Morgunblaðið - 08.08.2013, Síða 35

Morgunblaðið - 08.08.2013, Síða 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2013 6.900 7.300 5.990 5.990 5.990 Í fremstu röð í 20 ár... Humarhúsið 101 Reykjavík · humarhusid@humarhusid.is Amtmannsstíg 1 sími: 561·3303 Skipuleggjendur Iceland Airwaves tilkynntu í gær um 50 listamenn og hljómsveitir sem koma fram á há- tíðinni í ár, til viðbótar við þá sem þegar hafa verið kynntir til sög- unnar. Þeir sem bætast í hóp flytj- enda eru (þjóðerni erlendra í sviga) Sóley, Savages (Bretland), Jon Hopkins (Bretland), John Grant (Bandaríkin), Mykki Blanco (Bandaríkin), Mac DeMarco (Kan- ada), Lay Low, Villagers (Írland), PAPA (Bandaríkin), Empress Of (Bandaríkin), Lescop (Frakkland), Agent Fresco, Young Fathers (Skotland), For a Minor Reflection, Slow Magic (Bandaríkin), kimono, We Are Wolves (Kanada), Ghost- igital, Dikta, San Fermin (Banda- ríkin), Berndsen, Baby in Vain (Danmörk), Sean Nicholas Savage (Kanada), Cousins (Kanada), Úlfur Úlfur, Aaron and the Sea (Banda- ríkin), Biggi Hilmars, Kithkin (Bandaríkin), Eldar, Epic Rain, The Balconies (Kanada), Futuregrap- her, Nordic Affect, Ylja, Wistaria, Tonik, Sindri Eldon and the Ways, Good Moon Deer, Rökkurró, Kött Grá Pjé, Jóhann Kristinsson, Kajak, Sometime, Saktmóðigur, Hudson Wayne, Boogie Trouble, Tanya & Marlon, M-Band, Original Melody og Nolem. Frekari upplýsingar um hátíðina og tónlistarmennina má finna á icelandairwaves.is. Danir Baby in Vain er ein fjölmargra hljómsveita sem koma fram á Iceland Airwaves í ár. Hátíðin hefst 30. október og lýkur 3. nóvember. 50 listamenn kynntir til viðbótar á Airwaves Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Myndlistarkonan Berglind Jóna Hlynsdóttir og tónlistarmaðurinn Guðmundur Steinn Gunnarsson sýna saman verk sitt í Hljómskál- anum og verður sýningin opnuð með verki þeirra í kvöld klukkan sex. „Í raun er það hljómskálinn sjálfur sem flytur verkið. Hljómskálinn fær orð- ið, hann fer að tjá sig um sögu sína, borgina, nútímann og framtíð sína. Á sama tíma hleypur hann um hljóð- sögu sína eins og sjálfspilandi píanó, blandar henni saman og sýður í ný verk þannig að úr verður einskonar kakófónía sjálfsins eða sjálfsampl- andi sjálfsköðun skálans,“ segir Berglind. Verk Berglindar og Guð- munds er hljóðinnsetning og mynd- verk í almenningsrými sem nýtir Hljómskálann sjálfan Byggingar í almenningsrýmum Aðferðafræði verksins byggist á rannsóknum Berglindar Jónu Hlynsdóttur á almenningsrýmum en hún hefur unnið að því að búa til einskonar sjóntæki úr minn- isvörðum, húsum og öðrum strúkt- úrum sem liggja við almennings- rými. „Verkið er byggt á rannsókn á sögu hússins, þeirri starfsemi sem þar hefur þrifist, hljóðverkasögu þess, blaðaumsögnum og þeirri þjóð- félagsumræðu sem skálinn hefur verið aðalpersóna í frá byggingu sinni til dagsins í dag. En einnig á viðtölum við núlifandi aðstandendur hússins og samtölum við borgarbúa um skálann. En þrátt fyrir að verk- inu sé gefinn grunnur í sögunni er þetta sögulegur skáldskapur sem tekur flugið inní kímni og tónheim sögupersónunnar,“ segir Berglind en byggingar í almenningsrýmum hafa lengi heillað hana. „Form skál- ans er mjög skemmtilegt og hlut- verk hans er mörgum hulið þó við vitum mörg að þar æfir Lúðrasveit Reykjavíkur. Staðsetningin í al- menningsrými er líka mjög skemmtileg en þá ganga ein- staklingar að listinni án þess að vera að sækja það sérstaklega t.d. í lista- söfn eða listasýningar á öðrum stöð- um.“ Renna saman listaformum „Verkið er jafn mikið tónlist- arverk og það er myndlistarverk enda rennum við saman aðferðinni við tónsmíði og tilraunamennsku Guðmundar við myndlistina mína og saman sköpum við nýja aðferðafræði í gegnum ferlið á verkinu.“ Meðan á sýningartíma stendur mun Guðmundur Steinn frumflytja nýtt verk ásamt hljómsveit sinni Fersteinn sem í eru þau Lárus Grímsson, stjórnandi Lúðrasveitar Reykjavíkur, Bára Sigurjónsdóttir sem hefur spilað í Lúðrasveitinni til margra ára og Pál Ivan Pálsson, tón- skáld og myndlistarmaður. „Tón- verkið fléttast að hluta til inn í frá- sögnina af Hljómskálanum en hefur sitt eigið líf, vex út úr byggingunni og 8 hliðum þess. Verkið skiptist í raun í 64 tilbrigði sem verða leikin átta í senn á alls átta tónleikum. Umhverfi, saga og staðsetning Hljómskálans leikur hér mikið hlut- verk,“ segir Guðmundur og bendir á að það sé fyrst og fremst Hljómskál- inn sem hafi orðið. Verkið er flutt af Hljómskálanum í Hljómskálagarð- inum við Tjörnina á horni Skot- húsvegar og Sóleyjargötu í kvöld og fram til 25. ágúst. Listamenn gefa Hljómskálanum orðið  Listasýning um Hljómskálann opnuð í skálanum í kvöld Morgunblaðið/Arnaldur List Listamennirnir Berglind Jóna Hlynsdóttir og Guðmundur Stein Gunn- arsson opna sýningu í Hljómskálanum þar sem skálinn sjálfur fær orðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.