Morgunblaðið - 08.08.2013, Síða 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013
Það streyma
margar minningar fram í hug-
ann þegar maður hugsar aftur í
tímann um pabba. Það er erfitt
að velja eina eða tvær til að
skrifa um þegar svona margar
góðar eru til staðar til að velja
um. Það er óhætt að segja að líf-
ið hafi átt hug hans allan enda
hafði hann gaman af lífinu. Hann
var mikill fjölskyldumaður og
einn mesti keppnismaður sem ég
veit um og það skilaði honum
mörgum glæstum sigrum, hvort
sem það var í spilum eða í veik-
indum sínum.
Ég var stoltur af honum, enda
var hann afskaplega klár maður
og minnugur að eindæmum. Ég
hringdi oft í hann ef mig vantaði
símanúmer eða hvar einstakar
götur voru og það voru ekki
mörg skipti sem hann vissi ekki
svarið. Hann var líka fyrsti mað-
urinn sem maður valdi í lið þeg-
ar við vorum yngri og fórum að
spila Trivial eða álíka spil.
Það var mikið og gott sam-
band hjá okkur og sérstaklega
þegar um íþróttaviðburði væri
um að ræða. Hann hafði sér-
staklega mikinn áhuga á fót-
bolta, handbolta og frjálsum
íþróttum. Það voru ófáir laugar-
dagseftirmiðdagar sem við
horfðum á enska boltann saman.
Það var líka alltaf góður tími hjá
okkur feðgum í janúar ár hvert
en þá var handboltalandsliðið að
spila á stórmóti og við ræddum
mikið saman fyrir og eftir leik-
ina. Það voru nokkrir leikmenn í
gegnum tíðina sem hann gagn-
rýndi meira en aðra og ég hafði
gaman af. Maður heyrði oft
þessa setningu: „Hvað er hann
að gera inn á, útaf með hann.“
Elsku pabbi, það er erfitt að
kveðja en þú sagðir að þú hefðir
verið heppinn í þínum veikindum
2009. Þú fékkst nokkur góð ár í
viðbót, þótt maður hefði viljað
hafa þau fleiri þá getur maður
ekki annað en verið þakklátur
fyrir þessi aukaár sem þú
fékkst.
Nú hefur þú bæst í hóp þeirra
engla sem vaka yfir okkur og nú
lifir þú áfram í okkur öllum,
börnunum og barnabörnunum
um ókomna tíð.
Takk fyrir allt sem þú gafst
okkur og þín verður sárt saknað.
Sá sem er elskaður, hverfur
aldrei, jafnvel þó hann haldi á
brott. Minning hans lifir í hjört-
um þeirra sem unna.
Þorgeir Símonarson.
Elsku pabbi minn besti. Ég á
eftir að sakna þín svo mikið. Það
eru svo margar minningar sem
þjóta um huga minn nú, þú varst
alltaf til staðar fyrir mig, svo
traustur og góður. Það sem er
mér efst í huga nú er sá tími
sem við áttum saman sem er
ómetanlegur fyrir mig, ég lærði
svo margt af þér. Þú varst mað-
ur sem gafst aldrei upp, „upp-
gjöf“ var orð sem ekki var til í
þínum orðaforða, meira að segja
nú þegar þú varst upp á spítala
þá varst þú að skipuleggja
næstu daga og vikur. Ég keyrði
þig svo oft niður í Hátún þar
sem þú fórst á æfingu mörgum
sinnum í viku, þú varst svo
ákveðinn að koma þér í betra
form. Keppnisskapið og baráttu-
andinn smitaðist út frá þér.
Ég man vel eftir þegar þú
vaknaðir upp eftir veikindi þín
fyrir nokkrum árum, það var
snjór úti og þú spurðir „Er búið
Símon Símonarson
✝ Símon Sím-onarson fædd-
ist í Reykjavík 24.
september 1933.
Hann lést á hjarta-
deild Landspítalans
25. júli 2013.
