Morgunblaðið - 08.08.2013, Síða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013
Byltingarkenndar rannsóknir sýna að lífvirka efnið í brokkolí, sulforaphane, hindrar
hrörnun fruma og stuðlar að endurnýjun þeirra - bæði í heilanum og öllum líkamanum
Getur haft frábær áhrif á heilsu og útlit
• Hjálpar líkamanum að halda heilbrigði
Stuðlar bæði að fyrirbyggjandi heilsuvernd og uppbyggjandi áhrifum til bættrar heilsu
• Spornar gegn ótímabærri öldrun – á líkama og sál
Getur hægt á öldrunarferlinu og dregið úr sýnIlegum áhrifum öldrunar á útlitið
Einföld leið til að njóta þess áhrifaríkasta úr brokkolí
- sulforaphane ... náttúrulega yngri !
Verndaðu frumurnar þínar !
Brokkolítöflurnar - Cognicore® Daily
Cognicore byggir á sulforaphane úr
lífrænt ræktuðum brokkolí-spírum að
viðbættu túrmeric og selenium
Fást í heilsubúðum
og apótekum
brokkoli.is
Tvær á d
ag!
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Kíktu á stöðuna í fjármálunum og
taktu með í reikninginn að upphæðin á korta-
reikningnum er farið fé. Settu þér mörk, því
annars er hætt við að allt misheppnist.
20. apríl - 20. maí
Naut Engum stendur ógn af metnaði þínum
heldur verður þú þvert á móti hvattur til að
láta í þér heyra. Láttu einkamálin hafa for-
gang.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú getur aðeins sjálfum þér um
kennt ef verkefnin eru að vaxa þér yfir höfuð.
Hlustaðu vandlega á það sem sagt er og
reyndu að draga lærdóm af því.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þegar þú gerir þitt besta þá er það
ekki bara nóg, heldur miklu betra en það sem
allir aðrir gera. Margir hringja í þig og margt
sem beðið er um hljómar undarlega.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Íhugaðu hvort þú átt það til að missa
trúna á sambönd rétt áður en að þau færast
upp á næsta stig. Haltu svo áfram þegar nið-
urstaðan liggur fyrir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert tilfinningalega hrærður og því
ekki fær um að taka skynsamlegar ákvarð-
anir. Við þurfum öll að ganga frá skriffinnsku
svona endrum og sinnum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Reyndu að láta aðra um sem flest atriði
og einbeittu þér að þeim, sem mestu máli
skipta. Ekki humma það fram af þér. Ein-
hverjir gerbreyta lífi sínu hugsanlega í dag.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þig langar mest til þess að lyfta
þér upp í dag. Taktu sérstakt tillit til þeirra,
sem fullorðnir eru, þótt þeir geti ekki alltaf
launað fyrir sig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Af einhverjum ástæðum ertu
staðráðin/n í að fá þínu framgengt í vinnunni
og á heimilinu í dag. Farðu í gegn um geymsl-
una og hentu öllu því sem umfram er.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er góður tími til að skipu-
leggja ferðalag eða framtíðina í dag. Reyndu
að koma skipulagi á hlutina áður en lengra
líður á árið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er mikil kúnst að stjórna öðru
fólki. Taktu eitt fyrir í einu og lofaðu svo ekki
upp í ermina á þér í framtíðinni. Bíddu í
nokkra daga með að segja skoðun þína.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhver reynir að setja þér stólinn fyr-
ir dyrnar og þú þarft að komast að því hvað
fyrir honum vakir. Sambönd við maka og aðra
koma þér að gagni núna.
Páll Imsland bregður á leik í limru: Það er í veröldu welskast,
sem viðkvæmur mælti sir Felsgast
við ágæta frú sína:
„Þú ert algjör rúsína.“
Og svo héldu þau áfram að elsgast.
Eitthvað hefur aldurinn plagað Ár-
mann Þorgrímsson þegar hann kast-
aði fram:
Saga um elli-unaðinn
ekki reyndist trúverðug.
Meiri lygalaupurinn
sem lét sér detta þetta í hug.
Ágúst Marinósson sendi Ármanni
óðar kveðju:
Þó ellin sé þér ærið streð
á endaspretti sínum
aðra gleður óspart með
yrkingunum þínum.
Jón Gissurarson skrifaði í gestabók
hjá einum sveitunga sínum, en hún
átti fimmtudagsafmæli á dögunum:
Æskuskeiðið aðeins dvín
ei þótt lífið saki.
Fimmtíu árin fögur þín
felast nú að baki.
