Morgunblaðið - 08.08.2013, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, mun ekki funda einslega með
Pútín, forseta Rússlands. Forset-
arnir ætluðu að funda í Moskvu en
þeir munu báðir taka þátt í fundi G20
ríkjanna í St. Pétursborg í byrjun
september. Upplýsingafulltrúi Hvíta
hússins greindi frá þessu í gær.
Tíðindin berast í kjölfar yfirlýs-
inga Obama í spjallþætti Jay Leno á
þriðjudagskvöld. Þar sagði hann að
Rússar ættu það til að sýna þanka-
gang sem réð ríkjum á tímum kald-
astríðsáranna. Þá sagði Obama að
ákvörðun Rússa um að veita upp-
ljóstraranum Edward Snowden
tímabundið hæli hefði valdið sér von-
brigðum. Eins og kunnugt er hafa
Bandaríkjamenn ákært Snowden
fyrir að leka leynilegum upplýs-
ingum um síma- og tölvunjósnir
bandarískra stofnana.
„Það sem ég segi stöðugt við þá,
og það hef ég sagt við Pútín (forseta
Rússlands), er að það (kalda stríðið)
er í fortíðinni, og við verðum að huga
að framtíðinni, það er engin ástæða
fyrir því að samstarf ríkjann geti
ekki ekki verið áhrifaríkara en það
er nú,“ sagði Obama um samskipti
þessara fornu fjenda hjá Leno.
Í yfirlýsingu frá Hvíta húsinu seg-
ir að meðal ástæðna þess að ekkert
verði af fundi forsetanna tveggja séu
ákvarðanir Rússa í Snowden málinu.
Þá segir einnig að ekki hafi náðst
nægjanlegur árangur í tvíhliða við-
ræðum ríkjanna um hin ýmsu mál
s.s. á sviði viðskipta, mannréttinda,
öryggis, vopna- og varnamála, því
verði ekki af fundi þeirra að sinni.
Segja Bandaríkjamenn gera of
mikið úr Snowden-málinu
Í þættinum viðurkenndi Obama
þó að yfirvöld í Moskvu hefðu reynst
hjálpleg t.d. varðandi málefni Afgan-
istan sem og í baráttunni gegn
hryðjuverkaógnum.
Áður en áætlaður fundur forset-
anna tveggja var blásinn af í gær
sagði aðstoðarutanríkisráðherra
Rússa, Sergei Ryabkov, að banda-
rísk stjórnvöld væru að gera of mik-
ið úr „Snowden-málinu.“ Þau væru
að afbaka veruleikann með því að
láta málið hafa áhrif á tvíhliða sam-
skipti ríkjanna á æðstu sviðum.
Þrátt fyrir yfirlýsingar gærdags-
ins munu John Kerry, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna og Chuck
Hagel, varnarmálaráðherra hitta
rússneska kollega sína í Washington
á föstudaginn í þeim tilgangi að ræða
leiðir til að ná auknum árangri í tví-
hliða viðræðum ríkjanna um hin
ýmsu mál.
AFP
Leiðtogi Obama Bandaríkjaforseti var gestur hjá Jay Leno á þriðjudags-
kvöld. Þar talaði hann m.a. um samskipti Bandaríkjamanna við Rússa.
Mun ekki funda með Pútín
Framganga Rússa í Snowden málinu ein ástæða Forsetinn vonsvikinn
í viðtali við Leno Segir Rússa eiga til að sýna „kalda stríðs“-þankagang
Í fyrsta skipti í áratugi dregur úr
offitu meðal barna fátækra for-
eldra í Bandaríkjunum. Þróunin
sem þó er ekki hröð kemur fram í
niðurstöðum rannsóknar mið-
stöðvar sjúkdómavarna þar í landi.
Um 12 milljónir barna á aldrinum
2-4 ára voru vigtaðar og mældar í
rannsókninni sem leiddi í ljós að lít-
illega dró úr offitu barna í 19 ríkj-
um Bandaríkjanna á árunum 2008-
2011. Þess má geta að geta að þriðj-
ungur fullorðinna
Bandaríkjamanna þjáist af offitu.
Áttunda hvert leikskólabarn í
landinu þjáist af offitu en börn sem
eru of þung þegar þau eru 3-5 ára
eru fimm sinn-
um líklegri til að
þjást af offitu á
fullorðinsárum
skv. fyrri rann-
sóknum.
