Morgunblaðið - 02.08.2013, Qupperneq 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft að takast á við lögfræðileg
mál sem hafa lengi legið í loftinu. Hafðu
dómgreindina til hliðsjónar að þessu leyti,
þannig verður þú líka góður leiðtogi.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú reynir aldeilis á þig í starfi og eins
gott að þú sért með þitt á hreinu. Vertu á
varðbergi gegn slysum og hafðu góðar gætur
á smáfólkinu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Skráðu þig á námskeið, lestu fram-
andi bækur og tímarit og gefðu þér tíma til
að hlusta á ólík sjónarmið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú veitir einhverjum óskipta athygli
þína, sem reynist besta göfin sem þú gast
gefið. Vertu meðvitaður um þetta í orðum
þínum og gjörðum, krabbi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ættir að bíða með innkaup og við-
skipti fram eftir degi. Reyndu að forðast deil-
ur við systkini þín og aðra ættingja.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú uppgötvar eins mikinn sannleika
um tilteknar aðstæður og þú kærir sig um.
Ekki gefst upp, því þú átt ýmsar innistæður
að taka af.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu ekki slá þig út af laginu, þótt ein-
hverjum finnist þú vera að þefa uppi óþægi-
lega hluti. Til dæmis er hægt að skoða lista-
safn, fara á sýningu eða lesa bók þér til
skemmtunar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef þú ætlar að halda áfram á
sömu braut verður eitthvað undan að láta.
Gefðu þér því góðan tíma til þess að velta
málunum fyrir þér. Kannski vill hann/hún
bæta færni sína á skapandi sviði.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú sýnir vinum að þú kunnir að
meta þá af miklum rausnarskap. Hugsaðu
þig tvisvar um áður en þú eyðir peningunum
þínum í eitthvað sem þú kannt að sjá eftir
síðar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Steingeitin þarf að taka á honum
stóra sínum. Það eru einhverjir í hópi sam-
starfsmanna þinna sem vilja mikið til vinna
að leggja stein í götu þína.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú er lag til þess að taka upp nýja
háttu. Mundu því að koma fram við aðra eins
og þú vilt að þeir komi fram við þig. Sýndu á
þér þínar bestu hliðar og allt fer vel.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú átt svo auðvelt með að fara þínu
fram, að þú þarft að gæta þess að ganga ekki
of nærri öðrum. Vinnið ykkur í gegnum átök-
in, og þá kemur í ljós að þetta var fyrir bestu.
Vísurnar koma hvaðanæva tilmanns, sumar aðeins einu sinni
og varla það sem betur fer – aðrar
festast í minni manns og sitja þar. Ég
var í morgun að reyna að rifja upp,
hvaða vísu ég lærði barn eftir Sigurð
Breiðfjörð og er nær að halda að það
hafi verið þessi ef það var þá nokkur!
Viðkvæmnin er vandakind,
veik og kvik sem skarið,
veldur bæði sælu og synd,
svo sem með er farið.
Einar Benediktsson skrifaði for-
mála að Úrvalsritum eftir Sigurð
Breiðfjörð og er það besta ritgerðin
sem ég hef séð um skáldið. Eftir því
sem Sigurður sjálfur sagði var hann
barn að aldri, 11 ára, þegar hann orti
hinar fyrstu rímur sínar af Bragða-
Ölvi. Og síðan koma þær hver af
annarri. Rúmlega tvítugur orti hann
Emmurímur og segir Einar, að hann
hafi augljóslega ætlað að hafa þær í
sama sniði og anda sem Stellurímur
eru hjá Sigurði Péturssyni – „og hef-
ur honum tekist það fullt eins vel
víða. Afbragð eru t.a.m. þessi erindi:
– Seinast bæði syfja fór,
í sæng því lagðist píka,
og ég held að hatta þór
hafi gjört það líka.
Viður sömu sæng það var
sagan vill því hreyfa,
að öðrum rúmum inni var
ekki til að dreifa.“
Einar segir, að því sé verr, „að eng-
ar heilar rímur eru til eftir Sigurð, er
svo vel séu gjörvar sem hann var
maður til. Erindi og erindi koma fyr-
ir meistaraleg, jafnvel mörg saman
hingað og þangað, en meginhlutinn
er ófagurt, óskáldlegt rím“. Og síðan
segir hann og tekur dæmi úr 7. rímu
af Núma, að stundum keyri svo úr
hófi, „að oss gremst, að ríman skuli
ekki kveðin í rammasta háði; svo hjá-
kátlegt er orðalagið og ósmekkvíst:
– brosti að kvendi kempan sveitta,
kyrr hann stendur þó og lifir.