Símon var jarð-
sunginn frá Dóm-
kirkjunni í Reykja-
vík 7. ágúst 2013.
að moka?“ Hafðir
miklar áhyggjur
hvort reksturinn
gengi ekki þótt þú
lægir á spítala. Það
lýsir þér svo vel því
þú hugsaðir alltaf
fyrst og fremst um
aðra, þú varst alltaf
tilbúinn til að rétta
fram hjálparhönd,
varst alltaf fyrstur
til að leysa úr
vandamálum. Við töluðum sam-
an nánast á hverjum degi og á
ég eftir að sakna þess að heyra
ekki frá þér. Ég er svo þakk-
látur og stoltur að hafa átt þig
að og vil ég þakka þér fyrir alla
þá góðu tíma sem við áttum
saman, elsku besti pabbi minn,
hvíl þú í friði. Þín verður sárt
saknað.
Þinn sonur,
Símon Ægir Símonarson.
„Skiptu um sæti við mig
frændi,“ sagði Símon föðurbróð-
ir minn við mig á aðfangadags-
kvöld á Vesturgötunni þegar
stórfjölskyldan settist niður við
hátíðaborðið hjá ömmu. Möndlu-
grauturinn var á borðum. Ég
fékk mína fyrstu möndlu þetta
aðfangadagskvöld og möndlu-
verðlaunin. Ekki var ég hár í
loftinu þegar þetta gerðist og
áttaði mig ekki á gjörningi
frænda míns fyrr en löngu
seinna, að hann hafði grun um
að mandlan væri á hans diski.
Þetta rifjast upp fyrir mér nú
þegar Símon Símonarson, föð-
urbróðir minn, er allur og er góð
lýsing á hvern mann hann hafði
að geyma.
Símon var frændrækinn og
þegar hann eignaðist fyrstu
fólksvagen bjölluna sína kom
hann á Laugateiginn og bauð
öllum í bíltúr. Ég var yngstur og
því settur í hólfið aftan við aft-
ursætið. Ekki man ég fjölda far-
þega en margir voru þeir og
frændi stoltur á nýja bílnum sín-
um.
Símon rak loftpressufyrirtæki
um árabil og unnum við frænd-
urnir, Hallur og ég, í sumar-
vinnu og í fríum frá skóla á loft-
pressu hjá honum, erfiðisvinna,
en gaman var að vinna með Sím-
oni á þessum tíma, sem keyrði
um keðjureykjandi á milli vinnu-
staða og skipulagði vinnuna frá
degi til dags.
Símon var yngstur fimm
bræðra sem allir eru látnir en
þeir voru Kristján, Gunnar,
Hallur og Kári og ólust þeir upp
á Vesturgötu 34, en Kári lést á
fyrsta ári. Auk þess átti hann
tvær systur, samfeðra, þær Sig-
ríði og Svövu, sem einnig eru
látnar. Margar fleiri myndir og
minningar fylla hugann þegar
þessi síðasti víkingur af Vest-
urgötunni kveður þennan heim
og ber þar hæst árangur hans í
brids, en hann varð síðast Ís-
landsmeistari í brids fyrir aðeins
fimm árum, þá 75 ára að aldri.
Far þú í friði, elsku frændi, og
takk fyrir samfylgdina.
Ég sendi Kristínu mínar inni-
legustu samúðarkveðjur svo og
börnum og barnabörnum.
Rúnar.
Elskulegur föðurbróðir minn
er látinn og farinn á vit nýrra
heimkynna. Frændi minn Símon
átti sérstakan sess í hjarta mínu,
því þegar ég missti föður minn
Gunnar aðeins fimm ára gömul
þá reyndist hann mér eins og
besti faðir.
Aldrei gleymi ég þeim stund-
um þegar ég sat í fanginu hans
og hann var að segja mér sögur,
þá kom sú tilfinning yfir mig að
ég ætti Símon og sú tilfinning
varði lengi í mínum huga. Tím-
inn leið og ég stækkaði og
þroskaðist en alltaf hélst þessi
yndislega vinátta okkar í milli.
Fermingarundirbúningur
minn var hjá frænda mínum
sem þá bjó ásamt fjölskyldu
sinni í Álfheimum og frá Lang-
holtskirkju fermdist ég svo að
hausti til. Ekki gleymi ég þeirri
stundu sem ég fór til ömmu
Ástu og var að kynna hana fyrir
vini mínum og síðar eiginmanni
honum Hrafni, en þá vildi svo
einkennilega til að Símon
frændi minn var þar staddur og
hafði komið við, en við settumst
öll niður og röbbuðum. Æ síðan
höfðu þau bæði mikil áhrif á
Hrafn minn.
