Morgunblaðið - 08.08.2013, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 08.08.2013, Qupperneq 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013 ✝ Vigdís SteinaÓlafsdóttir fæddist í Lækn- ishúsinu (hinu eldra) í Flatey á Breiðafirði 25. ágúst 1916. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Grund 25. júlí 2013. Vigdís var dóttir hjónanna Ólínu Jó- hönnu Pétursdóttur Hafliðason- ar Eyjólfssonar „Eyjajarls“, f. 1887, d. 1979, og Ólafs Jóns Ólafssonar, f. 1887, d. 1929. Vig- dís var fjórða í röðinni af þrett- án systkinum. Hin systkinin eru Sigríður Ingunn, f. 1912, d. 2011, Ólöf Pálína Ólafsdóttir Christiansen, f. 1914, d. 1965, Guðrún Aðalheiður, f. 1915, d. 1944, Hansína, f. 1918, d. 1941, Pétur Hafliði, f. 1920, d. 2009, Anna Ingibjörg,f. 1921, d. 1996, Jónas Guðmundur, f. 1921, Guð- Engilberts Arilíusar (Lillý). Ari- líus lést þegar Reykjaborgin var skotin niður í mars 1941. Eig- inmaður Ingibjargar er Ingólfur Jónsson. Þau eignuðust fjögur börn: Jón Arilíus, Örn Helga, d. 1979, Guðbjörgu Erlu og Hörð Gunnar. Þá eiga þau fimm barnabörn og eitt barna- barnabarn. Vigdís giftist seinni manni sínum, Herði Þorsteinssyni, 22. október 1942, og eignuðust þau þrjú börn: 1) Arilíus Engilbert, f. 1943, sem giftur er Jónu Harð- ardóttur. Arilíus á þrjá syni frá fyrra hjónabandi. Þeir eru Hörður Vignir, Jón Rúnar og Bergsveinn. Þá á Arilíus 10 barnabörn. 2) Kolbrún Ólöf, f. 1951, sem býr með Ólafi Sig- urðssyni. Kolbrún á þrjú börn frá fyrra hjónabandi. Þau eru: Ásbjörn Ólafur, Heiða Björk og Hörður. Þá á Kolbrún átta barnabörn. 3) Hafsteinn, f. 1954, sem er giftur Amalíu Árnadótt- ur. Þeirra synir eru: Árni Ólaf- ur, d. 1981, Hörður Birgir, Sæv- ar Örn og Ólafur. Þá á Haf- steinn þrjú barnabörn. Vigdís verður jarðsungin frá Langholtskirkju í dag, 8. ágúst 2013, og hefst athöfnin kl. 13. rún Karlsdóttir, f. 1922, d. 1959, Sig- urrós (Rósa), f. 1924, Gísli, f. 1926, d. 2002, Sveinberg Skapti, f. 1927, og Ólöf Jóna (Lóló), f. 1929. Þegar Vigdís var fjögurra ára gömul fluttist fjölskyldan til Stykkishólms og síðan nokkrum ár- um seinna til Reykjavíkur. Árið 1929, þegar móðir hennar gekk með yngsta barnið, dó faðir hennar af slysförum. Því voru snemma gerðar miklar kröfur til systkinanna að hjálpa til við heimilishaldið og einkenndist líf Vigdísar af vinnusemi og dugn- aði. Þann 31. október 1940 giftist Vigdís fyrri eiginmanni sínum, Arilíusi Engilbert Guðmunds- syni og árið 1934 eignuðust þau dótturina Ingibjörgu Sigríði Hún var amma frænda okkar, strákanna „úti í húsi“, sem við ól- umst upp með, svo við kölluðum hana alltaf ömmu Viggu. Það var alltaf tilhlökkun um miðjan des- ember ár hvert, þá kom amma Vigga norður, hress og kát. Hún kom alltaf með nammidós sem gaman var að komast í og jóla- pakka sem voru óborganlegir, ekki endilega stórir, en sniðugir og mikið hlátursefni. Í mörg ár fengum við líka að fara með Viggugenginu út í Flatey á Breiðafirði. Þaðan eigum við mörg albúm af myndum sem teknar voru, sem alltaf er gaman að skoða og rifja upp minningar sem við eigum þaðan. Amma Vigga talaði eins og sjóari, ekki beint ömmulega, en passaði henni vel. Þó var hún alltaf flott og fín með lakkaðar neglurnar, varalituð og setti upp grænan hatt. Meira