Morgunblaðið - 08.08.2013, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 08.08.2013, Qupperneq 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013 Í tilefni Hinsegin daga í Reykjavík verður opnuð sýningin Hinsegin fólk í máli og mynd í Þjóðminjasafni Íslands í dag klukkan 16. Á sýningunni tjá þrettán ein- staklingar skoðanir sínar og tilfinn- ingar. Þeir eru á ýmsum aldri og úr ýmsum áttum og hafa komið við sögu hinsegin fólks á Íslandi með einum eða öðrum hætti í gegnum tíðina. Þessir þrettán aðilar bera tíðarandanum skýr merki. Það fólk sem lagði baráttunni lið þegar hún var hörðust tók einkum til máls á níunda og tíunda áratug liðinnar aldar og frá þeim tíma eru flestar tilvitnanirnar sem lesa má á sýning- unni. Sýningin er unnin í samvinnu Þjóðminjasafns Íslands, Samtak- anná78 og Hinsegin daga í Reykja- vík. Í tengslum við sýninguna stend- ur Þjóðháttasafn Þjóðminjasafnsins fyrir rannsókn í þeim tilgangi að safna upplýsingum um samkyn- hneigð á Íslandi. Spurningaskrár hafa verið sendar út en eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Þjóð- minjasafnsins. Hinsegin dagar hófust í gær og stendur hátíðin fram á sunnudag. Þetta er í fimmtánda sinn sem há- tíðin er haldin en hún hefur vaxið og dafnað með hverju árinu líkt og sjálfsögð mannréttindi samkyn- hneigðra hafa gert í hinum vest- ræna heimi á undanförnum árum og áratugum. Íslendingar hafa tekið hátíðinni vel sem hefur mikla þýðingu fyrir samkynhneigða, tvíkynhneigða og transfólk á Íslandi. Margt verður um að vera á hátíð- inni í ár, m.a. ljósmyndasýning í Norræna húsinu sem nefnist Hin- segin Grænland og þá fer Gleði- gangan sjálf fram á laugardaginn. vilhjalmur@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Baráttudagar Hinsegin dagar í Reykjavík gengu í garð í gær, boðið verður upp á fjölbreytta viðburði, en hátíðin stendur fram á sunnudag. Tilvitnun í baráttu samkynhneigðra  Fjöldi viðburða á Hinsegin dögum Ljóðskáldið og útgefandinn Sus- ana Gardner frá Zürich í Sviss er í stuttu stoppi á Íslandi og ætlar að nýta það vel og m.a. ræða um óhefðbundnar útgáfur, al- þjóðlegu ljóða- senuna og út- gáfufyrirtækið sitt DUSIE. Spjallið við Susana Gardner fer fram á farfuglaheimilinu Loft í Bankastræti 7, á fjórðu hæð húss- ins. Hún mun einnig lesa upp úr ljóðum sínum en hún er höfundur ljóðabókanna Herso, Lapsed Insel Weary og Caddish. Ljóð eftir hana hafa birst bæði í vefútgáfum og prentmiðlum, svo sem Jacket, How2, Puerto Del Sol, og Cam- bridge Literary Review. Verk hennar hafa einnig verið gefin út í safnritum. Dagskráin er skipulögð af Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO. Allir eru velkomnir. Ljóðskáldið segir frá óhefðbundinni útgáfu Susana Gardner ljóðskáld Tónlistarmaðurinn UmmiGuðmundsson er Íslend-ingum þekktur sem annarhelmingur Sólstrandagæj- anna ásamt Jónasi Sigurðssyni. Jón- as hefur þegar gert gott mót, þá sér- staklega með nýjustu plötu sinni Þar sem himin ber við haf, sem kom út í fyrra. Það vakti því nokkra eft- irvæntingu að sjá að hann tók þátt í gerð og vinnslu nýjustu plötu Umma, Stundum er minna meira. Öll umgjörð og vinnsla plötunnar er til fyrirmyndar; platan er hvort- tveggja gefin út á vínil og á geisla- disk. Umgjörðin er því miður sterk- asta hlið plötunnar. Undirleikurinn er á köflum mjög skemmtilegur, og minnir stundum á þjóðlagastíl Bob