Morgunblaðið - 02.08.2013, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013
Hæstiréttur staðfesti dóminn
Fjögurra ára fangelsisdómur yfir Silvio Berlusconi staðfestur Sleppur líklega
við fangelsisvist Dómnum ekki framfylgt fyrr en þingið afléttir friðhelgi
Æðsti dómstóll Ítalíu hefur staðfest fjögurra ára
fangelsisdóm yfir Silvio Berlusconi, fjölmiðlamó-
gúl og fyrrverandi forsætisráðherra, sem undir-
réttur sakfelldi fyrir skattsvik í tengslum við fjöl-
miðlafyrirtækið Mediaset. Undirréttur dæmdi
stjórnmálamanninn litríka í fimm ára bann við
setu í opinberu embætti en hæstiréttur vísaði
þeim hluta refsingarinnar aftur til áfrýjunardóm-
stóls.
Berlusconi mun aðeins afplána eitt ár af dómn-
um en vegna þess að hann er kominn á áttræð-
isaldur er ólíklegt að hann verði látinn sæta fang-
elsisvist. Líkur eru á að honum verði heldur gert
að sinna samfélagsþjónustu eða taka dóminn út í
stofufangelsi.
Þetta er í fyrsta sinn sem dómur yfir Berlusconi
fer alla leið í dómskerfinu en fjöldi mála hefur ver-
ið höfðaður á hendur honum og hann m.a. sakfelld-
ur fyrir vændiskaup og valdníðslu. Þeim dómi
fylgdi sjö ára fangelsi en Berlusconi áfrýjaði.
Niðurstöðunnar var beðið með nokkurri eftir-
væntingu á Ítalíu en hún getur haft afdrifaríkar
pólitískar afleiðingar í för með sér. Áður en hægt
er að framfylgja dómnum verður þingið að sam-
þykkja að aflétta friðhelgi Berlusconi en það getur
tekið vikur eða mánuði. Nokkrir þingflokksbræð-
ur hans hafa hótað að láta af stuðningi við sam-
steypustjórn forsætisráðherrans Enrico Letta en
ríkisstjórn hans þarf á stuðningi Frelsisflokksins
að halda til að halda velli.
Ítalskir pólitíkusar voru ekki lengi að bregðast
við niðurstöðu dómstólsins í gær. „Berlusconi er
dauður,“ skrifaði Beppe Grillo, leiðtogi Fimm-
stjörnuhreyfingarinnar, á bloggsíðu sína. „Sak-
felling hans er eins og fall Berlínarmúrsins 1989.“
Guglielmo Epifani, leiðtogi Lýðræðisflokksins,
sagði að virða bæri dóminn og framfylgja honum.
holmfridur@mbl.is
Berlusconi er dauð-
ur. Sakfelling hans
er eins og fall Berl-
ínarmúrsins 1989.
Beppe Grillo
Stuðningsmenn
Roberts Muga-
bes sögðu í gær
að forsetinn
hefði gjörsigrað
mótframbjóð-
anda sinn, for-
sætisráðherrann
Morgan Tsvang-
irai, í forseta-
kosningum sem
fram fóru í Zimbabwe á miðviku-
dag.
Tsvangirai, sem bauð sig fram
gegn Mugabe í þriðja sinn, kallaði
kosningarnar hins vegar skrípaleik
sem endurspeglaði ekki vilja fólks-
ins í landinu. „Að okkar mati eru
kosningarnar ógildar,“ sagði hann.
„Þessar kosningar eru farsi.“
Grunur liggur á að umfangsmikil
kosningasvik hafi átt sér stað en
innlendur eftirlitsaðili, sem var
með 7.000 kosningaeftirlitsmenn að
störfum, sagði að allt að milljón
kosningabærir einstaklingum hefði
verið meinað að kjósa.
Vestræn ríki fengu ekki að hafa
eftirlit með kosningunum en Þró-
unarsamtök ríkja í suðurhluta Afr-
íku munu birta úrskurð um fram-
kvæmd kosninganna í dag.
