Morgunblaðið - 08.08.2013, Side 31

Morgunblaðið - 08.08.2013, Side 31
ræktaði blóm, tré og matjurtir og stundaði margskonar hannyrðir. Hún hefur nú nýlokið við að hekla ungbarnateppi og vinnur að skrá- setningu æviminninga sinna. Fjölskylda Eiginmaður Elínar var Óskar Ágústsson, f. 8.11. 1920, d. 27.7. 2011, íþróttakennari, hótelstjóri og kaupmaður á Laugum Foreldrar hans voru Ágúst Jónsson , f. 5.8. 1877, d. 10.7. 1954, bóndi í Sauð- holti í Holtum í Rángárvallasýslu, og María Jóhannsdóttir, f. 9.3. 1880, d. 11.3. 1958, húsfreyja í Sauðholti. Börn Elínar og Óskars eru Friðrik Ágúst Óskarsson, f. 13.5. 1949, kaupmaður, búsettur í Mos- fellsbæ en kona hans er Helga Sigurðardóttir kaupmaður og er sonur Ágústar úr fyrra sambandi, Óskar Örn f. 12.4.1973, viðskipta- fræðingur, en börn Ágústar og Helgu eru Silja Rán, f. 5.9. 1978, efnafræðingur, og Heiðar Reyr, f. 18.3. 1983 viðskiptafræðingur; dr. Hermann Óskarsson, f. 7.2. 1951, dósent á Akureyri en kona hans er Karín María Sveinbjörnsdóttir framhaldsskólakennari og eru börn þeirra Arnar Freyr, f. 28.4. 1985, og Sylvía Ósk 24.10. 1994, en stjúpbörn Hermanns eru Árni Þór Erlendsson, f. 15.5. 1976, og Harpa Ýr Erlendsdóttir, f. 9.2. 1978; Knútur Óskarsson, f. 23.2.1952, viðskiptafræðingur, bú- settur í Mosfellsbæ en kona hans er Guðný Jónsdóttir sjúkraþjálfari og eru dætur þeirra Heiða Berg- lind, f. 1972, sjúkraþjálfari, Tinna Elín, f. 1979, hjúkrunarfræðingur, Edda Rún f. 1983, kennari, og Jana Katrín f. 1986, hjúkr- unarfræðingur; Una María Ósk- arsdóttir, f. 19.9. 1962, BA, MPH, varabæjarfulltrúi Framsókn- arflokksins í Kópavogi og forseti Kvenfélagasambands Íslands en maður hennar er Helgi Birgisson hrl., og eru börn þeirra Elín Ósk, f. 20.2. 1984, hdl., Birgir Ólafur, f. 18.10. 1992, háskólanemi, og Diljá, f. 11.7. 1994, nemi í VÍ. Langömmubörn Elínar eru nú 16. Systkini Elínar: Sigurður, f. 11.9. 1924, d. 26.10. 1997, bóndi á Stekkjarflötum í Austurdal í Skagafirði; Helga, f. 25.3. 1927 d. 21.8. 1961 húsfreyja á Sauð- árkróki; Friðrik, f. 12.5 1928, múr- ari í Mosfellsbæ; Þórunn, f. 30.10. 1929, húsfreyja og fyrrv./ ráðskona, nú búsett í Gegnishólap- arti í Árnessýslu; Hallgrímur, f. 10.10. 1931, húsasmíðameistari í New York; Guðný, f. 15.6. 1934, d. 7.5. 2006, húsfreyja og bóndi í Hjallalandi í Skagafirði; Halldóra Sigríður, f. 18.1. 1936, versl- unarmaður í Ørsta og Osló í Nor- egi; Halldóra Ingibjörg, f. 27.9. 1937, íþróttakennari í Reykjavík; Árni Húnfjörð, f. 6.6. 1939, bú- fræðingur, nú í Hveragerði; Bjarni Leifs, f. 5.7. 1940, d. 3.2. 2009, bóndi í Sunnuhvoli í Skagafirði; Guðrún, f. 9.3. 1943, bóndi og hús- freyja í Breiðanesi í Reykjadal. Foreldrar Elínar voru Una H. Sigurðardóttir, f. 25.10. 1898 d. 10.1. 1979, húsfreyja og bóndi í Sunnuhvoli í Blönduhlíð í Skaga- firði, og Friðrik Kristján Hall- grímsson, f. 14.1. 