Morgunblaðið - 02.08.2013, Page 35
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013
Pétur Ottesen alþingismaðurfæddist 2.8. 1888 á Ytra-Hólmi í Innri-Akranes-
hreppi. Hann var sonur Oddgeirs
Ágústs Lúðvíks Ottesen, bónda og
kaupmanns á Ytra-Hólmi, og konu
hans, Sigurbjargar Sigurðardóttur
húsfreyju.
Oddgeir var af ætt Odds klaust-
urhaldara, hálfbróður Ólafs Steph-
ensen, ættföður Stephensensættar,
og Sigríðar, ættmóður Thor-
arensensættar.
Sigurbjörg var af Efstabæjarætt í
Borgarfirði, systir Oddnýjar, móður
Jóns Helgasonar ritstjóra og systir
Ásgeirs, föður Magnúsar skálds og
Leifs prófessors, og afa Inga Sig-
urðssonar sagnfræðiprófessors.
Bróðir Péturs var Morten, góðvinur
og samstarfsmaður Tómasar Guð-
mundssonar skálds og fleiri revíu-
höfunda í Bláu stjörnunni.
Eiginkona Péturs var Petrína
Helga Jónsdóttir, f. 1889, d. 1972, og
eignuðust þau tvö börn.
Pétur Ottesen var íhaldsmaður
sem taldi það skyldu sína að verja
hagsmuni landbúnaðarins og sveit-
anna. Hann var stórbóndi og héraðs-
höfðingi á Ytra-Hólmi frá 1916 og til
æviloka, 1968 og alþingismaður
1916-59, eða lengur en flestir aðrir.
Pétur var hreppstjóri Innri-
Akraneshrepps í hálfa öld, sat í
Landsbankanefnd, í stjórn Bún-
aðarfélags Íslands i rúman aldar-
fjórðung og í stjórn Fiskifélags Ís-
lands í rúm tuttugu ár. Þá sat hann í
stjórn Sementverksmiðju ríkisins.
Pétur sat fyrst á Alþingi fyrir ým-
is borgaraleg stjórnmálasamtök, s.s.
Sjálfstæðisflokkinn eldri, Sjálfstæð-
isflokk þversum og Borgaraflokkinn
eldri, en síðan fyrir Íhaldsflokkinn
og loks Sjálfstæðisflokkinn frá
stofnun hans, 1929. Hann var þó
meðal þeirra þingmanna flokksins
sem ekki treystu sér til að styðja
Nýsköpunarstjórn Ólafs Thors
1944-47 vegna þátttöku sósíalista í
stjórninni.
Bókin um Pétur Ottesen, skrifuð
af vinum hans, kom út 1969.
Pétur Ottesen lést að heimili sínu
á Ytra-Hólmi 16.12. 1968.
Merkir Íslendingar
Pétur
Ottesen
90 ára
Heimir Bjarnason
85 ára
Jóhanna Ólafsdóttir
80 ára
Kristín Sigurmonsdóttir
75 ára
Eyrún Lilja Ásmundsdóttir
Geirrún Marsveinsdóttir
Hörður Hákonarson
70 ára
Haraldur Sigurðsson
Hjálmar Þ. Diego
Jón Guðmundsson
Jónína H. Jónsdóttir
Lára Sigrún Ingólfsdóttir
Páll Richardson
Sveinborg Jónsdóttir
60 ára
Baldvin K. Kristjánsson
Gunnar Svanberg Bollason
Ingólfur Sigurðsson
Ólafía K. Kristjánsdóttir
Ómar Blöndal Siggeirsson
Ómar Hafsteinsson
Rikharð Már Haraldsson
Stefanía Þorsteinsdóttir
50 ára
Anna María Harðardóttir
Arnar Sigurðsson
Brynjar Indriðason
Garðar Hólm Jónsson
Gunnar Jónsson
Helga Kristín Hillers
Karl Einar Óskarsson
Kristinn Herbert Jónsson
Lilja Jónasdóttir
Margrét Svanlaugsdóttir
Sigurborg Birgisdóttir
Svavar Valtýr Stefánsson
40 ára
Einar Örn Ævarsson
Hanna Dís Guðjónsdóttir
Roslin Pros Armada
Sandra Branco Martinho
Caspao
Sigrún Magna
Þórsteinsdóttir
Sigurbjörg Unnarsdóttir
Sólmundur Ari Björnsson
30 ára
Ásgeir Bragason
Benjamín Aage B.
