Morgunblaðið - 08.08.2013, Síða 14

Morgunblaðið - 08.08.2013, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013 Skúli Hansen skulih@mbl.is Áhrifaríkasta aðferðin til að fækka í stofni sílamáva er að svæfa þá. Þetta segir Konráð Magnússon, eigandi meindýraeftirlitsins Firringar ehf. Hann segir þessa aðferð vera vel framkvæmanlega .„Það er hægt að setja úrgang í gáma og skjóta síðan neti yfir gámana þegar þeir eru orðn- ir fullir af mávum og svæfa síðan fuglana,“ segir Konráð sem bend- ir þó á að fólki gæti þótt þessi leið of harð- neskjuleg. Þá bendir hann á að fyrir nokkrum ár- um hafi sú aðferð verið prófuð að setja brauðmola við mávahreiður og ganga síðan á hreiðrin þegar mávurinn er sofnaður, tína hann upp og lóga. Hreinsa afmörkuð svæði Spurður hvort það sé ekki jafn ár- angursríkt að skjóta máva segir Kon- ráð svo ekki vera. „Ég hef skotið tölu- vert af mávum í gegnum tíðina, það hefur ekkert með stofnstærð að gera en það er hægt að hreinsa þannig upp viss svæði,“ segir Konráð sem bætir við að hann hafi sjálfur hreinsað upp ákveðin vörp algjörlega. „Með því að láta fuglinn unga út þá er fuglinn orðinn fastur á hreiðrinu enda fer hann ekki frá unganum. Síð- an þegar ungarnir eru tíndir upp með aðstoð hunda sem finna þá á lyktinni þá kemur fullorðni fuglinn grimmt niður til að verja ungann en þá skjót- um við fullorðna fuglinn líka. Þannig er hægt að taka afmörkuð svæði og hreinsa þau algjörlega,“ segir Konráð og bendir á að þetta hafi verið gert. Mávar upp á heiði Að sögn Konráðs hefur mávum fjölgað gríðarlega hér á landi á síð- ustu árum. „Ástæðan er sú að þegar þessi svokallaða kreppa kemur 2008 þá fara flestir í það að spara og þá var sparað í þessu, sérstaklega að halda mávinum í skefjum,“ segir Konráð og bætir við að í kjölfarið hafi mávum fjölgað. Þá segist hann telja að síla- mávastofninn hafi aldrei áður verið jafn stór hér á landi og nú. „Um leið og menn fóru að minnka æti til mávsins þá dreifði hann sér miklu meira og er kominn upp um allt hálendið í dag. Það eru mávar uppi í öllum sveitum í dag að reyna að finna sér skordýr í túnum þegar bændur eru að slá og uppi á heiðum þar sem mávar eiga ekki heima,“ segir Kon- ráð og bætir við að dýr hætti ekki að éta þó að þau fái ekki þá fæðu sem þau langar mest í. Leggur til að mávar verði svæfðir í hópum  Meindýraeyðir segir mávum hafa fjölgað gríðarlega Morgunblaðið/Ómar Barist um bitann Oft getur það reynst mikið erfiðisverk fyrir fugla á Reykjavíkurtjörn að afla sér matar þegar sílamávar eru nálægt. Konráð Magnússon Á dag, fimmtudag, stendur Sjó- sunds- og sjóbaðsfélag Reykjavíkur fyrir Fossvogssundi og hefst sundið kl. 17:30. „Fossvogssundið er tilvalið fyrir þá sem hafa prófað að synda í sjón- um og langar að synda frá Naut- hólsvík og yfir til Kópavogs og ef til vill til baka,“ segir í tilkynningu frá félaginu. Bátafylgd verður og eins munu vanir sjósundsmenn synda með hópnum og leiðbeina og aðstoða sundmenn. Leiðin yfir er um 550 metrar og má reikna með að sjór- inn verði um 13 gráður. Þeir sem synda aðra leiðina verða teknir upp í bát Kópavogsmegin og þeim skutl- að til baka. Ef sundmenn treysta sér ekki til að synda lengra er alltaf hægt að rétta upp höndina og þá verður þeim sama skutlað í land. Sundið er öllum opið og fer skráning fram í Nauthólsvík frá kl. 17 í dag og kostar ekkert að taka þátt. Skylda er að synda með skær- litaða sundhettu. Skærlituð sundhetta skilyrði fyrir þátttöku  Synda 550 metra yfir Fossvoginn Morgunblaðið/Styrmir Kári Lagt í’ann Sjósund nýtur sífellt meiri vinsælda hjá Íslendingum. Tuttugu ára afmælishátíð bæj- arhátíðar Fljótsdalshéraðs, Orms- teiti, verður opnuð með pompi og prakt á morgun, föstudag. Hátíðin er með þeim elstu á landinu og á ræt- ur sínar að rekja til útimarkaðar sem haldinn var á Egilsstöðum þegar sumri tók að halla. Enn í dag er hátíðin eins konar upp- skeruhátíð Héraðsbúa þegar sumarstörfum fer að ljúka og standa hátíðahöldin yfir í tíu daga samfleytt. „Hátíðin er haldin víðsvegar um Fljótsdalshérað,“ segir Guðríður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ormsteiti. „Hverfin keppa sín á milli í hverfaleikum, nýbúar verða boðnir velkomnir, fjölskyldudans- leikur og karnival verða haldin og margt fleira.“ Síðustu ár hafa milli tvö og þrjú þúsund manns sótt hátíðina að sögn Guðríðar og kveðst hún búast við jafnvel fleiri gestum á þessa afmæl- ishátíð. Guðríður segir fegurðarsam- keppni gæludýra hafa vakið mikla athygli undanfarin ár. Hún verður haldin á mánudaginn, en þann dag hafa börn fengið að njóta sín. Stóra afmælisdagskráin verður haldin síðari laugardag hátíð- arinnar og verður öllu tjaldað til að sögn Guðríðar. Hátíðarhöldum á Egilsstöðum lýkur með hinni árlegu hrein- dýraveislu, en lokadagurinn er svo- kallaður Fljótsdalsdagur, sem hald- inn verður á Skriðuklaustri. hhjorvar@mbl.is Ljósmynd/Ormsteiti Frumlegast Folaldið var valið frumlegasta gæludýrið 2011. Keppt er í fjór- um öðrum flokkum: katta, hunda, fiðurfénaðar og blönduðum. Ormsteiti haldið á Héraði í tuttugu ár Fjölbreytt dagskrá » Hjólreiðakeppnin Tour de Ormurinn verður farin frá Hall- ormsstað. » Keppt verður í fjárdrætti og rababaraspjótkasti. » Færeyski tónlistarmaðurinn Beinir frá Runavík, vinabæ Eg- ilsstaða, heldur tónleika. » Fjölskylduratleikurinn Leitin að gulli ormsins verður haldinn í Selskógi. Guðríður Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.