Morgunblaðið - 02.08.2013, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 02.08.2013, Blaðsíða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2013 Ónáttúra nefnist sýning myndlist- armannsins Úlfs Karlssonar sem opnuð verður í sýningarýminu Slunkaríki á Ísafirði í dag kl. 18. Verkin eru öll ný af nálinni og segir Úlfur eftirfarandi um verk sín: „Myndlist er í mínum heimi lík- amleg og óreiðukennd og í ónátt- úrulegu landslaginu birtast verur sem skrifa sín eigin handrit með minni rithönd.“ Verk Úlfs má einnig kaupa í formi fata og segist hann hafa ánægju af því að sjá verk sín ferðast um heiminn. Verk eftir Úlf má finna á royneland.com/ulfur/. Óreiða Verk eftir Úlf Karlsson. Ónáttúra Úlfs í Slunkaríki Myndlistarkonan Olga Bergmann opnar í dag kl. 17 sýninguna Stað- genglar í Kompunni í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Þar sýnir hún sýnis- horn úr Plöntu- og dýrabók, röð verka í vinnslu sem skiptast í nokkra kafla. „Umfjöllunarefnið birtist í hugrenningum sem taka á sig margskonar myndform um áhrif mannsins á náttúruna og um- hverfi sitt. Einnig um mögulega framtíðarþróun vistkerfa og út- breidda eftirsjá sem rekja má til vitneskjunnar um hraða hnignun lífríkisins af mannavöldum,“ segir um sýninguna í tilkynningu. Samspil manns og náttúru hefur lengi verið Olgu hugleikið og um- fjöllunarefni í verkum hennar. Hef- ur hún í þeim m.a. skoðað samspil vísinda og skáldskapar í verkum sem tengjast hliðarsjálfi hennar, erfðaverkfræðingnum Doktor B, eins og segir í tilkynningu. Þá hafi hún líka unnið með vísanir í nátt- úrugripasöfn, vísindaskáldskap og þverfagleg söfn fyrri alda sem nefnd voru „Wunderkammer“ eða furðusöfn, með það að markmiði að varpa ljósi á skrýtna strauma og hneigðir í hugarfari, lífsháttum og tækni samtímans. Blendingur Verk eftir myndlist- arkonuna Olgu Bergmann. Staðgenglar í Alþýðuhúsinu Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Skáldsagan Jöklaleikhúsið, Gletsc- hertheater, eftir rithöfundinn og ljóðskáldið Steinunni Sigurð- ardóttur nýtur enn töluverðra vin- sælda í Þýskalandi, þar sem hún kom fyrst út árið 2003, í þýðingu Colettu Burling og var endur- útgefin í fyrra. Í kjölfarið veitti Theater am Rand eða Leikhúsið á Jaðrinum, Jöklaleikhúsinu athygli og setti upp sýningu byggða á verkinu á tíu ára afmæli leikhúsins árið 2008. „Theater am Rand er feikilega skemmtilegt úti- og innileikhús í litlu fallegu þorpi við Oder-fljót á landamærum Þýskalands og Pól- lands sem nefnist Zollbrücke. Leikhúsið var upphaflega útileik- hús og er annar stjórnenda þess leikarinn Thomas Rühmann en hann er mjög vinsæll hérna í Þýskalandi úr sjónvarpsseríunni In aller freundschaft, sem eru lækna- þættir,“ segir Steinunn en leik- húsið hefur sett aftur upp verkið hennar Jöklaleikhúsið við góðar undirtektir í sumar. „Skáldsagan og leikhúsið sam- sama sig ágætlega og ég held að þeir sjái pínulítið sjálfa sig og þorpið í sögunni minni.“ Sögusvið skáldsögunnar er Papeyri, vinabær rússneska skáldsins Antons Tsje- kovs. Auðjöfur bæjarins finnur fljótt upp á því að reisa Jöklaleik- hús á eigin kostnað til að heiðra bæði skáldið og auðvitað sjálfan sig í leiðinni. Upp úr því spinnst síðan bráðskemmtileg saga um ástir og örlög fólks í bænum. Þeir sem til þekkja á Höfn í Hornafirði eru ekki lengi að sjá hvert lands- lagið á Papeyri er sótt. Fjörleg og skemmtileg sýning Leiksýningunni eins og bókinni hefur verið vel tekið í Þýskalandi að sögn Steinunnar. Hún segir Þjóðverja hafa góðan húmor fyrir sögunni og skemmta sér vel á leik- sýningunni. „Fyrir mig sem rithöf- und er stórkostlegt að sjá fullan sal af fólki skemmta sér og hlæja lengi kvölds. Það er ekki síst hleg- ið þegar leikarar fara endurtekið með rullu úr bókinni sem hefst á þessum orðum: Að vera leikari er ekki boðlegt starf fyrir mann- eskjur.“ Steinunn hefur gefið út tíu skáldsögur auk Jöklaleikhússins. Sex hafa komið út á þýsku og sú sjöunda er á leiðinni. Sú fyrsta kom út árið 1986 og heitir Tíma- þjófurinn en síðasta bók Stein- unnar heitir Fyrir Lísu og kom út í fyrra. Á laugardaginn mun Stein- unn ásamt Júlíu Björnsdóttur standa fyrir hásumarsgöngu um Kreuzberg og fyrrverandi flugvöll- inn Tempelhof, söguslóðir skáld- sagnanna hennar Jójó og Fyrir Lísu. „Að vera leikari, ekki boð- legt starf fyrir manneskjur“ Ljósmynd/Günter Linke Leiksýning Verkið Jöklaleikhúsið, Gletschertheater, eftir Steinunni Sigurðardóttur í Theater am Rand.  Jöklaleikhúsið sett á svið í Þýska- landi í sumar Tónlistarthátíðin Innipúkinn hefst í kvöld og stendur í þrjá daga. Í kvöld frá kl. 21 stíga á svið á Fak- torí: Steed Lord, Gísli Pálmi, Valdimar, Prins Póló og Skelkur í bringu sem halda uppi stuðinu á efri hæð, en Dj Benni B-ruff sem þeytir skífum í aðalrými. Annað kvöld leika á efri hæð: Botnleðja, Geiri Sæm., Ylja, Agent Fresco og Grísalappalísa, en í aðalrými verða Plan B/Borg #12. Á sunnu- daginn verður „tryllingur um allt hús“, eins og Faktorý-menn orða það, en þá leika Ben Pearce og Sísí Ey auk Terrordisco, Simon FKNHNDSM, Casanova, BenSol, Ghozt, Aj Caputo, Mike the Jacket og Smokin Joe. Sunnudagsgleðin hefst kl. 18. Innipúkar gleðjast Innipúkar Tríóið Steed Lord treður upp á fyrsta kvöldi Innipúkans á Faktorý, þ.e. í kvöld. STOFNAÐ 1987 M ál ve rk : K ar ó lín a Lá ru sd ó tt ir einstakt eitthvað alveg Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n S k i p h o l t 5 0 a | S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.