Birgisson
Guðmundur Steinn
Magnússon
Hafþór Guðmundsson
Herdís Ólöf Pálsdóttir
Ívar Heimisson
Jón Skaftason
Katarzyna Miniuk
Katarzyna Samilo
Óskar Bertel
Friðbertsson
Sara Arnarsdóttir
Sigurður Pétur Jónsson
Sverrir Vilhjálmur
Hermannsson
Til hamingju með daginn
40 ára Sara Rut ólst upp
í Reykjavík, lauk prófum
frá Viðskipta- og tölvu-
skólanum og prófi í
mannauðsstjórnun frá HR
og starfar í áhættustýr-
ingu hjá Valitor.
Dóttir: Ísabella Hrönn
Sigurjónsdóttir, f. 2002.
Foreldrar: Kristinn Krist-
insson, f. 1938, fyrrv. út-
gerðarmaður og nú veit-
ingamaður, og Dagný
Ólafsdóttir, f. 1940, veit-
ingamaður.
Sara Rut
Kristinsdóttir
50 ára Guðmundur er
vélfræðingur og renni-
smiður hjá 3 X Techno-
logy á Ísafirði.
Maki: Auður Helga Ólafs-
dóttir, f. 1963, hjúkr-
unarfræðingur.
Börn: Thelma Björk, f.
1987; Hermann Freyr, f.
1995, og Ásdís Halla, f.
2001.
Foreldrar: Valdimar Þ.
Össurarson, f. 1940, d.
1980, og Guðbjört Á.
Guðmundsdóttir, f. 1940.
Guðmundur
Valdimarsson
40 ára Gísli ólst upp í
Eyjum, er viðhaldsstjóri
Mjólkursamlags Kaup-
félags Skagfirðinga og
fyrrv. markm. Tindastóls.
Maki: Ingunn Ásta Jóns-
dóttir, f. 1981, húsfreyja.
Börn: Steiney Arna, f.
1997; Jón Gísli Eyland, f.
2002; Ari Eyland, f. 2006.
Foreldrar: Sveinn Þor-
steinsson, f. 1950, og
Guðrún Eyland, f. 1951.
Fósturmóðir: Hafdís Egg-
ertsdóttir, f. 1953.
Gísli Eyland
Sveinsson
Börgvin hefur um árabil starfað
við kennslu í grunnskóla, lengst af
við Langholtsskóla í Reykjavík. Þá
hefur hann sinnt ýmsum stöfum og
verkefnum samhliða kennslu m.a. á
sviði námsefnisgerðar, þýðinga,
knattspyrnuþjálfunar, stunda-
kennslu við HÍ, fyrirlestrahalds o.fl.
Nú sem stendur og undanfarin ár
hefur Björgvin verið verkefnastjóri
við Langholtsskóla í Reykjavík.
Í Gamni og alvöru í Köldukinn
Björgvin æfði og keppti í knatt-
spyrnu frá unga aldri, fyrst með
knattspyrnufélaginu Leikni í Breið-
holti en eftir fermingu með knatt-
spyrnufélaginu Þrótti. Þrjú sumur
lék hann einnig knattspyrnu með
ungmennafélaginu Gamni og alvöru
í Köldukinn í Suður-Þingeyjarsýslu
samhliða sumarvinnu á bænum
Gvendarstöðum í sömu sveit. Eftir
stuttan og snarpan feril sem leik-
maður hefur hann haldið tengslum
við knattspyrnufélagið Þrótt í leik
og starfi fram á þennan dag.
Tónlistin og kvikmyndagerð
Björgvin hefur hneigst til lista frá
unga aldri og hefur tónlist, ritlist og
kvikmyndagerð skipað stóran sess í
lífi hans. Eftir hann liggja tvær
ljóðabækur, Blákaldur draumveru-
leiki, útg. 1995, og Litla gula hænan
– síðasta kvöldmáltíðin, útg. 1997.
Auk þess liggur eftir hann nokkur
fjöldi stuttmynda.
Tónlistin er heldur aldrei langt
undan og hefur Björgvin unnið með
mörgum mætum einstaklingum við
sköpun og skemmtun á því sviði.
