Morgunblaðið - 01.08.2013, Side 27

Morgunblaðið - 01.08.2013, Side 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013 ✝ HilmarBjarnason fæddist á Gamla- Bauk á Eskifirði 5. nóvember 1916, sonur hjónanna Gunnhildar Steins- dóttur og Bjarna Marteinssonar. Hann lést 23. júlí 2013. Systkini hans eru Herborg, f. 1908, d. 1985, Guðbjörg, f. 1909, d. 1976, Guðlaug, f. 1913, d. 1998, Jóhanna, f. 1915, d. 1915, Steingrímur, f. 1919, d. 1997, Agla, f. 1924, Eðvarð, f. 1926 og Magnús, f. 1930. Hilmar kvæntist 1. desem- ber 1944 Sigrúnu Sigurð- ardóttur f. 14. mars 1919. Börn þeirra eru: 1) Sigurborg, f. 10. júní 1946, gift Kristjáni Eiríks- syni, f. 1945. Börn þeirra eru: a) Steinn, f. 1974, var kvæntur Hanne Höjgaard Viemose, þau 2007, og Kolbeinn Hallfreður, f. 2012. Hilmar stundaði sjómennsku frá unglingsárum lengst á mb. Björgu SU 9, 1945-1966. Á henni var hann stýrimaður og síðar skipstjóri og útgerð- armaður, fengsæll og happa- sæll. Á árunum 1964-1971 rak hann ásamt Birni Kristjánssyni síldarsöltunarstöðina Eyri á Eskifirði. Árið 1966 lét Hilmar af sjómennsku og gegndi eftir það tveimur störfum samhliða, sem heilbrigðisfulltrúi á Eskif- iði til ársins 1982 og sem er- indreki Fiskifélags Íslands á Austurlandi til ársins 1989. Hilmar var var lengi for- maður byggðasögunefndar Eskifjarðar og vann mikið í starf þágu byggðasögu og Sjó- minjasafnsins og Myndasafns- ins á Eskifirði. Hann var virk- ur félagi m.a. í Náttúruvernd- arsamtökum Austurlands, Leikfélagi Eskifjarðar og Fé- lagi eldri borgara á Eskifirði. Útför Hilmars verður gerð frá Eskifjarðarkirkju í dag, 1. ágúst 2013, kl. 14. skildu. Synir þeirra eru Björn, f. 2009 og Dagur, f. 2012. b) Eiríkur, f. 1976. Kona hans er Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir. Börn þeirra eru Solveig Rúna, f. 2003, Borghildur Birna, f. 2006, Hildigunn- ur Sigrún, f. 2008 og Ingólfur Birkir, f. 2011. c) Sigrún, f. 1985, gift Ágústi Má Gröndal. Synir þeirra eru Bjarni, f. 2007 og Kristján, f. 2011. 2) Hilmar Hilmarsson, f. 25. janúar 1955, kvæntur Helgu Björnsdóttur, f. 1956. Synir þeirra eru: a) Páll, f. 1976, kvæntur Hildi Lilliendahl. Sonur Páls og Hönnu Guðmundsdóttur er Hrappur Birkir, f. 2008. b) Hilmar, f. 1977. Kona hans er Salóme Hallfreðsdóttir. Börn þeirra eru Hrafnhildur, f. Tengdafaðir minn, Hilmar Bjarnason, fæddist á Eskifirði fyrir rúmum 96 árum og ól þar nær allan sinn aldur. Hann byrj- aði ungur að sækja sjóinn og fara með byssu til að draga björg í bú eins og þá var títt enda lífsbar- áttan hörð í sjávarplássum á þeim tíma. Á unglingsárum reri hann á árabát frá Vattarnesi ásamt föður sínum og frænda, Friðriki Jóns- syni, og sautján ára fór hann á sína fyrstu vetrarvertíð til Horna- fjarðar. Hilmar kvæntist 1. desember 1944 eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigrúnu Sigurðardóttur sem eins og hann er fædd og uppalin á Eskifirði, og hafði þeirra farsæla hjónaband varað í hartnær 69 ár er hann lést. Um tuttugu ára skeið gerði Hilmar út Björgu SU 9, fyrst með öðrum en síðan einn. Var fyrst stýrimaður á henni en síðar skip- stjóri. Hann var alla tíð fengsæll og farsæll og hafði jafnan á að skipa afbragðs mönnum. Hann sótti sjóinn fast, var á síld fyrir Norðurlandi