að segja þeg- ar hún fór út á snúru, ekki al- geng sjón í sveitinni það. Amma Vigga var stórbrotinn persónuleiki og vorum við heppnir að hún var hluti af lífi okkar og starfi og munum við aldrei gleyma þeim minningum sem við eigum um hana. Blessuð sé minning ömmu Viggu. Víðimelsbræður yngri, Árni, Rúnar, Feykir og Logi Sveinssynir. Ég hef aldrei getað ímyndað mér heiminn án ömmu Viggu, Vigdísar Ólafsdóttur, sem nú hefur kvatt okkur í hárri elli. Hún var stór hluti af mínum heimi, raunar algjört ofurmenni. Ég hélt að hún yrði eilíf og get ekki ímyndað mér heiminn án hennar. Ellin tók ekkert frá henni. Hún var alltaf jafn lífleg og skemmtileg sama hvað hrjáði hana. Það var alltaf jafn stutt í grínið. Ég gleymi ekki stundunum þegar hún passaði mig. Við horfðum oft á Derrick, átum suðusúkkulaði og kóngabrjóst- sykur. Hún var alltaf búin að leysa gátuna strax í byrjun þátt- anna en hafði yfirleitt rangt fyrir sér. Við brutum saman lök og fægðum silfrið hennar mömmu. Þetta eru frábærar stundir í minningunni. Hún var svo skemmtileg og fyndin, sagði manni til syndanna með hressi- legu orðbragði. Um leið lagði hún mér lífsreglurnar, kenndi mér að koma fram við fólk af umburð- arlyndi og góðmennsku. Hún gerði margar tilraunir til að kenna mér Faðirvorið en það gekk frekar brösuglega. Það var alltaf jafn gott að koma til hennar í litlu huggulegu íbúðina við Lindargötuna. Þar var minn griðastaður. Maður skildi áhyggjurnar eftir við dyrn- ar og slappaði af. Það var spjall- að um allt milli himins og jarðar. Amma lét skoðanir sínar óspart í ljós og sagði hlutina hreint út. Margt af því var svo skemmtilegt að það er enn haft eftir. Hún sagði mér sögur úr barnæsku sinni, af lífsbaráttu fyrri tíma, sögur af systkinunum þrettán sem fluttu frá Flatey til Reykja- víkur. Ég er ótrúlega þakklátur fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman og að hafa átt jafn frábæra ömmu og Vigga amma var. Ég á alltaf eftir að sakna þess að geta ekki komið til henn- ar á Lindargötuna, fengið kaffi og spjallað við hana um heima og geima. Heimurinn er fátækari án hennar, og þó að hún sé farin á minningin um hana og sögurnar af henni eftir að lifa. Ég er líka þakklátur fyrir að hún fékk að sjá nýfædda dóttur mína, lang- ömmubarn sitt, og halda á henni undir lokin. Dóttur minni mun ég segja sögur af ömmu Viggu. Þær eru margar og stórkostlegar, enda einstök kona. Takk fyrir allt elsku amma. Hörður Ásbjörnsson. „Jæja, þá er að fá sér bensín,“ var viðkvæðið hjá Viggu þegar hún hafði verið á fullu um stund og fékk sér sígarettu – þá var hún tilbúin að halda áfram. Það voru forréttindi að þekkja Viggu, en við systurnar höfum þekkt hana frá því við vorum litlar stelpur. Hún var ein af fáum sem reyktu inni á heimili okkar og því vissum við um leið og reykinga- lykt fannst í húsinu að Vigga væri komin. Þessi litla, svip- sterka, granna kona sem hafði lifað tímana tvenna, fædd í torfbæ og alin upp á gæðum Breiðafjarðar, var dugnaðarfork- ur, einkar skemmtileg, hrein og bein – svo sannarlega með munn- inn fyrir neðan nefið. Við misst- um helst ekki af því að taka þátt í samræðum þegar hún var annars vegar. Vigga hafði sterkar skoðanir og var sannur jafnaðarmaður. Hún var alltaf reiðubúin