Morgunblaðið - 02.08.2013, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013
STÓRÚTSALA!
Allar vörur
á útsölu
Allt að 50%
afsláttur
Ármúla 5 • 108 Reykjavík • Sími 544 8181
Þekking • Þjónusta
Olíumálverk
40%
afsláttur
Skápar
10-40%
afsláttur
Sófar
15-30%
afsláttur
Jantzen
hægindastólar
20% afsláttur
Rubelli tungusófar
168.300,-
Lampar og
kertastjakar
20%
afsláttur
www.innlit.is
sýnt hross sem urðu efst á kynbóta-
sýningum.
Guðlaug Marín Guðnadóttir, 34
ára, vann sér keppnisrétt með bestu
tímunum í 250 metra skeiði á Toppi
frá Skarði 1. Guðlaug er kennari og
tamningamaður í Danmörku.
Sigursteinn Sumarliðason, 34
ára, mætir með Skugga frá Hofi 1.
Sigursteinn varð heimsmeistari í
gæðingaskeiði 2007. Hann starfar
sem tamningamaður á Selfossi.
Karen Líndal Marteinsdóttir, 30
ára, keppir á Tý frá Þverá 1. Hún
er tamningamaður og reiðkennari í
Vestri-Leirárgörðum í Borgarfirði.
Haukur Tryggvason, 38 ára,
mætir með Hettu frá Ketilsstöðum.
Haukur rekur Hestalindina á Tölt-
myllunni í Þýskalandi.
Ungmennaflokkur
Ungmennin sem taka þátt í
mótinu eru á aldrinum 16 til 21 árs.
Arnar Bjarki Sigurðarson, 21
árs, sigraði í fimmgangi á úrtöku-
móti á Arnari frá Blesastöðum 2A.
Arna Ýr Guðnadóttir, 21 árs,
keppir á Þrótti frá Fróni. Hún vann
sér rétt til þátttöku með sigri í fjór-
gangi á úrtökumótinu.
Flosi Ólafsson, 21 árs, sigraði í
tölti á úrtökumótinu á Möller frá
Blesastöðum 1A.
Konráð Valur Sveinsson, 16 ára,
keppir á Þórdísi frá Lækjar-
botnum.
Gústaf Ásgeir Hinriksson, 17 ára,
mætir til leiks á Björk frá Enni.
Knapar kynbótahrossa
Fimm knapar sýna sex kynbóta-
hross til dóms á Heimsleikunum.
Sigurður Óli Kristinsson, 38 ára,
sýnir Feyki frá Háholti í flokki
stóðhesta sjö vetra og eldri.
Elías Árnason, 40 ára, sýnir
Sölku frá Snjallsteinshöfða í flokki
hryssa 7 vetra og eldri.
Þórður Þorgeirsson, 48 ára, sýnir
Gíg frá Brautarholti í flokki sex
vetra stóðhesta.
Guðmundur Friðrik Björg-
vinsson, 38 ára, sýnir Furu frá
Hellu í flokki sex vetra hryssa og
Desert frá Brautarholti í flokki
fimm vetra stóðhesta. Guðmundur
sýndi hæst dæmdu hross á kynbóta-
sýningum Heimsleika 2001 og 2003.
Sigurður Vignir Matthíasson, 37
ára, sýnir Vakningu frá Hófgerði í
flokki fimm vetra hryssa. Sigurður
varð heimsmeistari í fimmgangi árið
2003.
Þrír heimsmeistarar verja titla sína
21 knapi í landsliði Íslands sem keppir í Berlín Reynslumiklir menn og ungir knapar í bland
Elías
Árnason
Þórður
Þorgeirsson
Sigurður Óli
Kristinsson
Arna Ýr
Guðnadóttir
Guðmundur Frið-
rik Björgvinsson
Sigurður Vignir
Matthíasson
Gústaf Ásgeir
Hinriksson
Arnar Bjarki
Sigurðarson
Eyjólfur
Þorsteinsson
Haukur
Tryggvason
Jóhann Rúnar
Skúlason
Flosi
Ólafsson
Konráð Valur
Sveinsson
Hinrik
Bragason
Karen Líndal
Marteinsdóttir
Bergþór
Eggertsson
Viðar
Ingólfsson
Sigursteinn
Sumarliðason
Guðlaug Marín
Guðnadóttir
Jakob Svavar
Sigurðsson
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Liðabikarinn Hafliði Halldórsson pakkar liðabikarnum niður fyrir flutning.
Þótt bikarinn sé þungur er liðsstjórinn ákveðinn í að taka hann með heim.
SVIÐSLJÓS
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Landslið Íslands sem keppir á
Heimsleikum íslenska hestsins í
Berlín 4. til 11. ágúst er skipað 21
knapa. Tíu keppa um heimsmeist-
aratitla í aðalkeppninni, þar af eru
þrír heimsmeistarar frá 2011 sem
þá unnu sér rétt til að verja titla
sína. Fimm eru í ungmennalandslið-
inu og sex knapar sýna hross á kyn-
bótasýningu mótsins.
Hópurinn er fjölbreyttur. Þar eru
menn sem unnið hafa marga heims-
meistaratitla og sautján ára strákar
sem eru að stíga sín fyrstu skref á
alþjóðlegum vettvangi.
