Morgunblaðið - 01.08.2013, Page 23

Morgunblaðið - 01.08.2013, Page 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013 ✝ Stefán fæddistá Neðri-Svert- ingsstöðum í Mið- firði í V-Húna- vatnssýslu 6. mars 1930. Hann lést á líknardeild Kópa- vogs 21. júlí 2013. Foreldrar hans voru Jón Eiríksson frá Þverá í Vestur- hópi, f. 22.6. 1885, d. 10.2. 1975 og Hólmfríður Bjarnadóttir frá Túni í Flóa, f. 13.10. 1891, d. 22.4. 1981. Systkini Stefáns voru Guðfinna, f. 23.4. 1917, d. 12.6. 2010, Ingunn, f. 3.1. 1919, d. 3.4. 1979, Eiríkur Óli, f. 27.2. 1922, d. 10.1. 2008, Bjarni, f. 7.12. 1924, d. 31.3. 2012, Ingibjörg Guðlaug, f. 1926, Snorri, f. 1928, Eggert Ólafur, f. 1931, Gunn- laugur, f. 1933, Ragnheiður, f. 1935. Stefán kvæntist 30. desember 1960 Esther Garðarsdóttur ljós- móður frá Fáskrúðsfirði, f. 29.3.1935. Foreldrar hennar voru Garðar Kristjánsson frá Búðum í Fáskrúðsfirði, f. 27.8. 1909, d. 6.2. 1964 og Guðbjörg Erlín Guðmundsdóttir, f. 15.7. 1911, d. 24.3. 2003. Börn Stefáns og Estherar eru: Rúna Gerður, f. 23.11. 1964, kvænt Helga Ósk- ari Víkingssyni, dóttir þeirra er Nína Dagbjört, f. 24.8. 2000. Fyrir á Rúna Gerður soninn Georg Helga Hjartarson, f. 12.11. 1986 og Helgi á dótturina Ingibjörgu Ósk, f. 9.9. 1995; Pét- ur Hafsteinn, f. 26.3. 1962, nam lungnalífeðlisfræði við há- skólann í Gautaborg og lífeðl- isfræði blóðrásar við lífeðlisfræðistofnun háskólans í Gautaborg 1970-1971, og í lungnasjúkdómum og lungnalíf- eðlisfræði við Cardiothoracic Institude við Brompton- sjúkrahúsið í Lundúnum 1977. Stefán var aðstoðaryfirlæknir við Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg og síðan við Central- sjúkrahúsið í Vänersborg 1966- 69. Hann var viðurkenndur sér- fræðingur í meinalífeðlisfræði frá 1972, og vann á rannsókn- ardeild Borgarspítala 1972-99. Stefán var lektor í lífeðlisfræði við læknadeild HÍ frá 1971, dós- ent þar frá 1980, og stunda- kennari í lífeðlisfræði við líf- fræðiskor verkfræði- og raunvísindadeildar HÍ, við námsbraut í hjúkrun við HÍ, Meinatæknaskólann og Nýja hjúkrunarskólann. Stefán var ritari Læknafélagsins Eirar 1973-75, sat í kennslunefnd læknadeildar 1972-73, í deild- arráði læknadeildar 1974-76, í vinnuskyldunefnd, í nefnd um breytingar á reglugerð lækna- deildar, í nefnd um starfsreglur vegna stöðuveitinga, í dóm- nefnd vegna lektorsstöðu í inn- kirtlasjúkdómum og í stöðu- nefnd læknaráðs Borgar- spítalans frá 1973. Stefán starfaði að hjartarannsóknum við Læknasetrið í Reykjavik frá 2001-2009 og hefur skrifað ýms- ar greinar í erlend og innlend læknarit. Stefán verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag, 1. ágúst 2013, og hefst athöfnin kl. 13. kvæntur Áslaugu Sigurðardóttur, sonur þeirra er Jón Stefán, f. 14.7. 1999, fyrir á Áslaug dótturina Heiðrúnu Gissunn Káradótt- ur, f. 19.1. 1988; Ír- is Alda, kjördóttir Stefáns, f. 20.12. 1957, sambýlismað- ur Heimir V. Pálmason. Börn Ír- isar Öldu eru Pétur Ingi, f. 4.3. 1983, sambýliskona Elva Ósk Antonsdóttir, dóttir þeirra Amelía Ósk, f. 3.8. 