Brynjólfur Einarsson orti einnig
vísu í fimmtudagsafmæli konu. Hún
hafði verið hrafnsvört á hár en var
komin með hvítan hring á jaðri kolls-
ins. Að öðru leyti var hárið ennþá
svart og glansandi fagurt:
Fjallið hrím um brúnir ber,
barið gjósti veðra
meðan hlíðin ennþá er
öll í blóma neðra.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir
um „ónefndan lækni“:
Ef þú finnur fólk í sleik
(frumstæðum að sinna þörfum)
má það kalla læknisleik
ef læknirinn er hættur störfum?
Og hann bætir við vegna fregna
úr ranni náttúrufræðinga að kúlu-
skítur sé að deyja út í Mývatni, en
rannsóknir á þeim ósköpum standa
yfir:
Steðjar að vá um vatnaslóð,
vísindin málið skoða.
Nú væri Detox-drullan góð
og drjúgt mætti í kúlur hnoða.
Það væri til lítils að skrifa Vísna-
horn ef ekki væri fyrir alla góðkunn-
ingjana sem gauka að umsjón-
armönnum þáttarins vísum. Einn
þeirra kallar sig Johann Frauenlob.
Hann kom á góðan samkomustað og
varð að orði:
Hér má finna fljóðin mörg
(fyrir sum ég klifi björg!),
en í lögun alla vega,
flest þó mögur mátulega!
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af aldri, yrkingum
og ónefndum lækni
Í klípu
„ÉG MYNDI SEGJA AÐ ÞÚ ÆTTIR 6
MÁNUÐI. ÞRJÁ EF ÞÚ FLÝTIR ÞÉR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„GET ÉG FENGIÐ HATTINN ÞINN?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það sem vegur meira
en annað.
HVERNIG MYNDI
ÉG LÝSA JÓNI?
DAGDREYMINN …
GÓÐUR … BLÍÐUR … … ELSKAR
TYGGJÓ.
EINN DAGINN MUN
ÞETTA ALLT VERÐA
ÞITT, SONUR SÆLL!
EF ÉG ÞARF EKKI AÐ SELJA
ÞETTA TIL AÐ BORGA
FYRIR SKÓLANN …
Víkverji var dreginn upp úr sóf-anum kvöld eitt fyrir skemmstu,
drifinn út í bíl og sagt að mikið lægi
við. Áfangastaðurinn var Grótta og
ætlunin að sjá sólina setjast. Tíma-
setningin á ferðalaginu var full-
komin. Þegar komið var að hring-
torginu þar sem Hringbraut sleppir
var sólin rétt yfir sjóndeild-
arhringnum með Snæfellsjökul sér
við hlið og sló gullnum roða á mar-
íutjásurnar, sem skreyttu himininn.
x x x
Sólarlagið trekkir greinilega.Meðfram strandlengjunni var
fjöldi manns, ýmist á hjólum, úti að
skokka eða með hundinn. Margir
voru með myndavélar á lofti. Úti við
Gróttu var orðið fátt um bílastæði.
Þar stillti fólk sér upp fyrir mynda-
vélar á meðan eldhnötturinn seig
niður fyrir sjóndeildarhringinn.
„Maður þekkir engan hérna,“ sagði
ung stúlka, sem var með vinkonu
sinni. „Ég heiti Jón,“ sagði þá mað-
ur, sem stóð með myndavél. Í sand-
inum höfðu þrír menn komið sér fyr-
ir með fjórar myndavélar á þrífótum
og reyndu að frysta augnablikið.
x x x
Sýningin stóð þó ekki lengi. Eftirað sólin snertir sjóndeild-
arhringinn er hún fljót að hverfa nið-
ur fyrir hann. Það ætti ekki að koma
á óvart að það gerist hratt því að yf-
irborð jarðar er á 1.675 km hraða á
klukkustund eða 465 metra hraða á
sekúndu. Það er langt yfir leyfileg-
um hámarkshraða og er Víkverji því
fegin að fundist hafa ýmis nátt-
úrulögmál, sem gera að verkum að
hann finnur ekki fyrir hraðanum.
Hann hefði ógjarnan viljað þurfa að
halda sér í allt sitt líf til að tolla á
sama stað.
x x x
Hann fór líka að velta því fyrir sérhvernig á því stæði að þótt hátt
í hálft árþúsund væri liðið frá því að
maðurinn áttaði sig á því að jörðin
snerist um öxul sinn og væri á braut
umhverfis sólina bæru málvenjur
enn vitni trúnni á jarðarmiðjukenn-
inguna. Við tölum enn um sólarupp-
rás og segjum að sólin hnígi til viðar.
Slíkur er máttur vanans.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Við erum smíð Guðs, sköpuð í Kristi
Jesú til góðra verka sem hann hefur
áður fyrirbúið til þess að við skyldum
leggja stund á þau. (Efesusbréfið 2:10)