Morgunblaðið - 02.08.2013, Síða 30

Morgunblaðið - 02.08.2013, Síða 30
✝ Erla Pálsdóttirfæddist á Grund á Jökuldal 10. febrúar 1933. Hún lést á dval- arheimilinu Banda- gerði 17. júlí 2013. Foreldrar hennar voru Sigurjón Páll Vigfússon, f. 27. október 1889, í Hnefisdal á Jök- uldal, d. 2. apríl 1961, og Margrét Sigríður Benediktsdóttir, f. 27. desem- ber 1903, á Reyðarfirði, d. 14. janúar 1965. Systkini Erlu, sammæðra; eru Hulda, f. 1932, d. 1987, Unnur, f. 1935, d. 2000, Garðar, f. 1942, d. 1995, Sævar, f. 1943, og Alda, f. 1946. Systk- ini samfeðra; Arnfríður, f. 1919, d. 1998, Vigfús Agnar, f. 1920, d. 2012, Ragnheiður, f. 1922, d. 1999, Stef- án Arnþór, f. 1923, d. 2001, Gestur, f. 1925, d. 2013, og Þórólfur, f. 1926. Sambýlismaður Erlu er Örn Ósk- arsson, f. 18.11. 1940, á Akureyri, foreldrar hans voru Agnea Tryggvadóttir og Óskar Gísla- son. Erla vann ýmis störf um ævina, lengst af starfaði hún við fiskvinnslu. Erlu varð ekki barna auðið en systkini hennar og þeirra börn voru henni ætíð hugleikin og áttu hjá henni öruggt skjól. Útför Erlu fór fram frá Ak- ureyrarkirkju 26. júlí 2013. Mig langar að minnast henn- ar Erlu frænku minnar, Lellu eins og við krakkarnir kölluðum hana. Þó svo að Lellu hafi ekki auðnast barneignir sjálfri átti hún stóran hóp barna, börn systkina og vina voru hennar börn. Margs er að minnast, þú kenndir mér að standa með mér og finnast fátt um hvað aðrir hefðu um mig að segja. Ég man þó mest glaðværðina og hlát- urinn sem einkenndi þig. Eins eru minnisstæðar margar stundir í Norðurgötunni þar sem setið var við eldhúsborðið og hlegið og gert að gamni sínu. Ferðalögin okkar saman í bú- staði og vestur eru einnig minn- ingar sem ég geymi um skemmtilega tíma og góða sam- veru. Fyrir margt löngu vorum við í Hagkaup og þú byrjaðir að máta brjóstahaldara bara svona fyrir framan aðra eins og ekk- ert væri sjálfsagðara þegar þú sást að unglingurinn fór eitt- hvað hjá sér þá kallaðir þú yfir búðina á mömmu hvort þetta passaði ekki alveg örugglega og auðvitað smituðust allir af glað- værðinni og við hlógum lengi að þessu athæfi þínu. Við systkinin vorum uppá- tækjasöm og man ég vel þegar hef verið um fimm ára aldur og þú varst að passa okkur að eldri Erla Pálsdóttir systkini mín tóku sig til oggerðu á mér jólaklippinguna sem var ekki ýkja fögur, ég man svo vel hvað þú varst reið við þau en ekki mig, það þótti mér gott og jólamyndir það árið eru af lokkaprúðum systkinum með litlu systur á milli sín með stórt skarð í stað topps. Þegar ég fór svo sjálf að eiga mín eigin börn varst þú til stað- ar í sorg og gleði. Varst með í afmælum og hlóst að uppátækj- um sona minna. Stolt af hverju framfaraskrefi og vildir fylgjast með. Þegar þú veiktist fyrst af sjúkdómnum þínum var það okkur öllum þungbært, hversu mikið þú mundir eða vissir af okkur, en að koma til þín, horfa í augun á þér gaf mér þá vissu að þú mundir og vissir af okkur hjá þér. Það er mér ómetanleg minning þegar við komum til þín rétt fyrir andlátið og þú opnaðir augun og horfðir á okk- ur systur og gafst til kynna að þú þekktir okkur. Það er góð tilfinning að vita að þú hafir varið þínu síðasta æviári á svo góðum stað sem Bandagerði er, starfsfólkið og allur aðbúnaður þar er til mikillar fyrirmyndar og þar var hugsað vel um þig, elsku Lella mín. Ég kveð þig með miklum söknuði en jafn- framt hlýju í hjarta að vita að nú eru þrautir þínar linaðar og þú ert komin í faðm svo margra sem þér þótti vænt um. Elsku Lella mín, í dag eru svo margir sem eiga um sárt að binda því þú gerðir líf margra ríkara, en minningin lifir og ég mun geyma hana í brjósti mér. Ég bið algóðan Guð að opna faðm sinn og umvefja þig