1895 d. 30.5. 1990, bóndi í Sunnuhvoli. Elín fagnar afmælinu með nán- ustu fjölskyldu sinni á Hótel Sögu. Úr frændgarði Elínar Friðriksdóttur Elín Friðriksdóttir Una Jóhannesdóttir húsfr. í Syðra-Tungukoti Halldór Jónsson b. í Syðra-Tungukoti í Blöndudal Halldóra S. Halldórsdóttir húsfr. í Kambakoti Sigurður Árni Davíðsson b. í Kambakoti á Skagaströnd Una H. Sigurðardóttir húsfr. í Sunnuhvoli Sigríður Þorvarðardóttir húsfr. á Sneis Davíð Árnason b. á Sneis í Laxárdal fremri Guðrún Pálsdóttir húsfr. í Stóradal í Eyjafirði Jóhann Jóhannesson b. í Hvassafelli og Stóradal Helga Jóhannsdóttir húsfr. í Sunnuhvoli Hallgrímur Friðriksson b. og smiður í Sunnuhvoli Friðrik Kristján Hallgrímsson b. í Sunnuhvoli í Skagafirði Guðrún Magnúsdóttir húsfr. í Syðra-Gili í Eyjaf. Friðrik Vigfússon b. í Syðra-Gili í Eyjaf. Árni Hallgrímsson ritstj. og eigandi Iðunnar Þorbjörg Hallgrímsdóttir húsfr. á Þverá Bernharð Stefánsson alþm. og bankastjóri Afmælisbarnið Elín Friðriksdóttir. ÍSLENDINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013 Aðalheiður Bjarnfreðsdóttirfæddist á Efri-Steinsmýri íMeðallandi 8.8. 1921. For- eldrar hennar voru Bjarnfreður Ingimundarson, bóndi á Efri- Steinsmýri, og k.h., Ingibjörg Sig- urbergsdóttir húsfreyja. Bjarnfreður var sonur Ingimund- ar Árnasonar og Sigurveigar Vigfús- dóttur. Móðursystir Aðalheiðar var Gíslrún, móðir Sigurbjörns Ein- arssonar biskups. Meðal 19 systkina Aðalheiðar var Magnús Bjarnfreðsson, fréttamaður og dagskrárgerðarmaður. Fyrri maður Aðalheiðar var Ant- on Júlíus Ólafsson, sjómaður og smiður í Vestmannaeyjum og eign- uðust þau fimm börn. Seinni maður hennar var Guðsteinn Þorsteinsson, verkamaður í Reykjavík Aðalheiður ólst upp við fátækt og naut barnaskólafræðslu í Meðallandi í einungis fjögur ár. Hún var vinnu- kona í Reykjavík, fiskvinnslukona í Vestmannaeyjum á stríðsárunum, vann á sjúkrahúsinu í Eyjum 1944- 49, var verkakona í Reykjavík 1958- 59, bréfberi í Reykjavík 1960-63, húsfreyja í Köldukinn í Holtum 1963-74 og verkakona í Reykjavík 1974-76. Lífið var ekki dans á rósum fyrir Aðalheiði. Hún missti barn úr berkl- um, varð sjálf berklaveik um nokk- urra ára skeið og missti hús sitt í bruna. Engu að síður varð hún skel- eggur málsvari verkakvenna og barðist fyrir ýmsum réttindamálum. Hún var formaður Verkakvenna- félagsins Snótar í Vestmannaeyjum 1945-49, formaður Starfsmanna- félagsins Sóknar 1976-87, sat í stjórn ASÍ og var alþingismaður Reykvík- inga fyrir Borgaraflokkinn 1987-91. Þá átti hún sæti í ýmsum nefndum og sat í stjórn atvinnuleysistrygg- inga og í bankaráði Búnaðarbank- ans. Eftir Aðalheiði er skáldsagan Myndir úr raunveruleikanum, 1979, og ævisaga hennar, Lífssaga bar- áttukonu, var skráð af Ingu Huld Hákonardóttur 1985. Aðalheiður var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1.1. 