Morgunblaðið - 08.08.2013, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013
BLÁTT Spírulína
gefur jafna
orku
sem endist
Aukið streituþol og bætir einbeitingu. Nærir taugakerfið.
Frábær meðmæli við athyglisbrest og eirðarleysi.
Fyrir þá sem eru undir miklu líkamlegu eða andlegu álagi.
Inniheldur lifræna næringu samtals 29 vítamín og steinefni, aminosýrur og
50% meira af Phycocyanin en annað Spírulína. Rannsóknir hafa sýnt að það
eflir ónæmiskerfið og styður getu tauga og líkama til þess að starfa eðlilega
þrátt fyrir streituálag. Phycocyanin er kallað undrasameindin sem eykur
virkni mikilvægra ensíma. Eingöngu ræktuð næringaefni, ekkert GMO.
Gæðastaðall: ISO 14001, ISO 22000.
Útsölustaðir: Lyfja, Hagkaup, Krónan,
Heilsuhúsið, Fjarðarkaup og Græn heilsa.
Hrein orka og einbeiting
BETRI FRAMMISTAÐA,
LENGRA ÚTHALD
SVIÐSLJÓS
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Lótus hefur ekki tapað skeiðkeppni
í sjö ár. Við ætlum ekki að byrja á því
núna,“ segir Bergþór Eggertsson,
landsliðsmaður Íslands. Hann og
Lótus frá Aldenghoor eru heims-
meistarar í 250 metra skeiði síðustu
þrjú mót og unnu auk þess 100 metra
– flugskeið 2007.
Þeir þykja líklegir til að verja tit-
ilinn og segir Bergþór að því stefnt.
Hins vegar sé keppnin að harðna og
yngri skeiðhestarnir orðnir öflugri.
Aðalgrein Lótuss er 250 metra
skeiðið. Hann hefur haft yfirburði á
fyrstu 50 metrunum og náð því for-
skoti sem dugað hefur til sigurs í
keppni við annars jafnfljóta hesta.
Undanrásir skeiðkeppninnar eru á
morgun.
Bergþór og Vicky kona hans reka
hestabúgarð fyrir íslenska hesta
skammt frá Berlín, Lotushof í Suð-
ur-Brandenburg. Hann segir að
markaðurinn sé að jafna sig eftir
lægð sem kom eftir bankahrun.
Þjóðverjar hafi staðið vel en haldið
að sér höndum vegna frétta af efna-
hagskreppu og erfiðleikum á evru-
svæðinu. „Þessi umræða er að fjara
út og fólk aftur farið að eyða,“ segir
Bergþór um hestamarkaðinn og
þjónustu við hestafólk í Þýskalandi.
Bergþór vonast til að Heimsleik-
arnir og þó öllu heldur reiðin að
Brandenborgarhliðinu verði til að
auglýsa íslenska hestinn í Þýska-
landi. Sjálfur hefur hann farið í all-
mörg viðtöl út af þessu og á von á að
umfjöllunin haldi áfram næstu daga.
Hann er viss um að margir áhorf-
endur komi frá Þýskalandi og ná-
grannalöndum. Þeir muni væntan-
lega koma til Berlínar eftir vinnu í
dag og taka sér síðan frí frá vinnu á
morgun og vera yfir helgina. Veð-
urspáin styður við þessa kenningu
hans því fólk kemur síður í miklum
hita en spáð er þægilegra veðri
næstu daga.
Nokkrir titlar í sigtinu
Bergþór segir skemmtilegt að
vera í íslenska landsliðinu. Andinn sé
góður og liðið gott.
Margir í liðinu stefna að sigri.
Bergþór segist viss um að flestum
muni ganga vel og telur ekki óraun-
hæft að ætla að nokkrir í liðinu geti
unnið heimsmeistaratitil. Til að það
megi verða þurfi þó allt að ganga upp
hjá knapa og hesti.
Hyggst verja titilinn
Lótus hefur ekki tapað skeiðkeppni í sjö ár Bergþór
Eggertsson segir að þeir ætli ekki að byrja á því á HM
Morgunblaðið/Eyþór
Skeiðmeistarar Bergþór Eggertsson og Lótus frá Aldenghoor taka vel á því á HM í Hollandi.
„Ég fór á bak á íslenskum hesti áð-
ur en ég var byrjuð að ganga,“ seg-
ir Julia Aatz, þýskur myndlist-
armaður sem er með málverk og
höggmyndir af íslenska hestinum
til sýnis og sölu á markaðssvæðinu
á Heimsleikunum í Berlín. Meðal
verka hennar er frummynd af tákni
Heimsleikanna, íslenskum hesti,
sem síðan hefur verið steyptur í
plast í fullri heststærð og málaður í
ýmsum útgáfum.