um leið og ég vil þakka þér fyrir samfylgdina. Ég bið guð að veita ykkur styrk í sorginni, elsku Öddi, mamma, pabbi, Sæsi og aðrir aðstandendur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Þín frænka, Alda Stefánsdóttir. Okkar elskulega Erla Páls- dóttir er látin, áttræð að aldri. Lella eins og hún var alltaf köll- uð var einstök manneskja og ávallt vildi hún allt fyrir alla gera, hún tók alltaf á móti fólki með bros á vör og naut þess að stússast í mat og bakstri og það var einstaklega notalegt að koma á heimili hennar. Hún steikti oft kleinur og færði okk- ur, hún keypti alltaf svo fallegar gjafir handa okkur á jólum og okkur fannst alltaf svo gott að fara í heimsókn til þín og fá þig í heimsókn til okkar, elsku Lella. Við hlið hennar í öllu; gleði og sorgum stóð Örn mað- urinn hennar og saman voru þau tvíeyki með risastór hjörtu sem slógu í takt á hverju sem gekk. Við fjölskyldan eigum marg- ar góðar minningar um ynd- islega og góða frænku, oft var glatt á hjalla, gamansögur sagð- ar, alvörumál rædd og ávallt átti fjölskyldan öll vísan stuðn- ing Lellu frænku. Lella var ein- staklega mikill mannvinur og voru börnin í fjölskyldunni þar í fyrsta sæti. Lella var engin venjuleg frænka, heldur voru henni auðveld og ánægjuleg hlutverk að koma í stað móður, ömmu, vinar og velgjörðar- manns þeirra sem það þáðu. Í sorgum og gleði, mótbyr og meðbyr, alltaf var Lella sú sem bæði hughreysti og hvatti, gladdist og lofsamaði. Nú síð- ustu árin hefur þú, elskulega frænka, verið veik og ekki get- að tjáð þig eins og þú hefðir viljað, en glampinn fór ekki úr augunum á þér þrátt fyrir það. Barátta þín einkenndist af þeirri manneskju sem þú hafðir að geyma, af festu og öryggi tókstu á við hvern dag og á hverjum degi dáðumst við að þér. Þegar að kveðjustund er komið og við þurfum að sjá á eftir okkar yndislegu frænku þá er okkur þakklæti efst í huga, þakklæti fyrir að hafa fengið að hafa Lellu hjá okkur allt okkar líf og að hún var okkur elskandi frænka. Takk fyrir samvistina, elsku Lella okkar, og megi al- góður Guð blessa þig og minn- ingu þína. Við vitum að systkini þín, foreldrar þínir og aðrir ást- vinir sem farnir eru, hafa nú tekið á móti þér og leiða þig framvegis um blómum skrýdda garða, þar sem enginn finnur til og hamingja og gleði fyllir gullna sali himnaríkis. Þangað til við hittumst á ný, kveðjum við þig frænka og biðj- um þess að Guð breiði blessun sína yfir Ödda þinn, systkini þín Þórólf, Sævar og Öldu, aðra ættingja og vini þína alla og veiti þeim huggun í sorginni með gæsku sinni. Ástarkveðjur, Þröstur Heiðar og Anna Steinunn, Guð- laugur Stefán og fjöl- skylda, Garðar Örn, Steinar Þór og Stefanía Tara. Eins og títt er um Akureyr- inga vissum við Erla hvor af annarri þó að við þekktumst ekki nóg til að heilsast á götu fyrr en hún gerðist leigjandi hjá Guðnýju tengdamóður minni. Þar leigði hún herbergi með að- gangi að eldhúsi, en fljótlega varð hún eins og ein af fjöl- skyldunni. Hún varð Guðnýju eins og besta dóttir og kannski betri því aldrei vissi ég til að þeim yrði sundurorða eins og oft kemur fyrir hjá bestu fjöl- skyldum. Það er líka ótrúlegt að Erlu hafi nokkurn tíma orðið sundurorða við neinn, hún var svo kærleiksrík og góð að það var erfitt að láta sér líða illa ná- lægt henni. Þessi ár sem þær áttu saman voru Guðnýju mikils virði og þó að Erla flytti að heiman eins og dætra er siður og stofnaði eigið bú héldu þær alltaf góðu sambandi og taldi Guðný ekki eftir sér að skreppa utan úr Þorpi niður á Eyri til að elda kvöldmat handa Erlu sem búin var að vinna allan daginn. Við Andri viljum þakka Erlu fyrir þá hamingju sem hún veitti Guðnýju og alla hennar hlýju í okkar garð alla tíð. Erni og systkinum Erlu sendum við samúðarkveðjur. Guðrún Sigurðardóttir. 