Morgunblaðið - 08.08.2013, Page 8

Morgunblaðið - 08.08.2013, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013 Færeyingar eru vinafáir þessadagana. Danir, sem ákafa- menn um aðild Íslands að Evrópu- sambandinu telja að séu fullvalda þjóð, eru við það að setja hafnbann á skip Færeyinga samkvæmt fyr- irmælum frá Brussel.    RíkjasambandDanmerkur og Færeyja má sín lít- ils þegar Evrópu- sambandið er ann- ars vegar. Hagsmunir þess ganga framar öllu.    En það eru ekki bara Danir semláta sig hafa að beita Fær- eyinga þvingunaraðgerðum. Nú hafa stjórnvöld í Noregi lýst yfir stuðningi við yfirvofandi við- skiptaþvinganir Evrópusambands- ins gegn þessari litlu nágranna- þjóð.    Sem betur fer koma íslenskstjórnvöld betur fram við Fær- eyinga en stjórnvöld annarra ríkja hafa gert. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur til að mynda gagnrýnt það sem hann kallar réttilega óþolandi hótanir Evrópusambandsins gagnvart smá- ríkinu Færeyjum og segist taka heilshugar undir gagnrýni Fær- eyinga.    Þó hefur ekki verið rætt í rík-isstjórn að lýsa yfir stuðningi við Færeyinga í þessari deilu þeirra við Evrópusambandið.    Full ástæða er fyrir Ísland aðstilla sér þéttar upp við hlið Færeyinga í deilunni þegar svo harkalega er gengið fram gegn hagsmunum þeirra.    Þó ekki væri nema vegna þess aðÍsland gæti hvenær sem er þurft að þola samskonar árásir. Gunnar Bragi Sveinsson Óþolandi hótanir STAKSTEINAR Veður víða um heim 7.8., kl. 18.00 Reykjavík 12 súld Bolungarvík 11 alskýjað Akureyri 14 alskýjað Nuuk 12 léttskýjað Þórshöfn 10 skýjað Ósló 22 léttskýjað Kaupmannahöfn 21 skýjað Stokkhólmur 22 heiðskírt Helsinki 23 heiðskírt Lúxemborg 20 léttskýjað Brussel 15 skúrir Dublin 20 léttskýjað Glasgow 18 léttskýjað London 21 heiðskírt París 18 léttskýjað Amsterdam 16 skúrir Hamborg 22 skýjað Berlín 26 léttskýjað Vín 35 heiðskírt Moskva 22 skýjað Algarve 25 heiðskírt Madríd 31 heiðskírt Barcelona 28 léttskýjað Mallorca 30 léttskýjað Róm 35 heiðskírt Aþena 28 heiðskírt Winnipeg 12 skýjað Montreal 23 skýjað New York 24 skýjað Chicago 28 skýjað Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 8. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:59 22:09 ÍSAFJÖRÐUR 4:46 22:31 SIGLUFJÖRÐUR 4:28 22:15 DJÚPIVOGUR 4:24 21:43 Reykjavík Skútuvogur 1 Sími 562 4011 Akureyri Draupnisgata 2 Sími 460 0800 Reyðarfjörður Nesbraut 9 Sími 470 2020 Glæsileg Gorenje 6 kg þvottavél Tilboðsverð 99.900 kr. Gorenje W6423 • LED-skjár • Sjálfhreinsibúnaður • Sparnaðarkerfi • 17 mínútna hraðþvottur „My favorite“-kerfi • Stórt hurðarop, 34 cm • Einstaklega hljóðlát • Orkunýtni A+++ • 5 ára ábyrgð PI PA R\ TB W A · SÍ A · 13 21 94 „Ég held að þetta kalli ekki á nein sérstök viðbrögð. Það er að sjálf- sögðu illskiljanlegt og óheppilegt að ráðherrann skuli lýsa þessu yfir. En ég held að það kalli ekki á nein sér- stök viðbrögð eins og er,“ segir Gunn- ar Bragi Sveinsson utanríkis- ráðherra, aðspurður um þá yfirlýsingu Lisbethar Berg-Hansen, sjávarútvegsráðherra Noregs, að Norðmenn styðji viðskiptahömlur ESB á færeyskar sjávarafurðir vegna þeirrar ákvörðunar Færeyinga að auka síldarkvóta sinn einhliða. Sagði Hansen jafnframt að Norð- menn myndu sækjast eftir því að víð- tækir og sanngjarnir samningar náist um bæði norsk-íslenska síldarstofn- inn og makríl. „Ég er sátt við að ESB leggi nú til innflutningsbann á síld og makríl frá Færeyjum og ég styð full- komlega þær aðgerðir ESB,“ sagði Berg-Hansen í samtali við vefinn fishnewseu.com. Andvígir þvingunum ESB Gunnar Bragi segir íslensk stjórn- völd leggjast gegn þvingunum ESB. „Við höfum sagt að við erum mjög andvígir þessum þvingunum og þess- um ákvörðunum Evrópusambandsins en við erum ekki þar með endilega að lýsa yfir stuðningi við þá ákvörðun Færeyinga að auka einhliða síldar- kvótann. Við munum að sjálfsögðu skoða málið í rólegheitunum og meta hvort sérstakra viðbragða sé þörf.“ baldura@mbl.is Harmar afstöðu Noregs  Utanríkisráðherra ræðir síldardeiluna Morgunblaðið/Kristján Síld Deilt er um síldveiðar Færeyja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.