Morgunblaðið - 02.08.2013, Síða 18

Morgunblaðið - 02.08.2013, Síða 18
FRÉTTASKÝRING Hörður Ægisson hordur@mbl.is Sérstakur varasjóður sem slit- astjórn gamla Landsbankans (LBI) heldur úti til að mæta mögulegum útgreiðslum vegna óútkljáðra dómsmála nemur samtals um 100 milljörðum króna. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morgun- blaðsins eru um 80 milljarðar af þeirri fjárhæð í erlendri mynt og þar af helmingur – 40 milljarðar – er gjaldeyrir sem að óbreyttu væri hægt að greiða áfram til forgangs- kröfuhafa án undanþáguheimildar frá Seðlabanka Íslands. Að sögn þeirra sem þekkja vel til innan hóps kröfuhafa LBI gætir nokkurrar óánægju um stærð vara- sjóðsins. Telja ýmsir að umfang sjóðsins sé miklum mun meira en hægt sé að réttlæta með vísan til krafna sem ekki hefur endanlega verið hafnað fyrir dómstólum og mögulegum skaðabótakröfum sem gætu verið höfðaðar á hendur slit- astjórninni. Því mætti draga veru- lega úr umfangi sjóðsins og þá um leið myndi skapast svigrúm til að greiða út gjaldeyri til kröfuhafa. Það er hins vegar mat slit- astjórnar LBI að varasjóðurinn sé óhjákvæmilegur svo hægt sé að standa undir hugsanlega rétthærri forgangskröfum í upprunamynt sinni án tafar ef niðurstaða dóm- stóla leiðir í ljós að krafa sé lög- mæt. Samkvæmt upplýsingum frá slitastjórn LBI verður hún lögum samkvæmt að halda eftir slíkum varasjóði til að gæta jafnræðis milli kröfuhafa. Hátt í helmingur varasjóðsins samanstendur af lausafé í erlendri mynt sem féll til fyrir umfangs- miklar breytingar sem gerðar voru á lögum um gjaldeyrismál 12. mars 2012. Með þeirri lagabreytingu voru almennar undanþágur fjár- málafyrirtækja í slitameðferð frá fjármagnshöftum felldar úr gildi þannig að ekki væri hægt að greiða út gjaldeyri til kröfuhafa nema með samþykki Seðlabankans. Sá gjald- eyrir sem búin áttu í reiðufé við setningu laganna fellur hins vegar ekki undir þá lagabreytingu. Heimildir Morgunblaðsins herma þó að uppi sé ágreiningur milli Seðlabankans og LBI hvernig eigi að skilgreina hvort slíkur gjaldeyrir sé tækur til útgreiðslu til kröfuhafa án þess að undanþágu sé þörf frá Seðlabankanum. Sam- kvæmt svörum sem fengust frá LBI er slitastjórnin í stöðugum samskiptum við Seðlabankann um hvernig eigi að fara með þá fjár- muni sem féllu til fyrir breytingu á gjaldeyrislögunum í marsmánuði á síðasta ári. 133 milljarða undanþága Rétt eins og áður hefur verið greint frá á viðskiptasíðum Morg- unblaðsins, óskaði slitastjórn LBI eftir undanþágu frá lögum um gjaldeyrismál frá Seðlabankanum í maí síðastliðnum, til að greiða 133 milljarða í erlendum gjaldeyri til forgangskröfuhafa. Ekki liggur fyrir hvort eða hvenær Seðlabank- inn muni fallast á undanþágubeiðn- ina. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er talið ólíklegt að slík undanþága verði veitt á meðan ekki hefur tekist að semja um lengingu og endurskoðun á skilmálum á 300 milljarða erlendum skuldabréfum milli gamla og nýja Landsbankans. Slitastjórn LBI greiddi síðast út hlutagreiðslur til forgangskröfu- hafa, sem eru einkum trygginga- sjóðir innstæðueigenda í Bretlandi og Hollandi, í október 2012 að and- virði 82 milljarðar króna. Aðrar greiðslur voru inntar af hendi í maí sama ár (162 milljarðar) og í des- ember 2011 (432 milljarðar) en samtals hefur slitastjórnin greitt út að jafnvirði nærri 677 milljarða