Morgunblaðið - 08.08.2013, Síða 13

Morgunblaðið - 08.08.2013, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013 AGA GAS ER ÖRUGGT VAL HEIMA OG Í FRÍINU Þú getur verið afslappaður og öruggur við grillið með AGA gas. Öruggur um að þú ert að nota gæðavöru og að þú fáir góða þjónustu þegar þú þarft áfyllingu á gashylkið, hvort sem þú nýtir þér heimsendingarþjónustu á höfuðborgarsvæðinu eða þegar þú heimsækir söluaðila AGA. Farðu á www.gas.is og finndu nálægan sölustað eða sæktu öryggisleiðbeiningar og fáðu upplýsingar um AGA gas. www.GAS.is lÍs en ku ALPARNIR s Allt frá fjöru til fjalla... www.alparnir.is Lowe Alpine bakpokarnir komnir. GLERÁRGÖTU 32, AKUREYRI, SÍMI 461 7879 • KAUPVANGI 6, EGILSSTAÐIR, SÍMI 471 2525 • FAXAFENI 8, REYKJAVÍK, SÍMI 534 2727 Pólsku stúlkurnar, sem létust í bíl- slysi við Suðurlandsveg skammt austan við Meðalfellsveg, verða fluttar heim til Póllands þar sem þær verða jarðsettar í heimabæjum sínum. Ættingjar stúlknanna hafa hafið fjársöfnun til þess að fjár- magna flutninga þeirra heim. Ag- nieszka Beata Hyz, ættingi ann- arrar stúlkunnar, segir heildarkostnaðinn ekki liggja fyrir, en útlit er fyrir að hann muni hlaupa á að minnsta kosti tveimur milljónum króna í heildina. Hún segir marga þegar hafa boðið þeim aðstoð, bæði hér á landi og í Pól- landi, við að standa straum af flutningunum. Nöfn stúlknanna voru í gær op- inberuð, en þær hétu Natalia Gab- inska og Magdalena Hyz. Natalia fæddist 6. mars 1998 í Póllandi og var stödd hér á landi í heimsókn hjá móður sinni sem var einnig farþegi í bifreiðinni. Magda- lena fæddist einnig í Póllandi, 9. maí 1997, og var stödd hér á landi í heimsókn hjá frændfólki sínu. Na- talia var í sinni fyrstu Íslands- heimsókn en Magdalena í sinni annari. Stúlkurnar kynntust nýlega og tókst strax með þeim góður vin- skapur. Fjölskyldur stúlknanna biðla til fólks um aðstoð við fjármögnun á þessari hinstu ferð táningsstúlkn- anna til heimabæja sinna. Hægt er að styrkja þær með því að leggja inn á eftirfarandi reikning: 0130-05-061895, kennitala: 200579-4029. bmo@mbl.is Ljósmynd/Icelandnews.is Vinkonur Magdalena Nyz til hægri og Natalia Gabinska til vinstri. Stúlk- urnar kynntust nýlega og tókst strax með þeim góður vinskapur Pólsku stúlkurnar verða fluttar heim  Fjársöfnun vegna flutninganna „Þetta kemur auðvitað illa niður á þeim sem þurfa bráðaþjónustu, þeim sem þurfa viðtöl, greiningu og að komast í meðferð. Þetta er baga- legt,“ segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ, en göngudeildir samtakanna í Reykjavík og á Ak- ureyri hafa verið lokaðar frá 1. júlí sl. Stefnt er að því að opna deild- irnar aftur 12. ágúst nk., en eft- irmeðferðarstöðin Vík á Kjalarnesi er einnig lokuð. Vík er með- ferðarstaður fyr- ir konur og einn- ig karlmenn sem eru yfir 55 ára. Þórarinn segir að SÁÁ hafi áður þurft að loka starfsstöðum sín- um á þessum tíma enda falli aðsókn niður á sumartímanum. Hann bendir þó á að í fyrra hafi báðir eftirmeðferðarstaðirnir hald- ist opnir.Á eftirmeðferðarstöðum fer fram meðferð í kjölfar hefð- bundinnar meðferðar á göngudeild. „Þarna eru þeir greindir sem á því þurfa að halda og þarna fá sjúkling- ar verndað umhverfi, sumir í allt að fjórar vikur að lokinni afeitrun, og svo fá þeir eftirfylgni á eftir. Ný- lega gerðum við rannsóknir á starf- seminni og þar sannaðist gildi með- ferðarinnar mjög,“ segir Þórarinn. agf@mbl.is Göngudeildir SÁÁ opnaðar eftir helgi  Lokaðar frá 1. júlí til 12. ágúst  Kemur illa niður á stórum hóp Þórarinn Tyrfingsson Skeytastöðvunum á Mýri og Torf- um, sem báðar skiluðu veðurskeyt- um fjórum sinnum á sólarhring, var breytt í úrkomustöðvar 1. ágúst síð- astliðinn. Þetta kemur fram í svari Veðurstofunnar við fyrirspurn Morgunblaðsins. Báðar skiluðu þær veðurskeytum fram á síðasta dag en sem úrkomustöðvar skila þær upp- lýsingum um úrkomu einu sinni á sólarhring. Þá bendir Veðurstofan á að sjálf- virkar veðurstöðvar séu á Torfum í Eyjafirði og í Svartárkoti í Bárðar- dal. Hægt er að nálgast gögn beggja stöðvanna í gagnagrunni en upplýs- ingar frá þeim báðum verða mjög fljótlega aðgengilegar á ytri vef Veð- urstofunnar. Jafnframt segir í svari Veðurstofunnar að kerfi veðurat- hugana sé til sífelldrar skoðunar, það hafi í gegnum árin tekið breyt- ingum og muni gera áfram. „Mann- aðar athuganir víkja þá gjarnan fyrir sjálfvirkum athugunum, enda skila sjálfvirkar athuganir gögnum mun þéttar en mannaðar athuganir og kostnaður við þær er almennt minni. Á móti kemur að ákveðnir veður- þættir eru ekki auðmældir með sjálf- virkum mælum og því er þeim að vissu leyti fórnað,“ segir í svarinu. Sigurður Þór Guðjónsson, veður- áhugamaður, fjallaði um málið á bloggsíðu sinni síðastliðinn laugar- dag. Þar bendir hann á að Veðurstof- an ætti að tilkynna um það á vefsíðu sinni þegar veðurstöðvar eru lagðar niður, nú eða þegar nýjar eru stofn- aðar. skulih@mbl.is Tveimur skeyta- stöðvum lokað  Sjálfvirkar stöðvar koma í staðinn Ljósmynd/www.vedur.is Veðurmælingar Hitamælaskýli í Skagafirði á sólríkum degi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.