á sumrum, þorsk- veiðum á vetrarvertíðum austan- lands og sunnan enda gjörþekkti hann öll þau veiðarfæri og veiði- aðferðir sem tíðkuðust við sjósókn frá árabátaútgerð til nútímans. Árið 1966 hætti Hilmar sjó- mennskunni á Björgu og rak eftir það um tíma söltunarstöð á síld- arplaninu Eyri með Birni Krist- jánssyni fram um 1970 þegar síld hvarf af Íslandsmiðum. Hilmar hafði stálminni sem hann hélt uns yfir lauk. Hann kunni skil á ætt sinni og sögu hennar langt aftur svo og fjölda annarra Eskfirðinga, þekkti sögu byggðarlagsins öðrum betur og lagði sig fram um að halda henni til haga. Hann var hvatamaður að varðveislu Gömlu búðar og Sjó- minjasafns Austurlands og stjórn- arformaður þess frá upphafi til 2001. Átti hann ásamt félaga sín- um, Geir Hólm, mestan þátt í að gera safnið jafn vel úr garði og raun ber vitni. Þá eru þær stundir ótaldar sem hann hefur eytt í að safna og skrá gamlar myndir af Eskifirði og Eskfirðingum og bjarga þannig dýrmætum sögu- legum heimildum frá gleymsku. Hilmar unni landi sínu af heil- um hug og naut margbreytileika náttúrunnar á sjó og landi og tók sárt þau óafturkræfu spjöll sem unnin hafa verið á náttúru Aust- urlands enda land og saga honum nánast samgróin. Hilmar var jafnlyndur og skipti sjaldan skapi, íhugull og flanaði ekki að neinu. Hann var orðheldinn og traustur og gat ekki hugsað sér að skulda neinum neitt enda af þeirri kynslóð sem glíma varð við harðræði krepp- unnar, alinn upp í þeim anda að sælla væri að gefa en þiggja. Og fátt var honum fjær skapi en hugsunin um hinn skammvinna gróða. Hilmar og Sigrún héldu heimili allt þar til í febrúar síðastliðnum en þá fluttust þau í dvalarheimilið Hulduhlíð á Eskifirði. Hilmar var ekki maður kirkju- rækinn en trúði á það góða í mönnunum, samvinnu og bræðra- lag. Alltaf var jafn gott að koma á heimili tengdaforeldra minna, þeirra Sigrúnar og Hilmars, í Snæfelli þar sem kyrrðin og hlýj- an réðu ríkjum. Þökk sé Hilmari Bjarnasyni fyrir öll okkar góðu kynni. Gott er góðs að minnast. Kristján Eiríksson. Ellin hallar öllum leik ættum varla að státa hún mun alla eins og Bleik eitt sinn falla láta (Björg Sveinsdóttir.) Hilmar Bjarnason fór oft með þessa vísu síðustu árin þegar ellin sótti að honum og þrekið þvarr. Og nú er þessi góði maður geng- inn, á nítugasta og sjöunda ald- ursári. Við erum mörg sem eigum honum gott að gjalda, fjölskylda og vinir, ekki síst fyrir að vera okkur svo lengi fyrirmynd um manngæsku, hógværð og æðru- leysi. Við Harpa systir litum tak- markalaust upp til hans þegar við vorum litlar stelpur fyrir austan og gáfum honum því til marks tignarheitið bílapabbi. Okkur þótti ekki bara merkilegt að hann réði yfir kraftmiklum bíl, heldur skynjuðum við líka hvað hann var stór og afgerandi í sínu samfélagi. Við vildum eiga hlutdeild í þess- um manni sem virtust allir vegir færir. Hann hélt fast í höndina á mér lítilli þegar gengið var fram á bjargbrún við fossa og önnur náttúruundur á Austurlandi. Og enginn vakti mig jafn blítt til dag- anna þegar ég fékk að vera með í síldarævintýrinu og pækla og salta á Eyrarplaninu. Sumarbjört er myndin af hon- um endilöngum á stofugólfinu í Snæfelli þar sem hann kastaði sér í hádeginu þegar dagarnir urðu langir í