Morgunblaðið - 02.08.2013, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
V
ið erum í rannsóknar-
vinnu og enn að móta
verkið. Við erum að taka
á kvenlægum tabúum út
frá persónulegri reynslu
og sögum og fengum styrk frá Evr-
ópu unga fólksins til að vinna að
verkefninu. Hugmyndin að þessu
hefur verið í kollinum á okkur frá því
í september í fyrra og við sóttum um
ýmsa styrki en fengum ekkert til að
byrja með. Þetta verkefni er okkur
alveg ótrúlega kært, það var erfitt að
finna tíma í vetur til að vinna að því
en við getum vonandi lagst í það af
fullum þunga núna,“ segir Elísabet
Birta Sveinsdóttir, einn forsprakka
danshópsins Dætra sem flytja mun
verk tengt Reykjavík Dance Festival
sem haldið verður dagana 23. ágúst
til 1. september næstkomandi.
Stefnan sett á stóra sýningu
„Við erum þrjár sem vorum að
útskrifast í vor frá Samtímadans-
braut Listaháskóla Íslands. Það eru
ég, Anna Kolfinna Kuran og Halla
Þórðardóttir. Svo eru tvær aðrar
stelpur með okkur, Herdís Stef-
ánsdóttir sem semur tónlistina fyrir
okkur og svo er Hjördís Gestsdóttir
að hanna búningana. Hópurinn var
stofnaður af okkur Önnu og Höllu og
svo fengum við Herdísi og Hjördísi
til liðs við okkur,“ segir Elísabet
Birta.
„Við sóttum um styrk frá Hlað-
varpanum, menningar- og styrkt-
arsjóði kvenna á Íslandi, en við feng-
um hann því miður ekki. Við vorum
þá reyndar að sækja um mjög háan
styrk. Fjárhagsáætlun okkar var þá
þannig að við gætum sett upp alvöru-
sýningu á sviði, leigt á æfingarrými,
staðið undir efniskostnaði ásamt
öðru. Við fengum þó sem betur fer
styrk frá Evrópu unga fólksins fyrir
verk í vinnslu og munum vinna að því
og verða svo með verk í vinnslu á
Reykjavík Dance Festival. Okkur
langar svo í framhaldinu að sækja
um meira fjármagn svo við getum
klárað verkið og sett það upp sem
stærri sýningu,“ segir hún.
Alhliða sviðsverk
„Okkur langar, þegar við erum
búnar að sýna verkið hérna heima, að
sækja um að fá að sýna á hátíðum er-
lendis. Við erum samt að gera þetta
verk fyrir íslenskt samfélag. Þetta
eru ýmis kvennamál sem við þekkj-
um hér og til að byrja með förum við
ekkert út fyrir landið, þrátt fyrir að
tabúin fyrirfinnist líklegast annars
staðar líka,“ segir Elísabet Birta.
Hún segir að þrátt fyrir að þær stöll-
ur séu útskrifaðir dansarar muni
verk þeirra fást við víðara svið. Hún
segir hópinn einnig vinna með texta
og að sýningin verði í raun bara al-
hliða sviðsverk. Hópurinn hefur
skipulagt umræðukvöld þar sem
konur hafa komið saman og rætt
feimnismál sín á milli. Eitt slíkt kvöld
var til að mynda haldið í gærkvöldi
og vonar Elísabet Birta að þau verði
Kvenlæg tabú
túlkuð á sviði
Danshópurinn Dætur, sem meðal annars hefur hlotið styrk frá Evrópu unga fólks-
ins, flytur verk í vinnslu tengt kvenlægum tabúum á Reykjavík Dance Festival í
lok mánaðarins. Elísabet Birta Sveinsdóttir segir verkið vera hópnum afar kært.
Dans Elísabet Birta segir framtakssemina skipta höfuðmáli í dansheiminum.
Gott getur verið að kynna sér verk
ýmissa listamanna á veraldar-
vefnum. Listamaðurinn Fritz Hend-
rik Berndsen hefur verið að gera
það gott upp á síðkastið en hann
tók meðal annars þátt í Listhópum
Hins hússins í sumar með verkefn-
inu Slagverk. Hann hefur nú komið
sér upp heimasíðunni fritzhend-
rik.tk en þar má skoða mörg af
hans verkum.
Meðal þess sem finna má eru
tenglar á teikningar, málverk,
skúlptúra, myndbönd, gjörninga
auk þess sem hægt er að kynna
sér ýmis verkefni sem Fritz hefur
tekið sér fyrir hendur. Sem dæmi
má nefna nýjustu plötu hljómsveit-
arinnar Samaris en Fritz sá um
myndskreytingu og hönnun á plöt-
unni. Einnig má nefna ýmis vegg-
spjöld fyrir rokkhátíðina Eistna-
flug.
Vefsíðan www.fritzhendrik.tk
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Gjörningur Fritz tók meðal annars þátt í Listhópum Hins hússins í sumar.
Gjörningar og málverk
Leiksýningin How to become Icelandic
in 60 min verður sýnd í Kaldalóni í
Hörpu næstu vikur. Um er að ræða
sýningu sem samin er og flutt af
Bjarna Hauki Þórssyni en leikstjóri
hennar er Sigurður Sigurjónsson. Sýn-
ingin, sem flutt er á ensku, er sam-
bland af söguleikhúsi og uppistandi
þar sem reynt er að kenna áhorf-
endum að verða Íslendingar. Samstarf
þeirra Bjarna og Sigurðar ætti að vera
mörgum kunnugt en þeir hafa meðal
annars sett upp leiksýningarnar
Hellisbúann, Pabbann og Afann í sam-
einingu. Hægt er að kynna sér sýn-
inguna nánar á vefsíðunni midi.is.
Endilega …
… skelltu
þér í Hörpu
Leiksýning Bjarni lék Hellisbúann.
Á morgun verður hátíðin Sæludagur í
Hörgársveit haldin í tíunda sinn. Eins
og síðustu ár verður fjöldi viðburða
um alla sveit og ljóst að allir fá eitt-
hvað fyrir sinn snúð.
Sæludagurinn byggist á því að
bændur, sem og aðrir sem í sveitinni
búa, bryddi upp á einhverju skemmti-
legu og opni húsakynni sín, fjós og
garða fyrir fólki.
Meðal þess sem fer fram á morgun
er Sveitafitnessið svokallaða sem er
orðið árleg hefð. Keppnin fer fram á
Möðruvöllum og er keppt í greinum
sem jafnan geta talist til daglegra
verka bænda.
Þar má nefna það að stafla áburð-
arpokum, festa dekk á heyvagn,
stökkva yfir heyrúllu og söðla hest
sem kærir sig ekkert endilega um
það. Í Arnarnesi verður síðan sveita-
markaður og í Öxnadal verður farið í
göngu- eða fjórhjólaferðir.
Á Hjalteyri verður dagskráin einnig
skemmtileg en þar verður meðal ann-
ars boðið upp á myndlistarsýningu.
Annað kvöld verða síðan haldnir tón-
leikar þar sem hljómsveitir á borð við
Reptilicus og Rafstein munu koma
fram. Dagskránni lýkur svo með
sveitaballi, ætluðu fólki af eldri kyn-
slóðinni, á Melum í Hörgárdal.
Sæludagurinn haldinn í tíunda sinn
Sveitafitness í Hörgársveit
Styrkur Sveitafitnessið er alltaf vinsæll liður á Sæludeginum í Hörgársveit.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.