Morgunblaðið - 02.08.2013, Blaðsíða 11
Yfir 60 tónlistarmenn munukoma fram í Herjólfsdalum helgina. Aðeins þrírauglýstra listamanna eru
konur. Nýlega tjáði ungur maður
sig opinberlega um að honum hefði
verið nauðgað á Þjóðhátíð í fyrra.
Þegar hann leitaði sér aðstoðar
sjálfboðaliða var lögregla ekki
kölluð til heldur var honum sagt að
hvíla sig og leita á neyðarmóttöku
daginn eftir. Í gærkvöldi sneri svo
Egill nokkur Einarsson, betur
þekktur sem Gillzenegger, skífum
á Húkkaraballinu.
Téður Egill skrifaði einu sinni
bók sem heitir Biblía fallega fólks-
ins en vefurinn knuz.is vakti at-
hygli á henni í gær. Bókin inni-
heldur kafla um Þjóðhátíð þar sem
Egill bendir karlmönnum á að
reyna að „húkka eitthvert
hágæða ílát“ á umræddu
balli og hann vill að menn
„losi, skrúfi frá eða tappi
af“ í þessi „ílát“. Þá segir
hann hvern þann sem fari
heim á sunnudeginum
vera „aumingja með
leggöng“.Umfjöllun
Egils um Þjóðhátíð
fylgir síðan skemmti-
saga úr dalnum. „Þeir
létu sér ekki nægja að
klæða hann úr hverri
einustu spjör heldur
nauðguðu þeir honum
með berum hönd-
um,...,ég hef sjaldan
skemmt mér jafn vel.“
Af hverju er Þjóðhátíðarnefnd
að segja mér að fara á ball með
manni sem lítur á mig sem ílát? Af
hverju segir Þjóðhátíðarnefnd mér
að maður sem hlær að nauðgunum
sé töff? Er ég aumingi af því ég er
með leggöng, Egill?
Það er tími til kominn að
Þjóðhátíðarnefnd hysji upp um sig
buxurnar. Það þarf fagaðila frá
Stígamótum á svæðið. Þrátt fyrir
góðan vilja sjálfboðaliða ÍBV verð-
ur að segjast að það er út í hött að
myndhverfa nauðganir sem krútt-
legan bleikan fíl.
Hvað dagskrána varðar, þá eig-
um við nóg af frábærum tónlist-
arkonum til að auka fjöl-
breytni í dalnum og það
ætti ekki að vera vanda-
mál að finna plötu-
snúð sem finnst
nauðganir ekki
fyndnar.
Lífið getur verið
yndislegt á Þjóðhá-
tíð en að þessu sinni
held ég að ég drulli mér
frekar vestur.
»Af hverju segir Þjóð-hátíðarnefnd mér að
maður sem hlær að
nauðgunum sé töff?
Heimur Önnu Marsibil
Anna Marsibil Clausen
annamarsy@mbl.is
Morgunblaðið/Rósa Braga
Danshópur Afrakstur rannsóknarvinnu danshópsins Dætra má sjá á Reykjavik Dance Festival í lok ágúst.
fleiri. „Við viljum heyra frá konum á
öllum aldri. Við vonumst til þess að
geta rætt þessi mál svolítið djúpt og
talað hispurslaust um ýmis málefni.
Það sem kemur okkur á óvart í rann-
sóknarferlinu er af hverju vinkonur
geta oft ekki rætt um sum mál sín á
milli. Konur halda ýmsu algjörlega út
af fyrir sjálfar sig. Okkur langar að
tala um þessi mál, flest eru þau eitt-
hvað sem allar konur kannast við.
Við ætlum til að mynda að taka á full-
nægingum og allskyns kynlífs-
tengdum málum. Svo munum við lík-
legast ræða ýmislegt varðandi útlit
og þess háttar,“ segir Elísabet Birta
en hún tekur fram að þær sem ekki
vilja tjá sig fyrir framan aðra geti
engu að síður skrifað hugsanir sínar
á miða og sett í þar til gerðan kassa.
Brjóst kvenna eru tabú
„Við erum ekki að fara að segja
neinum hvernig á að haga lífinu eða
verða með einhvern áróður í okkar
verki. Við erum meira bara að fá fólk
til að hugsa, vekja það til meðvit-
undar um ýmis málefni. Við vinnum
mikið út frá persónulegum málum og
við hlökkum því mjög mikið til að
heyra í þessum konum. Sýningin
mun vonandi njóta góðs af þessari
umræðu,“ segir hún. Elísabet Birta
var áberandi í Druslugöngunni síð-
astliðinn laugardag þar sem hún
skartaði gegnsærri blússu. Hún seg-
ir það hafa verið part af rannsókn-
arvinnu verkefnisins samhliða því að
koma sér á framfæri með öðrum
hætti. Það er því sterkt sjálfstætt
þema í dansheiminum hér á landi og
það er fullt af litlum hópum starfandi
úti um allt. Svo eru allir þessir styrk-
ir sem hægt er að sækja um alveg
frábærir. Fólk getur því oft unnið að
sínum verkefnum án þess að vera
partur af einhverju stærra fyrirtæki
eða stofnun,“ segir hún.
„Maður verður að vera fram-
takssamur í þessum heimi, annars
gerist ekki neitt. Það þýðir ekki að
ætla bara að sitja og bíða við símann.