2012; Ingi- björg Ragnheiður, f. 21.5. 1985, sambýlismaður Þorsteinn Jóns- son, sonur þeirra, Jón Metúsal- em, f. 19.4. 2012; Stefanie Est- her, f. 11.6. 1987, sambýlismað- ur Heiðar Austmann; Atli Fannar, f. 24.1. 1992 og Hugrún Birta, f. 24.7. 1995. Stefán lauk stúdentsprófi frá MA árið 1951 og embættisprófi í læknisfræði frá HÍ árið 1959. Hann var námskandídat við Fjórðungssjúkrahúsið á Ak- ureyri 1959, við fæðingardeild Landspítalans og Slysavarðstof- una í Reykjavík 1960. Hann var aðstoðarlæknir á Rannsóknar- stofu HÍ 1960-61, héraðslæknir í Ólafsfjarðarhéraði 1961-63. Hann hlaut almennt lækn- ingaleyfi hérlendis 1962 og var aðstoðarlæknir við Borgarspít- alann 1963-66. Stefán stundaði nám í elektrokardiografi og vektorkardiografi við háskól- ann í Umeá í Svíþjóð 1969. Hann Elsku pabbi, hjarta mitt er brostið af söknuði, og ég trúi því varla að þú sért farin frá mér. Það er svo margs að minnast. Þegar ég var 9 ára og við vorum í bíltúr, þá baðstu mig alltaf um að syngja fyrir þig. Ég söng hástöfum „Haf- ið bláa hafið“ og þú tókst brosandi undir. Þú sýndir ást þína og um- hyggju á svo marga vegu. Ein hlýjasta minningin er sú er ég var einstæð móðir með hann Georg minn lítinn, það var snjóþungur vetur, og þegar ég kom út um morguninn, hafðir þú skafið af bílnum mínum. Þú sagðir „ég átti hvort eð er leið framhjá“. Við gerðum margt saman, fórum t.d norður í réttir, í barnamessu með Nínu og sund. Það var venjan að þegar við fórum í sund, buðum við þér með. Eftir að þú veiktist aft- ur, hvatti ég þig áfram til að synda. Þér fannst ég vera harður húsbóndi, því ég gaf mig ekki fyrr en þú syntir nokkrar ferðir. Þér þótti samt vænt um það. Ég labb- aði oft til ykkar, hringdi áður og bað þig að labba á móti mér. Mik- ið verður erfitt að labba þessa leið núna án þess að mæta þér. Góðar stundir áttum við í Birkilundi. Þar fórum við í göngutúra og höfðum það notalegt. Þegar að mamma veiktist á Mallorca flaug ég strax út til ykkar, það var erfitt tímabil. Þarna stóðum við frammi fyrir þeim möguleika að missa mömmu. Þér leið vel að fá mig, við fundum styrk hvort hjá öðru og allt fór vel að lokum. Þegar ég kynntist ástinni minni honum Helga, fann ég að þú varst ánægður með val mitt, enda tókstu honum eins og þínum eigin syni. Þú studdir mig í einu og öllu, og hrósaðir mér fyrir vinnusemi og dugnað en það virtir þú mest af öllu. Þú talaðir um hve dugleg húsmóðir ég væri, það þótti mér alltaf svo vænt um. Þú og mamma voruð oft hjá okkur á jólunum. Mikið var alltaf gaman að gefa þér gjafir. Þú varst svo lítillátur og þakklátur. Þú varst stríðinn og tókst þér langan tíma í að taka ut- an af pökkunum. Skemmtilegast var að gefa þér fatnað, og um síð- ustu jól gáfum við þér jakka og buxur. Þú varst svo ánægður, og fórst strax í fötin, dansaðir svo ör- fá spor eins og flott fyrirsæta. Ég get ekki lýst því hve mikið ég á eftir að sakna þín á þessum stundum. Þú varst yndislegur afi og barngóður. Ég þakka þér fyrir alla þá