 350 kr. fyrir eina ferð í strætó en 115 kr. ef þeir kaupa 20 miða kort. Í fyrsta lagi tel ég að eldri borgara eigi ekki að þurfa að borga fargjald í strætisvagna og í öðru lagi er eðlilegra að SVR miði við 67 ára aldurinn eins og lög gera ráð fyrir þegar rætt er um þjónustu við aldraða. Þarfir aldraðra eru að miklu leyti ein- staklingsbundnar og þess vegna mikilvægt að koma á einföldum upplýsingaleiðum þar sem auðvelt er að fá upplýsingar um hvaða þjónusta er í boði. Í stefnu Reykjavík- urborgar stendur að „… upplýsingar um þá þjónustu sem eldri borgurum stendur til boða í borginni eiga að berast þeim í gegnum notendavænar heimasíður, með útgefnu upp- lýsingaefni og betri ráðgjafaþjónustu“. Allar upplýsingar um þjónustu við aldraða eiga að koma fram á einfaldan og skýran hátt þannig að sérhver einstaklingur geti kynnt sér hvað í boði er, án þess að þurfa að leita í langan tíma eða jafnvel að hringja til að fá frekari upplýsingar. Einnig þarf að taka tillit til þess að stór hluti eldri borgara hefur ekki aðgang að netinu. Með því að íhuga hvernig við getum bætt þjónustu eldri borgara er hægt að finna leið- ir til að auka lífsgæði þeirra. Oft er þessum hópi fólks ekki gefin nægileg athygli en þessi atriði skipta máli. Við eigum öll einhvern tímann á lífsleiðinni pabba, mömmu, afa eða ömmu sem við viljum að líði vel og njóti áhyggjulauss ævikvölds. Svo megum við heldur ekki gleyma því að einhvern tímann verða allir gamlir. Eftir Sigurjón Arnórsson » Greinin er um hvernig borgaryfirvöld í Reykjavík geta stuðlað að aukn- um lífsgæðum aldraðra. Sigurjón Arnórsson Höfundur er alþjóðlegur viðskiptafræðingur og situr í stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Skóga- og Seljahverfi. Lífsgæði aldraðra Í sumar eru 50 ár liðin frá vígslu Skálholtsdómkirkju hinnar nýju og af því tilefni var haldin vegleg hátíð á þessum forna höf- uðstað þjóðarinnar. Auk afmælis kirkjunnar var þess minnst að á vígsludaginn afhenti þáverandi dóms- og kirkjumálaráðherra þjóðkirkjunni Skálholtsstað til eignar og ríkið lagði staðnum til fjárstuðning til vaxtar og við- halds. Frá árinu 1952 höfðu verið tekin ákveðin skref af hálfu lög- gjafans til endurreisnar Skál- holts því „sæmd söguþjóðarinnar beinlínis krafðist þess að vegur þessa fornhelga staðar yrði efld- ur að nýju með einhverjum hætti“, segir í bók séra Sveins Víkings um Skálholtshátíðina 1956. Sú hátíð var haldin í níu alda minningu biskupsdóms á Ís- landi og í hornstein nýju kirkj- unnar var m.a. skráð: „Guðshús þetta er reist fyrir fé íslensku þjóðarinnar og samkvæmt álykt- unum Alþingis.“ Enginn fulltrúi þess Alþingis sem nú situr sá ástæðu til að sækja hátíðarsamkomuna 21. júlí í ár né nokkur ráðherra nýrrar ríkisstjórnar sem þó hefur skrifað í stefnuskrá sína að hún hyggist efla og styðja íslenska þjóðmenningu. Ábyrgð þings og þjóðar Fjarvist núverandi valdhafa á Skál- holtshátíð leysir hvorki þing né þjóð undan þeirri ábyrgð sem á henni hvílir gagnvart arfi kynslóðanna. Margt hefur verið vel gert á hin- um endurreista Skálholtsstað. Kirkjan sjálf er undrafögur utan sem innan og laðar að sér gesti