Morgunblaðið - 02.08.2013, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013
Egypska innanríkisráðuneytið hét
stuðningsmönnum Mohamed Morsi í
gær „öruggri útgönguleið“ gegn því
að þeir yfirgæfu samstundis mót-
mælendabúðir sínar í Kaíró. Ráð-
herrar egypsku ríkisstjórnarinnar
fyrirskipuðu lögreglu á miðvikudag
að binda enda á mótmælasetu- og
göngur til stuðnings Morsi.
Innanríkisráðuneytið „biðlar til
þeirra á Rabaa al-Adawiya- og
Nahdatorgum að láta skynsemi og
þjóðarhagsmuni ráða för og hafa sig
fljótt á brott“, sagði í tilkynningu en
mótmælendur hafa svarað áeggjan
stjórnvalda með því að boða til
fjöldamótmæla í dag.
Mannréttindasamtökin Amnesty
International
hafa fordæmt
fyrirskipun
stjórnvalda, sem
þau segja „upp-
skrift að frekari
blóðsúthell-
ingum“. Þá hefur
utanríkisráðu-
neyti Bandaríkj-
anna hvatt bráða-
birgðastjórnina
til að virða rétt borgaranna til frið-
samlegra samkoma.
William Hague, utanríkisráðherra
Breta, hefur bæst í hóp þeirra er-
lendu ráðamanna sem hafa kallað
eftir því að Morsi verði látinn laus.
EGYPTALAND
Stjórnin hyggst binda enda á mótmælin
Mótmælendur
vilja Morsi lausan.
Umdeild löggjöf, sem ætlað er að
hamla ólöglegri dreifingu á höf-
undarréttarvörðu efni á netinu,
tók gildi í Rússlandi í gær. Lögin
auðvelda höfundarrétthöfum að
láta loka vefsíðum sem beina not-
endum áfram á höfundarréttar-
varið efni án leyfis en fjölmörg
netfyrirtæki hafa fordæmt þau
harðlega.
Lögin eru „tímasprengja“ fyrir
netið, sagði vefrisinn Google en
leitarsíðan Yandex, sú vinsælasta í
Rússlandi, segir þeim beint gegn
netinu en ekki svokallaðri sjóræn-
ingjastarfsemi.
Í minnisblaði
til við-
skiptavina
sinna segir
fjárfest-
ingabankinn
VTB Capital að
lögin geri
mönnum kleift
að láta loka
vefsíðum með
því að tengja
hvaða stolna efni sem er við síð-
una og leggja inn beiðni til dóm-
stóla. Óskýrt orðalag laganna veiti
ríflegt svigrúm til misnotkunar.
RÚSSLAND
Lokað á síður sem tengja á stolið efni
Ýmsir segja auðvelt
að misnota lögin.
Lorraine Mondial Air Ballons-hátíðin í Frakklandi er
stærsta hátíð sinnar tegundar en þar koma saman loft-
belgjaeigendur víðsvegar að úr heiminum og taka þátt
í sýningum og keppnum af ýmsu tagi.
Hátíðin, sem stendur yfir í tíu daga, er haldin á
tveggja ára fresti en á miðvikudag gerðu loftbelgja-
flugmenn tilraun til að setja nýtt heimsmet, með því að
sleppa 408 loftbelgjum á loft á sama tíma.
AFP
Skrautlegir og bústnir belgir
Stjórnvöld í Bandaríkjunum afléttu í
gær leynd af dómsúrskurði sem gaf
yfirvöldum leyfi til þess að safna upp-
lýsingum um símanotkun Banda-
ríkjamanna. James Cole, aðstoðar-
dómsmálaráðherra, sagði dómsmála-
nefnd öldungadeildar þingsins að
dómsúrskurðurinn gerði stjórnvöld-
um kleift að leita í gagnasafninu, að
því gefnu að réttmætar grunsemdir
væru uppi um að viðkomandi síma-
númer tengdist ákveðnum hryðu-
verkasamtökum.
Bandarísk stjórnvöld hafa sætt
mikilli gagnrýni í kjölfar afhjúpunar
um umfangsmikla njósnastarfsemi
þeirra en Guardian birti á miðvikudag
upplýsingar frá uppljóstraranum
Edward Snowden um tölvuforritið
XKeyscore, sem Þjóðaröryggisstofn-
un Bandaríkjanna, NSA, kallar í
kennslubók víðtækasta njósnaforrit
sem stofnunin býr yfir. Guardian seg-
ir forritið gera upplýsingagreinend-
um stofnunarinnar kleift að fram-
kvæma leitir í yfirgripsmiklum
gagnagrunnum, sem innihalda tölvu-
pósta, netspjall og vafrasögur millj-
óna einstaklinga. Gögn sem fjölmiðill-
inn hafi undir höndum færi sönnur á
fullyrðingar Snowdens um að hann,
sem starfsmaður NSA, hafi getað
njósnað um hvern sem er svo lengi
sem hann hafði tölvupóstfang við-
komandi. Eitt af verkfærum NSA,
DNI Presenter, má nota til að lesa
tölvupósta en með því er einnig hægt
að lesa t.d. spjall og einkaskilaboð á
Facebook. Allt sem starfsmaður
stofnunarinnar þarf að hafa er not-
endanafn viðkomandi.
Afar litlar takmarkanir virðast vera
á því hvaða leitir starfsmenn NSA
mega framkvæma en þeir þurfa ein-
faldlega að tiltaka einhverja ástæðu
fyrir leitinni á rafrænu eyðublaði. Í yf-
irlýsingu til Guardian segir stofnunin
þó að starfsemi hennar beinist aðeins
gegn erlendum aðilum og að ásakanir
um óheftan aðgang starfsmanna að
forritum og gagnasöfnum stofnunar-
innar séu einfaldlega ósannar.
Umfangsmiklar njósnir
Tölvuforritið XKeyscore gerir NSA kleift að safna gríð-
arlegu magni gagna um netnotkun Bandaríkjamanna
Njósnaforrit
» XKeyscore safnar gríðarlegu
gagnamagni sem aðeins er
hægt að geyma í stuttan tíma.
Gögnin eru því flokkuð eftir
mikilvægi og geymd í öðrum
gagnagrunnum ef þurfa þykir.
» Þar eru gögnin geymd í allt
að fimm ár.
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Plankaparket
í miklu úrvali
Burstað, lakkað, olíuborið, hand-
heflað, reykt, fasað, hvíttað...
hvernig vilt þú hafa þitt parket?
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!