síldinni. Þar átti hann sína helgistundir með millibörum og breytilegum áttum á meðan við hin læddumst um húsið. Ég man hann líka á planinu fyrir endann á færibandinu þegar verið var að salta ísaða Norður- sjávarsíld undir haust. Hann stóð þar allan daginn og virtist aldrei lýjast en velti við hverjum bakk- anum af öðrum sem upp úr bátn- um komu. Hilmar var mikill mannkosta- maður sem lét sér annt um sam- ferðafólkið og heimahagana. Hann lagði mikið af mörkum í rit- un byggðasögunnar Eskju, ekki síst með söfnun og skráningu ljós- mynda, og hefði hans ekki notið við væri Eskifjörður svo sannar- lega fátækari af fallegum gömlum húsum. Það var skemmtilegt að vera með honum á Sjóminjasafn- inu í Gömlubúð þar sem hann átti drjúgan hlut í hversu vel tókst til að endurgera húsið og setja þar upp myndarlegt safn. En Hilmar hreykti sér aldrei, hvorki af verkum sínum né öðru sem hann lagði til samferðafólks- ins og framtíðarinnar með þekk- ingu sinni og fróðleik. Hann var hæglátur og hlýr maður sem skipti aldrei skapi. Hann sagði fátt án þess að hugsa sig um og hagaði orðum sínum þannig að þau fengju sem mesta vigt, hvort heldur þegar þurfti að verjast eða berjast. Ef hann átti eitthvert lífs- mottó var það einfaldlega að láta sér þykja vænt um fólk og sýna það í verki. „Það marglaunar sig“, sagði hann einu sinni þegar hann vildi sem oftar gefa mér góð ráð. Saman voru þau Sigrún frænka mín sterk. Virðing þeirra hvort fyrir öðru og væntumþykja alla tíð var mér mikill lærdómur. Fyrir nokkrum árum sá ég þau tilsýndar á götu, hún lágvaxin og kvik í hreyfingum og hélt undir höndina á honum grönnum, há- vöxnum, svolítið framlútum með sjómannakaskeitið. Þau fóru sér hægt og höfðu stuðning hvort af öðru – og mér fannst þá – eins og svo oft áður – að þau saman þarna á kvöldgöngunni væru vegvísir um allt það fallegasta í mannlíf- inu. Kyrrðin er kæna sem gamall maður stýrir inn fjörðinn með sædrif í grábláum augum gleymskusnjór sem seytlar hægt í straumspegla tekur aldrei upp Hafðu þökk fyrir allt og allt góði Hilmar! Sigrún Björnsdóttir. Ef Íslendingar hefðu komið sér upp akademíu viturra manna til ráðgjafar um mikilverðustu þjóð- mál hefði Hilmar Bjarnason skip- stjóri átt heima í þeim hópi. Ég átti því láni að fagna að eiga hann að og njóta samfylgdar hans og Sigrúnar eftirlifandi eiginkonu hans í fjóra áratugi eystra. Þegar leiðir okkar fyrst lágu saman á miðjum sjöunda áratugnum var Hilmar að mestu kominn í land eftir langt og farsælt starf við skipstjórn og útgerð á Eskifirði. Þá gafst honum tími til að sinna öðrum áhugamálum jafnframt því sem hann miðlaði áfram af reynslu sinni á vettvangi Fiski- félags Íslands og deilda þess eystra. Áhugamál okkar Hilmars fóru saman á mörgum sviðum og má þar nefna vörslu menningar- minja og náttúruvernd. Hann var brautryðjandi á þessu sviði í heimabyggð, m.a. sem formaður í byggðasögunefnd Eskifjarðar og óþreytandi stuðningsmaður mágs síns, Einars Braga, við ritun hans á Eskju. Verndun gamalla húsa í heimabyggð og tilkoma Sjóminja- safnsins á Eskifirði er sprottin upp úr sama jarðvegi í farsælu samstarfi við Geir Hólm. Við und- irbúning að Safnastofnun Austur- lands nutum við leiðsagnar Hilm- ars, m.a. að því er varðaði