til staðarins hvaðanæva að, einkum að sumarlagi þegar hún nýtist sem eitt besta tón- listarhús landsins þar til þjóðin eignaðist Hörpu. Skólabyggingin er einnig fögur smíð, þótt ekki hafi tekist að halda lífi í hinni upp- haflegu hugmynd um lýðháskóla að norrænni fyrirmynd. Hún hefur um árabil einkum þjón- að sem gististaður fyrir aðstandendur og gesti Sumartónleikanna í Skálholti, guðfræðistúd- enta, fornleifafræðinga, pílagríma, ferming- arbörn og þátttakendur á málþingum og Kyrrðardögum. Aðrar byggingar á staðnum eru umdeilanlegri bæði hvað varðar útlit og staðsetningu og er skemmst að minnast mik- illa deilna sem hafa orðið um „tilgátuhúsið“ sem byggt var á fornum veggjatóftum við hlið kirkjunnar. Húsið er þó að dómi undirritaðrar fallegt í sjálfu sér með sitt fag- urgræna torfþak og gulbrúnu timburþil undir bláum sum- arhimni. Það minnir á liðna tíð og húsakynni þeirra sem fyrr byggðu staðinn. Helgir menn og syndarar Það eru ekki aðeins helgir menn og dýrlingar sem hafa gengið um stéttir í Skálholti, heldur allar gerðir af fólki, þótt vissulega væri það stundum und- ir strangara siðferðislegu eftirliti en þorri manna. Þannig varð Skálholt vettvangur einnar líf- seigustu og harmþrungnustu ástarsögu 17. aldar milli Ragn- heiðar Brynjólfsdóttur og Daða Halldórssonar og dramatískra átaka föður og dóttur. Skálholt er eitt helsta sögusvið Íslands- klukkunnar, þar sem Halldór Laxness lætur handritasafn- arann Arnas Arneus og Snæfríði Íslandssól eiga endurtekna ást- arfundi. Í Skálholti var barist til úrslita þegar lútherskan tók við af katólskunni og Jón Arason og synir hans tveir voru teknir af lífi án dóms og laga, eins og hinn aldni leikari Gunnar Eyjólfsson minnti kirkjugesti á 21. júlí. Æðstur staður og dýrligastur á Íslandi Um Skálholt segir í fornu riti: „Þar er æðst- ur staður og dýrligastur á Íslandi.“ Slík full- yrðing leggur skyldur á herðar núlifandi Ís- lendingum að viðhalda reisn og virðingu staðarins sem biskupsseturs, en þar þarf einn- ig að efla fræðasetur og búa í haginn fyrir iðk- endur bókmennta og lista, fornleifa og sögu. Í Skálholti bjó löngum fjölmenni á fyrri tíðar mælikvarða, fjöldi ferðalanga, innlendra sem erlendra, átti að auki leið þar um. Það voru er- lendir ferðamenn sem máluðu fyrstu myndir sem til eru af staðnum, það voru erlendir vinir Skálholts sem gáfu nýju kirkjunni orgelið og klukkurnar, skírnarfont, þakviði og gólfflísar og kostuðu uppsetningu Kristsmyndarinnar yfir altarinu og steindu glugganna eftir lista- konurnar Nínu Tryggvadóttur og Gerði Helgadóttur. Skálholt þarf stöðugt á nýjum hollvinum að halda, innan lands sem utan. Það mun því framvegis sem hingað til heyra undir hlutverk og skyldur Skálholtsstaðar að taka vel á móti gestum og gangandi. Eftir Steinunni Jóhannesdóttur » „Þar er æðst- ur staður og dýrligastur á Ís- landi.“ Fullyrð- ingin leggur skyldur á herðar núlifandi Íslend- ingum að við- halda reisn og virðingu stað- arins. Steinunn Jóhannesdóttir Höfundur er rithöfundur og félagi í Skálholtsfélagi hinu nýja. Skálholt í sögu og samtíð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.