Morgunblaðið - 01.08.2013, Side 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013
Ég ætla að fá fjölskylduna í smákaffiboð í hádeginu og síðanætla ég að fara út að borða um kvöldið með Richard og vin-um á Ítalíu,“ segir Bára Ragnhildardóttir sem fagnar í dag
26 ára afmælinu sínu, en hún er ráðgjafi hjá Motus. Hún stefnir í
meistaranám í verkefnastjórnun í Háskólanum í Reykjavík í haust.
Richard Ottó O’Brien er kærasti Báru og mun eflaust einnig koma
henni á óvart í morgunsárið.
Hún segist vera lúmskt mikið afmælisbarn sem hefur haldið upp á
afmælið sitt nánast á hverju ári fyrir nánustu fjölskyldu og vini.
„Ég óska mér hleðslutæki fyrir iphone símann minn,“ segir Bára,
sem segist gera litlar kröfur um afmælisgjafir að þessu sinni. En
hún lenti í því leiðinlega atviki að hlutum úr íbúð hennar var rænt
fyrir stuttu og þar á meðal hleðslutækinu.
Bára segir að stórafmælið hennar í fyrra hafi verið einn eft-
irminnilegasti afmælisdagurinn hennar, en þá komu bestu vinkonur
hennar í mat og drykk og skemmtu sér langt fram eftir kvöldi. „Af-
mælið mitt er alltaf fyrir verslunarmannahelgi, svo það er alltaf góð
stemning í fólki,“ segir Bára, en stundum ber afmælisdaginn upp á
helgina sjálfa. „Ég þoldi ekki þegar það gerðist þegar ég var lítil, en
ég er búin að sætta mig við það núna.“ Bára hyggst eyða versl-
unarmannahelginni í Reykjavík. aslaug@mbl.is
Bára Ragnhildardóttir er 26 ára í dag
Drangsnes Bára og Richard hafa ferðast um landið í sumar. Þau fóru í
útilegu á Hólmavík fyrir stuttu og kíktu í sjópottana í Drangsnesi.
Gerir litlar kröfur
að þessu sinni
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Þorsteinn Gísli
Jónsson, Sigurður
Kári Jónsson,
Benjamín Ragn-
arsson og Ragna
Kamilla Ragnars-
dóttir héldu tom-
bólu fyrir utan 10-
11 í Grímsbæ. Þau
söfnuðu 8.926 kr.
sem þau færðu
Rauða krossinum.
Rögnu vantar á
myndina.
Hlutavelta
Borgarnes Guðný Líneik fæddist 23.
nóvember kl. 14.17. Hún vó 3.695 g og
var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru
Heiðdís Rós Svavarsdóttir og Guðjón
Magnússon.
Nýir borgarar
Reykjavík Hugrún Anna fæddist 27.
maí kl. 16. Hún vó 4.218 g og var 52
cm löng. Foreldrar hennar eru Hildur
Margrét Nielsen og Guðni Stein-
arsson.
G
uðrún fæddist í
Reykjavík en ólst upp
á Seltjarnarnesi og í
Hafnarfirði: „Fyrstu
árin mín bjuggum við
í kjallaranum hjá ömmu og afa í
Skála á Seltjarnarnesi sem þá var
dásamlega falleg sveit. Ég man
enn eftir túnunum, heysátunum,
fjörunni, veiðiferðum í Hrólfs-
skálavörina og sjósundi á sól-
björtum sumardögum. Þetta voru
yndisleg æskuár.
Eftir stutta dvöl í Smáíbúða-
hverfinu lá leiðin í Hafnarfjörð,
þar sem ég eignaðist æsku-
vinkonur fyrir lífstíð. Ég var svo
17 ára er við fluttum aftur á Sel-
tjarnarnesið en síðan hef ég átt
þar heima og í Vesturbænum.“
Guðrún Kristjánsdóttir, blaða- og búðarkona – 50 ára
Vinkonur á Kaffi París Frá vinstri: Stefanía Ægisdóttir sálfræðingur; Hrafnhildur Þórðardóttir rekstrarstjóri;
Guðrún Gísladóttir verslunarkona; Hildur Kristjánsdóttir kennari, afmælisbarnið og Ellý Steinsdóttir, flugfreyja og
leiðsögumaður. Á myndina vantar Steinunni Hjálmtýsdóttur flugfreyju sem var upptekin þennan dag.
Í blaðamennsku, lífs-
speki og heilsufræði
Kaupmaðurinn Guðrún í „heilsuhofi“ Systrafélagsins sem er í eigu hennar
og Jóhönnu, systur hennar.
Dermicore®
Bylting í lífrænum sólarkremum
brokkoli.is
Inniheldur leynivopnið í brokkolí - sulforaphane ...efnið sem virkjar húðfrumurnar!
Rannsóknir sýna að sulforaphane úr brokkolí virkjar húðfrumurnar til framleiðslu náttúrulegra
andoxunarefna - það er ein áhrifamesta og langvirkasta leiðin til að verjast ótímabærri öldrun
húðarinnar og stuðla að endurnýjun hennar.
Dermicore er háþróuð húðvörulína frá sænska fyrirtækinu THE BROCCOLI,
Lífrænar - Ekki erfðabreyttat – Engin rotvarnarefni (Engin parapen),
Engin jarðolía - Húðsjúkdóma-og ofnæmisprófaðar,
Pre Tan Creme
a Undirbýr húðina fyrir útfjólubláa geisla sólarinnar.
a Stuðlar að hraðari og jafnari sólbrúnku.
Inniheldur andoxunarefni og sulforaphane sem verst sindurefnum og merkjum öldrunar.
Sólarvörn (SPF 6 og 15)
Tvöföld vörn, bæði gegn UVB og UVA geislum.
Sérvirk innihaldsefni sem vernda húðina gegn hrukkum og ótímabærri öldrun.
Inniheldur „Shea Butter“ og E-vítamín fyrir styrkjandi og rakagefandi áhrif.
After Sun Creme
Verst sólbruna, roða og flögnun – fyrir fallega brúnku sem endist lengur.
Hjálpar að endurnýja raka- og salt jafnvægi húðarinnar.
Meðal sérvalinna innihaldsefnia eru:
• Aloe Vera – fyrir græðandi áhrif.
• Agúrka, Chamomile og Menthol – fyrir kælandi og róandi áhrif.
• Avókadó olía, Pro-vítamín B5 og E-vítamín fyrir rakagefandi áhrif.
SÓLARVÖRURNAR FRÁ DERMICORE FÁST HJÁ:
a
a
a
a
a