verkaskiptingu safna í fjórðungn- um. Í aðdraganda að myndun Náttúruverndarsamtaka Austur- lands var hann í hópi þeirra sem komu á undirbúningsfund vorið 1970 og sendu út hvatningu til Austfirðinga um stofnun NAUST. Saman gengum við um Hólmanes, þar sem Hilmar vísaði til minja, og nokkru síðar var svæðið friðlýst. Ótaldar eru margar sumarferðir um fjórðung- inn þar sem þau hjón voru með í för. Á opnum stjórnmálafundum sem Alþýðubandalagið boðaði reglulega til á Eskifirði eins og í öðrum byggðarlögum eystra var Hilmar oftast mættur og lagði gott til mála, með sjálfstæðar og yfirvegaðar skoðanir, m.a. á sjáv- arútvegsmálum og um nýtingu landhelginnar. Allir máttu vita hvar hjarta hans sló þegar kom að því að varðveita og treysta full- veldi Íslands og yfirráð yfir auð- lindum þess til lands og sjávar. Á tvísýnum tímum er hollt að halda á lofti minningu þeirrar kynslóðar sem ruddi brautina. Í þeim hópi var Hilmar Bjarnason í fremstu röð. Hjörleifur Guttormsson. Hilmar Bjarnason ✝ GuðbrandurKristjánsson frá Hólum í Helga- fellssveit, fæddist 7. mars 1943 í Stykkishólmi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 26. júlí. Foreldrar hans voru Kristján Sveinsson, f. 1908, d. 1962 og Jóhanna Þórunn Þorsteins- dóttir, f. 1913, d. 1998. Guð- brandur kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Halldóru Krist- insdóttur, 22. nóvember 1969 á Búrfelli í Grímsnesi. Börn þeirra eru: 1. Kristinn Helgi, fæddur 7. október 1969, sam- býliskona hans er Steindóra Steinsdóttir, fædd 3. mars 1972. Stein- dóra á tvö börn úr fyrra sambandi, Daníel Hjörvar, f. 1998 og Maríu Mist, f. 2001. 2. Bryndís, fædd 26. janúar 1972, sambýlis- maður hennar er Ingimundur Kára- son, fæddur 5. febr- úar 1973. Börn þeirra eru Birta Rún, f. 1999, Orri Freyr, f. 2002, og Halldóra Björt, f. 2008. Fyrir átti Ingi- mundur Ísak Mána, f. 1998. 3. Kristján, fæddur 16. febrúar 1977, sambýliskona hans er Íris Ósk Jóhannsdóttir, fædd 18. maí 1983. Börn þeirra eru Aron Freyr, f. 2009 og Rebekka María, f. 2011. Guðbrandur var fimmti í röð sjö systkina. 1. Stúlka fædd andvana 1935 2. Sveinn Geir, f. 1937, d. 1986. 3. Þóra Guðrún, f. 1939, d. 1971. 4. Helgi Már, f. 1941, d. 2003. 5. Guðbrandur, f. 1943, d. 2013 6. Stúlka fædd andvana 1950. 7. Stúlka fædd 1954, lést 1954. Guðbrandur ólst upp í Hólum í Helgafellsveit til ársins 1958 þegar fjölskyldan flutti til Kefla- víkur. Guðbrandur vann ýmis verkamannastörf í landi og við sjómennsku fyrstu árin í Kefla- vík. 1970 hóf hann störf sem sjálfstætt starfandi vörubílstjóri á Vörubílastöð Keflavíkur, en seinni hluta stafsævinnar starf- aði hann sem vaktmaður í olíu- stöðinni í Helguvík og síðan sem starfsmaður í Holtaskóla. Árið 2005 lét Guðbrandur af störfum vegna veikinda. Útför Guðbrandar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 1. ágúst 2013, og hefst athöfnin kl. 14. Í dag kveðjum við föður okk- ar. Það er margs að minnast fyrir okkur systkinin þegar hug- urinn er látinn reika aftur í tím- ann. Samvera fjölskyldunnar, sveitaferðirnar í Miðengi, ferð- irnar vestur á Snæfellsnes svo eitthvað sé nefnt. Pabbi var sérstaklega vinnu- samur og ósérhlífinn í alla staði. Alltaf var hann tilbúinn að rétta öllum hjálparhönd. Fjölskyldan