Þegar ég gifti mig og eign-
aðist mitt fyrsta heimili í
Hveragerði þá kom frændi
minn einnig til skjalanna. Þá
átti hann vélaleigu og til stóð að
koma í Hveragerði og brjóta
heilmikið í stóru húsi. Símon
vildi kanna hvort ég myndi
treysta mér til að taka fyrir
hann kostgangara sem svo voru
nefndir í þá daga og gefa þeim
að borða. Við Hrafn vorum með
það á hreinu að fyrst Símon
treysti okkur til að gera það þá
mundi svo vera og þarna skap-
aði hann fyrir mig vinnu og
fékk ég borguð laun frá frænda
mínum þó ég væri heimavinn-
andi húsmóðir. Þetta fannst
mér snilld.
Svo elsku frændi minn, áður
en ég lýk við þessa frásögn
mína af vináttu okkar, þá langar
mig að þakka þér fyrir hjólið
sem þú gafst mér þegar ég
óvænt fékk vinnu við Heilsu-
hælið í Hveragerði.
Takk fyrir allar heimsóknirn-
ar í Hveragerði þegar þið Krist-
ín heimsóttuð okkur. Þær voru
yndislegar og skemmtilegar.
Síðan líður tíminn eða hreinlega
týnist eins og segir í laginu en
alltaf í hvert skipti sem við hitt-
umst og sáumst var þessi yndis-
lega tilfinning alltaf til staðar.
Sannur vinur og frændi. Það
var mér mikil ánægja að þú,
ásamt konu þinni Kristínu og
Halli Halls frænda, skylduð
sækja okkur Hrafn heim að
Másstöðum og í dag gleður það
mig innilega.
Við Hrafn og fjölskylda vott-
um Kristínu, eiginkonu Símon-
ar, börnum, barnabörnum og
öðrum aðstandendum okkar
dýpstu samúð.
Hafðu þökk fyrir allt, frændi
minn, ég veit eins og ég sit hér í
stólnum mínum og rita þessar
línur, að mér finnst eins og ég
gæti skrifað heila bók. Það hef-
ur verið vel tekið á móti þér við
vistaskiptin þín, frændi minn,
og nú eru margir af þinni kyn-
slóð farnir af okkar fólki. Nú
fyrir stuttu kvöddum við móð-
ursystur mína hana Stebbu
frænku mína, sem var gift bróð-
ur þínum honum Halli. Bið þig
um að skila kveðju frá okkur til
þeirra allra.
Við Hrafn óskum þér Guðs
blessunar og sendum þér um
leið í silkimjúkri slæðu kveðjur
frá okkur, börnum okkar og
barnabörnum. Hvíl í friði, elsku
frændi minn.
Þín frænka
Björk Gunnarsdóttir.
Símon Símonarson, stórmeist-
ari og stórvinur minn til margra
ára er fallinn frá. Við vorum
makkerar í brids í nokkur ár og
urðum Íslandsmeistarar og
Reykjavíkurmeistarar í sveita-
keppni. Símon var ótrúlegur
spilari og tók það nokkurn tíma
að læra á meistarann, en aldrei
var gefin tomma eftir hjá vini
mínum. Þau voru ófá spilin sem
við melduðum í Hamrahlíðinni,
það hefst ekkert nema með
vinnu, sagði Símon, og fara yfir
kerfið frá A-Ö. Að koma í
Hamrahlíðina var eins og að
koma heim, þvílíkar voru mót-
tökurnar alltaf hjá þeim hjónum,
Kristínu minni og Símoni. (Ég
held að ég hafi verið eins og einn
af börnunum.) Eins var í sum-
arhúsinu þeirra, þangað vorum
við ósjaldan boðin í lambalæri og
nokkur spil sem er og verður
ógleymanlegt.Við hjónin fórum í
parakeppni til Siglufjarðar og
Akureyrar og var stundum grát-
ið úr hlátri. Í dag búum við á
Spáni og komu þau til okkar
fjórum sinnum, þá var mikið
spilað og diskóterað, hlegið og
þorstanum svalað. Það mun taka
langan tíma að sætta sig við frá-
fall þessa litríka persónuleika.