króna. Enn á eftir að greiða for- gangskröfur um 650 milljarða króna, eða rétt tæpan helming. Slitastjórn LBI geymir 100 milljarða króna í varasjóði  40 milljarðar í gjaldeyri sem er undanþeginn höftum  Kröfuhafar óánægðir Beðið svara LBI sendi beiðni til SÍ í maí um undanþágu til að greiða 133 milljarða í gjaldeyri til kröfuhafa. Óvíst er hvenær niðurstaða fæst. Morgunblaðið/Júlíus 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013 EINFÖLD ÁKVÖRÐUN VELDU ÖRYGGI FYRIR ÞIG OG ÞÍNA Smiðjuvegi 68-70, Kópavogi  544 5000 Hjallahrauni 4, Hfj  565 2121 Rauðhellu 11, Hfj  568 2035 Fitjabraut 12, Njarðvík  421 1399 Eyrarvegi 33, Selfossi  482 2722www.solning.is Smurþjónusta RafgeymarSmáviðgerðir RúðuvökviRúðuþurrkurHjólastillingarDekkjaverkstæði Bremsuklossar Peruskipti – UMBOÐSMENN UM LAND ALLT – Þú paSSaR HaNN VIÐ PÖSSUM ÞIG STUTTAR FRÉTTIR ● Edda Rós Karls- dóttir hefur verið ráðin sérfræðingur á sviði peninga- mála- og fjár- málamarkaða hjá Alþjóðagjaldeyr- issjóðnum í Wash- ington. Edda Rós er ráðin til tveggja ára. Hún hefur starfað á skrifstofu AGS hér á Íslandi frá árinu 2009 en áð- ur var hún forstöðumaður greiningar- deildar Landsbankans. Edda Rós Karlsdóttir Edda Rós til AGS í Washington ● Evrópski seðlabankinn ákvað í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,5%. Marop Draghi, bankastjóri Evr- ópska seðlabankans, sagði í síðasta mánuði að vöxtum yrði áfram haldið í sögulegu lágmarki um einhvern tíma. Ákvörðun bankans um að lækka vexti ekki enn frekar, er tekin aðeins degi eft- ir að Hagstofa Evrópu, Eurostat, gaf út nýjar atvinnuleysistölur á evrusvæðinu, 12,1% og hafði atvinnuleysi dregist ör- lítið saman í júnímánuði, miðað við maí. Óbreyttir stýrivextir verða á evrusvæðinu Hlutabréf í breska bankanum Llo- yds Banking Group snarhækkuðu í verði í Lundúnum í gær, eða um 8%, eftir að tilkynnti að hann hefði hagn- ast um 2,1 milljarð breskra punda, jafnvirði 380 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Lloyds tap- aði á fyrstu sex mánuðum ársins 2012 456 milljónum punda, eða sem nemur 82,5 milljörðum króna. Breska ríkið á 39% í Lloyds Bank- ing Group og hefur átt undanfarin ár, frá því að bankakrísan skall á. Á fréttavef Breska ríkisútvarpsins, BBC, í gær, kemur fram að George Osborne, fjármálaráðherra Breta, vilji selja hlut ríkisins í bankanum og vilji hann að lágmarki fá 61 pens fyr- ir hlutinn. BBC segir að það sé allt of lágt verð að margra mati, en við lok- un markaða í gær var hluturinn í Lloyds á 74 pens. AFP Lloyds Antonio Horata-Osorio, bankastjóri Lloyds, segir að bankinn sé nú kominn á rétt skrið til þess að skapa hluthöfum sínum viðunandi arð. Umskipti hjá Lloyds-bankanum                                           !"# $% " &'( )* '$* ++,-,. +,/-0. ++0-11 .+-/2. ./-/1. +,-/2. +.3-43 +-./.3 +32-13 +03-.4 ++2-+ +,/-24 ++0-3, .+-+01 ./-+/+ +,-+10 +.,-/5 +-./4. +,/ +03-3 .++-4.,, ++2-5, +,+-1 ++4-+. .+-.+4 ./-+4 +,-+2, +.,-52 +-./23 +,/-05 +0,-+1 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á 255 millj- arðar króna Reiðufé LBI í lok mars. Slitastjórnin hefur óskað eftir undanþágu til að greiða 133 milljarða til kröfuhafa. 100 millj- arðar króna Umfang varasjóðs slitastjórnar. Um 40 milljarðar eru í erlendum gjald- eyri sem féll til fyrir 12. mars 2012. SÉRSTAKUR VARASJÓÐUR »

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.