Björgvin hefur fjallað mikið um
tjáningarkennslu í grunnskólum
með hliðsjón af almennri þróun
tjáningar í samfélaginu:
„Eitt helsta áhugamál mitt er
reyndar starfstengt. Það felst í
þeirri viðleitni að stórauka og þróa
grunnskólakennslu í þeirri tegund
tjáningar sem verður sífellt fyrir-
ferðarmeiri í okkar menningu. Þar á
ég við kvikmyndagerð, tónlistar-
sköpun, útsetningar, upptökur og
klippingar af ýmsum toga. Þannig
segjum við sögur og komum fréttum
á framfæri í sívaxandi mæli nú á
tímum. Við þurfum ekki annað en
líta á mbl.is til að átta okkur á þess-
ari þróun. Við þurfum því að stór-
auka þjálfun á sviðum þessarar nýju
tegundar tjáningar ef grunn-
skólanám á að fylgja þróun sam-
félagsins.“
Fjölskylda
Eiginkona Björgvins er Dögg
Lára Sigurgeirsdóttir, f. 15.10. 1974,
kennari. Foreldrar hennar eru Sig-
urgeir Jónsson, f. 26.6. 1942, kenn-
ari, og Katrín Lovísa Magnúsdóttir,
f. 29.3. 1944, kennari. Þau búa í
Vestmannaeyjum.
Börn Björgvins eru Bjarki Björg-
vinsson, f. 21.5. 1992, nemi í Reykja-
vík; Mirra Björgvinsdóttir, f. 12.8.
1997, nemi í Vestmannaeyjum; Saga
Björgvinsdóttir, f. 4.11. 2011,
Systur Björgvins eru Sigríður
Guðbrandsdóttir, f. 4.9. 1978, fram-
haldsskólakennari í Reykjavík; Al-
dís Guðbrandsdóttir, f. 21.6. 1986,
BA í sálfræði og starfsmaður á leik-
skóla í Reykjavík.
Foreldrar Björgvins eru Bryndís
Björgvinsdóttir, f. 4.10. 1950,
þroskaþjálfi í Reykjavík, og Guð-
brandur Þór Þorvaldsson, f. 22.3.
1952, rennismiður í Reykjavík.
Úr frændgarði Björgvins Ívars Guðbrandssonar
Björgvin Ívar
Guðbrandsson
Sigþrúður Sigurðardóttir
verkakona í Borgarnesi
Jón Guðbrandur Tómasson
verkamaður í Borgarnesi
Sigríður Guðbrandsdóttir
húsfr. í Reykjavík
Þorvaldur Ólafsson
vélstjóri í Reykjavík
Guðbrandur Þór Þorvaldsson
rennism. í Rvík
Siggerður Þorvaldsdóttir
húsfr. Eyjum
Júlíanna Sigurðardóttir
(fóstra Þorvaldar)
Ólafur Guðmundsson
sjóm. og gúmmíviðgerðarm.
í Vestmannaeyjum
Ólafur Ólafsson
verkamaður í Landeyjum
Anna Bjarnadóttir
verkakona í Landeyjum
Björgvin Ólafsson
strætisvagnabílstj. í Rvík
Guðfinna Guðlaugsdóttir
húsfr. í Rvík
Bryndís Dagný Björgvinsdóttir
þroskaþjálfi í Rvík
Guðlaug M. Jakobsdóttir
húsfr. í Vík
Guðlaugur Gunnar Jónsson
pakkhúsmaður í Vík í Mýrdal
Júlíana Petra Þorvaldsdóttir
(móðir Odds Inga Guðmundssonar)
Guðmundur Már
Björgvinsson
Oddur Ingi Guðmunds.
knattspyrnum. í Rvík
Oddný Björgvinsd.
bókavörður
Ragnheiður Gröndal
söngkona
Haukur Gröndal
tónlistarmaður
Gunnar Gröndal
verkfræðingur
Siggerður
Þorvaldsdóttir
Anna Brynja Baldursd.
leikkona
Ragnar Baldursson
lögfræðingur í Kóp.
Hrannar Baldursson
heimspekingur í Noregi
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Miðvikudags-
PIZZA-TILBOÐ
Ögurhvarfi 2 • 203 Kópavogi • Sími 567 1770 • Opið alla daga kl. 10 -23
Þú hringir
Við bökum
Þú sækir
12“ PIZZA, 3 áleggstegundir
og 1l Coke
1.290 kr.