Morgunblaðið - 08.08.2013, Page 4

Morgunblaðið - 08.08.2013, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013 Heiðar Gunnarsson jonheidar@mbl.is „Norðurljósaferðir seldust alveg gríðarlega vel í fyrra, eiginlega framar vonum og því bundum við miklar vonir við árið í ár,“ segir Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair- hótela. „Salan hefur farið vel af stað í ár en við höfum samt ekki fengið sama fjölda fólks og í fyrra vegna verð- hækkana,“ segir Magnea. Hún telur áform fyrri rík- isstjórnar um skattahækkun valda núverandi stöðu. Það stóð til að hækka virðisaukaskatt á gistingu úr 7% í 14% en breytingin átti að ganga í gildi 1. september næstkomandi. Ný ríkisstjórn sem tók til starfa 23. maí síðastliðinn féll frá slíkum áforum. „Það má klárlega rekja fækkun á milli tímabila til hækkunar á verði,“ segir Magnea. Óvissa hefur áhrif á framtíð Hún segir slíkar skattahækkanir vera vandmeðfarnar. „Við vinnum langt fram í tímann og þegar þessir norðurljósapakkar fóru í sölu lá fyr- ir að virðisaukaskattur á gistingu myndi hækka um helming. Þess vegna voru pakkarnir reiknaðir á hærra verði en í fyrra.“ Salan á slíkum ferðum byggist á gerð tilboða í gegnum erlenda aðila og þeir birta ekki tilboðin aftur þótt Icelandair-hótel lækki verðið. Magnea segir verðið hafa verið lækkað í kjölfar þess að núverandi ríkisstjórn hætti við hækkanirnar. „Flugeldasýningin var eiginlega bú- in þarna úti þegar við gátum loksins lækkað verðið,“ segir Magnea. Hún gagnrýndi á sínum tíma hvernig staðið var að þessum hækkunum af hálfu fyrri rík- isstjórnar. Rangar forsendur fyrir verði „Við vorum sífellt að benda á að þessi óvissa hefði áhrif á sölu langt fram í tímann. Menn verða að skilja hvernig kaupin eru gerð á eyrinni áður en farið er í að skattleggja greinina og gera sér grein fyrir því hvenær og hvernig hlutirnir eru gerðir. Okkar vara er verðmerkt og sett upp í hilluna út frá þessum for- sendum,“ segir hún Magnea tekur þó fram að margir aðrir áhrifaþættir geti einnig haft áhrif fyrir utan skattahækkanir. Hún nefnir í því tilliti m.a. að fleiri aðilar eru farnir að bjóða upp á sam- bærilegar ferðir. „Að sjálfsögðu eru alltaf margir áhrifaþættir sem spila inn í þetta en það er alveg klárt að beinar hækkanir á verði hafa afleið- ingar og að einhverju leyti má rekja færri bókanir til hærra verðlags.“ Magnea er bjartsýn á góða sölu norðurljósaferða í vetur enda er áhuginn mikill bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi. Herferð að hefjast „Það er gríðarlega góð nýt- ing á hótelunum okkar og nú er aftur að fara af stað herferð í þessum málum. Við gerum ráð fyrir að ná góðum ár- angri í kjölfarið,“ segir Magnea. Minni sala norðurljósaferða  Verðhækkanir orsaka fækkun gesta í svokölluðum norðurljósaferðum hjá Icelandair-hótelum  Fyrirhugaðar skattahækkanir fráfarandi ríkisstjórnar orsök vandans  Flugeldasýningin búin Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Óvissa Framkvæmdastjóri Icelandair-hótelanna telur áform fyrri ríkisstjórnar um skattahækkanir valda minni sölu á norðurljósaferðum á milli ára. Mikill uppgangur hefur verið í greininni hér á landi síðustu ár. „Fyrirhuguð hækkun á virð- isaukaskatti hafði lítil áhrif á okkur og við létum viðskiptavini vita þegar í stað er breytingin