„Þó breyting-
arnar séu litlar,
þá er þetta í
fyrsta skipti
lengi sem þær
eru í jákvæða
átt,“ segir forstjóri stofnunarinnar
sem framkvæmdi rannsóknina og
bætir við að offita í bernsku auki
líkur á að viðkomandi muni glíma
við heilsufarsvandamál til lífstíðar.
Dregur úr offitu barna vestanhafs
BANDARÍKIN
Heilsa Offita er al-
varlegur sjúkdómur.
Minnst 62 sýrlenskir uppreisn-
armenn létu lífið í umsátri í ná-
grenni Damaskus, höfuðborgar
Sýrlands í gærmorgun. Talið er að
sýrlenskir stjórnarhermenn hafi
verið þar að verki, en hinir látnu
eru sagðir meðlimir í hreyfingunni
Al-Nusra.
Mannréttindasamtök í Sýrlandi
segir flesta hina látnu unga að aldri
auk þess sem enn sé óttast um af-
drif átta manna í viðbót.
Sýrlenski ríkisfjölmiðillinn Sana
hefur eftir heimildarmanni sínum
innan sýrlenska stjórnarhersins að
herinn hafi ráðist á hóp hryðju-
verkamanna sem tilheyri Al Nusra
hreyfingunni þar
sem þeir hafi
verið að gera til-
raun til að kom-
ast óséðir gegn-
um austurhluta
Ghuta og ráðast
á bækistöð hers-
ins.
Meira en 100
þúsund manns
hafa látist í átök-
unum í Sýrlandi sem nú hafa staðið
í 28 mánuði. Auk þess hafa 1,7 millj-
ónir Sýrlendinga neyðst til flýja
landið og leita skjóls í nágranna-
ríkjum, skv. tölum frá SÞ.
62 uppreisnarmenn féllu í umsátri
SÝRLAND
Stríð Ekkert bólar
á friði í Sýrlandi.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík
Sími 567 4840
www.bilo.is | bilo@bilo.is
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík
Sími 580 8900 | bilalind.is
Vantar alltaf
fleiri bíla á skrá!
Fylgstu með okkur á facebook
Fylgstu með okkur á facebook
MIKIL SALA
MERCEDEZ BENZ ML 320 CDI
Árgerð 2008, ekinn 85 þ.km,
dísel, sjálfskiptur.
Flott eintak, er á staðnum!
Verð 6.990.000.
Raðnr. 282748
TOYOTA Yaris life
Árgerð 2012, ekinn 16 þ.km,
bensín, 5 gírar.
Verð 2.590.000. Rnr. 103901.
TOYOTA Yaris
Árgerð 12/03, ekinn 109 þ.km,
bensín, sjálfskiptur. Verð 890.000.
Einn eigandi. Rnr.410361.
Yfirvöld Suður- og Norður-Kóreu
ákváðu í gær taka aftur upp við-
ræður um opnun iðnaðarsvæðisins í
Kaesong sem er á landamærum
ríkjanna.
Þegar hafa sex samningalotur
ríkjanna runnið út í sandinn síðan
iðnaðarsvæðinu var lokað í apríl.
Samvinna ríkjanna tveggja á iðn-
aðarsvæðinu stóð af sér ágreining
milli ríkjanna allt þar til í apríl þeg-
ar N-Kóreumenn kölluðu starfslið
sitt til baka í kjölfar vaxandi
spennu í samskiptum ríkjanna.
Í yfirlýsingu frá stjórnvöldum í
Norður-Kóreu, sem þau segja að
lýsi bæði hugrekki og göfuglyndi,
er S-Kóreumönnum lofað algerum
aðgangi að Kaesong. Þar segir
einnig að N-Kóreumenn ábyrgist
aðgengi S-Kóreumanna að svæðinu
sem og öryggi starfsmanna þeirra.
Hvort yfirlýsingin fullnægir
kröfum Suður-Kóreumanna á eftir
að koma í ljós, en viðbrögð þar-
lendra stjórnvalda voru jákvæð og
samþykkt var að hefja viðræður 14.
ágúst næstkomandi.
Iðnaðarsvæðið í Kaesong er mik-
ilvæg tekjulind fyrir N-Kóreu, í
gegnum skatta auk þess sem þar
störfuðu 53 þúsund þarlendra borg-
ara áður en svæðinu var lokað.
Hefja viðræður um
opnun í Kaesong
KÓREUSKAGINN