Morgunblaðið - 08.08.2013, Síða 30

Morgunblaðið - 08.08.2013, Síða 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013 Hildur Helga Sigurðardóttir blaðamaður fagnar 57 ára af-mæli sínu í dag. Hún segist ekki vön að gera mikið úr af-mælisdögum nema þá ef aðrir koma henni skemmtilega á óvart. „Fimmtugsafmælinu eyddi ég í París með vinum og fjöl- skyldu og það var afskaplega vel við hæfi enda er París mín uppá- haldsborg og þar hef ég ávallt kunnað vel við mig,“ segir Hildur Helga. Spurð að því hvort hún eigi von á einhverjum gjöfum í tilefni dagsins segir hún það þurfa að fara eftir ímyndunarafli þeirra sem næst henni standa þar sem henni detti aldrei neitt í hug þegar hún er spurð hvað hana langi í afmælisgjöf. „Sú afmælisgjöf sem ég held mest upp á er stór hvítur bangsi sem Sigurður faðir minn gaf mér einhvern tímann þegar hann kom heim af Norðurlandaráðsfundi í Svíþjóð og heitir Áttundi ágúst,“ segir Hildur Helga en hún segist ennþá eiga bangsann. „Ég man þegar ég var ungur blaðamaður á Mogganum, þá var eitthvert fólk í kringum mig á ritstjórninni að verða fertugt og ég skildi ekki af hverju blessað fólkið var að mæta aftur í vinnuna, mér fannst þetta vera svo óskaplega hár aldur,“ segir Hildur Helga sem bendir á að aldur sé afstæður. Spurð út í blaðamannaferil sinn segir Hildur Helga að sér hafi þótt mikil breyting að fara af blaði yfir í út- varp og síðan úr útvarpi yfir í sjónvarp og upphaflega hafi sér fund- ist líkt og hún væri einungis að orðskreyta myndir. „Svo lærðist mér það með tímanum að þeim mun meira sem maður getur stytt mál sitt þeim mun betra,“ segir Hildur Helga. skulih@mbl.is Hildur Helga Sigurðardóttir er 57 ára í dag Morgunblaðið/Eggert Forsetaframbjóðandi Hildur Helga Sigurðardóttir ásamt Þóru Arn- órsdóttur á góðri stundu á Marina hótelinu við Reykjavíkurhöfn. Bangsinn Áttundi ágúst í uppáhaldi Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Reykjavík Gabríel Þór fæddist 5. október kl. 18.48. Hann vó 3.270 g og var 51 cm langur. For- eldrar hans eru Anný Rós Ævarsdóttir og Gísli Ragnar Lúth- ersson. Nýr borgari Þórhildur Helga Pálsdóttir hélt tom- bólu fyrir utan Nóatún í Austurveri. Hún safnaði 2.021 kr. til styrktar Rauða krossinum. Hlutavelta Íris Þöll Hróbjartsdóttir hélt tombólu fyrir utan 10-11 í Laugardalnum. Hún safnaði 10.122 kr. til styrktar Rauða krossinum. E lín fæddist á prest- setrinu Miklabæ í Blönduhlíð í Skaga- firði en flutti fimm ára með foreldrum að Sunnuhvoli í sömu sveit. Hún var í barnaskóla í Sólheimagerði, stundaði nám við Héraðsskólann á Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu, lauk hússtjórnarprófi frá Hús- mæðraskólanum á Laugarvatni og hússtjórnarkennaraprófi frá Hús- stjórnarkennaraskóla Íslands í Reykjavík 1947. Þá stundaði hún framhaldsnám í hússtjórnar- og hótelfræðum í Suhr husholdnings- skole í Kaupmannahöfn og sótti fjölda námskeið í hússtjórn. Elín var hússtjórnarkennari við Húsmæðraskólann á Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu og stýrði Sumarhótelinu á Laugum ásamt eiginmanni sínum, Óskari Ágústs- syni, í hartnær 20 ár. Þau ráku einnig Verslun Óskars Ágústs- sonar á veturna og Elín starfaði hjá Pósti og síma á Laugum. Auk verslunarstarfa og íþróttakennslu var Óskar póstmeistari á staðnum. Í félagsstörfum og ferðalögum Elín þurfti ósjaldan að reiða fram kaffi og veislukost vegna fé- lags- og fundarstarfa Óskars, en hann var mikill félagsmálamaður, m.a. formaður Héraðssambands Suður-Þingeyinga í rúm 20 ár. Elín og Óskar ferðuðust víða, m.a. um öll Norðurlöndin, óku um Evrópu, ferðuðust um Bandaríkin, til Afríku, Grænlands, Spánar og Kanaríeyja. Elín starfaði með Kvenfélagi Reykdæla og Sam- bandi þingeyskra kvenna og tók þátt í mörgum uppfærslum leik- verka með leikdeild Ungmenna- félagsins Eflingar. Hún starfaði með Skógræktarfélagi Reykdæla, Elín Friðriksdóttir, fyrrv. hússtjórnarkennari að Laugum – 90 ára Kátur systkinahópur Börn Elínar og Óskars, talin frá vinstri: Knútur; Hermann, Una María og Ágúst. Kenndi hússtjórn og hélt hótel á Laugum Á góðri stund Elín og Óskar. Myndin var tekin á sjötugsafmæli hans, 1990. Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 1.695 frá 2.995 Sonax vörur í úrvali 1.799799 2.995 995 399 10 stk 1.895 Barnaskóflur 795 stk 1.795 250 9.995 Tilboð 14.995 4.995 frá 1.695 Skóflur og garðáhöld í miklu úrvali málning, penslar og íblöndunarefni ótal stærðir 9.895 Trönur á gólf Allt til listmálunar Blindrammar Mikið úrval listavara

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.