Ég talaði við hann nokkrum
dögum áður en hann fór á spít-
ala í hinsta sinn. Þá sagði Símon:
hringdu í mig þegar þú getur
tekið nokkur spil. Húmorinn
alltaf í lagi og lífsviljinn. Svo
margar eru minningarnar að það
er efni í heila bók.
Elsku Kristín mín, hetjan
okkar. Símon Ægir, Þorgeir,
Davíð Örn, Jón Ingi og Magn-
ús.Vottum ykkur öllum innilega
samúð okkar.
Hvíl í Guðsfriði elsku vinur og
takk fyrir samfylgdina í gegnum
árin.
Sverrir Kristinsson SR, Sig-
ríður Blöndal og fjölskylda.
Fleiri minningargreinar
um Símon Símonarson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KRISTÍN H. KVARAN,
Kleifarvegi 1,
lést laugardaginn 27. júlí á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Grund.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 9. ágúst kl. 13.00.
Karítas Kvaran, Baldur Guðlaugsson,
Gunnar E. Kvaran, Snæfríður Þ. Egilson,
Einar G. Kvaran, Tinna Grétarsdóttir,
Ólafur Hrafnkell Baldursson, Charlotte Gerd Hannibal,
Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir,
Þórhildur Baldursdóttir
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSGERÐUR INGIMARSDÓTTIR,
Fróðengi 7,
áður Sigluvogi 3,
lést á Landspítalanum mánudaginn 5. ágúst.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 16. ágúst kl. 13.00.
Victor Ágústsson,
Sólveig Victorsdóttir,
Ágúst Victorsson, Ólöf Alfreðsdóttir,
Ingimar H. Victorsson, Sonja Jónasdóttir,
Victor Örn Victorsson, Rúna Stína Ásgrímsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
FREYSTEINN V. HJALTALÍN
frá Brokey,
Laufásvegi 12,
Stykkishólmi,
lést á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi
mánudaginn 5. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar.
Friðgeir V.Hjaltalín, Salbjörg Nóadóttir,
Laufey V. Hjaltalín, Þorsteinn Sigurðsson,
Guðjón V. Hjaltalín, Ásta Sigurðardóttir
og frændsystkini.
✝
Ástkær faðir minn,
BOLLI ÓLASON,
loftskeytamaður
og fyrrverandi yfirvarðstjóri
í Fjarskiptastöðinni í Gufunesi,
Skeiðarvogi 63,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni sunnudaginn 28. júlí,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 9. ágúst
kl. 11.00.
Gunnar Bollason.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR EYJÓLFSSON,
fyrrv. framkvæmdastjóri,
Ársölum 1,
Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 5. ágúst.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðrún Agnars Jónsdóttir,
Jón Sigurðsson, Hafdís Mjöll Búadóttir,
Eyjólfur Sigurðsson, Ágústa Harðardóttir,
Baldur Sigurðsson, Chipo Sigurðsson,
Torfhildur Sigurðardóttir
og fjölskyldur þeirra.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR HJALTALÍN JÓNSDÓTTIR,
áður til heimilis í Háagerði 21,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
mánudaginn 5. ágúst, verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju mánudaginn 12. ágúst
kl. 13.00.
Ingibjörg Helgadóttir, Eyjólfur Ingimundarson,
Pálmi Helgason, Hafdís Sigurðardóttir,
Helga S. Helgadóttir, Henning Andersen,
Jóhann B. Helgason, Halldóra Pétursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær systir okkar, mágkona og frænka,
GERÐUR ANTONSDÓTTIR,
Hlíf 2,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Ísafirði,
þriðjudaginn 30. júlí.
Útför hennar fer fram frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 10. ágúst kl. 14.00.
Guðný Antonsdóttir,
Vilhjálmur Antonsson, Elísabet Pálsdóttir,
Erla Pálsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Okkar ástkæri bróðir, mágur og föðurbróðir,
SIGURBJÖRN BENEDIKTSSON,
Bjössi,
Stigahlíð 54,
Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn 4. ágúst.
Útför fer fram frá Háteigskirkju miðviku-
daginn 14. ágúst kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélagið Ás.
Bergur Benediktsson, Ragnhildur Þórarinsdóttir,
Helgi Benediktsson, Kristín Helgadóttir
og bræðrabörn.