Það er ekkert þannig í boði. Ef mað-
ur vill gera eitthvað verður maður
bara að gera það sjálfur eða fá fólk
með sér. Maður þarf líka oft að gera
eitthvað án fjármagns og fara bara
áfram á ástríðunni. Við erum í raun
mjög heppnar að hafa fengið styrk
strax núna eftir útskrift og erum
rosalega þakklátar fyrir það,“ segir
Elísabet Birta að lokum. Verkið
verður sýnt utan dagskrár 29. ágúst
á Reykjavik Dance Festival í innri
sal KEX Hostels og er frítt inn. Auk
þess munu dansararnir þrír taka þátt
í síðari hluta útskriftarverkefnis
þeirra, Áferð, en það verður sýnt 25.
ágúst klukkan fjögur í Hafnarhúsinu.
„Ef maður vill gera eitthvað verður maður bara
að gera það sjálfur eða fá fólk með sér. Maður þarf
líka oft að gera eitthvað án fjármagns og fara bara
áfram á ástríðunni.“
sýna málstað Druslugöngunnar sam-
stöðu.
„Við höfum rætt það mikið hvað
brjóst eru mikil tabú í sjálfu sér. Við
höfum til að mynda kannað það hvað
myndi gerast ef við færum ber-
brjósta í sund. Þetta eru óljósar regl-
ur, það virðist vera að á meðan eitt-
hvað misbjóði engum þá sé það í lagi.
Þetta er því mjög óljóst. Stelpur hafa
engu að síður verið reknar upp úr
sundlaugum fyrir að fara úr að ofan í
sólbaði og þess háttar. Það eru samt
ekki neinar beinar reglur sem banna
það. Það er ótrúlega áhugavert að
velta því fyrir sér hví brjóst hafi
þessa stöðu, því ekki eru brjóst kyn-
færi. Sumir segja að þetta sé bara í
augum þess er á horfir. Um leið og
gagnkynhneigður karlmaður sér
brjóst þá fer eitthvað kynferðislegt í
gang hjá honum, þess vegna séu
brjóst tabú. Þetta er allt saman mjög
áhugavert og við erum spenntar fyrir
þessum rannsóknum,“ segir hún.
Áfram á ástríðunni
„Það er bara einn dansflokkur á
Íslandi sem er ríkisrekinn og því
verða þeir sem ekki hafa áhuga á, eða
komast ekki inn í þann flokk, að
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013
Svarið við spurningu dagsins
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is
tilbúnar í pottinn heima
Fiskisúpur í Fylgifiskum
Verð 1.790 kr/ltr
Súpan kemur í fötu en fiskinum er pakkað sér.
Eldunaraðferð þegar heim er komið: Súpan er hituð upp að suðu, fiskinum er jafnað út milli súpudiska
eða settur í pottinn um leið og súpan er borin fram.
Hvað þarftu mikið?
Súpa sem aðalréttur – 0,5 ltr/mann Súpa sem forréttur – 0,25 ltr/mann
Ekki eru allir að fara á útihátíð um
verslunarmannahelgina. Heimageml-
ingar á Akureyri, sem og aðrir gest-
ir í bænum, þurfa þó ekki að láta
sér leiðast þar sem ýmislegt verður
í boði í bænum yfir helgina. Dag-
skráin verður til að mynda þétt á
Græna hattinum um helgina en
meðal viðburða eru tónleikar hljóm-
sveitanna Mannakorn og Hjálmar.
Mannakorn ríður fyrst á vaðið á
laugardagskvöldinu með þeim
Magnúsi Eiríkssyni og Pálma Gests-
syni í fararbroddi. Á sunnudeginum
munu síðan meðlimir Hjálma
skemmta viðstöddum með regg-
ískotnum tónum. Talsverð bið verð-
ur eftir því að sjá sveitina koma
fram aftur þar sem söngvari og
hljómborðsleikari sveitarinnar, Sig-
urður Halldór Guðmundsson, er að
flytja úr landi.
Hjálmar og Mannakorn á Græna hattinum
Morgunblaðið/Ómar
Tónleikar Hjálmar munu koma fram á Akureyri um helgina ásamt Mannakornum.
Síðustu tónleikar Hjálma í bili
Arion banki mun standa fyrir götu-
listasýningu í aðdraganda Menning-
arnætur í ár og verður hún sú fyrsta
sem fram fer á götuskiltum höf-
uðborgarinnar. Nú þegar hafa borist
um hundrað og fimmtíu listaverk á
sýninguna og eru þau jafn mismund-
andi og þau eru mörg. Meðal lista-
verkanna má finna málverk, teikn-
ingar, ljósmyndir, grafíska hönnun og
útsaum. Sýningin er opin öllum og
allir sem fást við myndlist eða hönn-
un af einhverju tagi eru hvattir til
þátttöku í sýningunni en frestur til
innsendingar rennur út 9. ágúst
2013, sækja skal um á heimasíðu
bankans. Stefnt er að því að fimm
hundruð verk verði til sýnis á götu-
skiltum höfuðborgarsvæðisins dag-
ana 20. til 27. ágúst.
Götulistasýning í aðdraganda Menningarnætur
Morgunblaðið/Eggert
Listasýning Höfuðborgin lifnar jafnan við þegar nær dregur Menningarnótt.
Stefnt á fimm hundruð listaverk