var alltaf í fyrsta sæti hjá hon- um og hélt hann vel utan um hana. Draumur pabba var alltaf sá að geta notið lífsins í þægilegri og ljúfri elli. Hann hafði oft orð á því hve gaman væri að getað ferðast um landið, verið í sum- arbústaðnum með fjölskyldunni og ferðast erlendis. En það ræt- ast ekki allir draumar. Veikindi settu svip á líf pabba seinustu árin, pabbi sem alltaf hafði verið hraustur og aldrei kveinkað sér þurfti þá að berj- ast við erfið veikindi. Framtíð- aráform um ljúfa elli, ferðalög og góðar þægilegar stundir í sumarbústaðnum hurfu jafnt og þétt. Við erum þakklát fyrir það veganesti sem pabbi færði okk- ur inn í lífið, dugnaður, sam- viskusemi, snyrtimennska og góðmennska eru gildi sem pabbi lifði eftir. Seinustu ár hvatti pabbi okkur endalaust að huga að heilsufari okkar, fara varlega og njóta lífsins. Enda ekkert gefið í þeim efnum. Síðustu mínúturnar okkar með pabba báru þess glögg merki að hann er nú kominn á góðan stað sem hann þráði að fara á, slíkur var friðurinn og róin á svipbrigðum hans. Við er- um sannfærð um að nú er hann sáttur í faðmi foreldra sinna og systkina, sem hann saknaði svo sárt alla tíð. Hvíldu í friði elsku pabbi, við munum sakna þín. Kristinn, Bryndís og Kristján. Elsku afi minn, nú ertu farinn frá okkur, ég sakna þín rosalega mikið. Því verður seint gleymt þegar ég var minni og þú sóttir mig í leikskólann og fórst með mig á sundæfingu. Eftir hverja einustu sundæfingu fórstu svo með mig í bakaríið og keyptum við okkur alltaf eitthvað góm- sætt. Oft fórum við svo saman í Samkaup og Olís. Þar keyptum við okkur nammi og ís enda varstu mikill ískarl. Mamma var aldrei ánægð með allar þessar ferðir í nammi- og ísbúðir en þér var alveg sama og þú gerðir bara það sem þú vildir með mér. Oft á sumrin fórum við og amma saman í sveitina og á leiðinni þangað þurftum við svo að stoppa í fjölmörgum búðum til að kaupa inn nammi og annað gott fyrir þessa sveitaferð. Oft kom það nú fyrir að við földum nammið fyrir ömmu og öllum hinum svo við gætum borðað það saman, bara við tvö. Ég get ekki lýst ánægju minni yfir því að þú fékkst að sjá mig fermast núna í vor. Ég er líka óend- anlega þakklát fyrir að ég kom til landsins í tæka tíð og gat kvatt þig. Hvíldu í friði elsku afi minn, ég mun ávalt elska þig. Þín Birta Rún. Guðbrandur Kristjánsson ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐRIK SIGFINNSSON, lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 28. júlí. Útförin fer fram föstudaginn 2. ágúst frá Víðistaðakirkju kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið eða Hjartavernd. Börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN H. KVARAN, Kleifarvegi 1, lést laugardaginn 27. júlí á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 9. ágúst kl. 13.00. Karítas Kvaran, Baldur Guðlaugsson, Gunnar E. Kvaran, Snæfríður Þ. Egilson, Einar G. Kvaran, Tinna Grétarsdóttir, Ólafur Hrafnkell Baldursson, Charlotte Gerd Hannibal, Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir, Þórhildur Baldursdóttir og barnabarnabörn. ✝ Faðir minn, THEODÓR NÓASON, lést föstudaginn 5. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Gunnar Theodórsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.