Jóhann Rúnar Skúlason, 44 ára,
er heimsmeistari í tölti. Hann mætir
með sama hestinn, Hnokka frá
Fellskoti, til að verja titil sinn. Jó-
hann er margfaldur heimsmeistari.
Hefur til dæmis unnið töltkeppnina
fimm sinnum á síðustu sjö mótum.
Jóhann starfar í Danmörku.
Bergþór Eggertsson, 39 ára, er
heimsmeistari í 250 metra skeiði.
Hann mætir með Lótus frá Al-
denghoor sem hann hefur sigrað á í
skeiðinu þrjú mót í röð. Þeir unnu
einnig 100 metra skeið 2007. Berg-
þór starfar í Þýskalandi.
Eyjólfur Þorsteinsson, 30 ára, er
heimsmeistari í samanlögðum fjór-
gangsgreinum. Hann mætir með
Kraft frá Efri-Þverá. Eyjólfur er
tamningamaður í Hafnarfirði.
Jakob Svavar Sigurðsson, 38 ára,
vann úrtökuna í fimmgangi á Al frá
Lundum 2. Jakob er tamn-
ingamaður í Steinsholti í Borgar-
firði.
Viðar Ingólfsson, 30 ára, vann úr-
tökuna í fjórgangi á Hrannari frá
Skyggni. Hann er tamningamaður á
Kvíarhóli í Ölfusi.
Hinrik Bragason, 44 ára, vann
úrtökuna í tölti á Smyrli frá Hrís-
um. Hinrik rekur Hestvit á Ár-
bakka í Rangárþingi. Hann hefur
margoft keppt á Heimsleikum. Sigr-
aði í 250 m skeiði 1993 og tvisvar
„Þetta er tvímælalaust mikið tæki-
færi til að koma íslenska hestinum á
framfæri. Búið er að kynna mótið vel
og það er haldið inni í höfuðborginni.
Ég trúi ekki öðru en að hópreiðin við
Brandenborgarhliðið og setningaat-
höfnin muni vekja athygli,“ segir
Gunnar Sturluson, varaforseti FEIF,
alþjóðasamtaka um íslenska hestinn,
um áhrif Heimsleikanna í Berlín.
Umfangsmikil starfsemi er í kring-
um íslenska hestinn í Evrópu, einkum
í þýskumælandi löndum og á Norð-
urlöndunum. Þar er fjöldi búgarða
sem einbeita sér að þessu hestakyni
og mikil vinna fyrir Íslendinga.
Um 250 þúsund íslenskir hestar
eru skráðir í heiminum, þar af um 80
þúsund á Íslandi. Gunnar bendir á að
um 65 þúsund íslenskir hestar séu í
Þýskalandi og rúmlega tvöfalt fleiri
félagar í hestamannafélögum þar en
á Íslandi.
Íslendingar halda forystunni, þrátt
fyrir tímabundna erfiðleika hér á
landi og framþróun erlendis. Gunnar
bendir í því sambandi á að árangur
ræktunarstarfsins sé enn mun betri
hér á landi en í öðrum Evrópu-
löndum. Þá hafi landslið okkar unnið
liðabikarinn á undanförnum Heims-
leikum.
Greinin hefur heldur vaxið en þó
ekki náð að halda í við vöxt í starf-
semi annarra hestakynja, að sögn
Gunnars. Þótt margir íslenskir hestar
séu í Þýskalandi er hlutfall þeirra þó
aðeins um 6% af hestum í landinu
þannig að sókn-
arfærin eru til
staðar, að mati
Gunnars. Hlut-
fallið er hærra á
Norðurlöndunum
og hæst í Noregi,
um 18%.
„Mótið gæti
haft þau áhrif að
hestafólk sem ríð-
ur hestum af öðrum kynjum veiti ís-
lenska hestinum athygli og ákveði
að prófa. Margir sem hafa byrjað á
stóru hestunum hafa fært sig yfir á
íslenska hestinn, eftir að hafa
kynnst honum. Fólk hrífst af fimi
hans, skapgerð og fjölbreytni í gang-
tegundum,“ segir Gunnar um hugs-
anleg áhrif Heimsleikanna í Berlín.
„Ef vel tekst til er þetta ómetanlegt
tækifæri til að kynna hestinn fyrir
fólki sem er opið fyrir því að prófa
eitthvað nýtt.“
Gunnar vekur athygli á mikilvægi
hestamennskunnar fyrir íslenskt
efnahagslíf. Nefnir hann að kannanir
sýni að tæpur fimmtungur þeirra
ferðamanna sem koma til landsins
geri það út af íslenska hestinum.
Þetta sé því mikilvæg atvinnugrein
til gjaldeyrisöflunar. Segir hann að
margir útlendingar eigi hesta hér á
landi og séu í viðskiptum við ís-
lenska hrossabændur, tamninga-
menn og reiðkennara. Þeir komi
hingað oft á ári til að ríða út og huga
að kynbótahrossum sínum.
Íslendingar halda forystunni
ÓMETANLEGT TÆKIFÆRI TIL KYNNINGAR
Gunnar
Sturluson
HEIMSLEIKAR ÍSLENSKA HESTSINS