1980. Aðalheiður lést 26.4. 1994. Merkir Íslendingar Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir 104 ára Ingrid Sigfússon 95 ára Bergþóra Jónsdóttir 85 ára Albert Þorsteinsson 80 ára Davíð Haraldsson Jóhann Gíslason Laufey Jóhannesdóttir Sigurður Kr. Jónsson 75 ára Elvar Bjarnason Haraldur Hafsteinn Jónsson Hrafnkell Kárason Leifur Gíslason Margrét B. Valdimarsdóttir Ólafur Sigurþórsson 70 ára Björgvin Magnússon Unnur Ragnars 60 ára Aðalheiður Einarsdóttir Ásdís Svala Pálsdóttir Bjarni K. Jóhannsson Edith Randý Ásgeirsdóttir Friðrik Guðlaugsson Guðbjörg Halla Björnsdóttir Gunnar Hermannsson Helga Guðmundsdóttir Hinrik Gunnarsson Ingvar Guðfinnur Samúelsson Jón Trausti Leifsson Kristjana Jóhanna Eyvindsdóttir Sigmar Sigurður Björnsson Snorri Júlíus Snorrason Svandís Matthíasdóttir Svanhvít Halla Pálsdóttir 50 ára Alvydas Sauka Bozena Okninska Guðni Hannesson Heiðrún Brynja Ólafsdóttir Inga Þorvaldsdóttir Ingibjörg Oddný Karlsdóttir Koert Hensema Kristinn Jónsson Kristján Þórðarson Markús Heimir Guðmundsson Ólafur Arnar Árnason Sigríður Elín Thorlacius Svavar Kristmundur Sigurðsson Þórður Ottósson Björnsson 40 ára Andrzej Mariusz Dzerzanowski Anita Locika Gígja Heiðrún Óskarsdóttir Guðmundur Víðir Gíslason Guðrún Elfa Tryggvadóttir Jared Tarkan Conger Kristján Geir Guðmundsson Marek Wiekiera Óskar Ólafur Arason Sigurborg Ýr Óladóttir Þröstur Freyr Bjarkason 30 ára Almar Freyr Valdimarsson Árbjört Bjarkadóttir Bjarney Rós Guðmundsdóttir Helgi Einarsson Ingólfur Kári Ólafsson Páll Daði Ásgeirsson Sandra Björk Ólafsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Tinna ólst upp í Kópavogi, er nú búsett í Kópavogi og starfar við leikskóla þar. Maki: Magnús Þór Sig- mundsson, f. 1982, húsa- og bifreiðasmiður. Börn: Illugi Þór, f. 2002; Kristín María, f. 2006, og Óliver Þór, f. 2008. Foreldrar: Illugi Örn Björnsson, f. 1962, pípu- lagningarmaður og Fanný María Ágústsdóttir, f. 1951, stuðningsfulltrúi. Tinna María Illugadóttir 40 ára Helga ólst upp í Vestmannaeyjum, lauk kennaraprófi frá KHÍ og er kennari við Grunnskóla Grindavíkur. Maki: Heimir Örn Haf- steinsson, f. 1971, stýri- maður hjá HAFRÓ. Börn: Kristján Ari, f. 1998; Nói, f. 2003, og Mía Ágústa, f. 2009. Foreldrar: Kristján Gunn- ar Ólafsson, f. 1945, og Magnúsína Ágústsdóttir, f. 1946. Helga Kristjánsdóttir 30 ára Bjartey ólst upp í Vestmannaeyjum, lauk kennaraprófi frá HA og kennir við Grunnskólann í Vestmannaeyjum. Maki: Sæþór Gunnars- son, f. 1983, bílamálari. Börn: Bjartey Ósk Sæ- þórsdóttir, f. 2009. Foreldrar: Guðrún Er- lingsdóttir, f. 1962, há- skólanemi, og Gylfi Sig- urðsson, f. 1959, húsasmiður og hús- vörður. Bjartey Gylfadóttir við elskum skó VELKOMINN Í BATA SMÁRALIND Skoðið úrvalið á bata.is Vertu vinur á GÖTUMARKAÐURTvö verð: 4900 kr. og 2900 kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.