Faðir hennar ræktaði íslenska
hesta í 45 ár og var einn af frum-
herjunum í Þýskalandi. Þau voru
lengi með 30 til 40 íslenska hesta en
þau hættu ræktun fyrir nokkru.
„Ég teiknaði hest fyrir heims-
meistaramótið í Austurríki fyrir
tveimur árum. Það var meira eins
og hestur frá Hjaltlandseyjum með
höfuð íslensks hests. Ég tók fram
að ég gæti gert miklu betur. Skipu-
leggjendur Heimsleikanna í Berlín
báðu mig um að gera líkan að hesti
fyrir mótið,“ segir Julia en hestur
hennar var stækkaður í fulla hest-
stærð og málaður í ýmsum útgáfum
til kynningar fyrir mótið og er seld-
ur til skrauts fyrir stofnanir og fyr-
irtæki.
Til stendur að eitt eintak, sem
Julia hefur sjálf málað, fari heim til
Íslands. Tekur hún fram að það sé
eini íslenski hesturinn sem fái að
fara til Íslands að loknum Heims-
leikum því íslensku hestarnir megi
ekki snúa aftur til landsins.
Gerði eina hestinn sem
fær að fara til Íslands
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Listamaður Julia Aatz er stolt af hestinum sem hún mótaði og málaði.
Íslenska landsliðið á þrjá fulltrúa í A-
úrslitum í fimmgangi á Heimsleikum
íslenska hestsins í Berlín og efsta
knapa inn í úrslit ungmenna. Þeir
eiga því góða möguleika á heims-
meistaratitli í þessari grein, verða þó
að sigra fjórða Íslendinginn í úrslit-
um, sjálfan heimsmeistarann Magn-
ús Skúlason sem keppir fyrir Sví-
þjóð. Úrslitin verða riðin á
sunnudag.
Sigursteinn Sumarliðason á
Skugga frá Hofi 1 var fyrstur í röð-
inni af íslensku keppendunum í for-
keppni fimmgangs. Þeir stóðu sig vel
og leiddu keppnina lengi vel með ein-
kunnina 7,30. Íslandsmeistarinn Jak-
ob Svavar Sigurðsson og Alur frá
Lundum 2 jöfnuðu árangur þeirra.
Eyjólfur Þorsteinsson og Kraftur frá
Efri-Þverá fengu einkunnina 7,13 og
náðu með því inn í A-úrslit. Haukur
Tryggvason og Hetta frá Ketils-
stöðum fengu einkunnina 6,97 og
keppa í B-úrslitum.
Samantha Leidensdorff og Far-
sæll frá Hrafnsholti komust yfir Ís-
lendingana, fengu einkunnina 7,33.
Heimsmeistarinn, Magnús Skúlason,
sem keppir fyrir Svía á Hraunari frá
Efri-Rauðalæk lauk svo forkeppn-
inni með langhæstu einkunninni,
7,97.
Arnar Bjarki Sigurðarson og Arn-
ar frá Blesastöðum 2A fengu ein-
kunnina 6,80 og eru efstir ungmenna.
Úrslit í fimmgangi ungmenna verða
á laugardagsmorgun.
Vel studdir
Íslensku keppendurnir eru gríð-
arlega vel studdir af fjölmörgum ís-
lenskum áhorfendum. Eiga þeir
stúkuna, veifa íslenska fánanum og
láta vel í sér heyra þegar það á við.
Þeir segja líka skoðanir sínar á dóm-
um, ef þeim finnst þeir ekki sann-
gjarnir. Þannig var baulað þegar ein-
kunn dómarans sem gaf Eyjólfi
lægstu einkunnina var lesin upp og
þulurinn þurfti að setja ofan í við ís-
lensku áhorfendurna þegar þeir létu
í ljós óánægju sína með einkunnir
Jakobs Svavars og Als, áhorfendur
mátu sýningu hans betri en dóm-
ararnir.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fimmgangur Sigursteinn Sumarliðason og Skuggi frá Hofi 1 á fallegu tölti í
fimmgangi en eru í 3-4. sæti inn í A-úrslit ásamt Jakob og Al frá Lundum 2.
Allir Íslendingarnir
í úrslit í fimmgangi
HEIMSLEIKAR ÍSLENSKA HESTSINS