Morgunblaðið - 08.08.2013, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013
Á laugardaginn er sjálfur Fiski-
dagurinn mikli haldinn hátíðlegur
milli 11 og 17 á hátíðarsvæðinu við
höfnina. „Það verður mikil og þétt
dagskrá og fjölmargir réttir á boð-
stólum. Þetta verður risa-matarboð
með góðri skemmtun þar sem allt
verður frítt,“ segir Júlíus, en í boði
verða fiskborgarar, stærsta pítsa á
Íslandi, 120 tommur, fiskisúpa úr
stærsta potti landsins og stærsta
grill landsins, ásamt öðrum fisk-
réttum eins og plokkfiski, síld og
harðfiski.
„Hér verður enginn svangur,“
segir Júlíus.
Dalvískir Eurovisionfarar
Mikil dagskrá verður á laugar-
daginn og um miðjan daginn verður
sumar-Eurovision-stemning þar
sem þrír dalvískir Eurovisionfarar,
Friðrik Ómar, Matthías Matthías-
son og Eyþór Ingi, flytja sín lög, að
venju verður Regína Ósk með Frið-
riki Ómari. Þá mun Eiríkur Hauks-
son einnig koma fram með heima-
mönnunum.
„Hér verður enginn svangur“
Fiskidagurinn mikli haldinn í 13. skiptið á Dalvík Á annað hundrað fjölskyldur bjóða fólki fiski-
súpu Fjölskylduvæn hátíð þar sem allt er í boði heimamanna Búist við 25.000 manns á hátíðina
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fiskidagurinn mikli Hátíðin er haldin í þrettánda sinn og búist er við miklu fjölmenni í bænum. Í fyrra mættu um 25.000 gestir í fiskisúpu og talið að svip-
aður fjöldi mæti á hátíðina í ár. Dagskrá helgarinnar er þétt og verða ýmis skemmtiatriði á hátíðarsvæðinu við höfnina sem og annarsstaðar í bænum.
Tilhlökkun Júlíus Júlíusson, framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla, hlakkar
mikið til helgarinnar og stendur hér við skiltið við innkeyrsluna í bæinn.
Hjálparhönd Vinnuskólakrakkar á Dalvík hafa unnið við það síðustu daga
að snyrta bæinn og gera fínan. Allir bæjarbúar hjálpast að um helgina.
SVIÐSLJÓS
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
aslaug@mbl.is
Fiskidagurinn mikli er haldinn á
Dalvík um helgina í 13. skiptið.
„Upphaflega hugmyndin að deg-
inum var að leyfa heimafólkinu að
koma saman og hafa smá-hátíð en
síðan var ákveðið að bjóða öllum
landsmönnum í mat og þannig hef-
ur þetta verið í 12 ár,“ segir Júlíus
Júlíusson, framkvæmdastjóri Fiski-
dagsins mikla.
„Markmiðið hefur alltaf verið það
sama, að koma saman, hafa gaman
og borða fisk.“ Júlíus segir und-
irbúning ganga glimrandi vel og
hefst óformleg dagskrá strax í dag.
Hátíðin hefst á faðmlagi
Á föstudaginn er formleg setning
hátíðarinnar, svokölluð Vin-
áttukeðja. „Þetta er svona risa
faðmlag til að leggja línurnar fyrir
helgina,“ segir Júlíus, en fólk er
hvatt til að knúsast í lok setning-
arinnar og að sögn Júlíusar hefur
það tekist mjög vel. Vinátturæðuna
2013 flytur biskup Íslands, Agnes
M. Sigurðardóttir. „Þá hafa bæjar-
búar föndrað vináttuarmbönd sem
þeir gefa gestum á hátíðinni til að
innsigla að allir séu velkomnir hing-
að til Dalvíkur.“
Margt er um að vera alla helgina
á Dalvík og er meðal annars boðið
uppá fyrirlestra, ratleiki, tónleika
og danstíma.
Fiskisúpukvöldið mikla
„Á föstudagskvöldinu er fiski-
súpukvöldið mikla og þá eru á ann-
að hundrað fjölskyldur sem taka
þátt sem bjóða gestum heim í
súpu,“ segir Júlíus, en þar sem tveir
kyndlar loga er boðið uppá fiski-
súpu. Slökkt er á kyndlunum þegar
súpan klárast. Júlíus segir fiskisúpu
vera nánast í hverju einasta húsi, en
margir taka sig einnig saman, oft
fjölskyldur eða nágrannar, og bjóða
saman uppá súpu. Fiskisúpukvöldið
er nú haldið í níunda sinn.
„Undanfarin ár hafa um 10-14
þúsund manns gist á Dalvík yfir
helgina, en í fyrra komu um 25 þús-
und manns á fiskisúpukvöldið
mikla,“ segir Júlíus sem býst við
um yfir 25.000 manns á hátíðina í
ár.
„Mesta stemningin sem hefur
myndast er að fólk fer á milli húsa
að smakka, sumir eru bara að rölta
og hitta fólk og njóta sérstaka and-
rúmsloftsins sem myndast í bæn-
um.“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
aslaug@mbl.is
Á laugardagskvöldið á Fiskideg-
inum mikla á Dalvík verða haldnir
stórtónleikar og risa-flugeldasýn-
ing í boði Samherja, sem fagnar
30 ára afmæli sínu á árinu.
„Kvöldið verður einstaklega
veglegt,“ segir Júlíus Júlíusson,
framkvæmdastjóri Fiskidagsins
mikla. Haldnir verða Freddie
Mercury-heiðurstónleikar þar sem
koma fram fjölmargir stórsöngv-
arar, þar á meðal söngvararnir
Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Friðrik
Ómar Hjörleifsson og Matthías
Matthíasson sem allir eru frá Dal-
vík. Þá koma einnig fram Eiríkur
Hauksson, Magni Ásgeirsson og
óperusöngkonan Hulda Björk
Garðarsdóttir.
„Þetta eru stærstu tónleikar
sem hafa verið settir upp á Fiski-
deginum mikla,“ segir Júlíus en
oftast hefur verið bryggjusöngur á
kvöldin.
Heiðurstónleikar Freddie Merc-
ury gengu fyrir fullu húsi í Hörpu
og Hofi á Akureyri 2011-2012 og
voru haldnir tíu tónleikar fyrir
troðfullu húsi. Þeir verða settir á
svið á ný í október 2013.
Flugeldagengi frá Dalvík
„Enginn flugeldaáhugamaður
ætti að láta flugeldasýninguna
framhjá sér fara,“ segir Júlíus, en
flugeldagengi Björgunarsveit-
arinnar á Dalvík setur upp og
stýrir flugeldasýningunni.
„Hátíðinni hefur frá upphafi
verið lokið með flugeldasýningu
og á því verður engin breyting.“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Stórtónleikar Dalvíkingurinn Eyþór Ingi syngur að kvöldi Fiskidagsins 2010 og endurtekur leikinn á laugardag.
Samherji á afmæli og
býður til stórtónleika