hlýju og ástúð sem þú sýndir Georg, Nínu og Ingi- björgu. Ég var stolt af því að vera dóttir þín og þótti alltaf vænt um hve fallega var talað um þig. Í fyrra fórum við til Akureyrar að hitta þau Georg og Jónu en það var síðasta ferðalagið okkar sam- an. Þér fannst gaman að gantast og á ég skemmtilega mynd af þér í rólu sem tekin var þar en marg- ar myndir voru teknar, enda gulls ígildi í dag. Elsku pabbi, við átt- um innilegt samtal tæpum sólar- hring fyrir andlát þitt. Þú ræddir við mig um jarðarförina þína. Við grétum saman, og ég fann hvað þér þótti gott að ræða þetta. Ekki grunaði mig að þú myndir kveðja þetta líf, svo stuttu eftir. Það hef- ur ekki verið sólríkt sumarið, en 21. júlí, daginn sem þú lést, opn- uðust himnarnir og sólin fór að skína. Þá grét ég og sagði „pabbi minn fór og náði í sólina til að hugga okkur“. Ég elska þig meir en nokkur orð fá lýst, og mun ávallt sakna þín, Ó, pabbi minn, hve undursamleg ást þín var. Ó, pabbi minn, þú ávallt tókst mitt svar. Aldrei var neinn, svo ástúðlegur eins og þú. Ó, pabbi minn, þú ætíð skildir allt. Liðin er tíð, er leiddir þú mig lítið barn. Brosandi blítt, þú breyttir sorg í gleði. Ó, pabbi minn, ég dáði þína léttu lund. Leikandi kátt, þú lékst þér á þinn hátt. Ó, pabbi minn, hve undursamleg ást þín var. Æskunnar ómar ylja mér í dag. (Þorsteinn Sveinsson) Rúna Gerður Stefánsdóttir. Með miklum söknuði, virðingu og þakklæti kveð ég í dag tengda- föður minn og vin, Stefán Jóns- son. Stefán hafði hlýjan faðm og þægilega nærveru og tók hann mér strax opnum örmum og ég fann mig velkominn í fjölskylduna er ég kynntist honum fyrir sextán árum. Ég tók strax eftir því hversu mikla ást og hlýju hann hafði að gefa börnum sínum og barnabörnum enda var hann dáð- ur og elskaður af fjölskyldu sinni. Hann sýndi okkur öllum mikinn áhuga og var mættur fyrstur ef einhverjir viðburðir áttu sér stað hjá okkur. Hann sýndi mínu námi og vinnu áhuga, studdi mig og hvatti mig. Þegar ég lá á spítala í tíu daga síðasta sumar kom hann daglega að heimsækja mig til að sjá hvernig ég hefði það. Stefán var alltaf mjög heilsu- hraustur og hugsaði vel um sig þangað til örlögin tóku völd. Margar sundferðir fórum við í saman og gönguferðir. Stundum hittumst við á miðri leið í Breið- holtinu og þá setti Stefán upp „kíki“ með lófunum þegar hann nálgaðist okkur, það fannst okkur skemmtilegt. Stefán og Esther byggðu sér sumarhús við Gríms- staði á Mýrum, „Birkilund“, þar áttum við margar góðar samveru- stundir, það stóð til að fara þang- að í vor áður hann fór inn á spítala en ekkert varð úr því. Stefán hafði mjög gaman af tónlist og söng í tveim kórum; Kór eldri borgara í Reykjavík og Kátum körlum í Skógarhlíð. Hann tók sönghlutverk sitt alvarlega og æfði sig við píanóið og stúderaði lítillega tónfræði. Ég lék mér stundum að því í bíltúrum með honum að syngja fyrstu línuna í einhverju lagi sem hann þekkti og það var yfirleitt ekki við manninn mælt; Stefán söng lagið til enda, og voru það til dæmis lögin; „Vor- vindar glaðir“ „Undir dalanna sól“ og „Undir bláhimni“. Hann sýndi líka áhugamáli mínu, trommu- og hljómsveitastússi, mikinn áhuga og spurði venjulega „hvernig gekk?