Morgunblaðið - 02.08.2013, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 02.08.2013, Qupperneq 2
BAKSVIÐ Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Sautján af þeim 45 geislafræðingum sem sögðu upp störfum á Landspít- alanum hafa þegar dregið uppsagnir sínar til baka. Þetta staðfestir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, í samtali við Morgunblaðið. Sam- komulag geislafræðinga og Land- spítalans var kynnt í gærmorgun. Uppsögn 2/3 geislafræðinga á LSH tók gildi á miðnætti í fyrrinótt. Geislafræðingar greiða ekki atkvæði um samninginn heldur þarf hver og einn að gera upp við sig hvort hann dragi uppsögn sína til baka. Þurfa tíma til að hugsa málið „Geislafræðingar eru að fara yfir samninginn, fólk þarf tíma til að meðtaka þetta, hugsa málið og taka sínar ákvarðanir,“ sagði Katrín Sig- urðardóttir, formaður Félags geisla- fræðinga, og bætti við að hún gæti ekki sagt til um hve langan tíma fólk muni taka sér til að íhuga sína stöðu. Hún segist ekki hafa heyrt í neinum sem hafi dregið uppsögn sína til baka. Spurð hvort hún búist við að einhverjir geislafræðingar mæti til vinnu í dag segist hún vona það þó ekki sé hægt að segja til um líkurnar. Hún segir að í samkomulaginu fel- ist mismiklar kjarabætur fyrir geislafræðinga, í sumum tilfellum séu þær töluverðar en í öðrum ekki jafn miklar. Aðspurð segist Katrín ekki vilja tjá sig um hversu miklar hækkanirnar séu í prósentum talið. Hinsvegar telji hún að í það minnsta fái allir geislafræðingar yfir 10% hækkun á sínum kjörum. Breytt vaktakerfi Um önnur atriði í samkomulaginu segir Katrín að kjarabæturnar felist einnig í annarskonar vaktakerfi og þá hafi fengist aukin viðurkenning á sérhæfingu geislafræðinga. Í nýja samningnum er einnig ákvæði um að álag í starfi geislafræðinga verði tek- ið til skoðunar en Katrín segir að það muni minnka með vaktakerfisbreyt- ingum og þá felist í samkomulaginu 40 stunda vinnuskylda á viku. Í maímánuði var Katrínu sagt upp störfum á Landspítalanum eftir 33 ára starf. Hún hefur því verið í sér- stakri stöðu í þeim erfiðu samninga- viðræðum sem staðið hafa yfir und- anfarnar vikur. Aðspurð segir Katrín að sú uppsögn standi, lög- fræðingur BHM sé hinsvegar með málið og því vilji hún ekki tjá sig um það. Björn Zoëga telur líklegt að flestir geislafræðingar muni snúa aftur til vinnu. Forsvarsmenn þeirra hafi gert samkomulagið og mörgum sinn- um tekið fundarhlé á samningafund- um til að kynna umbjóðendum sínum stöðu mála. Viðfangsefni stjórnvalda Töluverður kurr hefur verið í hin- um ýmsu stéttum innan Landspítal- ans undanfarin misseri. Skemmst er að minnast uppsagna hjúkrunar- fræðinga og nú síðast geislafræð- inga. Björn vill ekki tjá sig um slíkar aðferðir áðurnefndra stétta. „En mér finnst þetta vera mál stjórn- málamanna og stéttarfélaganna, að glíma við þessar nýju leiðir sem komnar eru upp í því hvernig fólk stundar sína kjarabaráttu,“ segir Björn, sem finnst eðlilegt að stjórn- völd bregðist við þessari þróun enda sé mikilvægt að fá það á hreint hvort þessi aðferð sé viðurkennd eða ekki. „Aðilar beggja vegna borðsins verða að hugsa sig um hvort þetta sé sú aðferð sem fólk í siðmenntuðu þjóðfélagi beitir í kjarabaráttu. Ef svo er, þá er það bara komið upp á borðið. En þá verður auðvitað að breyta þeim möguleikum sem stofn- anir ríkisins hafa til að bregðast við,“ ítrekar Björn. Oddur Gunnarsson, starfsmanna- stjóri spítalans, segir að litlar vær- ingar séu á spítalanum eins og stað- an sé núna. Fjármálaráðuneytið hafi snemma á árinu sent bréf þar sem kom fram að aðgerða væri þörf gagnvart fjórtán stéttarfélögum í samræmi við jafnlaunaátak ríkisins. Oddur segir að unnið hafi verið eftir þeim lista og töluverður erill hafi fylgt því að deila út því viðbótarfjár- magni sem hafi komið til vegna átaksins. Nú sé hinsvegar svo komið að búið sé að „haka við“ tólf af fjór- tán stéttarfélögum, eftir standi ljós- mæður og sálfræðingar. Geislafræðingar fá mismiklar kjarabætur  Forstjóri LSH setur spurningamerki við baráttuaðferðir starfsstétta spítalans Morgunblaðið/Rósa Braga Stéttabarátta Tæplega þriðjungur geislafræðinga á Landspítalanum mætti til vinnu í gær. Hinir íhuga nú að draga uppsagnir sínar til baka. Landspítalinn » Samkvæmt bréfi fjármála- ráðuneytis þurfti að leiðrétta stöðu meðlima 14 af 30 stétt- arfélögum sbr. jafnlaunaátak ríkisins. » Þegar er búið að semja við 12 af 14 stéttarfélögum um hlutdeild í viðbótarfjármagni sem fylgdi jafnlaunaátakinu. » Þær tvær stéttir sem eftir standa eru sálfræðingar og ljósmæður. Morgunblaðið/Kristinn Dalvegur Miklar framkvæmdir standa nú yfir við Dalveg. Að loknum þessum áfanga verður vegurinn tvöfaldur á löngum kafla. Tvöföldun alls vegarins er fyrirhuguð. Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Miklar gatnaframkvæmdir hafa staðið yfir í Kópavogi undanfarnar vikur, þeirra á meðal tvö- földun (2+2) á hluta Dalvegar. Gunnar I. Birgis- son, formaður framkvæmdaráðs Kópavogsbæjar, sagði þeim áfanga verða að mestu leyti lokið um næstu mánaðamót. „Dalvegurinn verður tvöfaldaður á kafla frá hringtorginu við Digranesveg og að afleggj- aranum sem gengur út á bensínstöð Orkunnar,“ sagði Gunnar. „Hluti af þessum framkvæmdum verður svo að setja hringtorg við Sorpu-stöðina. Þetta er fyrsti áfangi í breikkun Dalvegarins, sem er fjölfarnasta gata bæjarins. Rekstraraðilar eru mjög ánægðir með þetta.“ Gunnar segir að vegurinn verði tvöfaldaður allur þegar fram í sækir. „Fólk hefur þurft að beygja þarna yfir veginn til að komast að fyrir- tækjunum sunnan megin við Dalveginn, sem hef- ur valdið mörgum slysum. Hringtorgið gæti kom- ið í veg fyrir það.“ Kostnaður er áætlaður á bilinu 70 til 80 milljónir. Göngustígar tengdir Fossvogi „Það leynist svo alltaf ein og ein gata hjá okk- ur þar sem ekki er búið að skipta um lagnir og jarðveg og annað. Þess vegna er verið að endur- byggja Álfabrekku,“ sagði Gunnar. „Þeim fram- kvæmdum verður lokið fyrir haustið.“ Þá er einn- ig verið að endurnýja yfirborð og lagnir að hluta í Ásbraut. „Samhliða því er svo verið að leggja þar göngustíg sem verður tengdur við Fossvoginn upp Ásbrautina, yfir hæðina og niður Hafnar- fjarðarmegin til að mynda þarna ákveðna heild,“ sagði Gunnar. Í Græna- Rauða- og Litlahjalla er verið að leggja slitlag á gangstéttir. Miklar gatnaframkvæmdir í Kópavogi  70 til 80 milljónir króna í tvöföldun Dalvegar 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Auro Investment ehf. undirritaði í gær kaupsamn- ing á lóðinni við hlið Hörpu að Austurbakka 2. Gert er ráð fyrir að þar rísi fjögurra til fimm stjörnu hótel með um 250 her- bergjum. Mar- riott-hótelkeðjan hefur gert tilboð í rekstur hótelsins og fregnir herma að annar þekktur hótelrekstraraðili sé einnig með tilboð í undirbúningi. Tveir aðilar buðu 1,8 milljarða í lóðina, en gengið var til samninga við Auro Investment eftir að samn- ingar við World Leisure Invest- ment runnu út í sandinn í apríl. Eigendur Auro Investment eru verkfræðistofan Mannvit, Auro In- vestment Partners LLC og arki- tektastofan T.ark, sem buðu sam- eiginlega í hótellóðina. Auro Investment mun byggja hótelið, en arkitektar T.ark munu hanna það og Mannvit stjórna fram- kvæmdum. Hótelreitur við Hörpu seldur Harpa Hótelið rís við hlið Hörpu.  Auro keypti lóðina af Situs Júlí var kaldasti júlímánuður í Reykjavík frá árinu 2002. Þessu var ekki þannig farið alls staðar, því á Dalatanga var mánuðurinn sá þriðji hlýjasti frá upphafi mælinga, en árin 1955 og 1984 mældist þar hærri hiti í júlí. Veðurstofan birti í gær tölur yfir veðurfar á landinu í nýliðnum júlí. Meðalhiti mánaðarins var hæstur á Hallormsstað, 12,2 stig, og næst- hæstur á Egilsstaðaflugvelli, 11,4 stig. Hitinn fór hæst í 26,4 stig þann 21. júlí í Ásbyrgi. Úrkoma var mikil í júlí. Úrkoma mældist 72,2 millimetrar í Reykja- vík, nærri 40% umfram meðaljúlí, og sú mesta síðan 2001. Sömu sögu er að segja af Stykkishólmi, en úrkoma þar var 57,5 millimetrar, einnig 40% yfir meðallagi. Úrkoma var hins veg- ar í rétt tæpu meðallagi á Akureyri. Ásbyrgi átti hitamet í júlí Rigning Það rigndi mikið í Reykjavík. „Það eru mjög skiptar skoðanir um þennan samning. Maður veit ekki al- veg hvað verður, þetta leggst misjafnlega í mannskapinn, fólk er að fá mishátt út úr þessu,“ segir geislafræðingur sem vill ekki láta nafns síns getið. Þá tekur hann fram að líklegt sé að einhverjir gefi sér tíma til að hugsa sig um, ekki síst yngri geislafræðingar sem séu óánægðir, þar sem þeir beri minna úr býtum. „Svo er búið að vera mikið álag og leiðindamórall á deildunum. Það hafa verið skikkanir í gangi, það hefði verið hægt að leysa þetta mál fyrir löngu og það situr í fólki. Stjórnunin hefur ekki verið eins og hún ætti að vera. Það hafa allir verið að vinna vel yfir 100% vinnu, það er ekki óalgengt að fólk hafi verið að vinna 120-150% vinnu.“ Skiptar skoðanir um samninginn LEIÐINDAMÓRALL Á DEILDUNUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.