Fylgismenn
Mugabes
fagna sigri
Robert Mugabe
Ásakanir um svik
Fangelsismálayfirvöld í Noregi hafa
gefið Anders Behring Breivik leyfi
til þess að stunda háskólanám, að því
gefnu að Oslóarháskóli vilji taka við
honum. Um fjarnám verður að ræða
og mun Breivik taka öll próf í fang-
elsinu. Breivik hefur áhuga á að
nema stjórnmálafræði en mennta-
málaráðherrann Kristin Halvorsen
gaf í skyn á dögunum að það væri til-
gangslaust að leyfa honum að
mennta sig þar sem honum yrði
aldrei sleppt úr haldi.
Lögmaður Breiviks segir það hins
vegar jaðra við pyntingar að halda
Breivik aðgerðarlausum.
Breivik fær að
stunda nám
AFP
Kínverjar sækja í sundlaugarnar í hitanum
Kínverska veðurstofan varaði við því fyrr í vikunni að hiti í nokkrum hér-
uðum í austur- og miðhluta Kína myndi fara í allt að 41 stig áður en vikan
væri úti en mikil hitabylgja gengur nú yfir stóran hluta landsins. Í Sichuan-
héraði í suðvesturhluta Kína myndaðist talsverð örtröð þegar fólk flykktist
í sundlaugar og vatnsrennibrautagarða til að kæla sig en júlímánuður var
sá heitasti í fjölmennustu borg landsins, Sjanghæ, í meira en 140 ár.
Uppljóstraranum Edward Snowden,
fyrrverandi starfsmanni Þjóðarör-
yggisstofnunar Bandaríkjanna, var í
gær veitt tímabundið hæli í Rúss-
landi í eitt ár. Í kjölfarið yfirgaf
hann Sheremetyevo-flugvöll í
Moskvu, þar sem hann hefur dvalið í
fimm vikur. „Staðsetning hans verð-
ur ekki gerð opinber af öryggis-
ástæðum, þar sem hann er eftirsótt-
asti maðurinn á jörðinni. Hann mun
sjálfur ákveða hvert hann vill fara,“
sagði Anatoly Kucherena, lögmaður
Snowden.
Hann sagði að Snowden myndi
aftur birtast sjónum almennings á
einhverjum tímapunkti og veita fjöl-
miðlum viðtöl. Í Rússlandi nyti hann
aðstoðar ótilgreindra amerískra
vina. Kucherena sagði Snowden
sakna kærustu sinnar, sem væri
dansari í Bandaríkjunum. „Þegar ég
sagði honum hvers konar stúlkur
hringdu að spyrja eftir honum sagði
hann: „En Anatoly, ég á kærustu.““
RÚSSLAND
Hæli Snowden saknar kærustunnar.
Fékk hæli og yfirgaf
flugvöllinn í Moskvu
Mariano Rajoy, forsætisráðherra
Spánar, viðurkenndi í gær að það
hefðu verið mistök að treysta Luis
Barcenas, fyrrverandi gjaldkera
Lýðfylkingarinnar, sem hefur ver-
ið sakaður um spillingu og situr í
gæsluvarðhaldi. „Ég gerði mistök
þegar ég setti traust mitt á ein-
stakling sem við vitum nú að
verðskuldaði það ekki,“ sagði for-
sætisráðherrann á þingfundi í
gær.
Barcenas hefur verið sakaður
um að hafa skipulagt greiðslur úr
leynilegum sjóði Lýðfylking-
arinnar, m.a. til forsætisráð-
herrans. Rajoy
játaði því í gær
að leiðtogar
flokksins hefðu
fengið viðbótar-
greiðslur fyrir
„unna vinnu“ en
hann neitaði að
hafa þegið ólög-
legar sporslur
og sagðist hafa
greitt skatt af öllum tekjum.
Rajoy ítrekaði að hann myndi
hvorki segja af sér né efna til
þingkosninga, líkt og stjórnarand-
staðan hefur kallað eftir.
SPÁNN
Viðurkenndi mistök og viðbótagreiðslur
Mariano Rajoy