“, „mættu marg- ir?“, „ertu ekki þreyttur eftir þetta?“ Alltaf þótti mér vænt um það. Stefán var mjög gjafmildur maður og hjálpfús og stundum var það þannig að grasið var ný- slegið hjá okkur þegar ég kom heim. Hann kom yfirleitt óbeðinn í hin ýmsu verkefni ef hann hafði frétt að eitthvað stæði til. Við átt- um margar skemmtilegar stundir saman, hvort sem verið var að mála, leggja parket, setja upp miðstöðvarofna eða dytta að ein- hverju, alltaf var Stefán mættur með góða skapið og sló á létta strengi. Eftir gott dagsverk var svo kyrjað „nú erum við í góðum málum“ að hætti Spaugstofu- manna. Stefán var mjög glettinn og spaugsamur með mikinn húm- or sem ég kunni vel að meta. Elsku yndislegi tengdapabbi, ég þakka allt sem þú hefur kennt mér með auðmýkt þinni og hlýju. Einn daginn kemur að því að ég hitti þig aftur, þá gengur þú á móti mér með „kíki“ og faðmar mig aftur. Þá verðum við í góðum málum. Þú starfaðir jafnan með umhyggju og ást, elju og þreki er sjaldan brást, þér nýttist jafnvel nóttin. Þú vannst fyrir besta vininn þinn, þú vinnur nú með honum annað sinn, með efldan og yngdan þróttinn. Af alhug færum þér ástar þökk, á auða sætið þitt horfum klökk, heilsaðu föður og frændum. Að sjá þig aftur í annað sinn enn komast aftur í faðminn þinn við eigum eftir í vændum. (G. Björnsson.) Þinn tengdasonur, Helgi Ó. Víkingsson. Hann þynnist óðum stóri systkinahópurinn frá Svertings- stöðum, sex þeirra horfin yfir móðuna miklu. Þó Stefán bróðir minn væri orðinn 83 ára fannst mér hann alls ekki vera orðinn gamall maður, ennþá grannur og spengilegur, léttur á fæti og með kímni og stríðnisglampa í augun- um. Það breyttist ekki fyrr en síð- ustu mánuðina þegar skyndilega hallaði undan fæti. Á unglingsár- um mínum var ég hreykin af að eiga svona fallegan bróður, hann var svo grannur og lipur og vel vaxinn með sitt liðaða jarpa hár – alveg laus við freknur sem mér fannst öfundsvert. Við stríddum honum stundum með að syngja „Þegar hann Stebbi litli fæddist var hann fagur á að sjá“. Og eins og þeir vita sem þekkja vísuna er hún um þann sem stúlkunum líst vel á. En stríðni okkar hafði engin áhrif á hann, aftur á móti þurfti hann lítið fyrir því að hafa að hleypa okkur upp, yngri systkin- unum sínum, jafnvel bara með svipbrigðum. Samt sem áður var hann sá sem ég treysti alltaf best til að bera ábyrgð á mér þegar ég var lítil, ég vildi að hann stýrði sleðanum mínum og það væri hann sem bæri mig yfir ána. Þó þessi stóri barnahópur á Svertingsstöðum, ellefu alls, hafi alist upp á tímum kreppu og styrjaldar og sannarlega oft verið þröngt í búi þá vorum við öll send í skóla eftir barnaskólanám. Reykjaskóli var hernuminn á stríðsárunum, en þegar hann tók aftur til starfa 1945 þá fóru þang- að þrjú af systkinunum, Stefán þá nýfermdur, smávaxinn og yngst- ur og af nemendunum. Þá