Morgunblaðið - 01.08.2013, Page 34
–
–– Meira fyrir lesendur
Í blaðinu verður fjallað um
þá fjölbreyttu flóru sem
í boði er fyrir þá sem stefna
á frekara nám í haust.
Nánari upplýsingar gefur:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Pöntunartími Auglýsinga:
Fyrir kl. 16, mánudaginn
12. ágúst
Skólar & námskeið
Þann 16.
ágúst gefur
Morgun-
blaðið út
sérblað um
skóla og
námskeið
SÉRBLAÐ
Fjaran Svandís sækir í fjöruna til að
slaka á og semja ljóðin sín.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Allir þurfa sitt afdrep til að skipu-
leggja hugsanir sínar og safna krafti
til að takast á við hverfulan veru-
leikann. Fjaran er griðastaður ljóð-
skáldsins Svandísar Ívarsdóttur en
þangað leitar hún til að semja og
fullmóta ljóð sín sem hún færir okk-
ur nú í fyrstu ljóðabók sinni, Skrifað
í sandinn.
Ljóðunum hefur Svandís ort og
safnað saman um nokkurt skeið og
er elsta ljóð bókarinnar, Lífsins ljós,
tileinkað fæðingu dóttur hennar.
Önnur ljóð hafa komið eitt og eitt til
hennar og við ákveðin tækifæri að
hennar eigin sögn. „Ljóðið Líf
samdi ég þegar tengdamóðir mín
kvaddi þennan heim og er það eitt
þeirra ljóða sem ég hef samið við
ákveðinn viðburð í lífinu. Síðan
koma þau upp í hugann eitt og eitt,“
segir Svandís.
Skrifar ljóðin sín í sandinn
Andagiftin kemur til fólks á ólík-
legustu stöðum. Meðan sumir þurfa
næði hjálpar kliður hversdagsleik-
ans öðrum að semja og setja niður
hugsanir sínar. Svandís sækir í
margbreytileika fjörunnar, sem
sjórinn og vindar hafa mótað og eru
enn að móta, til að sækja sér efnivið
í ljóð sín og fullmóta þau. „Í fjörunni
líður mér vel, ég sótti hana töluvert
sem barn með fjölskyldu minni og á
góðar minningar af fjöruferðum.
Fjaran róar hugann og gefur mér
skýra sýn á verkefni sem eru fyrir
höndum og hún veitir mér styrk og
vellíðan til að takast á við það sem
framundan er á hverri stundu,“ seg-
ir Svandís og má því með sanni
segja að hún skrifi ljóð sín í sandinn.
Eitt þeirra ljóða sem er Svandísi
hjartfólgnast fullmótaðist hjá henni
í fjörunni á Seltjarnarnesi úti við
Gróttu en það heitir Hamingjufræ.
„Ljóðið lýsir augnablikinu og stund-
inni hér og nú þegar ég geng um
fjöruna.“
Ljóðið hljómar svo:
Ljóstillífun minna
óútsprungnu fræja
sem innra með mér dvelja
hve kært væri að finna
kjarna þeirra og velja
þeim stað á meðal hinna.
Tileinkar bókina móður sinni
Svandís sótti námskeið hjá Ragn-
ari Inga Aðalsteinssyni hjá Náms-
flokkum Hafnarfjarðar og námskeið
hjá Önnu Heiðu Pálsdóttur hjá
Endurmenntun Háskóla Íslands en
það var henni hvatning til að halda
áfram að skrifa og gefa út eigið efni.
„Námskeiðið hjá Ragnari hét
Bragfræðinámskeið – Lærum að
yrkja rétt og þar fór hann yfir
grunnatriði hefðbundinnar brag-
fræði, hrynjanda, braglínumynd,
ljóðstafi o.fl. Námskeið Önnu var
hins vegar kennsla í að finna neista í
nýja bók, þ.e. kenna ritlistina en
bæði námskeiðin voru hvatning að
halda áfram að skapa skrif.“
Í kjölfar námskeiðanna tók Svan-
dís ákvörðun um að færa móður
sinni ljóðabók í áttræðis afmælisgjöf
og tileinka henni bókina. „Ég setti
mér það markmið að ljúka ljóðabók-
inni fyrir afmæli móður minnar og
gefa henni í afmælisgjöf.“
Á sinn griða-
stað í fjörunni
Fyrsta ljóðabók Svandísar Ívarsdóttur kom út á þessu ári
Ljóðalestur Svandís las úr ljóðabók sinni á þjóðhátíðardaginn og klæddi
sig að sjálfsögðu upp í tilefni dagsins og áritaði bók sína fyrir áhugasama.
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2013
Djasstríóið Ungút heldur auka-
tónleika í tónleikasalnum Hljóðbergi
í Hannesarholti í kvöld klukkan 20.
Flutt verður efni af nýútkominni
plötu tríósins, Blástjörnunni. Um er
að ræða íslensk þjóðlög í útsetningu
og flutningi djasspíanistans Peters
Arnesen.
Peter á að baki langan og farsæl-
an feril og hefur m.a. spilað með Ian
Hunter, Mick Ronson og verið með-
limur hljómsveitanna The Hollies og
Rubettes svo fátt sé nefnt.
Rósa Kristín Baldursdóttir syngur
en hún var einn af meðlimum Tjarn-
arkvartettsins en gegnir í dag kenn-
arastöðu í óperusöng við tónlist-
arháskólann Mozarteum í Salzburg.
Með þeim leikur Einar Sigurðsson á
kontrabassa en hann leikur einnig
með South River Band.
Hljómsveit Djasstríóið Ungút.
Djasstríóið Ungút verður með auka-
tónleika í Hannesarholti í kvöld
Leikkonan Eileen Brennan, sem er
þekktust fyrir hlutverk sitt í gam-
anmyndinni Private Benjamin, lést
á sunnudaginn 80 ára að aldri.
Brennan var tilnefnd til Óskars-
verðlauna fyrir hlutverk sitt í Priv-
ate Benjamin en hún lék eftir-
minnilega á móti Goldie Hawn í
myndinni. Brennan lést á heimili
sínu í Los Angeles.
Verðlaun Brennan fékk óskarstilnefn-
ingu fyrir leik sinn í Private Benjamin.
Leikkonan Eileen
Brennan dáin
Nánar á heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum
Oft er talað um Magnesíum sem„anti –stress“ steinefni
því það róar taugarnar og hjálpar okkur að slaka á. Magnesíum stjórnar og virkir um
300 ensím sem gegna mikilvægum hlutverkum í eðlilegri virkni líkamans. Það er
nauðsynlegt fyrir frumumyndun, efnaskipti og til að koma á jafnvægi á kalkmyndun
líkamans og fyrir heilbrigða hjartastarfsemi. Magnesíum er líka afar hjálplegt við
fótaóeirð út af vöðvaslakandi eiginleikum þess. Mjög gott er að taka magnesíum í
vökvaformi fyrir svefn til að ná góðri slökun og vakna úthvíldur.
Magnesium vökvi
Virkar strax
• Til að auka gæði svefns
• Til slökunar og afstressunar
• Hröð upptaka í líkamanum
• Gott til að halda
vöðvunummjúkum