30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013 Á lífið hafðir sýn sem oft á tíðum geymdi grín skreyttum tröllasögum Sem nú á mínum löngu dögum fylla hjartasár. Og minning þín hún er ávallt geymd í hjarta mér og gefur góðan yl þótt aðeins eitt ég vil er þerra burtu tregatár Þú lifðir hér þín gullnu ár Takk, því þú varst til. Þitt barnabarn, Ásgerður Eir. HINSTA KVEÐJA Elsku afi minn. Nú kveð ég þig í hinsta sinn Er ferð þú þína ljúfu leið og lætur eftir æviskeið sem gladdi mína sál. Guðmundur Heim- ir Rögnvaldsson ✝ GuðmundurHeimir Rögn- valdsson fæddist í Reykjavík 15. apríl 1931. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 5. júlí 2013. Útför Guð- mundar Heimis fór fram frá Þjóðkirkj- unni í Hafnarfirði 16. júlí 2013. Góðir vinir eru auðæfi. Ég kynntist Rósu 1986 þegar ég var nýflutt til Húsa- víkur, ráðvillt að feta fyrstu sporin í allsgáðu lífi. Hún tók mig strax upp á sína arma og fyrir það er ég þakklát. Betri vinkonu er ekki hægt að hugsa sér. Og ég hélt að hún yrði allt- af til staðar. Mig óraði ekki fyrir því hve hratt heilsu henn- ar myndi hraka þó hún hefði látið á sjá þegar við hittumst síðast. Alltaf var ég á leiðinni en nú er það of seint. Rósa Björnsdóttir ✝ Rósa Björns-dóttir fæddist á Akureyri 11. októ- ber 1938. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 3. júlí 2013. Útför Rósu fór fram frá Húsavík- urkirkju 10. júlí 2013. Rósa er mín fyr- irmynd, hjálpsöm, heiðarleg, hlý og skemmtileg. Frá mörgu gæti ég sagt. Símtölum þegar hún bauð mér í mat, gæða- stundum þegar ég skrapp til hennar í matartímanum í súpu og spjall. Kapallinn og prjónarnir aldrei langt undan. Göngutúrum í Aðaldalshrauni og skrúðgarðinum þegar við ræddum málin og nutum nátt- úrunnar. Hún kenndi mér æðruleysi, nægjusemi, metnað, bjartsýni og miðlaði af reynslu sinni enda áttum við margt sameiginlegt þó heil kynslóð skildi okkur að. Bauðst oft til þess að vera „mamma mín á Húsavík“ sem ég þáði með þökkum. Ógleymanlegt er þeg- ar hún hélt mér óvænta stúd- entsveislu er ég skrapp til Húsavíkur til að útskrifast komin hátt á fertugsaldur. Enginn hefur hvatt mig meira og hrósað í námi sem og öðru. Nú hefur vináttan varað í rúman aldarfjórðung og erfitt að hugsa sér Húsavík án henn- ar. Tómlegt og skrýtið að vita af Ármanni einum í íbúðinni en ég veit að hann á góða að og spjarar sig þó misst hafi sinn besta vin. Rósa var mikil fjöl- skyldumanneskja og elskaði ferðalög. Þakklátir eru allir þeir Húsvíkingar sem fengu að njóta umönnunar „ömmu Rósu“ á leikskólanum, þ. á m. eldri dóttir mín sem hún hjálpaði mér mikið með. Rósa var gullfalleg kona, glæsileg á hógværan hátt, með há kinnbein og bjart bros, enda klæddu broshrukkurnar hana sérlega vel. Vel tilhöfð og tign- arleg þó hæglát væri, með mikla útgeislun og fallegan per- sónuleika. Henni eiga margir mikið að þakka þó hljótt fari. Ég gat alltaf leitað til hennar að nóttu jafnt sem degi. Hún færði mér jólaskraut, kökur o.fl og nennti endalaust að hlusta. Hjá henni var ég alltaf velkom- in og hjartarýmið ótakmarkað. Hópurinn okkar saknar hennar sárt. Hvert sumar vor- um við vanar að fara saman í kirkjugarðinn og heimsækja látna félaga. Nú fer ég þangað ein og heimsæki hana. Sömu- leiðis tala ég við hana hér heima. Hún er í huga mér og kallar fram bros. Öll bleiku blómin og rósin mín minna mig á hana því bleikt var hennar litur. Bjartur og glaðlegur eins og hún. Elsku Rósa mín. Ég veit að þú ert hjá okkur. Oft ræddum við eilífðarmálin og kærleik- ann. Nú hefur fjölgað englun- um í Sumarlandinu og þar er ekki í kot vísað. Best