tók brytinn Pétur Stefánsson, sem var fjölskylduvinur, hann undir sinn verndarvæng og hafði í her- bergi með sér. En hann þurfti svo sem enga sérstaka vernd þótt smávaxinn væri, hann varð vin- sæll og stóð sig vel í öllu. Þar að auki var hann sterkur og snarpur og útsmoginn í áflogum og sigraði oft sér stærri og eldri stráka, enda þrautþjálfaður af sínum stóra bræðrahópi. Þess ber að geta að á þessum tíma þótti eðli- legt að strákar tuskuðust sér til gamans, það var viðurkennt sem leikur. Á þessum tveim vetrum breyttist drengurinn í myndar- legan ungan mann. Hann fór svo í Menntaskólann á Akureyri. Pét- ur Stefánsson, hans góði vinur, sleppti ekki af honum hendinni þegar hann eltist, heldur gerðist fóstri hans og studdi hann til náms. Hann var einhleypur og barnlaus maður sem naut þess að eiga hlutdeild í lífi þessa unga manns og milli þeirra ríkti alla tíð einlæg vinátta. Eftir menntskól- ann fór Stefán í læknisfræði í Há- skóla Íslands og síðan lá leið hans til Svíþjóðar, kom svo heim ríkari af menntun og reynslu, vann svo lengst af sinni starfsævi við Borg- arspítalann. Ég er fullviss um að þar vann hann afar gott starf, hann var skarpur, athugull og vandvirkur og svo hafði hann framkomu sem einkenndist af kyrrlátri hlýju. En nú er hann horfinn þessi bróðir minn sem reyndist mér alla tíð svo traustur og góður vinur og svo hygg ég að hafi verið með alla sem kynntust honum að einhverju ráði. Ég kveð hann með ástúð og söknuði. Ragnheiður Jónsdóttir. Stefán læknir fannst mér alltaf mjög hlýr maður. Hann var faðir Péturs og Rúnu sem eru kærir æskufélagar mínir. Þannig var að fjölskyldan bjó lengi vel í Mel- gerðinu í Kópavogi, sömu götu og ég bjó líka við fram að unglings- árum. Þegar ég kynntist Pétri og Rúnu minnir mig að þá hafi fjöl- skyldan verið nýflutt heim frá Svíþjóð þar sem þau Stefán og Esther höfðu verið í námi. Hann nam lækninn og hún til ljósmóð- ur. Þau bjuggu sér heimili í Mel- gerði 12 í mjög reisulegu og tign- arlegu húsi. Þau hjónin voru alltaf sérstaklega almennileg við okkur krakkana, vini Péturs og Rúnu, þegar við komum í heimsókn til þess að leika í garðinum eða inni í þessu stóra og fallega húsi. Ekki fannst manni minna til koma þeg- ar foreldrarnir töluðu sænsku við börnin. Í minningunni var Stefán alltaf mjög rólegur og tillitssamur í mannlegum samskiptum. En hann var ákveðinn, og þau bæði hjónin, þegar að ræða þurfti ein- hver prakkarastrik okkar krakk- anna sem farið höfðu yfir strikið. Mig langar til að ljúka þessum stuttu minningarorðum um Stef- án Jónsson lækni á því að minnast þess þegar faðir minn var svo lán- samur að vera í eftirliti hjá Stef- áni í stuttan tíma á Borgarsjúkra- húsinu í Fossvogi vegna vinnu sinnar. Það var greinilegt að pabbi hafði gaman af þessum tím- um hjá Stefáni ekki síður en gagn. Þeir náðu greinilega vel saman. Ég heyrði það á pabba að hann bæði virti og treysti Stefáni lækni. Ég votta Esther, Rúnu, Pétri og Öldu mína dýpstu samúð. Helgi Helgason, Kópavogi. Eg sendi