Morgunblaðið - 08.08.2013, Page 6

Morgunblaðið - 08.08.2013, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013 Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is Samkeppniseftirlitið telur að nýleg reglugerð, um að apótek sem veita viðskiptavinum afslátt af lyfjaverði verði einnig að láta ríkið njóta afsláttar, kunni að verða til þess að draga úr samkeppni apó- teka. Velferðarráðuneytinu hefur verið gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum og sjónarmiðum sínum í málinu. Samkeppniseftirlitið sendi velferðarráðuneyt- inu bréf 25. júlí sl. vegna afslátta við lyfjasölu. Í bréfinu segir að eftirlitinu hafi borist ábendingar um ákvæði í nýlegri reglugerð um greiðsluþátt- töku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði. Í reglugerð- inni felst að ef veita á afslátt við sölu á lyfjum beri lyfsölum skylda til þess að Sjúkratryggingar Ís- lands njóti ágóðans til jafns hlutfalls og sjúkling- urinn sem kaupir lyfið, en Sjúkratryggingarnar niðurgreiða lyfin að stórum hluta. Hafa engan hag af afslætti til ríkisins Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hef- ur tekið undir þessa afstöðu og sagði í samtali við Morgunblaðið í síðasta mánuði „… að þegar tveir greiða reikning, hvort sem það er vegna lyfja eða annarra þátta, þá eiga báðir að njóta afsláttarins.“ Neytendasamtökin eru meðal þeirra aðila sem opinberlega hafa hvatt til samkeppni og telja sam- tökin mjög mikilvægt að sjúklingar njóti afsláttar með beinum hætti við lyfjakaup. Í bréfi Samkeppniseftirlitsins til velferðarráðu- neytisins segir að markmið apóteka með því að veita sjúklingum afslátt af þeim hluta lyfjaverðs sem þeir greiða sé augljóslega að hvetja sjúklinga til þess að eiga við sig viðskipti og sé afslátturinn því samkeppnishvetjandi. Apótek hafi hins vegar engan markaðslegan eða samkeppnislegan hag af því að veita Sjúkratryggingum afslátt af þeim hluta enda sé sá afsláttur ekki til þess fallinn að hvetja sjúklinga til þess að eiga viðskipti við eitt apótek frekar en annað. Þá segir að það fyrir- komulag sem nú er komið á kunni að verða til þess að draga úr verðsamkeppni milli apóteka. Samkeppniseftirlitið segir að til greina komi að gefa út álit um umrætt ákvæði, en samkvæmt samkeppnislögum birtir eftirlitið slík álit til að benda stjórnvöldum á leiðir til að efla samkeppni. Krafa um að ríkið fái einnig afslátt kann að hamla samkeppni  Samkeppniseftirlitið óskar eftir umsögn velferðarráðuneytis um lyfjaafslætti Útför Jóhannesar Jónssonar kaupmanns var gerð frá Hallgrímskirkju í gær en Jóhannes lést 27. júlí sl. Líkmenn voru Jón Ásgeir Jóhannesson, Þór Hinriks- son, Hendrik Berndsen, Guðbrandur Sigurðsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigurður Rúnar Sveinmarsson, Tryggvi Jónsson, Einar Þór Sverrisson, Einar Vil- hjálmsson og Auðunn Pálsson. Sr. Sigurður Arnarson jarðsöng. Morgunblaðið/Árni Sæberg Útför Jóhannesar Jónssonar Baldur Arnarson baldura@mbl.is Stefnt er að því að fyrir haustþingið verði kynntur til sögunnar sérfræð- ingahópur sem ætlað er að uppfæra heildaráætlun um afnám gjaldeyris- hafta og hafa umsjón með sam- skiptum við kröfuhafa föllnu bank- anna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa erlendir aðilar sett sig í samband við ríkisstjórnina og boðið fram aðstoð vegna þessa. Að sögn Jóhannesar Þórs Skúla- sonar, aðstoðarmanns forsætisráð- herra, hefur ekki verið ákveðið hversu margir skipi þennan hóp. Þá á eftir að ákveða hvort þar verði að finna blöndu innlendra og erlendra sérfræðinga eða eingöngu innlenda sérfræðinga. Engar tímasetningar hafa verið ákveðnar um afnám hafta. Til grundvallar afskriftum Hópurinn um afnám hafta er ótengdur öðrum sérfræðingahóp sem er einnig í undirbúningi og ætl- að er að útfæra mismunandi leiðir til að ná fram lækkun á höfuðstól verð- tryggðra húsnæðislána vegna verð- bólgu á árunum 2008-2010 og gera tillögur þar af lútandi. Er fyrr- nefnda hópnum um afnám hafta ætl- að að vinna að samningum við kröfu- hafa en síðarnefndi hópurinn á að vinna að tillögum að niðurfærslu lána. Eiga tillögur síðarnefnda hóps- ins að liggja fyrir í nóvember. Geri áætlun um afnám haftanna  Nýr vinnuhópur semur við kröfuhafa Morgunblaðið/Ómar Úr Hallgrímskirkju Hópurinn mun finna út svigrúm til afskrifta skulda. Herjólfsdalur í Vestmannaeyjum er nú orðinn hreinn og fínn aftur eftir viku af hátíðarhöldum. Hreinsunarstarfi í kjölfar Þjóðhá- tíðar lauk á þriðjudaginn og að sögn Harðar Orra Grettissonar í þjóðhátíðarnefnd ÍBV virðist sem dalurinn komi ágætlega út undan álaginu. „Veðrið var það gott að það eru engin sár í brekkunni eftir drullu og rigningu.“ Fólk áhugalítið um tjöldin sín Mikið er um að fólk skilji eftir tjöld í dalnum, en þeim er öllum hent að sögn Harðar. „Við sjáum til þess að tjöldin séu tóm og svo erum við með nokkra opna rusla- gáma sem við hendum öllu í. Þetta er talsverður fjöldi af tjöldum, svefnpokum og tjaldstólum sem er skilinn eftir. Það er þó minna núna þegar veðrið hefur verið gott og vegna þess að fyrirtæki hafa ekki verið að gefa ókeypis tjöld í að- draganda hátíðarinnar eins og einu sinni áður. Þá skildu allir eft- ir tjöldin sín.“ Hluti af golfvellinum er nýttur undir tjöld en hann var opnaður aftur á þriðjudagskvöldið að sögn Harðar. Hátíð „Við sjáum til þess að tjöldin séu tóm og svo erum við með nokkra opna ruslagáma sem við hendum öllu í,“ segir Hörður Orri Grettisson. Hreinsunarstarfi lokið í Herjólfsdal  Tjöld og tjaldstólar fengu að fjúka www.gilbert.is Eldsneytisverð lækkaði hjá öll- um olíufélögum í morgun vegna styrk- ingar krón- unnar gagn- vart banda- ríkjadal og lækkunar á heimsmark- aðsverði. Flest lækkuðu félögin bensínlítrann um 2,50 krónur en díselolíulítrann um 1,50 krónur. Er þetta í annað sinn á skömm- um tíma sem eldsneytisverð lækk- ar, en 23. júlí sl. tilkynnti N1 um lækkun á bensíni um tvær krónur og díselolíu um 1,60 krónur. Hugi Hreiðarsson, markaðs- stjóri Atlantsolíu, segir lækkunina vera hefðbundna og í takt við það sem gerist á heimsmarkaði. „Undanfarin 10 ár hefur verðið farið lækkandi í lok júlí og byrjun ágúst, öll árin nema eitt.“ Verð á elds- neyti lækkaði í annað sinn Bensínlítri kostar nú rúmar 250 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.