Dylans eða rólegri lög síðustu plötu Tom Waits. Þrátt fyrir allt þetta verður því miður ekki hjá því kom- ist að benda á hið augljósa: platan er bara ekki nógu skemmtileg. Textarnir eru alltof oft sífelld endurtekning á sömu línunni, sem vinnur stórkostlega gegn lögunum, sérstaklega í titillagi plötunnar, Stundum er minna meira, þar sem línan „stundum er minna meira“ er síendurtekin og brýtur með hverri endurtekningu gegn boðskap lags- ins. Það á raunar við um flest ef ekki öll lögin á plötunni. Textarnir virð- ast oft stefnulausir og settir inn í laglínuna til að vera eitthvert yfirlag yfir tónlistina, sem er talsvert skemmtilegri en textarnir. Rímorð- um er að sama skapi troðið inn í lín- urnar í anda Veðurguðanna með misjöfnum árangri. Þetta minnir undirritaðan um margt á þarsíðustu plötu Sólstrandabróður Umma, Allt er eitt hvað. Meginuppistaðan í þeirri plötu var sífelld endurtekning á grípandi línum, sem að vísu voru keyrðar áfram af meiri krafti en á þessari plötu, sem er eins og áður segir í skemmtilegum þjóðlagastíl, með stöku banjói og munnhörpu inni á milli. Ef Ummi fetar í fótspor sam- starfsfélaga síns Jónasar og setur sál í textana, í stað þess að end- urtaka í sífellu að árstíðaskipti hafi orðið, þá gæti það vel orðið hin besta skemmtun. Röddin hans minnir líka örlítið á Rod Stewart, en hann virð- ist forðast að taka áhættur með henni, en uppsker í besta falli í með- allagi eftir því. Platan líður því hjá án þess að ná neinu flugi. Það er helst í laginu „Skiptir ekki máli“ þar sem Ummi sýnir hvað býr í röddinni hans. Því miður þá gerir hann of lítið af því, fyrir utan að röddin týnist í undarlega samansettum textum. Kannski þurfum þarf bara að gera eins og hann margbiður okkur um í fyrsta laginu: að bíða eftir honum og sjá hvað hann gerir næst. Stundum er minna vissulega meira Ummi Platan nær ekki háu flugi en undirleikurinn er á köflum skemmtilegur. Ummi – Stundum er minna meira bbnnn Breiðskífa tónlistarmannsins Umma. Lög og textar eftir Umma. Um upp- tökustjórn sáu Ummi og Hafþór Karls- son Tempó. GUNNAR DOFRI ÓLAFSSON TÓNLIST GAMLI ÍSINN - ÞESSI ÍSKALDI Skalli • Ögurhvarfi 2 • 203 Kópavogi • Sími 567 1770 • Opið alla daga kl. 10 - 23 Danski farandleikhópurinn Teater Patras- ket frá Kaupmannahöfn mun dvelja í Ed- inborgarhúsinu á Ísafirði 12.-16. ágúst en hann sérhæfir sig í sýningum fyrir börn og ungt fólk. Hópurinn vinnur um þessar mundir að nýrri sýningu sem frumsýnd verður í Kaupmannahöfn í febrúar á næsta ári og hefst undirbúningsvinnan á Ísafirði. Vigdís Jakobsdóttir leikstýrir hópnum en sýningin sem unnið er að ber vinnuheitið Leyndarmálakassinn og felst hluti und- irbúningsvinnunnar í því að leita eftir sög- um frá ungmennum á Ísafirði, sögum sem tengjast leyndarmálum, leynistöðum, leyni- félögum og öllu mögulegu leynilegu, eins og segir í tilkynningu. 11-14 ára Ísfirð- ingar sem hafa áhuga á því að hjálpa leik- hópnum geta gert það með því að taka þátt í vinnusmiðju sem haldin verður þriðjudag- inn 13. ágúst. Til að skrá sig í hana þurfa þeir að senda Vigdísi tölvupóst fyrir laugardaginn næsta, 10. ágúst, á netfangið: vigdisjak@gmail.com. Farandleikhópur Kynningarmynd af danska leikhópnum Teater Patrasket sem dvelur nú á Ísafirði og vinnur að nýrri sýningu. Danskur leik- hópur leitar til ungmenna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.