Vér sjáum lifandi fyrir augum vor-
um þaulæfðan aulabárð þramma með
amlóðalegum fótaburði og glott-
fengnum hermikrákusvip á eftir al-
vörunni og fegurðinni í leiknum. Am-
lóðinn veltir vöngum og hverfir
augum svo neyðarlega nærgöngull,
að naumlega verður varist hlátri. En
þess er að gæta, að hér er það höf-
undurinn sjálfur. sem leikur og hann
leikur í alvöru – til þess að geta klætt
sig og fætt. Og við og við fleygir hann
gervinu fyrir fætur vora, og vér
heyrum þung, sterk og fögur orð:
En þar sem slagur eyðir ýtum,
andlitsfagur í réttan tíma,
kemur dagur á hesti hvítum;
héðan vagar blóðfull gríma.
Sólin gyllir, sveipuð rósum,
sæl með snilli jarðar móinn;
heimur fyllist himnaljósum,
húmið villist niður í sjóinn.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Brauðstritið og Breiðfjörð
Í klípu
„EIGANDINN VAR LÍTIL GÖMUL KONA SEM AÐ
ÞURFTI EKKI EINU SINNI NÝJAN BÍL
- EN ÉG SELDI HENNI EINN SAMT.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„LÁTTU MANNINN MINN FÁ SEKTINA. HANN
KENNDI MÉR AÐ KEYRA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... hugurinn, ekki
verðið.
HVAÐ FÆR
ÞIG TIL AÐ
KOMA AFTUR,
HRÓLFUR?
MÉR LÍÐUR
EKKERT BETUR,
LÆKNIR …
JÁ.
SKOLAÐIRÐU HÁLSINN MEÐ
SALTVATNI Á KLUKKUTÍMA
FRESTI EINS OG ÉG SAGÐI
ÞÉR AÐ GERA?
HMM … ÞÁ ER ÞETTA
KANNSKI EITTHVAÐ ANNAÐ.
JÓN ER AÐ ÞREIFA
FYRIR SÉR Í GARÐYRKJU. ÆJJJJ! MARÍU-BJÖLLUR! ÞÚVISSIR AFÁHÆTT-UNNI,
MAÐUR!
NOTAÐIR
ÞJÓNUSTA
Íslenska verslunarmannahelgin semnú er að renna upp er merkilegt
fyrirbæri. Hún er jafnvel hluti af
þjóðmenningu okkar, er ekki í tísku
að tala um þjóðmenningu? Lands-
menn hópast út á þjóðvegina, halda
á útihátíðir, í sumarbústaði eða á
tjaldsvæði. Margir heldri borgarar
nota tækifærið í aðdraganda helg-
arinnar og enn frekar eftir hana til
að hneykslast á framferði unga
fólksins. „Hvernig nennir þetta unga
fólk að veltast um dauðadrukkið
heila helgi. Og það niðurrignt í tjaldi
og stinningskulda?“ Þetta er við-
kvæðið hjá mörgum nöldurseggjum
yfir fertugt.
x x x
Þessir sömu nöldurseggir haldamargir hverjir til í sumar-
bústöðum eða elta góða veðrið og
gista á fjölskyldutjaldssvæðum um
helgina. Oftar enn ekki eru þessir
sömu leiðindaseggir, sjálfir rallhálfir
alla helgina og það jafnvel í kringum
börnin sín. Oft er talað um að yngra
fólkið eigi að skemmta sér af ábyrgð
um þessa miklu svallhelgi. Víkverji
er þeirrar skoðunar að einnig mætti
minna þá eldri á að skemmta sér af
ábyrgð, ekki síst þegar börn eru
með í för.
x x x
Þó að eflaust hafi skemmtana- ogdrykkjumenning Íslendinga
breyst örlitið til batnaðar undan-
farna áratugi er allt of algengt að
rallhálfir pabbar (eða rauðvínslegnar
mæður) ráfi um tjaldsvæði eða
sumarbústaðahverfi með börnin sín í
eftirdragi. Foreldrar, höfum það
hugfast að börnin læra það sem fyrir
þeim er haft. Áður en farið er að
röfla um sukksama unglinga á útihá-
tíð, endilega lítið í eigin barm og
skoðið hvort þið getið ekki reynt að
temja eigin börnum góða siði.
x x x
Að lokum, ungir sem aldnir, allt ergott í hófi, sérstaklega áfengi.
Förum varlega, pössum upp á hvert
annað, hvort sem við erum á Þjóðhá-
tíð í Eyjum, Einni með öllu á Akur-
eyri, Neistaflugi, í bústað í Gríms-
nesi eða á Innipúkanum. Ekki gefa
fjölmiðlum færi á neikvæðum fyrir-
sögnum eftir helgina. víkverji@mbl.is
Víkverji
Eins og faðir sýnir miskunn börnum
sínum, eins hefur Drottinn sýnt mis-
kunn þeim er óttast hann. (Sálmarnir
103:13)