gæti ég trúað að þar heyrðist söngur, skrjáf í spilum og prjónaglam- ur. Og kannski orðið fundar- fært. Vertu kært kvödd og þúsund þakkir fyrir allt, elsku vinkona. Þú varst og ert einstök. Ingunn Sigmarsdóttir. ✝ Matthías Elí-asson var fæddur í Sandgerði á Reyðarfirði 8. nóvember 1927. Hann varð bráð- kvaddur í Reykja- vík 12. júlí 2013. Foreldrar hans voru Halldóra Vig- fúsdóttir og Elías Eyjólfsson. Al- systkini hans voru: Stefán, Valdór og Herborg, en þau eru öll látin, yngri eru þau Kristrún, Marteinn og Elín Jóna. Hálfsystkini hans að föð- urnum voru þau Eyjólfur og Guðrún Björg, bæði látin. Matthías ólst upp á Reyð- arfirði og átti þar alla tíð heim- ili, enda sannur Reyðfirðingur. Hann var duglegur og verkhagur og fékkst við ýmislegt um dagana, alltaf að. Hann vann lengi hjá Vegagerð ríkisins og eins hjá Trévangi sem smið- ur og víðar kom hann að verkum. Hann var á vertíð- um í Eyjum m.a. og var kapp- samur röskleikamaður við hvað- eina. Veiðimaður var hann af lífi og sál og einkar fengsæll. Hann var ókvæntur og barn- laus. Útför hans fór fram frá Reyð- arfjarðarkirkju 20. júlí 2013. Fáein kveðjuorð er mér ljúft að festa á blað, þegar hniginn er að foldu frískleikamaðurinn röski, Matthías Elíasson. Óvænt bar andlát hans að, enda var Matthías hinn hress- asti allt fram að andlátsdegi. Mæt kynni margra áratuga voru við Matthías og þau varpa mörgum minningamyndum fram í munans inni, tengslin enda mikil allt frá bernskuár- um, þar sem Matthías var hálf- bróðir hennar Gunnu minnar, eiginkonu Gísla frænda míns, og samgangur því mikill. Þau hálfsystkini Gunnu áttu heldur betur hauk í horni þar sem hún Gunna var. Matthías var Reyðfirðingur fram í fingur- góma og þar átti hann alla ævidaga sína, hann var snemma knár og röskur til allra verka. Þótti að honum góður liðsauki í hverju einu er hann fékkst við, hvort sem það nú voru hinar vandasömu sprengingar hjá Vegagerð rík- isins eða smíðar hjá Trévangi eða á árum áður á vertíð í Eyj- um. Hann var ungur maður af- ar liðtækur á knattspyrnuvell- inum, bæði fótfrár og þolinn, harður í horn að taka en alltaf prúður þó. Matthías var mikill veiðimaður, hvort sem var til sjós eða lands, hann gekk m.a. til rjúpna fram á síðustu ár og margan vænan fiskinn dró hann að landi, nú síðast á sum- ardögum. En Matthías var fyrst og síðast einstaklega hagur í höndum, þótti afar lag- tækur smiður, hörkuduglegur til verka og sér í lagi flinkur við vélar. Það mátti með mikl- um sanni segja að allt léki í höndum hans. Matthías var greindur vel og gjörhugull, fróður um fjölmargt, þó hann flíkaði því aldeilis ekki eins og fleiru, enda maðurinn dulur og vissu fáir ef nokkrir í hans hug. Sérlundaður var hann og fór sínar eigin leiðir, en fjarska farsæll starfsmaður og trúr yfir hverju einu. Matthíasi eru að leiðarlokum þökkuð mæt kynni á dögum áður og ýmis hjálpsemi hans um leið. Við Hanna sendum systkinum hans og þeirra fólki einlægar samúðarkveðjur, ekki sízt Kristrúnu systur hans sem hann gat alltaf leitað til. Bless- uð sé minning Matthíasar Elí- assonar. Helgi Seljan. Matthías Elíasson✝Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs sonar okkar, BERGS BJARNASONAR. Bjarni Bergsson, Ragnhildur Friðriksdóttir. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við fráfall elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BORGÞÓRS ÞÓRHALLSSONAR fyrrv. lögreglumanns, Miklubraut 86, Reykjavík. Sveinbjörg Eyþórsdóttir, Þórhallur Borgþórsson, Gróa Reykdal Bjarnadóttir, Eyþór Borgþórsson, Bára Emilsdóttir, Sigurborg Borgþórsdóttir, Jón Svanþórsson, Halldór Borgþórsson, Aðalheiður Alfreðsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.