var dregin til baka,“ segir Friðrik Pálsson, hótelstjóri og eigandi Hótels Rangár. Hann bjóst ekki við að skattahækkanirnar myndu ganga í gegn. Hann reiknar með góðu gengi í norðurljósaferðum í vetur líkt og síðustu ár. „Við byrjuðum að selja sértak- ar norðurljósaferðir fyrir 9-10 ár- um og seinustu ár er bara hvert metárið á eftir öðru,“ segir Frið- rik en hann sá fyrstu norðurljós tímabilsins fyrir þremur dögum. Fyrir nokkrum árum var um 30% nýting á hótelinu yfir vetr- artímann og nú er þessi tala komin upp í 80%. Þá hafa mögu- leikar fyrir afþreyingu gesta auk- ist mikið yfir vetrartímann síð- ustu misseri. Norðurljósin eru ráðandi þáttur í þessari jákvæðu þró- un að mati Friðriks. Hefð- bundnar norðurljósaferðir hefjast ekki fyrr en um miðj- an september en ein- staklingar á hótelinu eru þó alltaf vakandi fyrir þeim þótt þeir séu ekki í norður- ljósaferðum. Reiknar með góðu gengi HEFUR LÍTIL ÁHRIF Friðrik Pálsson Kristján Jónsson kjon@mbl.is Ingibjörg Jónsdóttir, dósent hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, segir að nokkrir mjög stórir borg- arísjakar hafi undanfarna daga sést á Grænlands- sundi. Þetta sé nokkuð snemmt, venjulega gerist þetta ekki fyrr en undir haust en hins vegar sé nú mikið um að jakar brotni úr Græn- landsjökli. ,„Þetta sést vel á gervitunglamyndum,“ segir Ingi- björg. „Vonandi strandar þessi jaki en þetta er auðvitað hættulegt skip- um. Þeir eru farnir að brotna upp, þá dreifast þeir og þessir litlu sjást verr í ratsjá en stóru jakarnir. Þetta er líka miklu harðari ís en venjulegur lagn- aðarís.“ Undanfarna daga hefur verið of skýjað á svæðinu til þess að greina borgarísjaka. Megnið af ísjaka er ávallt neðan sjávarmáls og því um mikil flykki að ræða. Einn jakinn fyr- ir Norðurlandi var upphaflega hálfur annar kílómetri að lengd, að sögn Ingibjargar. Ekki sé hægt að fullyrða mikið um það hve afgerandi sé í veðurfars- fræðilegu samhengi að margir jakar brotni úr jöklinum. Gervitungla- myndir greina þessa jaka alltaf betur og betur, við erum farin að sjá betur það sem brotnar, segir Ingibjörg. „Gervitunglamyndir greina alls ekki alla borgarísjaka, þeir brotna meira og meira og verða, ef eitthvað er, enn hættulegri skipum og illgrein- anlegri í skiparatsjám. Það er þó þess virði að fylgjast með því sem hægt er og vara skip við.“ Algeng stærð borgarísjaka er 1-75 metrar yfir sjávarmáli og 100.000 – 200.000 tonn. Á Norður-Atlantshafi fannst árið 1958 ísjaki sem var 168 metra yfir sjávarmáli. Óvenju margir borgarísjakar eru nú á Grænlandssundi miðað við árstíma Jakabrot hættu- leg fyrir skip Ljósmynd/Landsat/Jarðvísindastofnun Háskólans Á reki Tunglmynd á mánudag sýnir borgarísjaka við Hornbjarg. Hvít svæði við land eru ekki ís heldur grynningar. Morgunblaðið/Sigurður Elvar Gæti strandað Ljósmynd sem sennilega sýnir sama borgarísjaka en nokkru nær nær landi á þriðjudag.  Erfitt að greina þau í ratsjá Ingibjörg Jónsdóttir Berast með hafstraumi » Borgarís sem flýtur á hafinu við Ísland kemur úr jöklum Grænlands. Erfitt er að dæma stærð hans undir sjávarmáli með því að skoða gervitungla- mynd. » Ísinn berst með Austur- Grænlandsstraumnum hingað vestan úr Grænlandssundi eða beint úr norðri að norðaustur- hluta Íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.