Morgunblaðið - 02.08.2013, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013
Ég ætla að fá vini og ættingja í heimsókn heim til mín hér íReykjanesbæ um kvöldið og grilla pitsur en ég vona aðveðrið verði sem best,“ segir Erna María Jensdóttir sem
fagnar í dag 31 árs afmæli sínu en hún starfar sem forstöðumaður
þjónustukjarna fyrir fatlaða hjá Reykjanesbæ. Erna María er í sam-
búð með Guðmundi Ingvari Jónssyni og eiga þau saman einn son,
Ingvar Berg, auk þess sem þau eiga von á dóttur í október. „Ég
reyni að halda alltaf upp á afmælið mitt en stundum ber afmæl-
isdaginn upp á verslunarmannahelgi og þá er ég oft í útilegu.“ Erna
hefur átt gott sumar með fjölskyldu sinni en hún er nýkomin úr
ferðalagi um Norður- og Austurland. Aðspurð hvort ekki sé erfitt að
bjóða í afmæli um verslunarmannahelgi segir Erna að hún hafi mest
fundið fyrir því á yngri árum. „Það var til dæmis mjög eftirminni-
legt þegar ég var í kringum fimm ára aldurinn og erfitt reyndist að
fá vini til þess að mæta í afmælið mitt þar sem allir voru á ferðalög-
um. Móðir mín hringdi um alla sveit í leit að einhverjum börnum til
þess að mæta í afmælið mitt og einu börnin sem komust voru strák-
ar sem ég þekkti ekki,“ segir Erna og hlær. „Nú reyni ég frekar að
gera ráð fyrir þessari miklu ferðamannahelgi í áætlunum mínum en
í fyrra þegar ég varð þrítug þá bauð ég til útilegu í sveitina mína,
Gil í Skagafirði. Þá kom fullt af fólki og gisti í tjaldi og allir
skemmtu sér konunglega saman.“
Erna María Jensdóttir er 31 árs í dag
Fjölskylda Erna María ásamt manni sínum, Guðmundi Ingvari, og
syni þeirra þann 17. júní 2011. Þau eiga von á dóttur í haust.
Bara strákar mættu
í barnaafmælið
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Jónína H.
Jónsdóttir,
leikkona og
sjúkraþjálfi, er
sjötug í dag, 2.
ágúst. Hún tek-
ur á móti gest-
um í Sam-
komuhúsinu á
Eyrarbakka á
afmælisdaginn.
70 ára
Reyðarfjörður Sigrún Helga fæddist
6. nóvember kl. 6.06. Hún vó 3.800 g
og var 53,5 cm löng. Foreldrar hennar
eru Ingibjörg Hanna Sigurðardóttir
og Gunnar Páll Baldursson.
Nýir borgarar
Akureyri Sóley Katla fæddist 30. nóv-
ember kl. 18.52. Hún vó 5.036 g og var
55 cm löng. Foreldrar hennar eru
María Björg Ásmundsdóttir og Vignir
Már Vignisson.
Umhverfisvæn ræsting
með örtrefjum
Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, Sími: 520 7700
raestivorur.is
Ræsting með örtrefjaklútum
og moppum er hagkvæmari
og skilar betri árangri
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem
hefur hafið göngu sína í Morgun-
blaðinu. Þar er meðal annars sagt
frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæð-
ingum eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
B
jörgvin Ívar fæddist í
Reykjavík 2.8. 1973 og
ólst upp í Efra-
Breiðholti fyrstu árin
meðan hann sjálfur og
hverfið voru í sem mestri uppbygg-
ingu. Hann gekk í Hólabrekkuskóla
en eftir fermingu flutti fjölskyldan í
Heimahverfið í Reykjavík og lauk
hann grunnskólagöngu í Langholts-
skóla vorið 1989.
Eftir grunnskóla stundaði Björg-
vin nám við MS og lauk þaðan stúd-
entsprófi vorið 1993. Hann stundaði
síðan nám við KHÍ og útskrifaðist
þaðan vorið 1996. Björgvin stundaði
einnig nám í grafískri hönnun í
Barcelona á Spáni rétt fyrir síðustu
aldamót og við Kvikmyndaskóla Ís-
lands á árdögum þess skóla. Hann
lauk einnig meistaragráðu í staf-
rænni miðlun (M.Sc Digital Media)
frá Háskólanum í Portsmouth á suð-
urströnd Englands árið 2009.
Björgvin Ívar Guðbrandsson, kennari í Reykjavík – 40 ára
Í fjallgöngu Saga situr í makindum meðan pabbi gengur fyrir þau bæði að Stórurð í Borgarfirði eystri.
Stafræn miðlun og ný
tjáning í grunnskólum
Við upptökur Björgvin mundar mandólínið í upptöku með Eggjandi.