að létta undir þegar mikið stóð til hjá okkur. Það var ánægjulegt að kíkja til hennar og fræðast um fyrri tíð, lífsreynslu hennar og ræða málefni líðandi stundar. Þrátt fyrir aldursmun var hún alltaf eins og unglingur, jafnan hnyttin og skemmtileg í tilsvör- um. Ógleymanlegt er þegar hún þáði blómafrævlana sem sam- kvæmt þáverandi tískustraum- um áttu að auka lífsgæði, langlífi og vera allra meina bót. Nokkru seinna hringdi síminn og á lín- unni var Vigga: „Ætlaðir þú að drepa mig, skömmin þín,“ sagði hún á sinn kankvísa hátt. Vigga, sem sjaldan kenndi sér meins og kvartaði aldrei yfir nokkrum sköpuðum hlut, var orðin alveg ómöguleg – svo hún leitaði lækn- is. „Ertu að taka eitthvað inn,“ spurði læknirinn, „eða borða eitt- hvað sem þú ert ekki vön að borða?“ „Nei,“ sagði Vigga, „ekkert!“ Allt í einu rifjuðust upp fyrir henni bölvaðir blómafrævl- arnir. Hún hafði þá svona rosa- legt ofnæmi fyrir þeim. Við gæt- um sagt ótal skemmtilegar sögur af Viggu en við geymum þær með okkur. Fjölskylda Viggu var stór og samhent og vinahópurinn ein- staklega fjölbreyttur. Hún var hrókur alls fagnaðar hvar sem hún fór. Vigga var sterkur per- sónuleiki, drakk sterkt kaffi, reykti sterkar sígarettur og sló hendinni ekki á móti sterkum drykk á góðri stundu. Við þökk- um Viggu ógleymanlega samferð í lífinu og vottum fjölskyldu hennar samúð á kveðjustundu. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Guðrún Jóhannesdóttir. Móðursystir mín, Vigdís Steina Ólafsdóttir, var aldrei kölluð annað en Vigga. Hún var móðir Lillýjar (Ingibjargar Sig- ríðar), Búbba (Arilíusar Engil- berts), Kollu (Kolbrúnar Ólafar) og Hafsteins. Samgangur fjöl- skyldna okkar og samhjálp voru mikil. Lillý passaði mig þegar ég var lítill. Búbbi var stóri frænd- inn og fyrirmyndin. Kolla og Hafsteinn voru leikfélagar okkar bræðranna og gistu stundum hjá okkur. Vigga, eiginmaður henn- ar, Hörður, og eitt eða fleiri af börnunum komu oft í heimsókn til okkar og við til þeirra. Vigga og fjölskylda áttu sum- arbústað í Mosfellsdal við Lax- nes handan við þjóðveginn frá Gljúfrasteini. Þangað voru þau iðulega heimsótt á sumrin og ferðast með rútunni. Var þá oft mannmargt og glatt á hjalla, enda Vigga og fjölskylda höfð- ingjar heim að sækja. Við krakk- arnir veiddum smásilunga í ánni og busluðum í henni þess á milli. Er leið á sumarið var gengið til berja og bláberjaskyr í kvöld- mat. Um haustið voru teknar upp kartöflur. Vigga var jafnan fyndin, hnyttin í tilsvörum og iðulega snögg upp á lagið. Af þessum sökum lögðum við krakkarnir ætíð við eyrun þegar hún var annars vegar og þótti þó stund- um nóg um. Frægt er þegar Nóbelsskáldið, nágranni hennar, spurði hana eitt sinn hversu margar af bókum hans hún hefði lesið. „Nú, eins margar og þú hefur gefið mér“, kvað sam- stundis í Viggu. Þótti skáldinu fullsvarað og spurði ekki frekar. Nú hefur Vigga kvatt okkur 97 ára að aldri. Ég kann henni bestu þakkir fyrir alla lífsspekina sem hún kenndi mér og ánægju- stundirnar fjölmörgu í hennar návist. Ragnar Árnason. Vigdís Ólafsdóttir frænka mín er látin á 97. aldursári. Þó það sé hár aldur var hún aldrei gömul, þvert á móti þá var hún síung, hress og skemmtileg þar til yfir lauk. Vigga heillaði alla sem kynnt- ust