Stefáni frá Svertings- stöðum, hinstu kveðju mína. Við vorum skólabræður og vin- ir, eins og vinátta verður til hjá kornungum mönnum, sem stefna að sama marki. Við kynntumst fyrst að hausti lýðveldisársins, 1944, á Reykja- skóla í Hrútafirði. Mér fannst hann þá mun yngri mér enda hafði hann ekki tekið út fullan vöxt þegar hann hóf skólagöngu. – Við ræddum þetta fyrir nokkru og kom í ljós að aldursmunur okk- ar var aðeins hálft ár. – En hann óx sem annar viður. Við vorum tvo vetur í Reykja- skóla en að þeim loknum var stefnt til frekara náms við Menntaskólann á Akureyri. – Við ætluðum að ganga menntaveginn, eins og það var hátíðlega orðað þá enda fóru ekki eins margir (eink- um úr sveitum) í framhaldsskóla og nú er. – Gissur Þorvaldsson, herbergisfélagi minn, ætlaði líka í skólann en hætti við á síðustu stundu vegna bágra kjara for- eldra sinna. Um miðja síðustu öld réði get- an til náms ekki ferðinni heldur það að fá að læra. – Við Stefán þreyttum prófið um vorið og gekk vel. Við vorum orðnir menntskæl- ingar. Um haustið l946 byrjaði svo hin eiginlega menntaganga. Við Stefán fengum inni hjá frænku minni, Halldóru Karlsdóttur, sem bjó í Hafnarstræti 102, en það var í gamla bænum. Við þurftum því að arka upp Spítalastíginn í skól- ann. Herbergið sem við bjuggum í var mjög lítið, aðeins fyrir tvo bedda og eitt borð. Gallinn við það var sá að inngangurinn í það var í gegnum baðherbergið. Þarna vorum við saman í tvo vetur. Aldrei bar á ósætti. Við hjálpuð- umst að. – Minningar mínar eru góðar úr þessari samvist. Svo tók við lærdómsdeildin eins og þrír efstu bekkirnir voru kallaðir. Stefán fór í máladeild en ég í stærðfræðideild. Við bjugg- um ekki lengur saman og sam- bandið varð slitrótt. Þessi saga okkar verður ekki rakin frekar. Hún er táknræn um menntunarþrá, því að mikið var lagt á sig. En markmiðið náðist, við urðum báðir læknar. Ég sendi Esther og börnunum þeirra og fjölskyldu kveðju mína. Brynleifur Steingrímsson. Stefán Jónsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi minn, þegar þú fórst þá leið mér mjög illa og grét mikið, en mér leið líka vel af því að nú er þér ekki illt lengur og núna líð- ur þér vel. Núna færð þú að hitta langömmu og langafa sem ég hef aldrei hitt og núna er allt betra hjá þér. Mig langaði að segja að ég elska þig mjög mikið og ég mun sakna þín. Bless elsku afi minn. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. Þín Nína.  Fleiri minningargreinar um Stefán Jónsson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍN ODDNÝ KJARTANSDÓTTIR, lést föstudaginn 26. júlí. Valdís Jóhannsdóttir, Gauti Alexandersson, Bjarki Jóhannsson, Hafdís Haraldsdóttir og barnabörn. ✝ ÞÓRARINN KAMPMANN, Orri, verkfræðingur, búsettur í Danmörku, lést föstudaginn 26. júlí. Útför hans verður gerð frá Bagsværd kirke föstudaginn 2. ágúst. Bente Neidhardt, Edda Vibeke Kampmann, Nina Malene Kampmann og fjölskyldur, Ólafur H. Flygenring, Edda Flygenring.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.