henni bæði börn og fullorðna. Ég var svo heppin að vera henni samferða og eiga með henni margar skemmtilegar og ógleymanlegar stundir. Seint gleymist það þegar hún og mamma mín lögðu land undir fót og heimsóttu mig þegar ég bjó í Árósum í Danmörku. Þar sló Vigga í gegn bæði meðal Ís- lendinga sem þarna voru og með- al innfæddra þó hún væri ekki sleip í dönskunni. En tungumála- örðugleikar voru ekki hindrun fyrir Viggu. Þær stöllur tóku þátt í að halda upp á þrítugs- afmæli mitt og þá var mikið stuð. Vigga var með svartan barða- stóran hatt og dansaði tangó við frægan óperusöngvara sem heill- aðist af Viggu eins og allir aðrir Vigga vann sem húshjálp á ýmsum heimilum í Reykjavík. Hún kom m.a. heim til fjölskyldu minnar. Mætti þá með svuntu og inniskó í poka og fægði og púss- aði. Hún flautaði gjarnan við vinnu sína en hún komst ekki í stuð fyrr en hún var búin að kveikja sér í sígarettu og fá kaffi- bolla. Þá var óborganlegt að hlusta á hana segja sögur og glettast við heimilisfólkið. Hún tók líka slátur með okkur og leiðbeindi okkur um slátur- gerð. Þegar Vigga hætti að taka slátur féll sláturgerð niður á heimilinu. Það fannst Viggu heldur betur slappt og skammaði okkur fyrir aumingjaganginn. En það var bara ekkert gaman eftir að hún hætti að taka þátt. Þegar Vigga varð áttræð hélt hún stórkostlega veislu í Flatey á Breiðafirði og bauð yfir 100 manns. Hún leigði bústaði í eyj- unni svo allir gestir höfðu sitt at- hvarf og svo var veislan haldin í samkomuhúsinu. Þarna skemmt- um við okkur fram undir morgun með afmælisbarnið í broddi fylk- ingar. Þetta er stórkostlegasta afmælisveisla sem ég hef tekið þátt í. Vigga var ekki rík af verald- legum auð. Hún átti góðan mann sem hún missti þegar hann var á besta aldri og hún á fjögur glæsi- leg og dugleg börn sem hún var mjög stolt af. Þau hafa stutt hana eftir að elli kerling fór að taka af henni völdin. Stuðningur þeirra gerði henni kleift að búa út af fyrir sig, það var henni mikils virði. Síðustu dagana sem hún lifði dvaldi hún á elliheimilinu Grund. Þar heimsótti ég hana tveimur dögum áður en hún dó. Hún var þakklát og sátt. Þannig kvaddi þessi stórbrotna kona mig. Hún skilur eftir sig stórt tómarúm og verður ógleymanleg öllum sem kynntust henni. Far þú í friði elsku Vigga. Ingibjörg Pétursdóttir. Vigga var amma allra barna sem kynntust henni. Hún var Vigga í Viggukofa, meinlætaleg- um en notalegum sumarbústað úti í holti, rétt hjá æskuheimili mínu í Mosfellsdalnum. Okkur systkinunum fannst Vigga ein sú skemmtilegasta kona sem við höfðum komist í kynni við. Okkur fannst það enn þegar við urðum fullorðin. Hún Vigga var nefnilega með ein- dæmum skemmtileg. Orðheppin, eldfljót að hugsa og með ráð und- ir rifi hverju; þvengmjó og kvik með grallaraglampa í skörpum augum. Þannig skikkaði hún skapvont barn til að hlaupa þrjá hringi í kringum húsið og þamba svo glas af ísköldu vatni svo rynni af því fýlan. Og viti menn! Ráðið snarvirkaði. Barnið valt skellihlæjandi inn í eldhús og þá hló nú Vigga manna hæst, sló sér á lær og tendraði filterslausa úlf- aldasígarettu sem hún vingsaði upp úr rauðu sígarettuveski með gylltri smellu. Gott ef hún teygði sig ekki í gamla dollu undan Makintosskaramellum og bauð barninu að velja sér gotterí: suðusúkkulaðimola, brjóstsykur eða súkkulaðihúðaða rúsínu. Hún átti alltaf gotterí í doll- unni og þannig fékk hún börnin til að háma í sig gulan saltfisk með hömsum og ljósgrænan rab- babaragraut, þau borðuðu allt sem Vigga lagði á borð í von um sætan mola á tunguna eftir mat- inn – og kannski líka kennslu- tíma í kapal eða einhverju öðru exótísku spilastokksspili. Hún fékk þessi sömu börn til að laga til í herberginu sínu, nokkuð sem enginn annar gat, það var nefnilega svo gaman að taka til með Viggu og sortéra allt draslið í kassa þangað til það varð aftur jafn spennandi og í af- mælis- eða jólapakkanum forð- um. Hún Vigga gerði alltaf allt fínt í helgarvisitunum, svo fínt að einu sinni drap Ajax-skýið finkur barnanna í fuglabúrinu sínu. Þá átti hún Vigga aldeilis ekki til eitt aukatekið orð! Hún var lífskrafturinn upp- málaður og fram eftir öllum aldri dinglaði hún grönnum fæti í hnjásokkum og rauðum háhæl- uðum skóm, klædd í sitt fínasta púss meðan það var horft á spa- gettívestra eða Júróvisjón. Reykjandi og kjaftandi, hæst- ánægð þegar mamma setti rúllur í hárið á henni. Svo skemmtileg að þegar foreldrar barnanna voru búin að dressa sig upp til að nýta Vigguvistið 101% þá gleymdu þau þorrablótinu eða merkisafmælinu og sátu bara heima, kjaftandi við hana Viggu í skínandi hreinu húsi sem angaði af Ajaxi, hamsatólg og römmu tóbaki. Auður Jónsdóttir. Vigdísi S. Ólafsdóttur þekkti ég alla mína tíð. Barn lék ég mér við krakkana hennar, ung kona leitaði ég til hennar, börnin mín fæddust og Vigga varð mér styrkur, gleði og ómissandi vinkona. Aldursmunur skipti ekki nokkru máli, að öðru leyti en því að lífsreynsla hennar gerði smá- munasemi reynslutæprar ungrar móður óttalega „banala“. Ég sogaði í mig styrk hennar og bý að honum þangað til þar að kem- Vigdís Steina Ólafsdóttir ✝ Útför ÁSDÍSAR HARALDSDÓTTUR fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 9. ágúst kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á gjörgæsludeild LSH, bankaupplýsingar: 111-26-1990, kt. 470307-0990. Þorvaldur Ragnarsson, Ásthildur Þorvaldsdóttir, H. Jóna Þorvaldsdóttir, Jón Diðrik Jónsson, Anna María Þorvaldsdóttir, Jónas Halldórsson, Á. Inga Haraldsdóttir, Hafsteinn Reykjalín, barnabörn og langömmubörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, INGU ÓLAFÍU HARALDSDÓTTUR, Brekkuskógum 6, Álftanesi. Jón Gunnar Gunnlaugsson, Halla Jónsdóttir, Snorri Jósefsson, Áslaug Guðný Jónsdóttir, Jón Gíslason, Haraldur Gunnar Jónsson, Linda Hrönn Guðnadóttir og barnabörn. ✝ Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts elsku mömmu, tengdamömmu og ömmu, ELÍNAR ODDNÝJAR KJARTANSDÓTTUR, Básbryggju 1, sem lést föstudaginn 26. júlí. Útför Elínar hefur farið fram, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á söfnunarátakið Hollvinir Grensásdeildar. Valdís Jóhannsdóttir, Gauti Alexandersson, Bjarki Jóhannsson, Hafdís Haraldsdóttir og barnabörn. ✝ Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, STEFÁNS JÓNSSONAR. Esther Garðarsdóttir, Rúna Gerður Stefánsdóttir, Helgi Ó. Víkingsson, Pétur Hafsteinn Stefánsson, Áslaug Sigurðardóttir, Íris Alda Stefánsdóttir, Heimir V. Pálmason, afabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.